Helgarblaðið - 29.05.1992, Síða 17

Helgarblaðið - 29.05.1992, Síða 17
Helgar 17 blaðið „Hætt við að Afríka verði líkhús" Alnaemissjúklingar í Afríku - i sumum borgum og héru&um er yfir helmingur ibúanna talinn HIV- smitaður. Meðal sérfræðinga um al- næmi gætir vaxandi vonleys- is um árangur í því að hefta útbreiðslu sjúkdómsins. „Við höíúm tapað stríðinu gegn al- næminu," segir Larry Kram- er, Bandaríkjamaður er var meðal þeirra fyrstu þarlendis er vöktu athygli á sjúkdómn- um og vandamálum þeirra er af honum þjást eða eiga hann yfir höfði sér. A skrifum heimspressunnar um þetta er svo að heyra að stöðugt sé að koma í ljós að læknavísindin hafi allt fram undir þennan dag vanmetið þann geigvænlega andstæðing sem alnæmið er. Þótt spár þeirra um út- breiðslu hafi oft þótt æmar hroll- vekjur hafi vemleikinn þó farið fram úr þeim í hryllingi. 100-200 ára gamalt Eitt það nýjasta, sem vísindamenn segjast hafa komist að raun urn við- víkjandi alnæminu, er að það hafi ekki byijað á því að leggjast á mannkynið fyrirþetta 12-17 ámm aðeins, eins og lengi var álitið. Nú þykir sannað að HI V-veiran hafi verið komin á gang í sunnanverðri Afriku fyrir um 100 eða jafhvel um 200 ámm. Aðalástæðan til þess að ekki hafi fyrr verið tekið eftir verk- unum hennar sé að aðrir sjúkdómar hafi valdið slíku mannfalli á þeim slóðum lengi vel að alnæmið hafi „horfið á bak við“ þá. Svo er ekki lengur, og af öllum heimshlutum er Afrika sunnan Sa- hara verst leikin af alnæminu. Þar er það „drepsótt 20. aldarinnar", segir sænski farsóttafræðingurinn Michael Koch. Hagskýrslur frá þeim löndum em ekki með ábyggilegra móti og því margt á huldu um útbreiðslu sjú- dómsins þar. En víst er að fleiri hafa smitast, veikst og látist af sjúkdómn- um þar en í nokkrum heimshluta öðmm, að tiltölu við fólksfjölda. Á stóruin svæðum sunnanvert í Afríku er nú útbreiðsla alnæmisins svo hröð að dauðsföll af völdum þess tvöfaldast að tölu á hverjum þremur ámm. I sumum borgum þar og hémðum hefur verið giskað á að yfir helmingur íbúanna sé HlV-smit- aður. í mörgum sjúkrahúsum afr- ískra stórborga em þegar allt að átta afhveijum tíu sjúklingum með al- næmi. Alþjóðlega heilbrigðismála- stofnunin (WHO) telur út frá rann- sóknum að á þessum síðasta áratugi 20. aldarinnar muni um 10 miljónir afriskra bama missa báða foreldra sína úr alnæmi. „Þjóðardau&i yfirvofandi" Ennfremur leggst alnæmið þar hlutfallslega mest á menntaðri og efri lög samfélaganna. „Fijálslyndi" í ástamálum er þar landlægt og þar að auki er víða talið til stöðutákna að hafast að sem mest og víðast á þeim vettvangi. Fyrir nokkmm árum var Mobutu einræðisherra í Zaire sagt að menn sem hefðu kynmök við margar konur ættu öðmm frem- ur á hættu að fá HlV-smit. Þá skelli- hló Mobutu. „Sé það satt væra ráðherrar mínir allir fyiir löngu dauðir," varð honum að orði. Þá var alnæmið ekki enn komið i ríkisstjómina þarlendis, en það mun ekki hafa dregist lengi eftir þetta. Stjómsýslu-, efhahags-, mennta- og heilbrigðiskerfi Afrikulanda em með gisnasta og veikasta móti, eftir því sem gerist, og auk alnæmisins ógna því hungursneyð og illindi milli ættbálka/þjóðflokka. Vaxandi ótta gætir við að einmitt hranndauði menntaðra manna, sem þar var al- varlegur hörgull á fyrir, úr alnæmi muni endanlega kollvarpa því kerfi, með þeim afleiðingum að ríkin leys- ist upp, eins og þegar er orðið í Sómalílandi. (Fréttamaður einn lýsti nýlega ástandinu í því landi þannig, að þar beijist 128 ættbálkar er lands- menn kváðu skiptast í um völdin upp á líf og dauða jafnframt