Nýtt dagblað - 31.03.1942, Page 2
NÝTT DAGBLA Ð .
Þriðju&agur 31. márz 1942
St. Mínerva nr. 172,
heldur hátíðlegt
25 ára afmælí
sitt í dag, þriðjudaginn 3 i. marz
kl. 8 e. h. í stóra sal Góð-
templarahússins. V erður þar
kaffidrykkja, ræðuhöld, söngur
(einsöngur) og dans.
Félögum stúkunnar er heimilt
að taka með sér gesti. Aðeins
templarar geta fengið aðgang,
meðan húsrúm leyfir. Aðgöngu-
miðar afhentir í skrifstofu Stór-
stúku íslands, Kirkjutorgi 4, í dag
kl. 2—6.
Á hverjum sunnudegi birtir
Morgunblaðið Reykjavíkurbréf.
Bréf þessi skrifa ýmsir af stærri
spámönnum Sjálfstæðisflokksins,
en þó oftast Magnús Jónsson
prófessor í guðfræði og Valtýr
Stefánsson ritstjóri. Á s.L sunpu-
dag voru bréf þessi óvenjulega
hreinskilin, sennilega hefur Magn
ús skrifað þau. En hvað sem um
það er, þá er víst að höfundur-
inn hefur fundið þörf hjá sér til
að skrifa og hann birtir, þó að
nokkru leyti undir rós sé, megin-
atriðin úr stefnu þeirri, sem
Thorsfjölskyldan hefur ákveðið
að flokkurinn skuli fylgja í nán-
ustui framtíð — hann birtir sann
leikann um Sjálfstæðisflokkinn,
og auðvitað um leið lygina um höf-
uðandstæðinginn, Sósíalistaflokk-
inn, sem hahn kallar kommúnista
flokk, því það er einn augljós-
asti sannleikurinn um Thorsai’a-
forustuna í Sjálfstæðisflokknum,
að um andstæðinga sína segir
hún aldrei satt orð, — Thorsar-
arnir hafa ekki til einskis verið
með Jónasi —.
En nú skulum við snúa okkur
beint að Reykjavíkurbréfunum.
„Breyttír fímarM
Þessi bersöglisræða Reykjavík-
urbréfanna'- hefst á kafla um
breytta tíma, þar segir svo:
,,Síðan fjárhagur almennings og
ríkissjóðs batnaði, sækir sýni-
lega í hið sama gamla horf. Nú
finnst öllum illindamönnunum
þeim sem þurfa að berjast með
kjaftinum, baknaga, rógbera og
níða náungann, að nú megi taka
upp hina sömu þjóðlegu iðju me
fullu offorsi og ákafa, til þess
að vinna upp þau tækifæri, sem
kunna að hafa verið ónotuð, með-
an ofurlítið var dregið úr deilun-
um, vegna tómahljóðsins í ríkis-
fjárhirslunni”.
Svo mörg eru þau orð. Hvað
finnst yður um orðbragðið, finnst
your ekki höfundurinn muni sóma
Gúmmístakkar
níðsterkir
fást í
VOPNA
Aðalstraeti 16.
Heít og böld
svíd
allan daginn
Kaffísalan
Hafnarsfreefí 16
ooooooooooooooooo
Heíðruðum bæp
arbúum
tilkynnist að frá og með mánu-
deginum 30. þ. m. hækka
flestir liðir verðskrár okkar lít-
ilsháttar.
N. B. Á miðvikudaginn fyrir
skírdag verða rakarastofurnar
opnar til kl. 8 síðd.
Lokað verður kl. 6 eftir hád.
laugardaginn fyrir páska.
Rakarameistarafélag
Reylyavíkur.
sér vel á freinsta bekk ,,illinda-
rnanna”? Getur nokkrum dulizt,
að einmitt hann telur sig nú
þurfa ,,að berjast með kjaftinum,
baknaga, rógbera og níða náung-
ann” ?
Ef einhver skyldi enn ganga
þess dulinn, þá þarf hann ekki
annað cn að lesa það, sem síðar
verður upp tekið af hans eigin
orðum í þessari grein, til að
augu hans opnist.
En hvenær var það, sem þessi
forustumaður Sjálfstæðisflokks-
ins taldi rétt að gera ofurlítið
hlé á „baknaginu”, , rógburðin-
um” og „níðinu” um ,,náungann”?
