Dagblaðið - 14.11.1975, Side 2

Dagblaðið - 14.11.1975, Side 2
Dagblaðið. Föstudagur 14. nóvember 1975. ORETTLATASTI DOMUR, SEM ## ## EG HEF HEYRT UM , / — segir Jónas Aðalsteinsson og vill þyngri refsingar ó ökuníðinga Dagblaðinu var sent þetta af- rit af bréfi til rikissaksóknara. Þar sem óvenju bitur tónn er i bréfinu og hörð ádeila á dóms- valdið kemur fram, vildum við gjarna kynna okkur þetta mál nánar. Þess vegna fórum við til Jónasar Aðalsteinssonar og um- ferðardeildar lögreglunnar. Það kom fram i skýrslu þeirri sem gerð var af umferðardeild- inni að ökumaður bifreiðarinn- ar, sem ók á Björgu litlu, hafði sýnt vitavert aðgæzluleysi. Sjónarvottur bar eftirfarandi. ,Ég getekki fullyrt um hraðann á bifreiðinni i tölum en ég tel þó að hraði hennar hafi ekki verið undir 70 km á klukkustund er hún fór framhjá.” Við ræddum við Jónas á heimili hans við Kleppsveg. ,,Við hjónin vorum á Kanarieyj- um þegar við fréttum að dóttir okkar hefði orði fyrir bifreið og lægi illa slösuð á sjúkrahúsi. Að sjálfsögðu fórum við strax upp. Hr. ríklssaksðknarl, Ekki ætla ég að lýsa þeim hörm- ungum sem dóttir min hefur gengið i gegn um. En hún hefur sýnt einstakt hugrekki. Nú erum við hjónin skilin — sem er bein orsök af þessu slysi og býr. konan i Bandarikjunum. Hún gat ekki hugsað sér að búa á Is- landi. Það má taka fram að við bjuggum áður i Bandarikjun-. um. Ég vildi ekki búa þar ytra — þannig hefur þetta stiað okk- ur i sundur. Björg litla býr nú hjá móður sinni i Bandarikjun- um. Hún hafði dvalið hér i að- eins þrjá mánuði þegar slysið varð. Það sem ég vil vekja athygli á með þessu bréfi til ykkar er að refsingin sem maðurinn hlýtur er nánast hlægileg. Þetta slys var ökumanni algjörlega að kenna og hann hlýtur enga refs- ingu. Nú er þetta ekkert per- sónulegt gagnvart þessum eina ökumanni, þetta hefði getað komið fyrir marga. En hann UPIP (>., JínaR rítur AAalsteineson, KleppgveRi L'i'i HeykJavÍK, mátmæli aámagátt er r.erts vr veana mále (18gre/?luekýrela no 704) er ..ýlj • á dðttur mína, bj'irgu Magneu Jínasdíttur. hiln er nlu Sra gömui og var að rara i eunukeiiusiu, í Bryagi sínu var htln & leið yfir Kleppsveginn í etr^tlsvafmaeKý ií, mi var Koyro uiour uius o(s hdn ætti engan rítt'í i(t í þesau lífi. BJart var og þurrt og ekkert sem skyggði & að bamið s«iat ekki. Dðttir mfn var ekkl í'rr um að ganga fyrr en eftir ítta mánuði, en þá við hmkjur. Rin hlaut beinbrot við mjöðm og hná, tveir fingur voru brotnlr og llfur var rlfin svo gera varð holskurð á barninu upp á líl' og dauða. Að auki var hán mj'ig sködduð í andliti og upp *5r þessu eyðilagdist botnlanginn vegna innvortis mars. Sálarástand barnslns er ekki gott. Hán grmtur upo dr svefnl og vaknar með áráð. Nákvrm imknlnvottorð getur ríkissaksáknari fengið frá LandsBPÍtalanum og Borgarsjákraháslnu. Pyrlr allan bann skaða sem maður þessi olll fmr hann dámssátt, sekt að upphsð ÍO.UOO.- kr. og Bkuieyfissvlntingu í þrjá mánuðl. Petta er sá áráttlátasti dámur sem ág hef heyrt un, og ág spyr, hvað er dámssátt? Flr það sátt við rfki og ákærða? Hvað með fárnarlambið? Hvers konar sátt fmr það? - Petta er minnl uámur en maður fær fyrir minnsta öivunarbrot vlð akstur. Pið Bgrlð fáiki með slíkum smánardámum sem hessum. íg undlrritaður krefst því að mál þetta verði tekið upp aftur og því ekki að skjáta þvf til Hæstaráttar þar eð þlð emð ekki hmí'ir til að dmma? Vlrðlngarfyllst, . Paðla BJargar M. Já/aed Björg litla var hræöilcga útleikin eftir slysið og var I 8 mánuði að berjast við afleiðingar þess. Þessi mynd var tekin af henni