Dagblaðið - 22.10.1975, Blaðsíða 5
Dagblaðið. Miðvikudagur 22. október 1975.
ð
Útvarp
D
Sjónvarp
Sjónvarpið í kvöld kl. 20,40: Nýjasta tœkni og vísindi
BLÓÐÞRÝSTINGUR
SJÁVARHÁSKI OG
IÐNAÐARRYK
Nýjasta tækni og visindi eru á
dagskrá sjónvarpsins i kvöld og
nefnist fyrsta myndin „Of hár
blóðþrýstingur”. Segir hún frá
þvi hvers eðlis þessi sjúkdómur
er, lýsir afleiðingum hans og
hvernig helzt megi verjast hon-
um. Við sjáum mann sem verð-
ur fyrir áfalli og hvernig honum
vegnar eftir það.
Næsta mynd heitir „Sam-
ræming björgunaraðgerða á
sjó”. Er þar greint frá alþjóð-
legu tölvustýrðu björgunar-
kerfi. Þau skip, sem notfæra sér
þetta kerfi, gefa upp siglingar-
áætlun sina, og ef eitthvað kem-
ur fyrir, svo sem eins og slys á
sjó eða sjávarháski, er á ör-
skömmum tima hægt að fá upp-
lýsingar um öll skip i nágrenn-
inu. Það sama gildir um flug-
vélar sem nauðlenda þyrftu á
sjó. Þær gætu einnig notfært sér
þetta kerfi.
Siðasta myndin heitir
„Hættulegt ryk” og fjallar um
ýmsar tegundir iðnaðarryks,
sjúkdóma af þess völdum og
hvernig megi koma i veg fyrir
þá. EVI
Þau eru mörg skipin sem lent hafa I sjávarháska. 1 þættinum Nýjasta tækni og visindi I kvöld er greint
frá alþjóðlegu tölvustýrðu björgunarkerfi, sem gerir það að verkum að á örskömmum tima er hægt að
fá upplýsingar um öll skip i nágrenninu ef eitthvað ber út af.
Sjónvarpið í
kvöld kl. 21,05:
„Farþeginn"
Það er 2. þáttur sakamála-
leikritsins „Farþegans” sem
viðsjáum i sjónvarpinu i kvöld.
Svo við rifjum aðeins upp sið-
asta þátt þá þáði ung stúlka far
hjá auðugum kaupsýslumanni,
sem er á ferð i glæsibifreið
sinni. Bifreiðin verður bensin-
laus og maðurinn gengur til
næstu bensinstöðvar. Þegar
hann kemur til baka er stúlkan
horfin.
MÁLIÐ YERÐUR
ENN FLÓKNARA
OG DULARFYLLRA
Þegar kaupsýslumaðurinn ekki eins saklaus og hann vill
nokkru siðar er á skrifstofu vera láta. Það siðasta sem við
sinni birtist lögregluforingi einn sáum til hans, var að kona hans
og spyr hann um kynni hans af kemur að honum þar sem hann
stúlkunni. Kaupsýslumaðurinn hefur framið sjálfsmorð og hjá
segist ekkert þekkja til hennar, honum er miði þar sem hann
en stúlkan fannst myrt rétt hjá játar á sig morð stúlkunnar.
þeim stað þar sem billinn varð
bensinlaus. 1 þættinum i kvöld verður
málið jafnvel enn dularfyllra og
Margir fléttuðust inn i málið flóknara.
og kaupsýslumaðurinn virðist EVI
Kögnvaldur Sigurjónsson mun spila I útvarpssal i kvöld sónötu
Pathetique op. 13 eftir Beethoven. — DB-mynd Bjarnleifur.
Útvarpið í kvöld kl. 20,00:
Rögnvaldur Sigurjónsson í útvarpssal:
„Nú, er ég að
spila ó morgun"
Þeir senda mér stundum
prógram,” varð Rögnvaldi
Sigurjónssyni að orði þegar við
spurðum hann um einleik hans i
útvarpssal. Þetta er sónata
Pathetique op. 13 eftir Beethov-
en, en upptakan fór fram fyrir
um það bil hálfum öðrum mán-
uði. Um svipað leyti fór einnig
fram upptaka þar sem Rögn-
valdur spilaði með Sinfóniu-
<*> <*>
hljómsveit Islands, en það fáum
við að heyra seinna.
Rögnvaldur kvað erfitt að
segja um hvert hans uppáhalds-
verk væri. Þetta sem hann spil-
aði i kvöld, væri vissulega stór-
kostlegt meistaraverk. ,,Ég
spilaði það svona að gamni
minu. Ég hef aldrei spilað það
áður,” sagði Rögnvaldur.
Hann hefur gaman af róman-
tiskum verkum og hallast meira
og meira að nýrri höfundum svo
sem Prokofief þótt hann sé
raunar ekki sá nýjasti af nál-
inni. Verk meistara eins og
Bachs, Schumanns og Chopin
eru auðvitað sigild.
Rögnvaldur er yfirkennari i
framhaldsdeild i pianóleik við
Tónlistarskólann i Reykjavik.
Hann er mjög þekktur einleikari
og hefur haldið fjölda pianó-
hljómleika á öllum Norðurlönd-
unum, ennfremur i Bandarikj-
unum, Kanada, Þýzkalandi
Austurriki og Rússlandi.
EVI
■d
SÍÐUSTU SÝNINGAR
LOFTFIMLEIKAFLOKKSINS
KÍNVERSKA
f KVÖLD KL. 17 OG 20 í LAUGARDALSHÖLL
MIÐASALA AÐ BÁÐUM SÝNINGUM í LAUGARDALSHÖLL FRÁ KL. 15,00
íþróttabandalag Reykjavíkur
Sœti kr. 800.- Stœði kr. 500.00