Það var hérna á ánmum, þegar
Kveldúlfur skuldaði bönkum
þjóðarinnar 8—10 milljónir króna
-- það var þegar Landsbankinn
var búinn að fá einni fjölskyldu
1 vöfalt stofnfé sitt til umráða,
þá var dregið úr ,,baknaginu”,
„TÓgburðinum” og „níðinu” um
þá stjórnmálamenn sem talið var
líklegast að hægt væri að blekkja
til þess að svíkja umbjóðendur
sina, stefnu sína og þjóð sína og
ganga í hið mikla „heimavamar-
Ilð” Thorsaranna, sem hafði það
híutvprk að bjarga völdum einn-
ar fjölskyldu, völdum hennar yfir
fé og framleiðslutækjum.
Hvert sporið öðru stærra hefur
verið stigið í þessa átt. Skatt-
frelsi stórútgerðarinnar, verðfell-
ing krónunnar, bann við kaup-
liækkunum o. s. frv., o. s. frv.
og nú þegar markinu er náð og
augui sumra þeirra, sem létu
blekkjast eru að opnast, kemur
nöðrukyn Sjálfstæðisflokksins
rægjandi, níðandi og bakbítandi
hvem þann, sem ekki stígur
dansinn frammi fyrir altari
Kveldúlfs.
Á réttu íslenzku máli hljóðar
Llausan, sem að framan er birt
úr Rekjavíkurbréfunum þannig:
,,Siðan fjárhagur” Kveldúlfs
og annan-a stórgróðafyrirtækja
„lór að batna, sækir sýniiega í
hið sama gamla horf. Nú finiist
öllum” þjóiuun Thorsaraættar-
innar, „þeim sem þurfa að berj-
ast með kjaftinum, baknaga,
rógbera og níða náungann, að nú
megi taka upp hina sömu þjóð-
legu iðju með fullu offorsi og á-
kafa”.
Þetta er einn þáttur úr sann-
leikanum um Sjálfstæðisflokkinn,
það er fyrsti þáttur, en fleiri
koma á cftir í eðlilégri atburða
röð.
„ðtefnumíðíd"
Næsti kafli bersöglisræðunnar
heitir ,,stefnumið”. Kaflinn hefst
þannig:
„Hér skal í fám orðum vikið
að þeim stefnumiðum, sem þjóð-
in verður að aðhyllast fyrr eða
síðar, ef hún á að reynast þess
megnug að ráða sér sjálf.
Aðalframleiðslugreinar vorar,
sjávarútvegur og Iandbúnaður,
þurfa að geta unnið saman, svo
óskyldar sem þær eru í eðli sínu.
Sjávarútvegurinn verður að vera
þess megnugur að styðja landbún
aðinn. Þeir sem í sveitunum búa
og vinna þar hin erfiðu störf,
sem oftast gefa lítið í aðra hönd,
verða að nota vald sitt og að-
stöðu i þjóðfélaginu til þess að
li IM u
lUUnenlir
Helgafell. Tímarit um bók-
menntir og önnur menning-
armál. Utgefandi Helgafells-
útgáfan. Ritstjórar Magnús
/ísgeirsson og Tómas Guð-
mundsson.
Hér er myndarlega af stað far-
ið og í mikið ráðizt. Ritstjórarnir
segja í ávarpsorðum : ,,Við, sem
tekið höfum að okkur ritstjórn
þessa tímarits, höfum lengi verið
þeirrar skoðunar, 'að íslenzkum
lesendum og rithöfundum gæti
orðið það nokkur fengur, ef tak-
ast mætti að gefa hér út mánað-
arrit um bókmenntir og önnur
menningarmál, er talizt gæti sam
bærilegt, eftir aðstæðum, við
önnur tímarit slíkrar tegundar
með nágrannaþjóðunum“.
Er auðsjáanlega ekkert til rits-
ins sparað, það er í stóru broti,
prentað á góðan pappír og með
myndum. Og til efnisins er einn-
ig vandað. Þetta fyrsta hefti flyt-
ur grein um styrjaldarhorfur eftir
Jón Magnússon, byrjun á greina-
flokki eftir Barða Guðmundsson
um uppruna íslenzkrar skáld-
menntar, ferðaminningu eftir
Gunnar Gunnarsson og grein um
Georg Brandes eftir Sverri Kristj-
ánsson. Sjálfir leggja ritstjórarnir
til kvæði, ritdóma og ,,léttara
hjal“. Magnús birtir þýðingu á
,,Ef.... “ eftir Kipling (í um-
gerð, sem betur hæfði Fornaldar-
sögum Norðurlanda) og smá-
kvæði eftir Georg Brandes, en
Tómas frumort kvæði, ,,Bréf til
látins manns". Af óbundnu máli
eru ritgerðir Barða og Sverris
veigamestar, en allt er það læsi-
legt.
