Dagblaðið - 16.10.1975, Blaðsíða 1
dagblað
1. árg. — Fimmtudagur T6. október 1975 — 32. tbl. iRitstjórn Síðumúla 12, sími 83322, auglýsingar og afgreiðsla Þverholti 2, sími 27022
Skilnaðarbylgja í rénum:
ÞURFTU AÐ BÍÐA PRESTS f
VIKUTÍMA ÞEGAR VERST LÉT
— baksíða
Hala-
stífður
„gömlu
fimmtíu"
Varöskip skauzt i morgun
um hálf-ellefu leytið upp að
Cuxhaven-togaranum Altona
NC 473 þar sem hann var að
veiöum 17 milur innan
„gömlu 50 milnanna”, eins
og þeir kalla það hjá Land-
helgisgæzlunni. Renndu
varöskipsmenn klippunum
góöu aftur úr skipinu og
sigldu siðan yfir togvira
Altona, sem missti þar með
veiðarfæri sin.
Flugvél gæzlunnar var áð-
ur búinað benda varðskipinu
á þrjá þýzka togara, sem
voru að athafna sig á fiski-
miðum i Grindavikurdýpi.
Hinir tveir togararnir voru
ekki lengi að hifa upp veiðar-
færi sin og hverfa af sjónar-
sviðinu, þegar Altona hafði
verið halaklipptur.
Aö öðru leyti var rólegt hjá
Gæzlunni fyrsta sólarhring-
inn i 200 milunum að sögn
Hálfdánar Henrýssonar.
Vestfirðir eru bannsvæði
núna fyrir alla erlenda tog-
ara en varðskipið hefur
kannað svæði þar.
Bretarnir eru i sinum hólf-
um og þar er ekkert við þeim
hreyft.
— Tvivegis var 'farið i
landhelgisflug i gær og fann
þá flugvélin skipin en er
varðskip komu á vettvang
hifðu togararnir, sem að
veiðum voru, vörpur sinar og
tvistruðust.
—JBP— ASt.
DAGBLAÐIÐ
„glóðvolgt"
um borð í
varðskipi
— baksíða
ENDURNAR FÁ HLUTVERK HJÁ KÍNVERJUM
Þær fengu óvænt hlutverk
þessar aliendur frá Strönd í
Hvalfirði. Fyrir utan að lenda
á jólaborði einhvers góðborg-
arans, fá þær nú að leika í f jöl-
listaflokki Kínverja i Laugar-
dalshöll. Koma þær fram á
milli atriða hjá gaidrakörlum.
Endurnar hittum við annars að
máli inni í Sundahöf n við komu
þeirra til borgarinnar.
( morgun voru kínversku
listamennirnir mættir í
Laugardalshöli til að fara yfir
sinn margbreytilega og flókna
útbúnað. (DB-myndir Bjarn-
leifur og Björgvin).