Helgarblaðið - 29.05.1992, Qupperneq 7
Helgar ~7 blaðið
Bankaeftirlitíð sá ekki
ástæðu tíl að skoða málið
„Bankaeftirlitið hefur bara
verið heima hjá sér,“ sagði
Sigurðiu- G. Guðjónsson,
lögmaðiu- Fjölmiðliuiar sf.,
á blaðamaimaíundi um
matsgerð á verðmætí
hlutabréfa í Stöð 2 sem fé-
lagið keyptí af Verslunar-
bankanum rétt fyrir ára-
mótin 1989/90. Tveir
dómkvaddir og löggiltir
endurskoðendur komust
að því að bankinn hefði
varupetíð skuldir Stöðvar 2
eða Islenska sjónvarpsfé-
lagsins hf. um 200 miljón-
ir króna.
A sínum tíma sá Bankaeftirlitið
hvorki ástæðu til að hafa afskipti af
viðskiptum Verslunarbankans og
Stöðvar 2 né að skoða það mál sér-
staklega. Forstöðumaður þess telur
enn síður ástæðu til að skoða það
mál núna, sérstaklega í ljósi þess að
Eignarhaldsfélag Verslunarbankans
heyrir ekki undir Bankaeftirlitið
ltekar en önnur eignarhaldsfélög
banka sem eiga hlut í Islandsbanka.
Verslunarbankinn taldi að skuldir
Stöðvar 2 væru 500 miljónir króna
en ekki 700 miljónir eins og mats-
mennimir telja. Sigurður taldi ólík-
legt að yfirmenn bankans hefðu vís-
vitandi blekkt kaupendur hlutabréf-
anna en sagði að um mikið gáleysi
væri að ræða ef bankamennimir
hefðu ekki haft betri yfirsýn yfir
þennan stóra skuldara.
Ef matið er rétt hafa kaupendur
hlutabréfanna verið hlunnfamir.
Matsmennimir meta það svo með
ýmsum reiknilíkönum ávöxtunar-
möguleika að miðað við 700 miljóna
króna skuld en ekki 500 hefði rétt
söluvirði bréfanna átt að vera 127
miljónir króna en ekki 150 miljónir.
Samkvæmt því á Fjölmiðlun sf. 23
miljónir króna inni hjá Eignarhalds-
félagi Verslunarbankans með dráttar-
vöxtum í rúm tvö ár og með skaða-
bótum.
Öll tiltæk rá&
„Bankastarfsemi gengur út á það
að fylgjast með viðskiptavinunum
með öllum tiltækum ráðum, meðal
annars með því að fá ársreikninga
fyrirtækisins og milliuppgjör og ann-
að slíkt. Þau fyrirtæki sem eru ein-
hvers virði eru með löggilta endur-
skoðendur sem staðfesta reikning-
ana, bæði ársreikninga og hlutaárs-
reikninga. Þeir reikningar eiga að
segja til um stöðuna og banki á að
krefjast þess að viðskiptavinir láti
bankanum í té allar þær upplýsingar
sem í reikningunum standa. Þetta er
mjög kerfisbundið gert í viðskipta-
bönkunum," sagði Þórður Ólafsson,
forstöðumaður Bankaeftirlitsins.
Þegar Fjölmiðlun sf. keypti bréfin
af Verlsunarbankanum var tekið mið
af áætlun lánasviðs bankans um
rekstur Stöðvar 2 á árinu 1990. Ekki
voru til ársreikningar fyrir 1989 né
heldur árshlutauppgjör vegna rekstr-
ar á árinu 1989. Aðstandendur Fjöl-
miðlunar sf. höfðu margir átt í mikl-
um og góðum viðskiptum við Versl-
unarbankann og segjast hafa treyst
honum.
Þórður sagðist ekki þekkja þetta
sérstaka mál en sagði að það væri
hlutverk Bankaeftirlitsins að fylgjast
með því að lánastrúktúr banka væri
þannig að hann stefndi honum ekki í
hættu. Bankinn þyrfti að geta staðið
við skuldbindingar sínar. Flann
kvaðst ekki fá séð að Bankaeftirlitið
hefði átt að skerast í leikinn hjá
Verslunarbankanum vegna sölunnar
á hlutabréfunum. „Við stjómum ekki
bönkunum. Menn eru ráðnir sem
bankastjórar og í bankaráð sem
stjóma bönkunum og taka ábyrgð á
sínum gerðum," sagði Þórður.
„Arið 1989 var komin upp sú
staða í rekstri Verslimarbanka Is-
lands hf. að skuldir íslenska sjón-
varpsfélagsins hf. við bankann vom
famar að setja mark sitt á allan rekst-
ur bankans. Bankinn var í stórhættu
ef ekki yrði að gert. Framundan var
sameining fjögurra banka í einn.
Fyrir áramótin reyndi bankinn allt
hvað hann mátti til að reyna að fá
fýrirtæki til að kaupa hlutabréf í ís-
lenska sjónvarpsfélaginu," segir í
greinargerð lögmanns Fjölmiðlunar
sf. um aðdragandann að kaupum fé-
lagsins á 150 miljóna króna hlut.
Áfram segir í greinargerðinni að
gjaldþrot Stöðvar 2 hefði leitt til
hundmða miljóna króna taps bank-
ans og hruns eiginfjárstöðu hans og
gert bankann þannig lítt hlutgengan
sem eignaraðila í hinum nýja ís-
landsbanka sem verið var að stofna.
Eigi að siður keypti Fjölmiðlun sf.
