Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 22.10.1975, Qupperneq 3

Dagblaðið - 22.10.1975, Qupperneq 3
Dagblaðiö. Miðvikudagur 22. október 1975. Lœkna- og lyfjafrœðinemar: VILJA STJÓRNVÖLD MENNTUN AÐEINS HANDA ÞEIM FJÁÐU? Lækna- og lyfjafræðinemar eru harðir i garð stjórnvalda og mót- mæla „gervilausn sem stjórnvöld hafa nú lagt fram á haustlánum”, segir i fréttatilkynningu frá Fé- lagi læknanema, sem hélt fund á- samt félagi lyfjafræðinema á föstudagskvöldið vegna þess dráttar sem orðið hefur á af- greiðslu haustlána til mennta- fólks. „Þegar rikisstjórnin svikur þannig lögfestar skuldbindingar hverfur hún frá fyrri stefnu að hamla gegn aðstöðumun manna til náms eftir efnahag og búsetu,” segja stúdentarnir að lokum. Þessi fréttatilkynning speglar mótmæli fjöldamargra annarra hópa nema i heimspekideild, verkfræði- og raunvisindadeild, náttúrufræðideild, lagadeild, vél- skólamenn og fleiri. -JBP- Orkumálastjóri og ólögleg bílanotkun: „GET ENGU SVARAÐ UM ÞETTA" „Ég get engu svarað um þetta. Það segir ekkert i lögum eða reglugerðum um svona.” Þetta sagði Jakob Björnsson orkumálastjóri er við spurðum hvaða viðurlögum sá maður sætti hjá Orkustofnun sem notaði bil stofnunarinnar til eigin þarfa eins og sá er varð uppvis að veiði- þjófnaði i Landmannaafrétt á dögunum. Jakob sagði aö skýrslur væru komnar um málið. Orkustofnun mun væntanlega rannsaka þetta fyrst og leggja málið fyrir iðnað- arráðuneytið. „Hvaö verður gert veit ég ekki,” sagði Jakob. Evr stjórnir betur! Þegar þú kaupir bensín fyrir 1000 kr. greiðir þú 625,40 beint í ríkissjóð Hefurðu hugleitt það þegar þú ert að kaupa bensín á bílinn þinn, hvert þær 57 kr. sem þú greiðir fyrir hvern lítra fara? Þú heldur þó ekki að þær f ari að mestu leyti til Rússa, sem hækka olíuverðið eftir því sem bölvaðir Arabarnir spenna upp olíuverðið í. heiminum? Sésvo þá ertu á villigötum og gætir fræðzt svolítið af skýrsl- um Félags ísl. bifreiða- eigenda. Þar kemur f ram að þegar bensínlítrinn er kominn hingað til lands frá Rússlandi kostar hann 13.88 með flutnings- gjaldi og vátryggingu. Svo koma puttar rikisvaldsins i' spilið og það tekur til sin hvorki meira né minna en 33.92 kr. á hvern litra. Það sem þá er eftir eða 9.20 kr„ er álagning oliufélagsins, uppskipunar- kostnaður, dreifingarkostnaður o.fl. Ef þú kaupir bensin fyrir 1000 krónur er innkaupsverð þeirra litra sem þú færð kr. 280, i rikis- kassann fara 625,40 kr. af þinum 1000 kr. seðli, en oliufélögin fá i sinn hlut 94.60 kr. fyrir sina fyrirhöfn. t skýrslum FIB kemur fram að siðasta 6 kr. hækkun á bensinverði hér var öll heima- tilbúin á íslandi. 3.36 kr. af henni urðu vegna gengisbreyt- inga og 2.64 kr. hennar eru til- komnar vegna sjálfvirkrar hækkunar á 50% bensintolli og söluskatti. Bara þessi 6 kr. hækkun skilar þvi 300 millj. kr. i rikiskassann, segir i skjölum FIB. Og nú heldur þi>að rikissjóður sé bara með puttana i bensin- verðinu. Nei, kæri vinur. Af dekki sem kostar kr. 8000 renna kr. 4035 beint i rikiskassann. Heildartekjur rikissjóðs á ár- inu 1974 úr vasa bifreiðaeigenda er 6724 millj. króna eða um 18% af heildartekjum rikis- sjóðs. Geri aðrar rikisstjórnir betur! —ASt. Þeir mala drjúgt i rikiskassann teljararnir á bensintönkunum, sem fyrstum allra teljara á islandi var breytt frá þvi að telja einingar svo þeir gætu bara talið tugina nógu hratt. Heiðar Jónsson og Sigrún Sævarsdóttir fyrir utan Yardley-snyrtihúsiö I London. Sigrún vakti hrifningu blaðamanna fyrir fallega framkomu og gott vald á enskri tungu. —EVI— HÚN SIGRÚN VAKTI HRIFNINGU BY AH’OIKTMnNT H) I ViGUD.N l.U/ABtTH THtQUttN UT. l,\!rKs aND MANUF4CTUR» „Sigrún Sævarsdóttir er ein þeirra stúlkna sem Ferðaskrif- stofan Sunna hefur valið til þess að taka þátt i alþjóðlegri feg- urðarsamkeppni næsta ár,” segir Heiðar Jónsson fegrunar- sérfræðingur, en hann hitti Sigrúnu úti i London á dögunum þar sem hún kom i heimsókn i Yardley-snyrtihúsið i Bond stræti. A meðan á heimsókn hennar stóð komu brezkir blaðamenn á staðinn til þess að taka myndir og kynnast islenzkri fegurðar- dis. Sagði Heiðar þá hafa talað um að þeir ættu þvi ekki að venjast að hitta fegurðardis með svona fallega framkomu og sem hefði slikt vald á útlendu máli. Sigrún er að læra snyrtingu á einhverjum þekktasta skóla sinnar tegundar i Englandi. Ferðast þeir, sem þar læra, mjög mikið og eru á förum i næsta mánuði til Spánar til þess að sjá um tizkusýningu fyrir frægt fólk og ferðamenn á Hilt- on hótelinu i Marabella rétt hjá Toremolinos. EVI STUNDUM ERU EFTIRLITS- MENNIRNIR FLEIRI EN ÞEIR SEM SALTA „Hér eru stundum fleiri eftir- litsmenn en þeir sem eru að vinna við söltun,” sagði Matthias Þ. Guðmundsson verkstjóri hjá Bæj- arútgerðinni i viðtali við DAG- BLAÐIÐ. „Það er verið að leita að lækk- un byggingarkostnaðar. Ef þar hefur verið stigið annað eins risa- skref aftur á bak eins og hjá okk- ur hér, þá skal mig ekki undra,” sagði Matthias. „Hér er her manns að þvo kassa og vigta. Niu menn frammi i móttöku i stað eins, sem nægði. Einn er að vigta, 2 að ýta inn, 4 að losa, 2 á lyftara til að flytja sild- ina til stúlkanna. Ég veit ekkí ' hvenær aftur kemur ljós á peruna hjá þessum kontóristum, sem ráða öllum hlutum, en nú er mæl- irinn fullur hjá mér,” sagði Matthias Þ. Guðmundsson, verk- stjóri. Það reyndist meðal annars kerfisatriði, að fisksalar borgar- innar geta ekki fengið keypta nýja siid hjá Bæjarútgeröinni, sem annars hefur eftir föngum verið fisksölum innan handar um soðningu handa borgarbúum. —BS-

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.