Dagblaðið - 01.11.1976, Blaðsíða 7
— ai.w daci i; 1 xovkmbkk iíitií.
7
„HÖFUM EKKIENN
GERT FJÁRKRÖFUR
Á HENDUR RÍKINU”
— segir Hafsteinn Baldvinsson réttargæzlumaður
Magnúsar Leopoldssonar
„Það er ekkert að frétta í máli
skjólstæðings míns þessa
dagana,“ svaraði Hafsteinn Bald-
vinsson réttargæzlumaður
Magnúsar Leopoldssonar
spurningu DB um hvort fjárkrafa
Magnúsar á hendur ríkinu vegna
innisetu sinnar í vetur væri á
leiðinni.
Hafsteinn sagði ennfremur að
vitaskuld hefði. slík krafa verið
rædd, þó að ekki hefði verið
hafizt handa að svo stöddu. —
Hann var þá spurður að því hvort
lögfræðingar mannanna fjögurra,
sem haldið var í gæzluvarðhaldi í
vetur vegna Geirfinnsmálsins,
hefðu ákveðið að hafa samráð sín
í milli þegar að því kæmi að
krefja ríkið um bætur.
„Nei, við erum ekkert farnir að
ræða saman,“ svaraði Hafsteinn.
„Um samvinnu er allt óvíst þar eð
kröfurnar verða væntanlega
einstaklingsbundnar.
Mín skoðun er sú,“ bætti
Hafsteinn Baldvinsson við, „að
Magnús Leopoldsson sé saklaus af
allri aðild i þessu máli. Þessa
skoðun mína byggi ég á þeim
staðreyndum sem hafa komið
fram í málinu. Því breyti ég að
sjálfsögðu ekki nema til komi
nýjar staðreyndir sem geta
sannað sekt hans. Sú regla er í
fullu gildi ennþá að hver maður
er saklaus þar til sekt hans hefur
verið sönnuð.“
Þá hafði Dagblaðið samband við
Magnús Leopoldsson vegna þessa
máls en hann kvaðst ekkert vilja
segja um málið á þessu stigi.
-AT.-
Hús Þjóðviljans.
„EKKERT RUSSAGULL
Á FERDINNI”
- Þjóðviljinn flytur í glæsilegt
húsnæði við „Fleetstreet” íslands,
- „Blað”-Síðumúla
„Hér er ekkert Rússagull á ferð-
inni,“ sögðu Þjóðviljamenn í gær.
Þeir hafa byggt yfir sig glæsilegt
hús sem kostaði að minnsta kosti
40 milljónir. Fjárins var aflað
með ýmsu móti, m.a. með sam-
skotum um land allt.
Einar Karl Haraldsson frétta-
stjóri nefndi sem dænti um sam-
skotin að einn Þjóðviljamaður
Ritstjórar Þjóðviljans, Svavar
Gestsson (t.v.) og Kjartan
Ólafsson (til hægri) hlýða með
andakt á boðskap Kristjáns
Benediktssonar, borgarfulltrúa
Framsóknar.
Gestir skoða hina vistlegu rit-
stjórn Þjóðviljans (DB-myndir
Sv.Þ.)
Landsþing FIB:
Breyting á skráningarfyrir-
komulaginu
leysir engan vanda
„Forsendur um sparnað vegna
breytinga á skráningu bifreiða og
umskráningum samkvæmt fram-
komnum rökstuðningi frá
Bifreiðaeftirliti ríkisins eru ekki
réttar. Sparnaður vegna niður-
fellingar á umskráningum er mur
minni en fullyrt hefur verið, auk
þess sem minnka má kostnað og
vinnuálag Bifreiðaeftirlitsins
með breytingu á ákvæðum um-
ferðarlaga varðandi skylduskoð-
un bifreiðar við umskráningu,
sem ein sér lækkar tilkostnað um
25%.“ Þetta kom m.a. fram á
Landsþingi FÍB sem er nýlokið.
