Nýtt dagblað - 03.07.1941, Blaðsíða 1
Þýzkir skriðdrekar.
r rí»
iraiEiHii m lerslns.
Þjódverjar segjast hafa handtehíð 100 þils.
manna her vlð Bíalystok
í útvarpi frá London í gær segir svo um hernaðinn á
austurvígstöðvimum: Þó að þýzki herinn sæki fast fram,
veitir sovétherinn honum hina harðvítugustu mótspyrnu.
Segir útvarpið svo frá að Sovéthernum takist mjög að
hindra að fótgöngulið Þjóðverja geti fylgt skriðdrekasveit-
unum eftir. Þjóöverjar segjast hafa gersigrað hinn um-
kringda her Sovétríkjanna við Bialystok og tekið þar 100
þús. fanga. Þessi frétt hefur ekki hlotið neina staðfestingu
af hálfu Sovétríkjanna. Þjóðverjar segjast hafa tekið borg-
ina Windau í Lettlandi, en viðurkenna, að þar hafi verið
um harðvítuga mótspymu að ræða.
Enska útvarpið segir, að af fregnum þessum sé ekki
vel Ijóst, hvemig málin standi í raun og veru, en Þjóðverjar
tilkynni einkum þrjá mikilvæga sigra: í fyrsta lagi, að þeir
hafi sigrað her Sovétríkjanna við Bialystok, annað, að við
Windau hafi þeir umkringt hersveit, sem ekki verði undan-
komu auðið, og í þriðja lagi sæki her inn í Ukraine og sé
hann kominn miðja vegu til Kiev. En jafnframt viðurkemia
þeir, að víða séu háðar harðar orustur að baki vélahersveit-
imurn. Hemaðaryfirvöld Sovétríkjanna minnast ekki á
neina sigra eða framsókn Þjóðverja á þessum sióðiun.
Þjóðverjar segja, að Rússar berjist af miklum móði,
og að Rauði herinn sé miklu harðskeyttari en herir Rússa
voru í síðustu heimsstyrjöld.
\
Dregutr úr sigurtílkynníngum Þjóðverja
Þjóðverjar telja sig hafa far
ið yfir landamæri Finnlands
og Sovétríkjanna á tveimur
stöðum, og segjast þeir hafa
truflað samgöngur efth* Mur-
mansk j ámbrautinni.
Brezka útvarpið hefur orð
á því, að Þjóðverjar taki nú
ekki eins djúpt í árinni og
áður um að þeir hafi eyðilagt
rússneska flugflotann, heldur
láti sér nægja að segjast hafa
veikt hann að mun.
Herstjórn Sovétríkjanna
segir, að flugfloti þeirra hafi
haft sig mjög í frammi, og
hafi þeir á mánudaginn skot-
ið niöur 102 flugvélar en 54
á þriðjudaginn. Lundúnaút-
varpið flytur einnig þá til-
kynningu frá Rússum, að í
Eystrasalti hafi rússnesk flota
deild gert mikinn skaða á her
skipum Þjóðverja og við Kon-
stanza, flotahöfn Rúmeníu,
hafi þeir sökkt þýzkum kaf-
Framh. á 4. síðu.
Hermdarverk í Ung
verjalandí
Lundúnaútvarpið skýrir frá
því, að síðastliðinn föstudag
hafi olíuhreinsunarstöð í Ung
verjalandi veriö sprengd í loft
upp.
Vörusala sambandsíns óx um 6 millj-
ónír króna á síðasflíðnu árí
Aðalfundur Sambands is-
lenzkra samvinnufélaga hefur
staðið yfir undanfama daga
á Akureyri og sóttu hann 70
fulltrúar frá öllum gildum fé-
lögum sambandsins nema
einu. Fundurinn stóð yfir
í 2Vz dag og lauk hon-
um í gær. Fátt markverðra
tíðinda gerðist á aðalfundin-
um.
Á fundinum var birt ýtar-
leg skýrsla um starf sam-
bandsins og hag þess á liðnu
ári. í sambandinu eru 48 fé-
lög með nær hálfu átjánda
þúsundi félagsmanna og fjölg
aði þeim um 1071 á árinu.
