Dagblaðið - 22.10.1975, Side 2
2
Pagblaðið. Miftvikudagur 22. október 1975.
„Mér er líkt við Trjóuhestinn..."
— segir Guðmundur Daníelsson rithöfundur, sem enn ó ný er lótinn
hverfa fró SUÐURLANDI, nú fyrir skrif um „Draumatrollara" Selfyssinga
„Mér er likt við Trójuhestinn i
Ódysseifskviðu, —ég skammast
mln ekkert að feta i fótspor
hans,” sagði Guðmundur
Danielsson rithöfundur I viðtali
viö Dagblaðið en honum hefur
nú enn einu sinni verið visað frá
ritstjórnarstörfum fyrir Suður-
land, vikublað sjálfstæðis-
manna, sem gefið er út á Sel-
fossi.
.Þetta hófst með þvi að
Guðmundur skrifaði grein i
blaðið um „Draumatrollar-
ann”, sem Selfyssingar eru a<)
festa kaup á. Greinin féll ekkj'I
sem beztan jarðveg hjá ýmsum
aðstandendum hinnar nýju út-
gerðar. A fundi með nokkrum
aðstandendum Suðurlands var
megn óánægja með greinina.
Taldi þá einn fundarmanna að
Guðmundur væri Trójuhestur i
herbúðum sjálfstæðismanna og
var honum þannig likt við sjálf-
an ódysseif og hið snjalla her-
bragð hans.
Guðmundur sagði að Ingólfur
Jónsson hefði komið að máli við
sig og beðið sig að skrifa greinar
um sjálfvalið efni i annað hvert
blað til næstu áramóta. Annar
fundarmanna hótaði að skrifa
ekki stafkrók i blaðið meðan
Guðmundur riði þar röftum,
ekki siztef hann ætlaði að skrifa
öðru sinni um togarakaup
Selfyssinga.
Ingólfur á Hellu, ritstjóri
Suðurlands, taldi að samningur
blaðsins og Guðmundar gilti
áfram, hann ætti að skrifa viku-
lega til áramóta, en Guðmundur
hafði stungið upp á grein í annað
hvert blað til áramóta úr þvi
sem komið var. Ritaði hann
siðan aðra grein um „Drauma-
trollara á Selfossi” og hafði þá
fundinn á blaðinu til hliðsjónar.
En þá var hringt frá Suðurlandi
og honum tilkynnt að þeir ósk-
uðu ekki eftir þeirri grein i blaö-
iö. „Ég sagði þeim að það væri I
lagi, hún kæmi þá ekki, og held-
ur ekki neitt annað i staðinn,
ekki i þetta blað né framvegis,”
sagði Guðmundur i gær.
í hitteðfyrra var Guðmundur
látinn hætta sem ritstjóri blaðs-
ins eftiraðhafa skrifað greinina
„Guðinn NATO og Guð vors
lands...” Upplagi blaðsins var
þá brennt eftir að það hafði ver-
ið prentað. Hins vegar birti
keppinauturinn, Þjóðólfur,
greinina. Við ritstjórn blaðsins
tók þá Ingólfur Jónsson á Hellu,
fyrrum landbúnaðarráðherra,
og skrifaði Guðmundur ekki i
blaöið um hrið, eða þar til rit-
stjórinn óskaði eftir greinum
Guðmundar, sem blaðalesend-
um þóttu margar hverjar með
ágætum.
„Ég hef annarsnóg að starfa.
Almenna bókafélagið er að gefa
út eftir mig óratóriu ’74, ég
haföi það af að lifa af heila
þjóðhátið, tvennar kosningar og
tvo holskurði. Þessi bók er eins
konar framhald Spítalasögunn-
ar myndskreytt af Halldóri
700 DILKASKROKKAR
UTAN VEGAR
Stór og mikill kjötbill norðan úr
Húnavatnssýslu, hlaðdnn 700
dilkaskrokkum, fór út af Veginum
við Háls i Kjós i nótt. Fékk lög-
réglan i Hafnarfirði tilkVnningu
um slysið kl. 02.40 og fórjá vett-
vang.
Fengnir voru sendibilar úr
Reykjavik til að koma farmi bils-
ins á leiðarenda og í morgun var
unnið við að ná bilnum upp á veg-
inn aftur. Ekki urðu slys á mönn-
um.
ASt.
Péturssyni. Þá er ég með
tilbúna skáldsögu, sem ég nefni
Bróðir minn Húni og fjallar um
tvo unga menn og örlög þeirra.
Sú bók kemur út hjá AB.”
Guðmundur átti i höggi við
óvandaða iðnaðarmenn á tima-
bili. Flata þakið á húsinu hans
á Selfossi lak sifellt, og
Guðmundur neitaði að greiða
fyrir slika þjónustu. „Þeir hafa
settupp hvita flaggið, málinu er
lokið með sigri réttláetisins,”
sagði Guðmundur að lokum.
—JBP—
GUÐMUNDUR DANÍELSSON, — hér sem ritstjóri fyrir Suðurland að spyrja Pál verkfræðing
Hannesson um gang mála við Þórisós sumarið 1972.
r
Hvað reykja
íslendingar \
og drekka:
CAMEL, VICEROY OG KENT,
- OG ÍSLENZKA BRENNIVÍNIÐ
— og nú eykst salan á léttum
vínum á kostnað þeirra sterkari
„Það eru þessar amerisku
sem seljast bezt, Camel,
Viceroy og Kent,” sagði Ragnar
Jónsson skrifstofustjóri hjá
ATVR, er við inntum hann eftir
þvf hvaða sigarettutegundir
seldust bezt hér á landi.
Hann gat ekki gefið upp tonna-
fjölda enda sagði hann endan-
legar tölur ekki liggja fyrir.
„Af sterkum vínum selst
islenzka brennivinið langbezt,
enda tiltölulega ódýrt,” sagði
Ragnar einnig. Sölu á léttari
vinum, rauðvini og hvitvini
o.þ.h., sagði hann hafa aukizt
jafnt og þétt á kostnað hinna
sterku og einnig sagði hann hin
svonefndu „heitu vin” þ.e.
vermouth, hafa selzt vel að und-
anförnu.
Um það hvort áformað væri i
framtiðinni að halda verði á
léttari vinum niðri til þess að fá
tslandinga til að neyta þeirra
frekar, kvaðst hann heldur litiö
vita. Alagning á léttarivinum
hefði alltaf verið minni og
sennilega nægilega lág.
Hvort rikið myndi einhvern
tima reka áróður fyrir bindindi,
eins og t.d. i Sviþjóð?
„Ég hef heyrt þessa getið, en
ég efast um að við gerum meira
á þvi sviði en gert er nú þegar,
þ.e. bann við auglýsingum á
tóbaki og vini. Svo megum við
ekki gleyma áfengisfræðslunni i
skólunum,” sagði Ragnar að
lokum. HP.
Þú íærð ísinola í veizluna
/
i
Nú getur þú áhyggjulaust boöið gestum kalda
drykki heima hjá þér. Engin bið eftir að vatnið frjósi í
ískápnum.
Hjá Nesti færðu tilbúna ísmola, — og þú átt ekki á
hættu að verða.ís-laus á miöju kvöldi.
Renndu við.í Nesti og fáðu þér ísmola í veizluna!
Ártúnshöföa •
NESTI h.f.
Elliðaár — Fossvogi