Helgarblaðið - 29.05.1992, Síða 5
Helgar 5 blaðið
Smábátahöfn að rísa á Seltjarnarnesi
„Þetta er framtíðarsvæði,“
sagði Hjörtur Hjartarson, for-
maður siglingafélagsins Sigur-
fara, um væntanlega smábáta-
höfn á suðurströnd Seltjarnar-
ness. I tengslum við athafna- og
þjónustusvæði fyrir bátana verð-
ur útivistarsvæði, enda ströndin
aðlaðandi og stutt með henni út
á golfvöll Seltirninga.
Framkvæmdir við aðstöðu fyrir
smábáta hófust 1983, árið sem
Hjörtur Hjartarson sneri aftur úr
þjónustu Sameinuðu þjóðanna í
Dubai við Persaflóa og tók við for-
mennsku í Sigurfara. Siglingafé-
lagið hefiir sjálft sinnt uppbygg-
ingunni með góðri hjálp bæjarins
og Istaks, að sögn Hjartar. Nú er
bróðurparturinn af skjólgarðinum
sunnanmegin kominn og í sumar á
að setja niður fyrstu flotbryggjuna
með legustæðum fyrir þijátíu og
fimm til fjörutíu báta. „Fyrsti
áfanginn er að komast i gagnið,“
sagði Hjörtur, „og svo vantar okk-
ur garðinn norðanmegin.“
Fyrir utan bátana, sem geta legið
við flotbryggjur í framtíðinni, er
gert ráð fyrir að gamla sjósetning-
arbrautin sem Sigurfaramenn
lögðu sjálfir, geti annað um 50 bát-
um á dag. Fyrir þá báta verður út-
búið rúmgott geymslusvæði, stæði
fyrir sjósetningarvagna og bíla og
viðgerðarverkstæði. Draumurinn
er að þetta verði ekta „marina"
eins og Hjörtur sagði.
Sigurfari hefúr verið með bama-
og unglingastarf á sumrin og að
sögn Hjartar er ætlunin að halda
siglinganámskeið í júlí og ágúst í
sumar. Hann sagði að þar eð að-
staða væri fyrir hendi blómstraði
afbragðs starf og útivist, líkt og í
Nauthólsvík. Markmiðið er að
glæða siglingaáhugann og fá fleiri
til liðs við Sigurfara.
Hjörtur sagði að áhugi á aðstöðu
við Skeijafjörðinn væri mikill.
Höfn á borð við þá sem er að rísa á
Seltjamamesi getur rúmað segl-
báta, vélbáta og trilluútgerð. „Héð-
an er stutt á miðin, rúmt um okkur
Þeyst ó seglbrettum
sunnan vib Sel-
tjarnarnes. Sigl-
ingamenn ó nesinu
telja Skerjafjöröinn
stórkostlegt svæöi
til útivistar og sigl-
inga og reisa þvi
rúmgóóa smóbóta-
höfn með margvis-
legri aóstöðu við
suourströndina.
Mynd: Kristinn.
fyrir siglingamar og
svo er Skerjafjörður-
inn stórkostlegt
svæði,“ sagði Hjörtur
Hjartarson, fúllur
bjartsýni.
Hreinn
gluggi er
piýði sér-
hvers húss
„Gluggaþvottamenn þurfa
að vera vandvirkir og fljótir
að vinna auk þess sem þeir
þurfa að vera eilítið kaldir
kallar en um leið varkárir.
Ennfremur verða þeir að
vera vel á sig komnir líkam-
lega og með gott jafinvægis-
skyn. Hins vegar er sjálfiur
gluggaþvotturinn eins og
hvert annað verkamanns-
starf,“ segir Agnar Hauks-
son gluggaþvottamaður hjá
fyrirtækinu Hreinsýn.
A undanfömum ámm hefur
fjölgað hér á landi fyrirtækjum
sem sérhæfa sig í gluggaþvotti fyr-
ir einstaklinga, fyrirtæki og stofn-
anir. Svo virðist sem næga atvinnu
sé að hafa í gluggaþvottinum á árs-
gmndvelli enda fátt fegurra en ný-
Glugga-
þvottamaður
pússað gler auk þess sem hreinir
gluggar em sannarlega prýði sér-
hvers húss. Starfsemi Hreinsýnar
byggist m.a. á því að fyrirtækið
hefúr fasta viðskiptavini þar sem
ýmist er þvegið vikulega eða á
hálfsmánaðar fiesti og hjá öðmm
líður lengra á milli þess sem þveg-
ið er.
Drulla af völdum
mengunar
Gluggaþvottamenn er einkum að
finna á höfðuborgarsvæðinu en
einnig mun eitthvað vera um þá
norður á Akureyri. A öðmm stöð-
um á landinu virðast fólk þvo sjálft
sína glugga. Þótt þessi atvinnu-
grein sé ung að ámm hér á landi
hafa gluggar verið þvegnir frá því
fyrsti glugginn leit dagsins ljós og
í Evrópu er hefð fyrir þessari at-
vinnugrein. Á sínum tíma, og jafn-
vel enn þann dag í dag, hafa
gluggaþvottamenn verið vinsælt
efni í kvikmyndum og þá kannski
aðallega í grínmyndum þar sem
ýmislegt drífúr á daga þeirra svo
ekki sé minnst á það sem þeir
kunna að sjá í gegnum gluggana.