því sem Dagur Þorleifsson skrifar þeir deyja úr hungri.) „I sumum löndum er þjóðardauði yfirvofandi, hætta á að heilar þjóðir þurrkist út. Sérstaklega er hætta á að Afríka breytist í líkhús." Þessi hroðalega spá um alnæmis- hættuna kemur frá Robert Gallo, einum vísindamanna þeirra er upp- götvuðu alnæmisveimna. Bombay: 6000 smitast á dag Fyrir rúmu ári var útbreiðsla al- næmisins samkvæmt skýrslum frá WHO næstmest í Ameríku (bæði Norður- og Suður-) og þar á eftir komu Vestur-Evrópa og Eyjaálfa. I fjórða sæti á þeim lista vom þá Suð- ur- og Suðaustur-Asía, en sérfræð- ingum urn alnæmið ber saman urn að þar breiðist sjúkdómurinn nú út með sprengingarkenndum hraða. 1 upphafi s.l. árs var um hálf miljón manna á öllu svæðinu HIV- smituð, nú er ein miljón HIV- smitaðra í Indlandi einu, einnig samkvæmt WHO-skýrslum. James McDonald, fonnaður sérfræðingahóps um al- næmi sem Bandaríkjaþing kvaddi saman, segir: „Árið 2000 verða fleiri HlV-smitaðar manneskjur í Indlandi en em í dag í öllum heiminum“. Líkt og í Afríku breiðist alnæmið þar einkum út við samfarir karla og kvenna og í Indlandi er fjöllyndi í ástamálum og vændi einnig aðal- ástæða til hraðrar útbreiðslu, að mati sérfræðinga. I Bombay, höfuðborg indverska iðnaðarins, em um 150.000 vændiskonur og a.m.k. 30 af hundraði þeirra em þegar HIV- smitaðar. Jim McDermott, banda- rískur læknir og þingmaður, giskar á að þar í borg smitist um 6000 karl- menn af alnæmi á degi hveijum. Dregur hann þá ályktun af því að ekki verði smit nema við þúsund- ustu hveijar samfarir í borginni. Sumir aðrir læknar segja það mikils til of lágt áætlað. Ekki síður skelfilegar em horfúm- ar í þessum efnum í Taílandi og á Filippseyjum, þar sem vændi er mikill atvimiuvegur. Ráðamenn í stjómmálum og atvinnurekstri stuðla beinlínis að vændi þar til að laða að ferðamenn með harðan gjaldeyri. Fyrir fimm ámm var talið að fimm af hundraði vændiskvenna í Bangkok væm HIV- smitaðar; nú er sú tala komin upp í 72 af hundraði. 1 Suðaustur-Asíu em menn víða ekki við eina ijölina felldir í ástamálum og heróínneyslan, sem mikið er um þar, á vemlegan þátt í að breiða sjúkdóminn út. „Skutum þó alla" Kína og Japan, Austur-Asíuríkin stóm, agaðri nokkm í samræmi við konfúsíanska hcfð en grannríkin í suðri og þar sem sjálfsagt þykir samkvæmt sömu hefð að stjómvöld hafi eftirlit nokkurt með lífsmáta þegnanna, hafa til þessa sloppið bct- ur við alnæmið en grannamir suður frá, en hafa af því vaxandi áhyggjur. I Kina er stjómvöldum ekki vel við að menn iðki kynlíf fyrr en í hjóna- bandi. Á bak við það liggur viðleitni til að draga úr fólksfjölgun en síð- ustu árin einnig til að halda alnæm- inu utan dyra. Það hefur ekki tekist, sérstaklega kvað sjúkdómurinn hafa breiðst út eins og eldur í sinu í Júnnan, fylki scm liggur að heróínlandinu Búmia. Og á „efnahagslega sérsvæðinu" Shenzhen, skammt frá fyrimiynd sinni Hongkong, liefur verið opnuð fyrsta sjúkrastofan í fjölmennasta ríki heims fyrir alnæmissjúka. í Shenzhen hefur vændi haldið inn- reið sína með öðm frjálsu framtaki og með því alnæmið. Líkt og annarsstaðar í Asíu mun alnæmið í Kina einkum tilkomið út frá smitunum við samfarir gagnkyn- hneigðs fólks. Marc Conant, banda- rískur alnæmissérfræðingur, hefur eftir rektor Sjanghaí- háskóla, sem hann hitti á ferðalagi þar eystra 1984, að ekki væri mikil hætta á því þarlcndis að menn smituðust af HlV-veiru við samfarir samkyn- hneigðra. „I menningarbyltingunni skutum við þá alla,“ sagði rektor. Ástaþyrstir túristar í Japan er talið að tiltölulega