Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 22.10.1975, Qupperneq 8

Dagblaðið - 22.10.1975, Qupperneq 8
Dagblaðiö. Miðvikudagur 22. október 1975. Útgefandi: Dagblaðið hf. Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson Ritstjóri: Jónas Kristjánsson Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson Ritstjórnarfulltrúi: Haukur Helgason tþróttirr Hallur Simonarson Hönnun: Jóhannes Reykdal Blaðamenn: Ásgeir Tómasson, Atli Steinarsson, Bragi Sigurðsson, Erna V. Ingólfsdóttir Hallur Hallsson, Helgi Pétursson, ólafur Jónsson, Ómar Valdimarsson. Handrit: Ásgrimur Pálsson, Hildur Gunnlaugsdóttir, Inga Guðmannsdóttir, Maria ólafsdóttir. Ljósmyndir: Bjarnleifur BjárnleifsSon, Björgvin Pálsson Gjaldkeri: Þráinn Þorleifsson Auglýsingastjóri: Asgeir Hannes Eirfksson Dreifingarstjóri: Már E.M. Ilalldórsson Áskriftargjald 800 kr. á mánuði innanlands. i lausasölu 40 kr. eintakið. Blaðaprent hf. Ritstjórn Siðumúla 12, simi 83322, auglýsingar, áskriftir og af- greiðsla Þverholti 2, simi 27022. Ferlegar fréftir Hafrannsóknastofnunin hefur með hinni ,,svörtu” skýrslu sinni sett þjóðinni eins konar úrslitakosti. Nú þegar verði að hemla rösklega i sókn- inni i mikilvægustu fiskistofna fs- landsmiða, ef fiskveiðar eigi ekki smám saman að leggjast niður sem atvinnugrein hér á landi. Samkvæmt skýrslunni virðast íslendingar nú ein- ir veiða á þessum miðum svipað magn af þorski og Hafrannsóknastofnunin telur að veiða megi i heild á íslandsmiðum við núverandi aðstæður, 230 þúsund tonn. Þau 140 þúsund tonn, sem erlend skip veiða, eru þá algerlega umfram leyfilegt magn, að mati Hafrannsóknastofnunarinnar. Framhald röksemdafærslunnar er ljóst. Fyrir hvert tonn, sem útlendingar veiða hér við land i leyfi eða óleyfi, verðum við að minnka afla okkar um annað tonn. Allar þær undanþágur, sem við semjum um við erlend riki, koma að fullu niður á möguleikum okkar til að nýta miðin. Við höfum þvi i rauninni ekkert svigrúm til samninga við þau riki, sem telja sig hafa sögulegan rétt til þorskveiða á ís- landsmiðum. Og ástandið er i rauninni enn alvarlegra, ef tekið er með i reikninginn, að Hafrannsóknastofnunin tel- ur islenzka fiskveiðiflotann hæglega geta veitt 500 þúsund tonn af þorski, ef stofninn væri nægilega stór. Þetta þýðir, að sókn okkar i þorskinn er nú meira en tvöfalt meiri en hagkvæmt er að hafa hana. Við þurfum raunar ekki nema helminginn af flotanum til að veiða þau 230 þúsund tonn, sem Haf- rannsóknastofnunin telur hámark á næsta ári. En hið súra er einnig blandað sætu ií skýrslu Haf- rannsóknastofnunarinnar. Ef við verðum góðu börnin og leyfum aðeins 230 þúsund tonna þorsk- veiði á næsta ári, á að vera unnt að veiða 290 þúsund tonn árið 1977 og siðan meira magn ár frá ári, unz eðlilegu hámarki sé náð að nýju i 500 þúsund tonn- um. En það er einmitt magnið, sem núverandi fisk- veiðifloti okkar ætti að anna með hagkvæmum rekstri. 1 þessu skyni og i samræmi við þetta vill Hafrann- sóknastofnunin, að hverju sinni sé ákveðinn há- marksafli einstakra fisktegunda á Islandsmiðum. Og hún vill fá heimild til að stöðva fyrirvaralaust veiðar á ákveðnum svæðum i allt að tiu daga, með- an svæðin séu rannsökuð nákvæmlega. Þar á ofan vill Hafrannsóknastofnunin hækka leyfilega lágmarksstærð flestra mikilvægustu teg- undanna, til dæmis þorsks úr 43 sentimetrum i 50 sentimetra. Vill stofnunin lögbinda stærri möskva við þorskveiðar og á svæðum, þar sem þorskur er meginuppistaða aflans. Ýmsar fleiri harkalegar tillögur eru i skýrslu Hafrannsóknastofnunarinnar. Aldrei