S. G.
tfy&gja frjálst athafnalíf þeirra,
er sjóinn sækja. Með gulli hafsins
og engu öðru verður framtíð
sveitanna tryggð”. •
Hvað á höfundur Reykjavíkur-
bréfanna við, þegar hann talar um
, frjálst athafnalíf þeirra er sjó-
inn sækja” ? Á hann við, að sjó-
menn eigi að hafa frjálsræði til að
selja vinnuafl sitt eftir því sem
þeir bezt geta á hverjum tíma?
Á hann við að sjómenn ráði því
hvernig útgerðin er rekin, sem
þeir vinna við? Á hann við að
þeir eigi að ráða arðskipting-
unni ?■
Það kann að virðast broslegt
að varpa svona spurningum fram
svo ótvírætt sem staðreyndirnar
svara þeim neitandi. Það vita
allir, að þegar leiðtogar Sjálf-
stæðisflokksins tala um frjálst at-
hafnalíf, meina þeir ótakmarkarð
athafnafrelsi til handa stórat-
vinnurekendum, samfara. stór-
íelldum takmörkunum á athafna
frelsi verkalýðsins og annarra
launþega, þeirra frjálsa athafna-
líf er athafnalíf gerðardómslag-
anna.
Sveitimar eiga að „nota vald
sitt og aðstöðu í þjóðfélaginu til
þess að tryggja frjálst athafna-
llf þeirra, er sjóinn sækja”.
Hvaða „vald” og hvaða ,,að-
staða” er það, sem sveitimar
eiga að nota?
„Vald” þeirra og ,,aðstaða” á
vettvangi stjórnmálanna byggist
á því, að kjördæmum er þannig
skipt í landinu, að eitt atkvæði
Framh. á 4. síðu.
Afmœlisnefndin.
Aðvörun
Heimsóknir til barna að barnahælinu Sólheimum í Grimsnesi eru
bannaðar, meðan hettusótt, kikhósti og aðrar farsottir ganga.
Sesselja Sigmundsdóttir.
Iðja félag verksmíðjufólks*
ÁRSHÁTÍÐ
félagsins verður haldin að Hótel Borg miðvikudaginn I. apríl
kl. 9 e. h.
1. Samkoman sett. (formaður).
2. Einsöngur(Þorsteinn Hannesson).
3. Danssýning: (Sif Þórs).
Aðgöngumiðar á skrifstofu félagsins í dag og á morgun
kl. 5—7 e. h. og við innganginn ef eitthvað verður óselt. —
Samkvæmisklæðnaður ekki nauðsynlegur.
STJÓRNIN
Ný bók eftir Helgu Sigurðardóttur:
Heimilisalmaoak
í bókinni er sagt, hvað borða á hvern dag ársíns. Þar eru
nýjustu leiðbeiningar um bakstur úr heilhveiti án eggja, kafl-
ar um tækifærisveizlur og hátíðamat, borðsiði, hreingerning
á heimilum, hreinsun á fötum og blettum í fötum, og ýmsar
leiðbeiningar, sem hverri húsmóður mega að gagni koma.
— Auk frk. Helgu Sigurðardóttur rita í bókina: Dr. Gunnl.
Claessen um „Umgengni utanhúss“, frú Kristín Ólafsdóttir
læknir um , .Mataræði barnshafandi kvenna", Jón Oddgeir
Jónsson: „Forðist slysin í heimahúsum“, Guðm. Jónsson
kennari á Hvanneyri: „Reikningsfærsla húsmóðurinnar .
Þá er og í bókinni tafla eftir Ingimar Sigurðsson í Fagra-
hvammi, sem sýnir hvenær og hvernig á að sá hverri græn-
metistegund, svo að sem beztur árangur náist.
Þetta er bók allra tslenzkra húsmœðra.
T i I k y n n i n g
Frá og með I. apríl verður allur akstur frá okkur mið-
aður við staðgreiðslu.
Frá sama tíma er öllum reikningsviðskiftum að fullu
lokið.
Virðingarfyllst
Bifreiðastöðin GEYSIR
/
OOOOO