Þingið harmar það að dóms-
málaráðherra skuli endurflytja
frumvarp til laga um breytingu
umferðarlaga varðandi Bifreiða-
eftirlit ríkisins og breytingu á
skráningu bifreiða algjörlega
óbreytt frá fyrra þingi. Að áliti
Landsþings FlB kallar frumvarp
þetta á 600 milljón króna útgjöld
vegna uppbyggingar á aðstöðu
fyrir Bifreiðaeftirlit ríkisins. Auk
þess sem ný númeraspjöld hafa i
för með sér kostnað sem mundi
vart vera undir 100 milljónum
króna á núgildandi verðlagi.
Það er álit þingsins að stefns
beri að breyttu fyrirkomulagi
sem innifelur minnkun á yfir
byggingu Bifreiðaeftirlitsins.
Einnig á samræmingu í inn-
heimtu gjalda og annarri
þjónustu rikisins við bifreiðaeig-
endur. Fyrirhuguð breyting á
skráningarfyrirkomulaginu leysir
engan vanda. Stefna beri að því
að löggilda starfsmenn bifreiða-
verkstæða til að annast um árlega
skoðun öryggistækja bifreiða á
sama hátt og nú á sér stað um
Ijósastillingar. Þingið teiur það
óeðlilega þróun að mikið fjár-
magn sé lagt, i uppbýggingu á
dýru húsnæði og tækjakostnaði 'S
fyrir Bifreiðaeftirlitið. Fyrir
hendi eru tæki, starfsmenn og
húsnæði sem miklir fjármunir
liggja í á bifreiðaverkstæðunum í
landinu.
—KP
hefði farið til Akraness og fengið
20 manns til að skrifa á víxla fyrir
samtals eina milljón. Annar hefði
farið að Sigöldu og fengið uppá-
skriftir fyrir milljón þar. Þannig
hefði verið farið um landið unz
fékkst sú fjárhæð sem þurfti.
Blaðamenn Þjóðviljans skrifuðu
einnig á víxla, eitthvað um 100
þúsund krónur hver, og svo fram-
vegis. Síðan var opinn aðgangur
að bankakerfinu sem tók við víxl-
unum.
Framlög af þessu tagi eru kom-
in i að minnsta kosti 33 milljónir.
Um það bil 600 studdu bygging-
una með meira en 25 þúsund
króna framlögum. Framlög til
blaðsins inntu menn af hendi
ýmist með kaupum á hlutabréfum
í Miðgarði hf„ sem er formlega
eigandi hússins, með beinum gjöf-
um til blaðsins eða með sjálfboða-
vinnu við húsið. Mikið af vinnu
iðnaðarmanna var gefió.
Húsið er tvær hæðir og „turn“.
Ritstjórn verður aðallega á ann-
arri hæð þar sem blaðamenn fá,
nokkuð rúmgóð herbergi. I turni
verður fundarherbergi rit-
stjórnar og kaffisalur. A neðstu
hæð verður .afgreiðsla en veruleg-
ur hluti hæðarinnar verður
leigður út í fyrstu.
Þjóðviljamenn fluttu í gær í hið
nýja hús að Síðumúla 6. Þá hélt
Þjóðviljinn jafnframt upp á 40
ára afmæli sitt.
Síðumúli er nú orðinn talsverð
„blaðagata", „Fleetstreet". Þar
eru til húsa Dagblaðið, Þjóðvilj-
inn, Vísir og Alþýðublaðið, svo og
Vikan.
— HH
Sumarparadís
um hávetur á
r
GRIPIÐ TÆKIFÆRIÐ
Lægra verð og betra veður
í nóvember og fyrri hluta desember
laus saeti 18. nóv. 3 vikur — verð frá kr. 65.500.-
laus sæti 2. des. 2 vikur — verð frá kr. 57.300.-.
FLUCFÉLAG LOFTLEIDIR URVAL LANDSYN
ISLAMDS
Lækjargótu 2
Slmi 25100.
Eimskipafélagshúsinu. Skólavórðustig 16
sími 26900 sími 28899
Austurstræti 1 7 '
Simar 26611 og 20100.