Agnar segir að þótt ekki sé samið
um það við hvem og einn þá reyni
menn að sýna viðskiptamönnum
sínum ákveðinn trúnað í því sem
þeir kunna að sjá við vinnu sína.
Hann segir að auðvitað geti fólk
þvegið sína glugga sjálft á fyrstu
hæð en málið fer að vandast þegar
þvo þarf glugga sem em kannski á
þriðju hæð og ofar, standandi í
stiga, í körfubíl eða hangandi i
taumi utan á háhýsum.
„Við erum með vatn og sápu
geymt í hólki sem er fastur við
okkur, og einnig kúst og sköfú til
að hreinsa sápuna af gluggunum.
Jafnframt emm við með önnur
tæki til að ná af málningarblettum
og öðrum föstum óhreinindum."
Eins og gefur að skilja er sumar-
ið skemmtilegasti timinn fyrir
gluggaþvottamanninn en veturinn
síðri með kulda og vosbúð.
Agnar, sem hefur unnið við
þessa atvinnugrein í fjögur og hálft
ár, segir að þvi sé ekki að neita að
gluggamir í borginni séu óhreinir.
Einkum er það ryk sem sest á
gluggana, sjávarselta og óhreinindi
sem stafa af mengun. Þar sem mik-
ið er reykt af sígarettum og öðm
tóbaki sest gulur liturinn á innan-
verða gluggana og að utan kemur
dmllan frá útblæstri bifreiða.
Þótt vinnustaðurinn sé oft í mik-
illi hæð þar sem gluggaþvottamað-
urinn stendur efst í stiga, þrífur af
kappi með annarri hendinni en
heldur sér með hinni, hafa menn
ekki orðið fyrir teljandi óhöppum.
„Aðalatriðið er að fara að öllu með
gát og fara ekki hærra en menn
treysta sér til.“
Datt einu sinni
Þrátt fyrir alla varúðina hefúr
Agnar dottið einu sinni úr stiga við
vinnu sína. Það var einn veturinn
þegar hann var að þrifa glugga á
húsi Verkalýðsfélagsins Dagbrún-
ar við Lindargötu. „Það var ansi
hátt fall en ég sýndi líka vítaverða
óvarkámi með því að stilla stigan-
um upp á svelli. Eg lærði af
Agnar Hauksson gluggaþvottamaóur girtur nauösynlegum verkfærum óöur en lagt er i'ann upp
stigann. Myndir: Kristinn.
reynslunni og hef sem betur fer
ekki dottið síðan."
Þótt menn verði að vera vel á
verði í vinnunni, í stiga á þriðju
eða íjórðu hæð, þá gefa menn sér
tíma að hlusta útvarpið sem þeir
em með í eyrunum. „Það em einna
helst lögin við vinnuna, útvarps-
sagan á Rás 1 og fréttir og frétta-
skýringaþættir. Þá er einnig vin-
sælt hlustunarefni á sömu rás, þátt-
urinn Tónmál sem er á dagskrá á
virkum dögum klukkan 11-12 fyrir
hádegi.“ Þess á milli láta menn sér
nægja að hlusta á umhverfishljóðin
og af nógu er að taka i ys og þys
borgarlífsins.
Það er ekki hægt að skilja við
Agnar Hauksson gluggaþvotta-
mann án þess að fá að heyra svo
sem eina sögu úr vinnunni. Af
kunnri hógværð segist hann ekki
hafa lent í neinu sem í frásögur sé
færandi; nefnir þó að einu sinni
hafi sér verið boðið kaffi út um
glugga þar sem hann stóð í stigan-
um á þriðju hæð.
Aflur á móti er það vinsælt efni
meðal gluggaþvottamanna að segja
sögur þar sem lofthræðslan er í að-
alhlutverki. Ein er á þá leið að
maður sem þekktur er fyrir að fara
hærra en aðrir í gluggaþvottinum
var að vinna með öðmm sem hélt
sig sem næst jörðu. Þegar þeir
höfðu unnið um stund fór ofurhug-
anum að leiðast þófið og skipaði
hinum að fara hærra upp í stigann
því þetta gengi ekki svona lengur
að hann væri sífellt í upphæðum
en hinn ekki. Eins og góðum
verkamanni sæmdi hlýddi sá sem
niðri var og klifraði efst upp í stig-
ann. Þegar þangað var komið tók
ekki betra við en svo að kunning-
inn „fraus“ j stiganum og gat ekki
hreyft sig. Á endanum varð að
kalla á kranabíl slökkviliðsins til að
ná honum niður.
-grh
Föstudagurinn 29. mal