áður hefur á- byrgur aðili dregið upp jafndökka mynd af ástand- inu á íslandsmiðum. Sjávarútvegsráðherra er ekki sá eini, sem hefur hrokkið i kút við þessi tiðindi. En við verðum að kunna að taka fréttunum og haga okkur i samræmi við þær. BIAUIff fijálst, úháð dagblað Hatrömm valdabqrátt — úrslit hennar gera út um pólitíska framtíð þeirra, sem berjast, — forsœtisráðherrans og leiðtoga stjórnarandstöðunnar Furðuleg stjórnmálabarátta fer nú fram i Astraliu á milli tveggja viljasterkra og frama- gjarnra stjórnmálamanna, sem berjast um völd og áhrif. Stjórnmálastrið þetta, sem valdið hefur umtalsverðri stjórn- lagakreppu, stendur á mili for- sæt isráðherrans, Gough Whitlams, og leiðtoga stjórnar- andstöðuflokks frjálslyndra Malcolm Frasers. Nær öruggt er talið að endalok baráttunnar verði þau að pólitiskur dauða- dómur verði kveðinn upp yfir öðrum hvorum. ,,Ég læt ekki undan og stend við það,” segir Whitlam. „Við látum ekki undan, hvorki nú né nokkru sinni,” segir Fraser viðlíka kokhraustur. Minnihlutastjórn undir- rót vandræðanna Stjórnmála- og stjórnlaga- kreppan, sem náð hefur yfirtök- unum í Astralíu á aðeins tæpri viku, er hámark ákafrar baráttu þingræðisins, sem hefði átt að leysast i kosningunum I maí i fyrra. Þá fannst ekki lausn máls- ins og þess geldur Ástralia i dag. Whitlam forsætisráðherra fékk þjóðina til að lýsa trausti á sig, en meirihluti hans var mjög naumur. Kosið er i landinu á þriggja ára fresti. Þegar eftir kosningarnar hótaði stjórnarand- staðan að hefta fjárveitingar til stjórnarframkvæmda. t siðustu viku lét stjórnarand- staðan, undir forystu Frasers, verða alvöru úr hótunum sinum. öldungadeild þingsins, þar sem frjálslyndir og þjóðveldismenn hafa nauman meirihluta, felldi tvo mikilvæga þætti fjárlaga- frumvarpsins, þ.e. fjárveitingar - til stjórnarframkvæmda. t siðustu viku lét stjórnarand- staðan, undir forystu Frasers, verða alvöru úr hótunum sinum. öldungadeild þingsins, þar sem frjálslyndir og þjóðveldismenn hafa nauman meirihluta, felldi tvo mikilvæga þætti fjárlaga- frumvarpsins, þ.e. fjárveitingar til daglegs reksturs stjórnarinnar og ráðuneyta hennar. Whitlam gerði þegar i stað gagnárás. Hann skipulagði fjöldafundi stuðningsmanna Verkamannaflokksins um land allt og lýsti þar yfir, að hann léti stjórnarandstöðuna ekki kúga sig til að láta undan kröfum um að leysa upp þing og efna til nýrra kosninga. Báðir fjárlagafrumvarps- þættirnir voru lagðir fyrir þingið OFORMLEG um sýningu ó teikningum og mólverkum Kjarvals að Brautarholti 6 ■■■■■■ Einhverntima hefði niræðis- afmæli verið talið stórafmæli, ekki sist þegar i hlut á sá lista- maður Islenskur sem lengsthef- ur komist i list sinni og oftast er minnst af mætum mönnum á hátlðisdögum islenskrar menn- ingar. Hér á ég að sjálfsögðu við Jóhannes Kjarval, sem hefði orðið 90 ára 15. október siðast- liðinn. En engin opinber list- stofnun gerði sig liklega til að sýna svo mikið sem nokkur sjaldséð rissblöð meistarans i tilefni afmælisins. Þvi fóru ættingjar Kjarvals á stúfana og hafa nú sett upp veg- lega og stórmerka sýningu i sýningarsal að Brautarholti 6 á áður óþekktum teikningum, rissi og máluðum verkum eftir hann frá þvi 1911-12 og liklega fram undir 1960, en „liklega” segi ég vegna þess að mörg verkanna eru ómerkt ártali. Teikningar og riss eru einatt nær hinum innra manni lista- manns en stór málverk og á þetta sérstaklega við um Kjar- val, sem var síteiknandi á hvert það blaðsnifsi sem nálægt hon- um var. Ekki eru öll þessi verk mikil listaverk og ekki hægt að ætlast