Helgarblaðið - 29.05.1992, Síða 11
Helgar 1 1 blaðið
Einangrun í Evrópu -
eða ijölbreytt framtíð
Ýmsir andstæðingar EES-samningsins halda þvi fram að möguleikar okkar til tvíhliða viðskiptasamninga við lönd utan EES geti orðið
takmarkaðri en talsmenn samningsins telja pað fjarri sanni. Mynd: GTK.
Einangrun eða ekki ein-
angrun. Það er ein af lykil-
spumingunum í tengslum
við evrópska efnahagssvæð-
ið. Talsmenn EES- samn-
ingsins hafa mikið talað um
að við megum ekki einangr-
ast frá umheiminum og
nauðsynlegt sé að efla lrjáls
viðskipti. Andstæðingar
samningsins hafa á hinn
bóginn bent á fjölþætta
möguleika með viðskiptum
við Norður-Ameríku, Aust-
ur-Asíu og fleiri fjarla'gari
markaði. En getur verið að
aðildin að EES eyðileggi
möguleika okkar á mörkuð-
um utan EES eða verður
okkiu- firjálst að gera hvers
konar viðskiptasamninga
við hvem sem er þrátt fyrir
EES-aðild?
Nú er ýmislegt sem bendir til
þess að með EES-aðildinni skerð-
ist möguleikar okkar til frjálsra
samninga við önnur ríki á við-
skiptasviðinu þannig að það sé allt
eins hægt að tala um að EES- að-
ildin sem slík einangri okkur frá
umheiminum gagnstætt því sem
fylgismenn EES-aðildar hafa hald-
ið fram. í yfirlýsingu Van Dcr Pas,
embættismanns framkvæmda-
stjómar Evrópubandalagsins, um
EES- samninginn frá því i október
sl., koma fram athyglisverð atriði
sem ekki hafa farið hátt í Qöl-
miðlaumræðunni hér á landi um
málið. Þar segir Van Der Pas:
, Annar þáttur sem ég vil koma að
snýst um tengsl við þriðju lönd...
Mjög erfitt reyndist að ná sam-
komulagi á þessu sviði, einkum
vegna þess að EFTA-ríkin vildu
einnig varðveita rétt sinn til að
undirrita eigin samþykktir við
þriðju lönd. Við urðum því að
segja talsmönnum EFTA-ríkjanna
að slikt væri ekki gerlegt vegna
þess að það hefði í för með sér að
framleiðsluvörur fæm í umferð
innan sama efnahagssvæðis... Nið-
urstaðan varð sú að bandalagið eitt
heldur rétti sínum til frumkvæðis í
þessum efnum. Samningaviðræður
við þriðju lönd fara fram á vegum
bandalagsins og í hvert sinn sem
bandalagið kemst að samkomulagi
ná EFTA-ríkin einnig samkomu-
lagi. Þó svo að þetta gerist sam-
kvæmt löggjöf þeirra og þau undir-
riti samkomulagið sjálf, verður það
bandalagið sem ákvarðar innihald
samkomulagsins í samræmi við
umboð sem fengið er samkvæmt
málsmeðferð bandalagsins.“
Megum lækka tolla
Þessi túlkun embættismannsins
er í raun í fullu samræmi við eðli
samningsins um evrópskt efna-
hagssvæði. Ef vara er flutt frá Jap-
an til íslands má færa fyrir því rök
að hún sé komin inn á EES-svæðið
og því eðlilegt að EES-batteríið
sjái um samningsgerð i því efni.
Það er ennfremur grundvallarregla
í EES- samningnum að hvers kon-
ar mismunun með tilliti til ríkis-
fangs er bönnuð. Gunnar Snorri
Gunnarsson, sendiherra og einn af
helstu sérfræðingum utanríkisráðu-
neytisins í EES- samningnum, seg-
ir að ákvæðið um bann við mis-
munun nái einvörðungu til við-
skipta milli samningsaðila, þ.e.
EES-landanna, og eingöngu til
vamings sem er upprunninn á
svæðinu.
Miðað við túlkunina hér að ofan
á EES-samningnum verður maður
að spyija sig hvort aðild okkar að
EES þýði að við gætum ekki gert
viðskiptasamning við Japan sem
fæli í sér mjög hagstæðan útflutn-
ing héðan á loðnuhrognum til Jap-
ans en á móti einhverja lækkun á
tollum af japönskum bílum. Um
þetta atriði segir Gunnar Snorri:
„Hvor aðili um sig hefur sjálfstæða
stefnu gagnvart öðrum aðilum.
Tollar falla niður innan EES-svæð-
isins en gagnvart öðrum ríkjum
hefur hvert ríki svigrúm til að gera
hvað sem er.“ Hins vegar bendir
Gunnar Snorri á að innan GATT
séu vissar skorður á því hvað hægt
verður að breyta tolluin, því meg-
inreglan þar er að ef tollar em
lækkaðir gagnvart einu ríki verði
að gera það gagnvart öllum. Eina
undantekningin frá því er ef gerðir
em umfangsmiklir samningar eins
og EFTA-samningurinn eða frí-
verslunarsamningur við EB. „Ef
Evrópubandalagið vill setja höml-
ur á innflutning bíla frá Japan þá
þurfum við ekkert að taka tillit til
þess,“ segir Gunnar Snorri. Hins
vegar segir hann það rétt að Evr-
ópubandalagið muni hafa allt
frumkvæði í tengslum við samn-
inga um staðlagerð, prófanir og
fleira því um líkt en hann telur að
það ákvæði sé fremur kostur fyrir
okkur. Þannig er ekki stefnt að því
að EES-samningurinn torveldi við-
skiptasamninga við önnur svæði
en á hinn bóginn er erfitt að sjá að
Evrópubandalagið, sem verður
hinn drottnandi aðili í EES- sam-
starfinu, láti slíka 3ja ríkis samn-
inga afskiptalausa.
