Dagblaðið - 22.10.1975, Síða 1

Dagblaðið - 22.10.1975, Síða 1
1. árg, — Miðvikudagur 22. okfóber 1975 —37.tbl. ’Ritstjórn Síðumúla 12, sími 83322, auglýsingar og afgreiðsla Þverholti 2, sími 27022 TOGARARNIR ÆTLA AÐ SIGLA INN í EINUM HÓP — „Aldrei önnur eins samstaða," segja sjómenn, sem komu inn í morgun „Svo lengi, sem ég hefi verið á sjó, hefur aldrei náöst sú samstaða meðal sjómanna og útgerðarmanna, eins og þessi”, sagði Hörður ívarsson, skip- stjóri á Kópi RE 175 i viðtali við DAGBLAÐIÐ. Verið var að landa úr Kópnum vestur i Eyju, þegar þar bar að Orn Ingólfsson skipstjóra á Stiganda RE 307. Hann sagði, að þegar ljóst hefði verið i gær- kvöldi, að sjómenn og útgerðar- menn yrðu gersamlega hunds- aðir og mótmæli þeirra gegn röngu fiskverði og stærðar- flokkun, hefðu bátarnir hift upp. „Kjör sjómanna eru þannig, að nú er fyrirsjáanlegt, að ekki verður hægt að manna bátana. Ég veit ekki nema um einn bát, sem er á veiðum hérna norðan við Reykjanesið, sem er full- mannaður’,’ sagði Hörður ívarsson ennfremur. „Þetta endar með þvi, að allir fara i land. Annað stefnir þetta ekki”, sagði Hörður Ivarsson. Bátarnir voru að tinast inn og togararnir eru að þjappa sér saman og ætla að sigla inn allir saman. BS. ÞEIR FARA i LAND, — þarna eru sjómenn af bátum að ganga i land í Reykjavíkurhöfn i morg- un. (DB-mynd Björgvin). í „undirheimum" Reyl . „Okkur var gert viðvart um, að maður kynni að hafast við hér i brunninum á nóttunni”, sögðu þeir Eðvarð Olsen og Ein- ar Haraldsson, lögreglumenn. Þeir voru að koma upp úr vatnsveitubrunninum i Vatns- mýrinni norðan við Umferðar- miðstöðina, þegar Dagblaðs- menn bar þar að. „Þarna niðri er volgt kaffi á brúsa”, sagði Eðvarð, „ekki er óhugsandi, að einhver hafi leit- að skjóls hérna.” Rétt i þessu kom þarna að Svavar Guðni Svavarsson, eft- irlitsmaður Vatnsveitunnar. „Hvað er hér á seyði”, spurði Svavar. Honum var nú sagt, að hringthefðiverið i lögregluna og að grunur -Væri um, að einhver hefðist við i brunninum á nótt- unni. „Ég var hérna eldsnemma i morgun”, sagði Svavar ,, og við vorum að mála rörin hérna. Hér er enginn maður. Það er svo kalt, að það er eins gott að hafa með sér kaffi. Það er allt annaö i hitaveitubrunnunum”. Svavar bauð okkur niður til sin, þegar hann hafði lyft þungu brunnlokinu af brunninum þar sem aðalvatnsæðin liggur vest- ur i bæ. „Það er með þessu hjóli, sem hægt er að loka fyrir vatnið i vesturbæinn”, sagði Svavár, en það er fylgzt vel með þessum brunni eins og þið sjáið.” „Viijiö þið ekki gera svo vel að fá ykkur kaffi”, sagði Svavar og hellti i kaffikönnu handa Eðvarð Olsen. Það er ekki hægt að segja annaö en vakað sé yfir vel- terð borgaranna i þessum bæ. Lögreglan kannar þegar i stað ábendingar um grunsam- legar ferðir manna um einn Kaffibrúsamálið leystist, þegar starfsmaður Vatnsveitunnar mætti á staðnum, útilegumaður var þvl enginn fyrir hendi (DB-mynd Björgvin). aðalvatnsveitubrunn borgar- innar. Hún hefur ekki lokið þessari könnun fyrr eméftirlits- maður Vatnsveitunnar er kom- inn á staðinn. Að sjálfsögðu eru ljósmyndari og blaðamaður DAGBLAÐSINS heldur ekki langt undan. —BS— NÁMSMENN TAKA HÚS Á SENDIRÁÐINU f ÓSLÓ, MÓTMÆLAADGERÐIR f KAUPMANNAHÖFN KL. 14 Um 60 námsmenn i Osló, frá landbúnaöarskólanum i Asi og fulltrúar námsmanna i Bergen tókir i morgun hús t sendiráði Islands i Noregi. Hafa þeir setzt á ganga og borð og tiltæk set- pláss og fer allt friðsamlega fram. Er heimsókn þessi fyrsti liður i margþættum mótmælum námsmanna erlendis gegn skerðingu námslánanna. Blaða- menn frá norksum dagblöðum og sjónvarpi hafa fylgzt með þessum atburði af miklum áhuga. „Þau komu hér kl. hálfellefu i morgun og hafa verið hér sið- an,” sagði Sigurður Hafstað sendifulltrúi. „Þetta fer allt mjög róiega fram, hér eru börn að leik og konur sitja við handa- vinnu. Afgreiðsla tefst ekki af þessum sökum. enda mun það ekki hafa verið ætlun náms- fólksins”. „Með þessum aðgerðum lýs- um við yfir stuðningi við mót- mæli námsmanna heima og undirstrikum kröfur okkar hér erlendis,” sagði Mörður Arna- son, fulltrúi námsmanna. „Þetta er ekki sendiráðstaka. heldur friðsamlegar mótmæla- aðgerðir. Við höfum afhent norskum fjölmiðlum yfirlýs- ingu, þar sem við gerum grein fyrir þvi ástandi, sem rfkir i is- lenzkum efnahagsmálum og hafa henni verið gerð skil. Hér verðum við þar til sendiráðinu verður lokað i dag”. Þess má geta, að lögreglan i Kaupmannahöfn hefur tilkynnt islenzka sendiráðinu þar um væntanlegar mótmælaaðgerðir námsmanna við sendiráöið kl. 14 i dag. IIP HREIN MOLD BORIN l' VEGINN — bilar annaðhvort stóðu fastir eða misstu allt undan sér — baksiða KÖTTUR RÉÐST Á 6 ÁRA TELPU — Var lögð inn ó sjúkrahús — Baksiða LEITAÐ AÐ KONU Á AKUREYRS - bls. 18 Þetta fcer ríkið — - þegar þú kaupir benzín! — bls. 3

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.