Vörusala sambandsins
(bæði innlendar og erlendar
vörur) nam 38,8 milljónum
króna, og er sú upphæö um
6 milljónum króna hærri en
á fyrra ári. Stofnsjóður óxum
211 þúsund krónur og tekju-
afgangur varð 826 þús, kr.
Úr stjórn S.Í.S. áttu að
ganga Björn Kristjánsson
kaupfélagsstjóri á Kópaskeri
og Jón ívarsson kaupfélags-
stjóri í Horpafirði. Voru þeii'
Síðtisfu fregnír;
Rfssar lílkiiDa afl eClalersuiltiFiir nilli
Moskuiiog liiosk loli ooriO oMiMor
Rússar tilkyrmtu í gær-
kvöldi, að þeir hefðu eyðilagt
vélahersveitirnar, sem sóttu
fram frá Minsk áleiðis til
Moskva. Harðir bardagar
standa yfir við Múrmansk,
við Dvínafljótið og í Suður-
Póllandi. Bæði á finnsku
landamærunum og í Suð-
ur-Póllandi hafa Þjóðverj-
ar sett niður sveitir fallhlífar-
hermanna, en þær voru al-
gerlega eyðilagðar.
Mófþróínn magnasf í herfeknu löndunum
í Búdapest í Ungverjalandi
hafa bændum verið bönnuð
fundahöld, af því þeir hafa
látiö í ljós andúð, gegn stríð-
inu á móti Rússum.
í Júgóslavíu og Bosníu
hvetja verkamenn og bændur
til skemmdarstarfsemi. 5
verkamenn hafa veriö teknir
fastir og 4 þeirra líflátnir.
Þrátt fyrir fjöldahandtökur
og líflát í Rúmeníu er flug-
miðum dreift um allt landið,
þar sem hvatt er til mótþróa
og skemmdarstarfsemi.
Herréttur Þjóðverja í Haag
dæmdi 18 verkamenn í Haag
til dauða fyrir skemmdarstarf
semi. Allir mennirnir voru taf
arlaust teknir af lífi.
báðir endurkosnir. Þá voru og
endurkosnir í varastjórn þelr
Jens Figved kaupfélagsstjóri í
Reykjavík, Jón Þorleifsson frá
Búðardal og Skúli Guðmunds
son á Hvammstanga. Vilhjálm
ur Þór var kosinn varafor-
maður.
Fulltrúarnir úr Reykjavík
sem sátu aðalfundinn Koma
væntanlega hingað í kvöld.
RIMssllörnio Iflor
ot 3 oHlllðna inn-
Ríkisstjórnin bauð í gær úl
nýtt innanríkislán, að upp-
hæð 5 milljónir króna. Er lán
þetta viðauki við lán það, að
upphæð 5 milljónir króna,
sem boðið var út um nýárið
ií vetur, samkvæmt heimild
bráðabirgðalaga. Alþingi hækk
aði lánsheimild bráðabirgða-
laganna upp í 10 milljónir kr.
og er hið síðara lánsútboð
seinni helmingur lánsins.
Lánin eru handhafaskulda-
bréfalán, sem hljóða upp á
kr. 5.000,00, kr. 1.000,00 og kr.
100,00. Lánið verður endur-
greitt með jöfnum árlegum
afborgunum á 25 árum og ea
gjalddagi afborgana 1. janúar
ár hvert. Vextir eru 4(4%, en
eins og kunnugt er, þá eru
vextir af sparisjóösinnlánum
Landsbankans ekki nema 3%
og aðrir innlánsvextir enn
lægri.
Sala skuldabréfanna hefst
í dag og geta menn skrifað
sig fyrir lánunum í fjármála-
ráðuneytinu, bönkum og spari
sjóðum bæjarins, hjá kaup-
höllinni og flestum mála-
færslumönnum bæjarins, og
verða bréfin svo síðar afhent
á sömu stöðum.
Vilhelmína Hollandsdrottn-
ing hélt ræðu í London um
hetjudáð þéssara 18 verka-
Framh. á 4. síðu.