Dagblaðið - 16.10.1975, Page 4

Dagblaðið - 16.10.1975, Page 4
4 r Dagblaöið. Fimmtudagur 16. október 1975. Fœreysku undanþóguskipin — og liggjo á síðustu blettunum þar sem fisk er að fá við ísland \i „Tiu færeyskir togarar hafa veiðiheimildirinnan 50 mllna og meöal þeirra eru 2 saltfisktog- arar sem kalla mætti verk- smiðjuskip. Þeir safna 750 tonn- um hvor af saltfiski og liggja i reitum þorskmiðanna á Halan- um og hólfi út af Vestfjörðum. Ekkert er fylgzt með afla þess- ara skipa, að þvi er ég bezt veit,” sagði Auðunn Auðunsson, skipstjóri á Karlsefni i viðtali við Dagblaöið. Og honum lá fleira á hjarta. — Færeyingarnir hafa sent fjögur ný fiskiskip á Islandsmiö frá þvi við færðum út og þeir fengu undanþágu til veiða innan 50 milna. Eitt þeirra skipa, sem þeir höfðu á Islandsmiðum i fyrra, „Mýrlingur”, er leigu- skip frá Noregi. Hvort þar voru á ferð norskir aðilar, sem smygla sér inn f islenzka land- helgi með Færeyinga sem leppa, veit enginn en það alvar- legasta er að ekkert eftirlit er haft með afla þeirra. — Flest eða öll færeysku skipin hér við land hafa flot- trollsvörpu um borð. Islending- ur fann upp þessa vörpu og gekk hún undir nafninu Breiðfjörðs- varpan. Þjóðverjar gleyptu hugmyndina og fullkomnuðu vörpuna. Hér á Islandi voru ekki þá, og hafa aldrei verið, til peningar til að leggja I það sem þurft hefur að gera i islenzkum sjávarútvegi. Flottrollsútbún- aöur kostar um 15 millj. króna á skip. Innan við helmingur stóru togaranna islenzku hefur slikan búnað og hlutfallið er álika meöal minni togaranna. A viss- um árstimum fiskast i flottroll þó ekkert fáist við botninn og flotvarpan getur við ýmis skil- yrði fært sjómönnum miklu meiri afla en önnur veiðarfæri. — Ýmsir islenzkir aðilar þora ekki að leggja i kostnaðinn, þvi fiskimálastjóri hefur látið að þvi liggja að e.t.v. verði þetta veiðarfæri bannað. Auk þess er erfitt um fé hjá islenzkum út- gerðarmönnum. Þeir eiga ekki fyrir snæri sjálfir og alla fjár- festingu verður að sækja f kerf- ið. — Þaö er vissulega alvarlegt mál ef við höldum áfram aö hleypa á mið okkar verksmiðju- skipum sem halda þar til mán- uðum saman. Fiskur er orðinn það litill á miðunum viö ísland að vafasamt er hvort útgerð veröur hér haldið áfram án dag- styrkja — jafnvel þótt „kerfið” hætti að taka helming aflaverð- mætis móti skipunum. 011 út- gerö annarra þjóöa er komin á rikisstyrki, þar á meðal Færey- inga. Fiskurinn er algjörlega upp- urinn á Islandsmiöum nema á svæði út af Faxaflóa, Breiða- firöi og Vestfjörðum, sem friðuð voru, og einhverjum takmörk- uöum svæðum fyrir norðan og austan. Aövaranir minar fyrir tveim árum gegn undanþáguveiting- um til Breta og fleiri voru þvi miður á rökum reistar, sagði Auðunn. Það er áþreifanlega komið I ljós i dag. Fiskmagnið eroröiö þaö litiö kringum landið aö það nægir ekki einu sinni okkur sjálfum. Það eru erfiðir timar framundan, jafnvel þó allir erlendir togarar fari af miöunum. — Það er vanmat á islenzku landhelgisgæzlunni, sem komið