Dagblaðið - 22.10.1975, Side 18
18
Pagblaðið. Miftvikudagur 22. októbcr 1975.
Þegar Friðrik lagði landa sinn:
Lá við að fólk
klappaði fyrir
skemmtilegri skák
Van Den Broeck gaf á móti
Hartston eftir 24 leiki og lauk
þannig fyrstu skákinni i 2. um-
ferð svæðismótsins i gærkvöldi.
Englendingurinn er þvi efstur á
mótinu, einn með 2 vinninga,
hefur unnið báðar sinar skákir.
Þeir tefldu lokaðan Benoni, og
var fljótlega ljóst, að þetta var
ekki dagur Belgans á mótinu, og
gaf hann sem fyrr segir eftir 24
leiki og tapað tafl á hvitt.
Skákir fóru þannig, hvitur tal-
inn á undan:
Van den Broeck—Harston: 0-1
Parma—Zwaig: 1/2-1/2
Ribli—Poutiainen: Biðskák
Björn—Friðrik: 0-1
Ostermayer—Liberzon:
Biðskák
Laine—Hamann: 1/2-1/2
Jansa—Timmann: 1/2-1/2
Murrey sat hjá og hefur þvi
ekki teflt ennþá á mótinu.
Parma hafði hvitt á móti
Norðmanninum Zwaig og tefldu
þeir spánskan leik. Staðan hjá
svörtum var afar þröng, og þeg-
ar sýnt var, að Parma tækist að
varna hrókun hans, voru spár á-
horfenda Parma frekar i vil.
Þeir notuðu báðir mikinn tima
og þegar jafntefli var samið eft-
ir 28 leiki, held ég, að það verði
að teljast góð útkoma hjá Zwaig
að hafa náð jafntefli við tvo
stórmeistara i tveim skákum,
sem hann hefur teflt. Sem sagt
Zwaig: 1 vinningur, Parma 1
1/2.
Björn Þorsteinsson og Friðrik
tefldu Sikileyjarvörn, svokallað
Poulsen-afbrigði. Þegar Björn
gaf eftir 30 leiki og fyrirsjáan-
legt mát og timaleysi, voru á-
horfendur að þvi komnir að
klappa fyrir skemmtilegri skák
og fallegum yfirburðum stór-
meistarans. Ég held að flestir
hafi hugsað svipað. Fram til
þessa hafði ekki verið klappað
fyrir neinum, auk þess sem
skammt var i skáklok hjá öðr-
um og rétt að taka tillit til
þeirra, sem þurftu að beinbeita
sér.
Ostermayer og Liberzon
tefldu kóngs-indverska vörn,
Samisch-afbrigði. Skákin fór i
bið og staða Þjóðverjans ekki
talin lakari. Biðstaðan er þessi:
Ostermayer (hvitt): K gl, D c4,
H cl, H e3, a3, b2, f3, g2, h2.
Liberzon (svart): K g8, D e8, H
d8, H dl, e5, f7, g6, h5. Hvitur á
leik.
Laine og Hamanntefldu kóngs-
indverskt tafl, sem að minnsta
kosti skemmra komnir héldu að
Daninn myndi vinna. Eftir 40
leiki voru á borðinu 6 peð hjá
hvorum og mislitir biskupar.
Rakið jafntefli.
Jansa og Timmann tefldu
Sikiieyjarvörn, Scheveningen
afbrigði. Talsvert var eftir af
mönnum á borðinu eftir 24 leiki,
en — jafntefli: 1/2—1/2.
Skák þeirra Ribli og Poutiain-
en var önnur skákin, sem fór i
bið. Þeir tefldu Reti, eða væng-
tafl, og var skákin að þvi leyti
skemmtileg, að hún vakti um-
ræður, enda spenna mikil og ó-
vissa um úrslit. Biðstaðan var
þessi: Ribli (hvitt): K g2, D d2,
R d4, e2, b3, d3, g4, h4,f5Pouti-
ainen (svart): K e7, D c7, R b7,
B h7, e6, f6, h6, d5, h5, b4: Hvitur
leikur.