Þegar þetta er haft í huga verður
niðurstaðan sú að EES-samningur-
inn kunni að takmarka möguleika
okkar til tvíhliða samninga við
önnur markaðssvæði og skiptir þá
engu þótt slíkir samningar væm
okkur afar hagfelldir. Með þeim
rökum má halda því fram að aðild-
in að evrópska efnahagssvæðinu
einangri okkur ekkert síður og
jafnvel enn frekar en ef við kjósum
að standa utan svæðisins.
En hvemig yrði þá staða okkar í
utanríkisviðskiptuin ef við höfnum
EES-samningnum? Hvað til dæmis
með sjávarútveginn og skipasmíð-
araar og hvað með GATT-
samningana.
ísland utan EES
í þessu efni er nauðsynlegt að
minna á að meginrök talsmanna
EES lúta að sjávarútveginum, þ.e.
tollalækkun í sjávarútvegi og þró-
unarmöguleikum í sjávarútvegi.
Hin svokallaða bókun 6 í við-
skiptasamningi lslands og EB er
og verður í fullu gildi en þar er
kveðið á um tollaívilnanir af ýms-
um toga. í fyrsta lagi em frystar
sjávarafurðir tollfrjálsar sam-
kvæmt bókun 6 þannig að EES-
samningurinn breytir engu um
þær. Hið sama á við um útflutning
á lýsi, fiskimjöli og rækju en bók-
un 6 undanþiggur þessar afurðir
tollum. Tollar á ísuðum fiski em
óvemlegir samkvæmt bókun 6, eða
um 2-3,7%. Hins vegar lækka toll-
ar á saltfiski og saitsíld samkvæmt
EES-samningnum. Talið er að
tollalækkunin verði um einn til
tveir miljarðar á ári en óvíst er
hver mun njóta lækkunarinnar,
neytendur eða útflytjandinn. Lík-
legast er að tollalækkunin skiptist
til helminga. Bókun 6 veitir nú
þcgar tollfrjálsan kvóta á saltfiski
um 7 þúsund tonn sem á þessu ári
nægir fyrir um fimmtungi af út-
fluttum saltfiski.
Það er eftirtektarvert að tolla-
lækkanir em samkvæmt EES-
samningnum ekki almenn regla
heldur bundnar við tilteknar teg-
undir og vöruflokka. Það þýðir að
nýjar vömtégundir eða verkunar-
aðferðir krefjast nýrra samninga,
að öðmm kosti leggjast á þær toll-
ar. Aðalávinningurinn af EES-
samningnum er talinn vera í unn-
um ferskum sjávarafurðum. Þar
kemur helst til greina að flytja út
ferskar afúrðir með flugi frá Suð-
umesjum eða Austurlandi. A hinn
bóginn em áfram tollar í lagmetis-
iðnaði og er mikil óánægja í þeim
herbúðum með útkomuna úr samn-
ingnum. Þá ríkir enn óvissa um
meðferð síldarafurða hvað snertir
tollana.
Þrátt fyrir fogur fýrirheit um
mikinn ávinning fyrir okkar helstu
útflutningsatvinnugrein, sjávarút-
veginn, virðist nú ljóst að hinn
raunvemlegi ávinningur, umfram
bókun 6, er heldur rýr og takmark-
aður. Við það bætist að skipasmíð-
ar njóta áfram ríkisstyrkja í Evt-
ópubandalaginu þannig að sam-
keppnisstaða íslensks skipasmíða-
iðnaðar mun síður en svo vænkast.
Þá má ekki gleyma GATT- samn-
ingunum en þeir geta auðveldað
okkur leið inn á aðra markaði, t.d.
Kóreu, Japan, Taiwan, HongKong
og Singapúr svo eitthvað sé nefnt.
GATT-tollamir fara ennfremur
lækkandi og það kemur sjávarút-
veginum til góða. Að síðustu geta
GATT-samningamir komið okkur
vel á Evrópumarkaði þótt við vær-
um utan EES.
Það er því síður en svo ástæða til
að vera uggandi yfir framtíðinni
þótt Island kjósi að vera utan evr-
ópska efnahagssvæðisins. Þegar
öllu er á botninn hvolft virðist sem
tilvera utan EES, en með bókun 6 í
gildi og GATT-samningana, bjóði
upp á enn meiri fjölbreytni í fram-
tíðinni á meðan EES-aðildin leiði
okkur inn í einhliða Evrópu þar
sem allt er njörvað niður með
reglugerðafargani og tilskipunum
sem munu ekki getað þjónað til-
gangi sínum í nútíma viðskiptum
þar sem hraði og skilvirkni ráða
ríkjum. Það verður heldur ekki séð
að stjómskipan EES og EB geti
farið saman við hugmyndir um
fijálsa viðskipta- og stjómunar-
hætti sem þó er aðallinn í boð-
skapnum trá Brussel.
Árni Þór Sigurðsson
------------------------------------------\
SUMARBLÓM Á EIÐISTORGI
Bestu blómin og bestu verðin
Allar tegundir sumarblóma - dhalíur, tóbakshorn,
skjaldfléttur, lóbelía.
Allt fyrir garðinn - áburður, mold, garðhanskar,
svalaker, útiker, veggpottar, matjurtaplöntur, fjölærar
plöntur, trjáplöntur.
Blómastofan Eiðistorgi
<__________________________________________y
Föstudagurinn 29. maí