Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 16.10.1975, Qupperneq 24

Dagblaðið - 16.10.1975, Qupperneq 24
KEPPT I NÝRRI ÍÞRÓTTA"- GREIN! í sjónvarpsþættinum „Anna i Hllö”; sem sýndur verBur á laugardagskvöld er m.a. keppt i nýrri iþrótta- grein, afmyndun. Þessi teg- und iþrótta er tiltölulega auðveld og algeng, en aldrei hefur verið efnt til keppni i greininni fyrr. Sveitir frá MH, MK og MT mæta til leiks I þetta fyrsta sinn. Við sjáum hér tvo keppenda ein- beita sér í keppninni. - Fimmtudagur 16. október 1975. „BEiTA LOKUNARTÖNGINNI NOKKUÐ ÓGÆTILEGA „Þeir beita- lokunartönginni nokkuð ógætilega hjá Raf- magnsveitu Reykjavikur”, sagði lögfræðingur, sem DAG- BLAÐIÐ átti tal við i gær. „Þeir eru ekki eins fljótir upp með hana aftur til að opna”, bætti hann við. Hann kvaðst ekki sjá önnur úrræði en leita til fógeta- réttar með mál, sem i stórum dráttum er þannig vaxið. Fráskilin kona lenti i fjár- hagsvandræðum og meðal ann- ars vanskilum með rafmagns- reikninginn. Var lokað fyrir raf- magnið hjá henni. Þegar henni hafði tekizt að fá peninga fyrir skuldinni bjóst hún viö aö lokun- inni yrði aflétt. Þegar bið varð á þvi, spurðist hún fyrir um hve- nær opnað yrði aftur fyrir raf- magnið. Konan fékk þau svör, að fyrr- verandi eiginmaður hennar skuldaði reikning fyrir iðnverk- stæði, sem hann haföi rekiö. Bæri hún fjárhagsiega ábyrgð á þeirri skuld, og þess vegna yrði ekki opnað hjá henni fyrr en sá reikningur hefði verið greiddur. Var mjög erfitt aö ná tali af starfsmönnum Rafmagnsveit- unnar út af málinu en þeim, sem til náðist, varð ekki um þokað. Þetta er í stuttu máli sagan um rafmagnslokun hjá fráskil- inni konu og verkstæöisreikning fyrrverandi eiginmanns henn- ar. —BS— Dagblaðið glóðvolgt um borð í varðskipið Bjarni Helgason, skipherra á TF-SÝR, hendir böggli með Dagblaðinu niður til skipverja á varðskipi á Halamiðum i gær. Blaðið fór „heitt” úr pressunni um borð i landhelgisvélina og var komið um borð i varðskipið aðeins hálfum öðrum tima eftir að prentun fyrstu blaðanna lauk i Blaðaprenti. Fátt var að gerast á miðunum eins og við var að búast. DB-mynd: ÓV. Bráðkvaddur á rjúpnaveiðum Maður úr Reykjavik, 53 ára gamall, sem fór með félögum sin- um tveimur til rjúpna er rjúpna- veiði hófst i gær, varð bráðkvadd- ur þar sem hann var að veiðum ásamt félögum sinum i Skarðs- heiði um klukkan 6 i gærkvöldi. Félagarnir voru saman að veiðum allan daginn i gær og um kl. 6 voru þeir i 850 m hæð i Skarðsheiðinni er einn félaganna varð bráðkvaddur. Lögreglan i Borgarnesi kom á staðinn og hinn látni var fluttur til Reykjavlkur. ASt. Vestmannaeyjar: Sundlaugin rís W • •• X ur jorðu Allar likur eru nú á þvi, að Vestmannaeyingar geti á næsta ári farið að synda 200 metrana. Sundlaugarbyggingin, seni byrj- að var á i júni siðastliðnum, geng- ur mjög vel og i gær kom skip með stóran hluta af byggingar- efninu en það er flutt inn frá Finn- landi og Danmörku. A sinum tima var sundlaugar- byggingin ásamt byggingu iþróttahúss boðin út. Þrjú tilboð bárust, — tvö frá Danmörku og eitt islenzkt. Annað danska fyrir- tækið fékk verkið. Áætlaður byggingarkostnaður fyrir bæði mannvirkin var i vor 350 milljón- ir, en sennilega hefur hann hækk- að töluvert. Leyfi fyrir byggingu sundlaug- arinnar og iþróttahússins fékkst með óvenju skjótum hætti á sin- um tima, og þakka Vestmanna- eyingar það skilningi og fljótri fyrirgreiðslu menntamálaráðu- neytisins. Mannvirkin eru flutt inn svo til tilbúin og þurfti að fá sérstakt leyfi til þess innflutn- ings. Einnig þurfti að fá sérstakt leyfi vegna greiðslufrests á kaupverðinu, eh það var Viðlaga- sjóður, sem tók öll lán til þess, sem bæjarsjóðurinn borgar siðan. AT Skilnaðarhugleiðingar koma í bylgjum: VIKU BIÐLISTI EFTIR AÐ FÁ AÐ RÆÐA VIÐ PREST en aldan er aftur í rénun í Keflavík „Skilnaðarhugleið- ingar koma i bylgjum eins og fleira hjá fólki”, sagði séra Ólaf- ur Oddur Jónsson i Keflavik i viðtali við DÁGBLAÐEÐ. ,,Það er alveg rétt, að um tima voru beiðnir um sátta- tilraunir prests vegna hjónaskilnaðar alveg með ólikindum. Þetta er sem betur fer i rén- un,” sagði sr. Ólafur Oddur. „Siðast voru hjá mér ung hjón, sem komu og ætluðu að skilja. Þegar þau fóru voru þau ákveðin i að skilja ekki. Það var mjög ánægjulegt”. DAGBLAÐIÐ fregnaði, að svo mikið væri um hjónaskilnaði I uppsiglingu i Keflavik, að prest- urinn hefði orðið að setja fólk á biölista. Eins og aö framan get- ur, er þetta rétt, en bæði er þess að gæta, að nú er aldan i rénun og hins, að sóknarpresturinn i Keflavik þarf að anna um 8 þús- und sálum. Um áramótin kemur sr. Páll Þórðarson til starfa i Njarðvikurnar og hægist þá um hjá sr. ólafi Oddi. „Ég lit á mig sem málsvara barnanna,” sagði presturinn, „og óskandi væri að fólk leitaði til prests eða einhvers þriðja að- ila fyrr en oftast er gert. Það ætti að koma áöur en allt er komiö i sjálfheldu. Hjónaskiln- aður getur verið fullkomlega réttlætanlegur, en siikt skref þarf að yfirvega mjög vel. Það er ótrúlegt, hvaö þriðji aðili get- ur gert, þegar til hans er leitað i tæka tið,” sagði sr. ólafur Odd- ur Jónsson að lokum. —BS—

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.