Mér fannst þessi önnur um-
ferð hafa á sér yfirbragð rólegri
yfirvegunar og þægilega minni
spennu en fyrsta umferðin.
Bæði keppendur og áhorfendur
eru orðnir hagvanir og hafa náð
sambandi. Auk þess er sjálfsagt
eitthvað liðin ferðaþreytan úr
komumönnum og allir mættir til
leiks.
Mótsstjórnin leikur i höndum
hins iturvaxna séra Lombardy,
sem hefur alla þræði i höndum
sér. Hann er i senn föðurlegur
og drengjalegur i hárauðum,
klæðilegum jakka, alltaf nálæg-
ur eins og traust kjölfesta.
Ahorfendur voru margir og
meðal iiunnugra andlita voru
lögmennirnir Bergur Bjarnason
og Magnús Sigurðsson, þarna
var Bergur Pálsson, Kristján
Sigurðsson, Einar Þorfinnsson,
Högni Torfason, Kristján
Benediktsson, Asgeir Asgeirs-
son verkfræðingur, Kristján i
Kiddabúð, Birgir ólafsson hjá
Flugfélaginu, Anton Sigurðsson
og Þráinn Guðmundsson auk
Benónýs og margra kunnra
skákmanna, að ógleymdum
Sigurði Sigurðssyni, frétta-
stjóra.
Framkvæmd mótsins er öll
prýðileg. Ungir áhugamenn um
skák færa til mennina á sýn-
ingarborðunum af mikilli vand-
virkni, en þó er ekki alltaf
greinilegt á hvern klukkan
gengur.
3. umferð verður tefld i kvöld
á Hótel Esju. Þá tefla þessi:
Hartston — Ribli
Hamann— Van Den Broeck
Friðrik — Laine
Zwaig — Björn
Timman — Parma
Liberzon — Jansa
Murray — Ostermayer
Poutiainen situr hjá i þessari
umferð. —BS—
ÞETTA ERU VERÐLAUNIN
Á MILLISVÆÐAMÓTINU
Átta verðlaun eru veitt á svæðismótinu samkvæmt reglum FIDE:
l.verðlaun: 3.000 svissneskir frankar eða kr. 187.740.00
2. verðlaun: 1.800
3. verðlaun: 1.200
4. verðlaun:
5. verðlaun:
6. verðlaun:
7. verðlaun:
8. verðlaun:
900
750
600
450
300
112.040.00
75.096.00'
5C.322.00
16.935.00
37.548.00
28.101.00
18.774,00
Auk þessara verðlauna eru svo veitt fegurðarverðlaun fyrir bcztu
skák mótsins, en aðsjálfsögðu eruþaðsvosem engin aukaverðlaun,
sem tveir efstu menn hljóta, rétt til að keppa áfram um réttinn til að
skora á heimsmeistarann um titil hans.
Þátttakendum er séð fyrir ferðum og ölliím dvalarkostnaoi.
Svæðismótið er haldið sameiginlega af Skáksambandi Islands og
Taflfélagi Reykjavikur.
HANN STUÐLAÐI AÐ SMÍÐI SAFNHÚSSINS
og barðist gegn bílamenningunni
Jón Jakobsson, þingmaður Húnvetn-
inga og Skagfirðinga, barðist með oddi og
egg fyrir byggingu Safnahússins, en smiði
þess var hafin haustið 1906 fyrir forgöngu
Hannesar Hafstein ráðherra og gekk
smíðin það greiðlega að starfsemi i hús-
inu gat hafizt 1909.
Hafði Jón ráðizt sem aðstoðarbóka-
vörður við safnið 1895 en var jafnframt
forngripavörður 1897—1907. Settur var
hann sem landsbókavörður 1906 og fékk
hann veitingu fyrir embættinu 1908. Lét
hann af embætti 1924 eftir nær 30 ára
giftudrjúg störf i Landsbókasafni.