hefur fram hjá islenzkum ráða- mönnum, að hún geti ekki variö landhelgina. Það þarf hins veg- ar að vinna að þvi að skipin og flugvélarnar sinni ekki öðru en gæzlu landhelginnar. Af sliku óþarfa snatti er sorgleg reynsla. Nýjasta dæmiö um það er þegar þyrlan Gná lauk sinni tilvist i Skálafelli við störf mjög óskyld landhelgisgæzlu. —ASt. Enginn Reykvíkingur í fjárveitinganefnd „Það er fyrir neðan allar hell- ur, að Reykvikingar skuli ekki hafa mann i fjárveitinganefnd Al- þingis”, sagði Albert Guðmundg- son, alþingismaður, i viðtali við DAGBLAÐIÐ. Þegar kjósa skyldi i fjárveit- inganefnd á Alþingi i gær, kom fram ósk Alberts Guðmundssonar um, að þeirri kosningu yrði frest- aö. „Ég er þingmaður Reykvik- inga”, sagði Albert, „og Reykja- vik þarf á öllu sinu að halda. Það er kominn ti'mi til að menn skilji þetta. Ég vil að minnsta kosti gera tilraun til þess, að Reykvik- ingar fái mann i fjárveitinga- nefnd Alþingis”, sagði Albert Guðmundsson að lokum. —BS— SURTSEYJARHUSIÐ UGGUR UNDIR STÓRSKEMMDUM Ekki hefur tekizt, þrátt fyrir itrekaðar tilraunir I þá átt, að gera við Surtseyjarhúsið Páls- bæ, sem nú er mjög illa farið af veðrum og vindum. „Vandamálið er að koma efn- inu, sem þegar er búið að kaupa, út i Surtsey,” sagði Karl Sæmundsson kennari, sem hefur verið umsjónarmaður hússins undanfarin ár, i samtali við fréttamann blaðsins f gær- kvöldi. „Húsið er byggt úr vatnsheldum krossviði en hann er farinn að flagna þar sem lim- ingin hefur bilað og hann er þvi að verða mjög lélegur á blett- um,” sagði Karl ennfremur. Ekki vildi Karl segja húsið leka stórvægilega, enn sem komið er, en sagði þó þróunina vera i þá átt. Húsið er byggt i svokallað „A”, þ.e.a.s. er litið annað en þakið, og er þvi skemmdin ef til vill hálfu verri en ella. „Það eru ýmis vandamál sem hafa gert það að verkum að húsið er farið svona,” sagði Karl. „Agangur veðurs og sævar er mikill þarna i Atlants- hafinu, sandur er mjög laus i hliöinni yfir ofan húsið og er nú kominn upp á miðja hurð. Við höfum fengiö loforð um hjálp góðra manna i Eyjum en vegna ógæfta hefur ekki verið hægt að koma viðgerðinni við.” Karl gat þess að ekki væri hægt að lenda litlum flugvélum lengur i Surtsey, vegna grjóts, sem borizt hefur upp á „flug- brautina”. Auk þess heföi vélin, sem yfirleitt vai notuötil Suit.fe- eyjarflugs, verið eyðilögð af drukknum manni í flugskýli i Reykjavik í sumar. „Það hefur ekkert verið gert við húsið að ráði siðan ’71,” sagði Karl, „og enginn verið i húsinu að staðaldri siöan i hitt- eðfyrra.” —ÓV. Surtseyjarhúslð, sem Paul Bauer gaf hingað til lands, hefur marga hiidi háð. A nýársdag 1N7 hófst gos ab nýju i Surtsey. Hraunrennslib stefndi á húsið og um tima var tvisýnt um hvort straumurlnn stöðvaðist I tæka tið. Þaö gerði hann þó aö lokum. Nú liggur húsið undir skemmdum af öbrum völdum. ------ Það gerist alltaf eitthvað í þessari Viku: Í þessari VIKU: Amy Engilberts — Tommi i Festi — Mannœtur

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.