Dagblaðið - 22.10.1975, Page 11
Oagblaðið. Miðvikudagur 22. október 1975.
11
f óskil-
um!
Sigurður Jóhannsson kom að
máli við blaðið:
„Seint á miðvikudagskvöldið,
þegar ég var að koma úr bænum
rakst ég á svarta læðu, hálfstálp
aða svona 4 mánaða með nokk-
ur hvit hár á bringunni en ann-
ars kolsvört. Kisa gerði sér litið
fyrir og elti mig upp á Hlemm.
Ég sá fram á að hún væri týnd
og fór með hana heim með mér.
Kisa er mjög mannelsk, þar að
auki bar hún ilmvatn, svo sem
góðri dömu sæmir, en enga
merkingu bar hún.
Hægt er aö ná i mig i sima
26761 á kvöldin, en hægt ér að
vitja um kisu að Asbyrgi við
Vatnsveituveg. Ef svo einhvern
dýravin langaði i kettling þá
fást þeir þar gefins.”
ALLSNÆGTA-
ÞJÓÐFÉLAGIÐ OG
ÞEIR SEM MINNA
MEGA SÍN
Arnar Kristjánsson skrifar:
„Eigum við ekki áð skipta á
Matthiasi og Asbirni? Asbjörn
Ólafsson virðisthafa mun meira
vit á peningamálum en Matthi-
as, ef marka má getu Asbjarnar
til að hlaupa undir bagga meö
að greiða af bifreið Oryrkja-
bandalagsins þá tolla sem það
var aö reyna að fá niðurfellda
en tókst ekki. Hins vegar tókst
að fá tolla af einkabifreið
Matthiasar fellda niður, enda
hafa þær reglur verið settar af
þeim sem völdin hafa.
Þessir menn virðast ekki hafa
mikinn áhuga á málefnum
þeirra er minna mega sin i alls-
nægtaþjóðfélagi broddborg-
ara.”
...og kipptu öllu í liðinn
Steinn Hermannsson sendi eftirfarandi:
Skuldir aukast, auður dvin,
orðið svart ástandið.
Elsku hjartans Matti minn,
mér nú leiðist biðin,
af krónum fylltu kassann þinn
og kipptu öllu i liðinn.
Ármannsfellsmólið
Staðan öll þótt ei sé góð
Alberts hækkar sómi
ef hann getur lumað lóð
á laun að sakadómi.
Eðlilegt við hundahald,
að hvolpar sjúgi tikur,
en slæmt, er Reykjavikurvald
venursig á lóðafar. H.S.
Eru tolloeftirgjafir
skattskyldar?
Fyrirspurn til
rikisskattstjóra.
„Eru tollaeftirgjafir til ráð-
herra af bilainnkaupum skatt-
lagðar sem tekjur eða fellur það
undir sömu ákvæði og gjafir til
liknarfélaga?
Einn á hjólastól.”
Dagblaðið hafði samband við
Kristján Jónasson skrifstofu-
stjóra hjá embætti rikisskatt-
stjóra og fer svar hans hér á eft-
ir:
„Tollaeftirgjafir á bifreiða-
innkaupum ráðherra eru ekki
skattskyldar sem tekjur.”
í skjóli laganna
Óánægður skattgreiöandi i
Garðahreppi skrifar:
. „Hvernig væri að við ibúar i
Garðahreppi krefðumst athug-
unar á misræmi þvi sem hér er i
skattlagningu? Að visu hefur
skattskrá þessa árs ekki verið
lögð fram enn. Hver skyldi á-
stæðan vera? Miðað við misrétti
siðastliðsins árs i skattlagningu
er ranglætið hróplegt.
Hvernig má það vera að ein-
staklingar sem eiga stór full-
gerð einbýlishús, bila af dýrustu
gerð og fara með fjölskylduna
til sólarlanda a.m.k. einu sinni á
ári — sem sé einstaklingar með
að þvi er virðist nóg fjárráð —
greiða engan tekjuskátt og fá
jafnvel endurgreitt frá skattin-
um!
Fólkið, sem hefur mestu úr að
moða, virðist greiða lægstu
skattana. Algengt er að þessir
einstaklingar greiði frá 40 þús-
und krónum i útsvar og getur
hver og einn sagt sér að slikt er
fáránlegt.
Greinilegt er að þeir, sem
reka einkafyrirtæki geta
skammtað sér launin, látið fyr-
irtækin borga daglegan einka-
rekstur og hagrætt bókhaldi,
þannig að allt er rekið með
„tapi” og þvi engir skattar
greiddir.
Við hinir verðum svo að borga
sameiginlegan kostnað fyrir
stóran hóp sem svikst undan
sinni greiðsluskyldu. Flestir
fyrirtækjaeigendur hér reka
fyrirtæki sin i Reykjavik og þvi
nýtur Garðahreppur ekki góðs
af þeim.
Þetta nær engri átt og er það
lágmarkskrafa að gjöldum sé
réttlátlega deiltniðurá þegnana
— i dag eru það hinir opinberu
þrælar sem borga. Sjálfsagt er
að virða og meta einkaframtak-
ið og einnig að greiða þeim, sem
stunda einkarekstur, vel fyrir
sina vinnu.
En að einstaklingar greiði
enga skatta i skjóli laga, eins og
hér tiðkast, er siðleysi á hæsta
stigi.
Við Garðhreppingar og
reyndar landsmenn allir ættum
að taka höndum saman og
krefjast úttektar á skattakerf-
inu almennt og koma þannig i
veg fyrir að skattalögin séu not-
uð sem opinbert löglegt skatt-
svikaplagg.”
Magnús svarar
fyrir Júdas:
Magnús Kjartansson, einn af
meðlimum Júdasar, hafði sam-
band við blaðið vegna bréfs eins
aödáanda hljómsveitarinnar.
„Að mörgu leyti verð ég að
lýsa mig sammála skrifum
„Aðdáanda Júdasar” um að
gamla prógrammið okkar sé
orðið hálfóáheyrilegt. Þvi miður
hefur hljómsveitin haft mjög
mikið að gera i sumar, bæði við
plötuupptöku og utanlandsferð,
svo að ekki hefur gefizt mikill
timi til æfinga. En nú er upptök-
um á plötunni okkar að verða
lokið og eftir það ætti okkur að
vera i lófa lagið að bæta fyrir
allar okkar syndir.
Einnig vona ég að fólk endur-
heimti trúna á gömlu, góðu
hljómsveitina þegarplatan okk-
ar kemur út.
Magnús Kjartansson.
MIKIÐ
PLÁSS
Vesturbæingur simaði:
„Mikilli truflun og leiðindum
valda vörubilar, sem lagt er hér
I vesturbænum i þröngar götur.
Þannig útiloka þeir minni bila
frá bilastæðum, þessir bilar
taka svo mikið pláss. Einnig
valda þessir stóru bilar mikilli
slysahættu.sérilagiþarsem nú
fer I hönd skammdegið með
leyndum hættum fyrir börn sem
ekki alltaf skynja umhverfi sitt
rétt.
Mig langar að koma þeirri
uppástungu á framfæri að vöru-
bilstjórar skilji bila sina eftir á
hinu rúmgóða bilastæði Þróttar
— það tiðkast erlendis að vöru-
bilar eru skildir eftir á vinnu-
stöðunum — þannigvalda þessir
' bilar ekki slysahættu né eru öðr-
um til ama.
Einnig langar mig til að beina
þeirri spurningu til Umferðar-
ráðs hvort þessir bilar séu i full-
um rétti, þar sem þeir taka und-
ir sig mörg bilastæði.”
ÞEIR TAKA