til þess að svo sé þvi i mörgum teikningum er Kjarval einfaldlega að láta hugann reika stefnulaust um pappirinn, eins og við sjálf gerum innra með okkur, án þess að draga neina heildarályktun af hugsunum okkar. En samt ber hvert blað vott um leiftrandi hugarflug mikils persónuleika og i þeim bestu komumst við býsna ná- lægt þvi að sjá eigin augum hvernig andi verður efni. Tilfinningalegur Það staðfestistbetur og betur, þvi oftar sem maður skoðar Kjarval, hversu ósystematiskur og tilfinningalegur hann er sem listamaður. Myndræn vanda- mál eru ekki alltaf könnuð ofan I kjölinn heldur leyst með snar- legum útúrdúr eða hugmynda- rlkum skemmtilegheitum. Að þvi leyti á Kjarval ansi margt sameiginlegt með Súrrealist- um, nema hvað hugur hans er ekki þrunginn kynórum og sjúk- legri sjálfsmeðvitund heldur glettilegum ævintýrum og gróðurformum. I bestu verkum hans, málverkum og teikning- um, sameinast þetta tvennt, sem ég held að sé undirst- vin- sælda hans meðal þeirra ís- lendinga sem skilja hann. Dul- hyggja, ævintýri og álfar eru enn rikur þáttur i lifsskoðun margra og Kjarvals einnig. Til- hneyging hans til að draga fram andlit eða kynjaverur i lands- lagi snertir þennan streng i mörgum íslendingum og þvi má segja að hann skilji ekki aðeins land sitt heldur einnig landa sina. 1 þessu tilliti stendur hann enn fremstur islenskra listmál- ara. Alda aldanna A þessari sýningu er margt KJALLARASETA TIL Nafni minn, Kristjánsson Kjallarinn i blaði þinu geymir margt gott og spaklegt, enda sæmilegasta geymsla, þokka- lega innréttuð og þurr. — En veiztu nú bara hvað? Við, þessir svonefndu karlmenn i tilver- unni, erum allir sem einn á leið i „kelleren” og verðum látnir dúsa þar 24. þ.m. — Við verðum settir i kjallarann af þeim ynd- isverum sem um jörðina svifa og við höfum talið veikara kyn, ævinlega lamið hausunum á okkur við finnanlegt grjót og neitað þeirri staðreynd að kon- an er ekki aldeilis veikari eða á neinn hátt óæðri vera. Hún hef- ur konan, dálitið verið að umla gegnum árin og kannski aldirn- ar, og nútimakonan, kona vetn- is- og plast aldar, hefur ræki- lega af rekið rykt sett af konum fyrri alda, sem létu sér nægja að vera brúöan á heimili karl- mannsins. Þegar við sjentilmenn 20. aldar hér á Islandi, sitjum i „kelleren” ættum við að hugsa i alvöru af hverju þessar aðgerð- ir séu nauðsynlegar. Við eigum ekki að koma úr kjallaranum jafn ömurlega staurblindir og við fórum þangað niður. Sjáðu til nafni, konan hefur alltof mik- ið til sins máls, til þess að við getum leyft okkur að setja upp virðingargrlmu yfir hundshaus- inn og með herðatré i jökkunum og stifelsi yfir bakið, gengið úr iðrum jarðar upp á yfirborðið og byrjað á nýjan leik að þykjast vera konum betri og fremri um allflesta hluti og eiga þvi skilið að bera meira úr býtum t.d. fyr- irsömu störf: Veiztu! Þær hafa aldeilis gasalega mikið rétt fyr- ir sér! Ástandið i efnahagsmálum er ekki frá konum komið. Skatta- mál, launamál, tryggingamál eru fundin upp af karlmönnum, held ég. Við höfum beitt konur miklum rangindum og það er mér til undrunar að þær skulu enn leyfa okkur að sofa hjá sér. En þvi eðli verður ekki breytt eða deyft i mikla lengd, og var skaparinn sniðugur þar eins og i flestu sem hann hefur komið ná- lægt og okkur mönnum ekki tek- ist að skemma eða klúðra fyrir honum, blessuðum. Ég játa á mig þá stóru synd að hafa til nokkuð skamms tima litið á konur sem smærri i öllum sniðum en karlmenn. Konan min kallar mig rauðsokka núna,

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.