37 prósenta hlut í Stöð 2 og fljótlega
var Þorvarður Elíasson ráðinn sjón-
varpsstjóri. í matsgerðinni er hafl
eftir honum að „í ársbyijun 1990
blöstu við mikil vanskil og halla-
rekstur. Bókhald félagsins var með
þeim hætti að ómögulegt var að átta
sig til fulls á stöðunni fyrr en komið
var fram undir lok október mánað-
ar“.
Nýju eigendumir vöknuðu upp við
vondan draum og leituðu leiðrétting-
ar hjá Eignarhaldsfélaginu sem vildi
ekki verða við neinu slíku. Nú telja
Fjölmiðlunarmenn sig hafa fengið
staðfestingu á því að þeir hafi verið
hlunnfamir í viðskiptum. Svo telur
stóm Eignarhaldsfélags Verslunar-
bankans ekki vera. Að minnsta kosti
ekki stjómarformaðurinn, Einar
Sveinsson, en Morgunblaðið hefúr
eftir honum á þriðjudag að við fyrstu
sýn virðist muna 15 prósentum á
kaupverði bréfanna og mati mats-
mannanna og það sé innan skekkju-
marka í áhætturekstri. Sjálfir telja
matsmennimir að taka megi 50 milj-
ónir af 200 miljóna króna skekkj-
unni, það séu eðlileg skekkjumörk.
Ekki virðist útlit fyrir að Eignar-
haldsfélag Verslunarbankans sé til-
búið til sátta og því er líklegt að Fjöl-
miðlun sf. fari með málið fyrir dóm-
stóla. Það gæti tekið að minnsta kosti
tvö ár til viðbótar og enn lengri tíma
ef Eignarhaldsfélagið krefst yfirmats
en þá em þrír dómkvaddir menn
látnir meta matið upp á nýtt.
Hver ber ábyrgðina er mál sem
ekki er einu sinni víst að dómstólar
gætu sagt til um í slíkum málaferl-
um. Og hæpið er að þeir dæmi um
hver hlutur og ábyrgð Bankaeflirlits-
ins sé, þótt niðurstaða gæti í sjálfú
sér fengist í skaðabótamáli Fjölmiðl-
unar sf. á hendur Eignarhaldsfélag-
inu.
Það er síðan íhugunarefni að þessi
tvö félög vinna ágætlega saman í
stjóm Stöðvar 2 þar sem Eignar-
haldsfélag Verslunarbankans á enn
100 miljóna króna hlut í sjónvarpsfé-
laginu. G. Pétur Matthíasson
Kvenna-
þing fyrir
austan
Vinnumarkaðurinn verður
meginviðfangsefni á vest-
norrænu kvennaþingi sem
haldið verður á Egilsstöð-
um 20.-23. ágúst nk. Bú-
ist er 'tíð að um 300 kon-
ur frá íslandi, Færeyjum
og Grænlandi komi sam-
an til að fræðast,
skemmta sér, iðka íþróttir
og taka þátt í blómlegum
menningarviðburðum síð-
ustu daga sumarsins.
Félagsmálaráðherra skipaði
sérstaka undirbúningsnefúd og
er Guðrún Ágústsdóttir vara-
borgarfúlltrúi verkefúisstjóri
þingsins.
Guðrún sagði í samtali við
Helgarblaðið að vonast væri til
að þingið í ágúst yrði upphafið
að mjög náinni samvinnu
kvenna ffá þessum þremur lönd-
um, en jafúframt er þingið hugs-
að sem undirbúningur að nor-
rænu kvennaþingi í Finnlandi ár-
ið 1995.
Að sögn Guðrúnar mun hver
ráðstefnudagur eiga sitt sérstaka
þema. Fyrsta daginn verður fjall-
að um menntun og vinnumark-
aðinn, þ.m.t. laun og kjör al-
mennt, atvinnulýðræði og fleira.
Á öðrum degi verða sjávarút-
vegsmálin í brennidepli og þar
með einnig umhverfismálin og
vígbúnaðarmálin en þessi mál
tengjast hafinu sem auðlind sér-
staklega á okkar slóðum. Þá
verða áhrif Evrópusamrunans á
stöðu kvenna til umræðu á öðr-
um degi þingsins. Staða kvenna
í stjómmálum verður umræðu-
efúi á þriðja og síðasta degi
þingsins og þá fjallað um sér-
staka kvennalista og kvenna-
verkalýðsfélög.
GLÆSILEG SUMARHUS
(f Sölutjöld 17. júní 1992 í
Reykjavík
Þeir sem óska eftir leyfi til sölu úr tjöldum á þjóöhátíðardaginn
17. júní 1991 vinsamlegast vitjiö umsóknareyðublaða
að Fríkirkjuvegi 11, opið kl. 08.20-16.15.
Athygli söluhafa er vakin á því að þeir þurfa að afia
viðurkenningar Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkursvæðis á
sölutjöldum og leyfi þess til sölu á viðkvæmum neysluvörum.
Umsóknum sé skilað í síðasta lagi
föstudaginn 5. júní kl. 12.00.
\|
Vakin er athygli á því, að öll lausasala
frá tjöldum og á hátíðarsvæðinu er
stranglega bönnuð.
Við bjóðum traust
og vönduð heilsárshús
byggð á langri og farsælli reynslu.
Fagmenn á staðnum
veita allar upplýsingar.
Opið virka daga kl. 8 - 18
laugardaga kl. 13 - 16.
SUMARHUS
STOFNAÐ 1925
HJALLAHRAUNl 10-220 HAFNARFIRÐI - SÍMI 51070 - FAX 654980
ÁRATUGA REYNSLA TRYGGIR GÆÐIN