Jón var skeleggur maður, og honum var
likt farið og mörgum þingmönnum öðr-
um, þegar rætt var um fyrsta bllinn i
þínginu 1905, hann lagðist eindregið gegn
innflutningi „blikkbeljunnar”, sem nú er
kölluð, taldi að billinn mundi aðeins leiða
af sér slysafaraldur, fjölga þyrfti læknum
og ekki siður prestum i landinu.
Landsbókasafnið hefur nú látið mála
mynd af Jóni Jakobssyni. Myndina gerði
Eirikur Smith, listmálari. Hefur myndin
verið sett upp i aðallestrarsal Landsbóka-
safns. —JBP—
Sporhundurinn sendur
norður í nótt:
RAKTI SLÓÐ
EFTIR GAMLA
KONU ,
AÐ SJONUM
Allviðtæk leit stendur nú
yfir að konu á áttræðisaldri,
sem er vistkona á Elli-
heimilinu i Skjaldarvik
skammt norðan Akureyrar.
Sporhundur Hjálparsveitar
skáta var fenginn norður i
morgun með leiguvél frá
Sverri Þóroddssyni, og rakti
hann slóð niður að fjöruborði
Eyjafjarðar, sem ekki er
nema 5—600 metra vegalengd
frá Skjaldarvik.
Konunnar var saknað i
gærkvöldi og hóf Hjálparsveit
skáta á Akureyri leit fyrir
miðnætti og siðan komu
félagar úr Flugbjörgunar-
sveitinni þeim til aðstoðar.
Þó sporhundurinn hafi rakið
slóð niður að sjó er leit haldið
áfram bæði á landi og á sjó og i
ráði var að fá litla flugvél til
að fljúga yfir nágrenni
Skjaldarvikur að Sögn Gisla
Ólafssonar yfirlögregluþjóns
á Akureyri. — A.St.
Cj
Sást síðast í
Austurstrœti
Lögreglan i Hafnarfirði leitar
nú 31 árs gamals manns, Þóris
Konráðs- Lindbergs Guðmunds-
sonar, sem fór að heiman frá
sér 6. október s.l. Siðast er vitað
um ferðir Þóris 17. október en
þá sást hann i Austurstræti i
Reykjavik. Þórir er einhleypur
maður, en býr hjá móður sinni.
ASt.
Kvennadeild Styrktarfélags lam-
aðra og fatlaðra heldur fund að
Háaleitisbraut 13, fimmtudaginn
23. október klukkan 20.30. Af
gefnu tilefni er konum bent á að
basarinn verður haldinn 9.
nóvember.
Kvennadeild Slysavarna-
félagsins i Reykjavik
heldur fund miðvikudaginn 22.
október klukkan 8.30 stundvislega
i húsi Slysavarnafélagsins á
Grandagarði. Félagskonur eru
beðnar að fjölmenna. — Stjórnin.
Sýningar
Sýningarsalur Menningarstofn-
unar Bandarlkjanna: Helen C.
Frederick, bandarfsk listakona,
opnar sýningu á verkum sinum á
morgun, sunnudag milli kl. 14 og
17. Verkin, sem hún sýnir eru
svartlist og teikningar, um
fimmtiu talsins. Sýningin verður
opin til 24. október klukkan 13-18.
Galleri Súm: Tryggvi ólafsson
sýnir. Sýningin stendur frá
klukkan 16-22 a.m.k. til mánaða-
móta.
Norræna húsið: Agúst Petersen
sýnir. Stendur til 28. október. Op-
jð frá 2-10.
Bogasalurinn: Minningarsýning
Drifu Viðar. Stendur til sunnu-
dagskvölds 26. október. Opið frá
3-10.
Listasafn tslands: Yfirlitssýning
á verkum Jóns Egilberts. Opið
frá 13.20-22 daglega til 18. nóvem-
ber.
Byggingarþjónusta arkitekta viö
Grensásveg: Einar Hákonarson
sýnir. Opið frá 14-22 til 30. októ-
ber.
