Dagblaðið - 01.11.1976, Side 3
OACBLAÐIÐ. — MÁNUDAGUR 1. NÖVEMBER 1976.
Brjálaðir hassistar
— hvar eru þeir?
f >
— sýnishorn
af
brjáluðum
fyllibyttum
á skemmti-
stöðum
r——
Hver eru áhrif
hass á líkamann?
Hvers vegua eru
ekki gefnar út upp-
lýsingar um þetta
efni, alveg eins og
um áfengi og tóbak?
A.E. skrifar:
„I dag viröist lögreglan vera
svo upptekin við að klófesta
hass- og marijúana-neytendur,
að það er engu lagi líkt. Ég er
búin að lesa mikið í blöðunum
um hasssmygl og sölu og neyzlu
á því lyfi. En er þetta lyf
eitthvað verra en annað? Mér
skilst að það sé álíka mikil
hætta á að maður leiðist út í
eitthvað sterkara við að reykja
hass og maríjúana eins og að
verða að róna við brennivíns-
drykkju, samt sennilega minni.
Eitt er víst að ef brennivín og
sígarettur kæmu á markaðinn í
dag, ásamt þeirri þekkingu
sem við höfum um þau deifilyf,
þá væru þau bönnuð sem
heróin. Brennivín er að vísu
ekki langt þar frá. Þvi er mér
spurn, hvaða afleiðingar hafa
hass og maríjúana-reýlungar í
för með sér? Ég veit að það er
hægt að blanda ýmsum hættu-
legum lyfjum í hass til að gera
það vanabindandi á vissan hátt
eftir langa notkun. Öðru gildir
um marijúana, það er miklu
erfiðara hvað þetta snertir.
Nú vildi ég biðja einhvern
lækni, eða annan sem hægt er
að treysta og vij hefur á lyfjum,
að koma fram með allar
staðreyndir um hass og mari-
júana, hvort það sé vana-
bindandi, valdi skaða á sál eða
líkama eða hvaða áhrif það
hefur á líkamann yfirleitt.
Við höfum öll margoft lesið
um það í blöðum og bæklingum
hve áfengi og tóbak eru
hættuleg efni. Þar eru talin
upp öll þau áhrif sem tóbak og
áfengi getur haft á líkamann.
Sígarettureykingar valda
krabbameini og ýmsum öðrum
kvillum. Brennivínsdrykkjan
leiðir fdik út í alls konar glæpi
og hefur skaðleg áhrif á
líkamann. Það hefur gengið svo
langt að fólk hefur þurft að
ganga með súrefniskút með sér
vegna þess að það getur ekki
lengur andað hjálparlaust. Það
er orðið svo aðframkomið af
reykingunum. Fólk heldur
samt áfram að reykja sig í hel.
Svo þegar við förum niður í bæ,
sjáum við þau áhrif sem vínið
hefur. Þar eru rónarnir svo-
kölluðu talandi dæmi um
skaðsemi áfengis.
Reynið að fara einhern tíma
á skemmtistað allsgáðir. Fólk
kemur á skemmtistaðina í
þeirri trú að það sé að fara að
skemmta sér. Það kemur inn i
fallegum fötum og
nýburstuðum skóm, beint í baki
og ber sig á allan hátt vel. En
viti menn, þegar fer að líða á
dansleikinn þá er aldeilis orðin
breyting á mannskapnum.
Fólkið gengur um öskrandi og
slefandi með fötin lafandi ein-
hvern veginn utan á sér. Það
mætti halda að þetta væri
geðveikt fólk. Að þessu stuðlar
.rikið og græðir á öllu saman.
I Nú langar mig að vita um þau
áhrif sem hass og maríjúana
lílbfur á líkamann, ég hef
nefnilega aldrei séð sýnishorn
eins og um áfengi og tóbak. Eg
hef aldrei séð brjálaðan
hassista.
Svo vonast ég eftir því að
annaðhvort verði gert eitthvað
til þess að út komi bæklingur,
um skaðsemi þessara efna á
sama hátt og áfengis og tóbaks
eða að einhver svari
spurningum mínum á þessum
sama vettvangi. Það verður að
upplýsa fólk.
"^Gallabuxumar^*
sem endast & endast
BANKASTRÆTI
©-14275
LAUGAVEGUR
©-21599