á sjúkrasæng. sýnir vitavert gáleysi og veldur ómældum hörmungum. öku- menn sem sliku valda eiga að hljóta miklu meiri refsingu — þetta er bein ögrun gagnvart fólki. Það verður að taka hart á ökuniðingum — slysatiðni er orðin það geigvænleg. Eitthvað verður að gera. Sá er dæmdi þennan dóm leit aldrei á læknis- skýrslur. Hann sagði að þær hefðu ekki verið fyrir hendi. En það var auðvelt að nálgast þær. Þeir menn sem dæma mál sem þetta, ættu að gera sér grein fyrir þeim hörmungum sem fólk gengur i gegn um vegna þess gáleysis sem ökumenn sýna * ökumenn verða að virða gangandi vegfarendur meira en þeir gera i umferðinni i dag. Þetta algjöra skeytingarleysi er að leiða okkur i ógöngur — þvi finnst mér dómsvaldið verða að taka á þessum mönnum. Miklu lengri ökuleyfissvipting ætti þar að koma til.” Alvarleg slys að undanförnu hafa vakið menn til umhugsun- ar um þessi mál. Ljóst er að við svo búið má ekki una — við verðum að gera allt sem i okkar valdi stendur til að stöðva þessi ægilegu slys. — h hails Húsvíkingar hœtta að reykja Um siðustu helgi hófst nám- skeið i að hætta reykingum á Húsavik. Fyrir þvi standa kvenfélagið, Slysavarnadeild kvenna og verkalýðsfélagið á staðnum. Fengu þessir aðilar þá Jón Hj. Jónsson frá Bindindisfélagi Islands og Gisla Auðunsson héraðslækni til þess að halda námskeiðið. Um 130 manns sækja það, en auk þess er mikill áhugi i bænum, þar eð fleiri vilja taka þátt i tilrauninni, þótt þeir sæki ekki námskeiðið. Þessi hópur reykti fyrir 26 þús. kr. á dag, sem eru um 9,3 milljónir á ári, en siðustu þrjá daga hefur þessi sami hópur reykt fyrir samtals 143 kr. Kl. 11 i gærmorgun var sala á tóbaki könnuð á Húsavik og voru svörin á útsölustöðunum öll á einn veg: verulega hafði dregið úr sölunni og á sumum stöðum var hún engin. Má segja að Húsvikingar gefi þarna gott fordæmi. HP Regnboga- plast h/f Kársnesbraut 18 Sími 44190 Höfum fyrirliggjandi glært Acryl plastgler undir skrif- borösstóla og fleira á hag- stæðu verði. Ú LIGGJA KLEPPSVEGUR OG VOGUR HLIÐ VIÐ HLIÐ Nú liggur Elliðavogurinn samhliða Kleppsveginum. Fyrir stuttu var opnuð viðbótarakrein sem flestir hugðu tilheyra Kleppsvegi en nú er annað kom- ið á daginn. Akreinin nefnist sem sagt Elliðavogur og er ein- stefnuakstursgata til vesturs. Að sjálfsögðu hefur Kleppsveg- urinn um leið verið gerður að einstefnuakstursgötu til aust- urs. . Skýringin á þvi að þessi nýja akrein tilheyrir ekki Kleppsveg- inum er sú að i framtiðinni mun verða lögð ein akrein til viðbót- ar, samhliða hinum tveimur. Þá vérður Kleppsvegurinn einungis heimakstursgata. Rétt er að taka fram að há- markshraði á milli Laugarnes- vegar og Holtavegar er 45 km á klst., en 60 km á Elliðavogi sunnan Holtavegar. —AT— Eftir víðtœkar endurbœtur: MESSUR SUNGNAR AÐ NÝJU Engar messur hafa að undan- förnu verið I Kópavogskirkju. Kirkjan hefur verið undirlögð af iðnaðarmönnum, sem hafa unnið við endurbætur og viðgerðir á þessari fallegu byggingu, sem stendur efst á Borgunum svo- nefiidu i Kópavogi. A sunnudaginn kemur verður messað að nýju I kirkjunni. Þar er nú komin ný lýsing, korklagn- ing á gólf, ný teppi og svo hefur kirkjan verið máluð bæði að utan og innan. Þetta eru kostnaðar- samar framkvæmdir og hafa söfnuðirnir tveir, Digranes og Kársnessöfnuðir, staðið undir kostnaði. Þá hefur Kvenfélag Kópavogs reynzt hin mesta hjálp- arhella eins og oft áður og veitti fjárstuðning til kaupa á gólf- dregli. Að auki lögðu konur innan safnaðanna fram fé til fram- kvæmdanna. —JBP—

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.