Sýningar i Brautarholti 6 á
teikningum eftir Jóhannes
Kjarval. Sýningin stendur til 25.
október og er opin frá 16—22 alla
daga.
Kjarvalsstaðir: Ragnar Páll.
Sýningin stendur til 23. október.
Opið frá 4-10.
Kjarvalsstaöir: Sýning á verkum
Jóhannesar S. Kjarvals er opin
alla daga nema mánudaga klukk-
an 16—22. Aðgangur og sýningar-
skrá ókeypis.
Veðrið
Suðaustan stinningskaldi
og siðar allhvasst. Rign-
ing þegar líður tekur á
daginn. Hiti verður 8-10
stig.
Andlát
Ilulda Andrésdóttir
Sogavegi 210 andaðist þann 13.
október siðastliðinn i Borgar-
spitalanum. Útför hennar fer
fram i dag frá Bústaðakirkju.
Hulda var fædd 27. febrúar 1915.
Foreldrar hennar voru hjónin
Sigriður Sigurðardóttir og Andrés
Ólafsson fiskmatsmaður. Hulda
vár gift Stefáni Þ. Gunnlaugssyni
núverandi starfsmanni Reykja-
vikurborgar. Börn þeirra hjóna
eru: Björg Lilja, Gunnlaugur
Karl, Sigurður Andrés, Sigriður
og Snæbjörn.
Svava Thordarsen
skrifstofustúlka, ólduslóð 4,
Hafnarfirði lézt aðfaranótt 14.
október og fer útför hennar fram
frá Frikirkjunni i Hafnarfirði i
dag klukkan 13.30. Svava var
fædd i Hafnarfirði 30. janúar 1911
og ólst þar upp. Hún var dóttir
hjónanna Vigdisar og Ólafs
Thordarsen söðlasmiðs. Hún
vann á skrifstofu Kaupfélagsins i
Hafnarfirði i 38 ár samfellt og
var virkur þátttakandi i hafn-
firzku samvinnustarfi.
Jón Halldórsson
Kleppsvegi 120, er lézt 12. októ-
ber, verður jarðsettur frá Foss-
vogskirkju á morgun kl. 13.30.
Sofffa Jóhannsdóttir
Hverfisgötu 112 verður jarðsett
frá Frikirkjunni á morgun kl. 15.
Jódis Bjarnadóttir
Mávahlið 5 lézt mánudaginn 20.
október.
Sigurbjörg Jónsdóttir,
fyrrverandi kennari, Fálkagötu
30 lézt þriðjudaginn 21. október.
Halldór Erlendsson
kennari verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju á morgun,
fimmtudaginn 23. október
klukkan 15.
Óskum eftir pennavinum á
aldrinum 12-14 ára. Mynd fylgi
fyrsta bréfi, ef hægt er. Svörum
öllum bréfum.
Guðrún Agnes Einarsdóttir,
Hliðarvegi 24,
tsafirði
og
Elin Árnadóttir,
Grundargötu 4,
tsafirði.
Vil skrifast á við stráka og
stelpur á aldrinum 14-16 ára.
Guðbjörg Pálsdóttir,
Höfðabrekku 13,
Húsavik.
Óskum eftir pennavinum,
strákum og stelpum, á aldrinum
14-16 ára.
Hermina Gunnarsdóttir
Baldursbrekku 11
Húsavik
og
Ingunn Halldórsdóttir
Höfðabrekku 16
Húsavik.
Læknaritarar
Fundur i Félagi Isl. læknarit-
ara lýsir fullum stuðningi við
kvennafridaginn og hvetur sem
flestar konur til að mæta á fund-
inum 24. okt., þó ekki teljist
stætt á að allir læknaritarar
leggi niður vinnu þennan dag.
Kvenfélag Bæjarleiða: Aðalfund,-
ur verður haldinn i Siðumúla 11,
þriðjudaginn 21. október kl. 20.30.
Aðalfundarstörf, myndasýning úr
sumarferðalaginu.