lítil hætta sé á að menn HIV- smitist innanlands við samfarir við vændis- konur, sökum mikils eftirlits með þeim þar sem stendur á gömlum merg. Á hinn bóginn em japanskir karltúristar fyrir löngu þekktir urn alla Asíu sem „betri" viðskiptavinir vændiskvenna en nokkrir aðrir. Jap- önskum konum er og bannað með lögum að nota pilluna, og gengur stjómvöldum í því til, að sögn kunn- ugra, að þau óttast að konumar muni gerast fjölþreifnari í kynferðismál- um, hafi þær aðgang að ömggri getnaðarvöm. Ottinn við alnæmið er einnig með í þeirri mynd. Á Vesturlöndum em horfumar ekki heldur góðar í þessum eftium, þótt þar sé heilbrigðiskerfið miklu betra og þar með virkara gegn al- næminu en víðast annarsstaðar. I bandaríska læknatímaritinu Medical Tribune er skrifað um „alnæmis- sprengingu“ þarlendis. Á níu árum, 1979-88, veiktust um 100.000 manns í Bandaríkjunum af alnæmi, miðað við tilkynnt sjúkdómstilfelli. Næstu þrjú árin vom þeir, sem veiktust af sjúkdómnum þarlendis, álíka margir. Falkner von Sonnen- burg, þýskur farsóttafræðingur, sagði nýlega að alnæmið væri orðið „hættulegasti smitsjúkdómurinn“ í Þýskalandi. Á Vesturlöndum em það enn öðr- um fremur hommar og eiturlyfja- neytendur, sem smitast og veikjast af alnæmi. En útbreiðsla sjúkdóms- ins þar verður stöðugt hlutfallslega meiri meðal gagnkynhneigðra karla og kvenna. Eftir ab Múrinn hrundi • •• Meðan kommúnisminn var með sitt jámtjald hélt hann alnæminu furðanlega frá Sovétríkjunum og fylgiríkjum þeirra. Hugmyndaffæð- ingar marxlenínismans höfðu að vísu ekki rétt fyrir sér í því að þeirra afbrigði af sósíalisma væri pottþétt vöm gegn vændi, en þeir höfðu þó að líkindum nokkuð til síns máls er þeir dæmdu það kapítalískan löst, því að með innreið kapítalismans í fyrrverandi austantjaldslönd hefúr vændi þar aukist mjög. Og með þvi breiðist alnæmið einnig út þar. Samkvæmt hagskýrslum stendur íslamski heimurinn alnæmið betur af sér en aðrir heimshlutar. Nefna sum- ir sem ástæðu strangan kynferðis- móral, en aðrir telja hæpið að skýrsl- ur um útbreiðslu sjúkdómsins þar séu tæmandi. Nýlegar niðurstöður Michaels Koch og fleiri alnæmisffæðinga um möguleika þeirra, sem smitast af HlV-veim, em á þá leið að um 10 ár líði að meðallali frá smitun til and- láts úr alnæmi. 1 Afríku, þar sem heilbrigðiskerfið er víða fyrir neðan allar hellur, deyja menn að jafnaði um 100 dögum eftir að þeir veikjast. I þróuðum löndum, þar sem meira er unnið gegn sjúkdómnum, lifa menn að jafnaði allmiklu lengur með hann, í Þýskalandi þannig um tvö ár. WHO hefur reiknað út að alda- mótaárið verði um 40 miljónir HIV- smitaðra í heiminum. Sumir sérffóð- ir kalla það bjartsýnisspá. AMSTRAD AMSTRAD fyrirtækið, sem hefur selt á þriðju milljón móttökudiska fyrir gervi- hnetti og er með 86% markaðshlutdeild á Bretlandseyjum og 50% í Evrópu, hef- ur nú markaðssett búnað til notkunar í NORÐUR SKANDINAVIU OG Á ÍSLANDI. Satellite TV nr. AMTEC hf., umboðsaðili AMSTRAD á íslandi, býður nú fullkomin móttökubúnað tilbúinn til uppsetningar. 1.2 m diskloftnet með flestingu Lógsuðumagnari með innbyggðum pólskipti (Dual LNB) 48 rósa stereo mótfakari með fjarstýringu 5 Búnaðurinn er seldur ón milliliða með heildsölu ólagn- ingu og fæst eingöngu hjó AMTEC hf., Suðurlands- braut 32, sími 30200. Xl. ÓTRÚLEGT VERD! 59.900 ÁMTEC Sími 30200 Suðurlandsbraut 32, 108 Reykjavík. Föstudagurinn 29. maí

x

Helgarblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarblaðið
https://timarit.is/publication/259

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.