Dagblaðið - 03.01.1977, Síða 4
4
DA(JBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 3. JANUAR 1977.
Margir Reykvikingar brugðu sér að hinum ýmsu brennum á gamlárskvöld. þó oft hafi fleira fólk safnazt að þeim en nú. Veðrið var heidur ekki hagstætt að þessu sinni. Margir
brugðu á það ráð að sitja í bílum sinum og fylgjast með úr fjarska.
Nýársnótt í Reykjavík:
Lögreglan haf ði mest að
gera við fólksf lutninga
— leigubílar hættu akstri þegar f ærð fór að spillast
Lögreglan í Reykjavík sinnti á
annað hundrað útköllum á
gamlárskvöld og nýársnótt. Að
sögn Páls Eiríkssonar aðalvarð-
stjóra, var afskaplega rólegt hjá
lögreglunni fram yfir miðnætti en
eftir að veður versnaði og færð
spilltist færðist heldur betur líf í
tuskurnar, mestmegnis við að að-
stoða fólk í ófærðinni. Voru 15-20
lögreglubílar í því starfi um nótt-
ina og höfðu engan veginn undan,
að sögn Páls.
Um 30 manns gistu fanga-
geymslurnar á nýársnótt.
Langferðabíll var notaður til að
flytja vegalausa heim af lögreglu-
stöðinni og eins úr Tónabæ, þar
sem dansleikur stóð með sóma og
prýði til kl. þrjú um nóttina.
Leigubílar hættu mikið akstri
þegar færðin tók að spillast og olli
það umtalsverðum vandræðum.
Hvergi kom til óláta eða meiri-
háttar átaka. Enginn var á
Hallærisplaninu um nóttina og
hegðun fólks á dansstöðum ágæt.
Ölvun við akstur fór vaxandi und-
ir morguninn og voru nokkuð
margir teknir óg færðir til blóð-
prufu. Nýárskvöld var með eðli-
legum hætti í borginni, að sögn
aðalvarðstiórans. -f)V
Miklu var brennt af stjörnuljósum. Við brennu í Breiðholti mátti sjá þetta fólk sem sýnilega var í
góðu áramótaskapi. — DB-myndir Sveinn Þormóðsson.
RÓLEG 0G STÓRSLYSALAUS
Aramót UM ALLT LAND
Samkvæmt upplýsingum lög-
reglustöðva víðs vegar um landið
fór áramótahald rólega fram f
sæmilegasta veðri nema suðvest-
anlands þar sem var hið versta
veður á nýársnótt.
Ekki urðu ncin teljandi
vandræði og nokkrir lögreglu-
menn höfðu orð á því að iinnur
eins rólegheita áramöt hefðu ekki
komið i þeirra umdæmi. A flest-
um stöðum voru áramötabrennur.
A Akure.vri var brunakuldi en
frostið för niöur í 1(> stig á gaml-
ársdag og voru fáir á ferli úti við.
Láviðaðillafæri:
„Vígahnöttur” setti
gat á járnklætt þak
—og annar fór inn um glugga á
raftækjaverzlun íHafnarfirði
Minnstu munaði að nýtt ein-
býlishús að Brúarflöt 4 í Garða-
bæ stórskemmdist í eldi á
nýársnótt. Flugeldur eða blys
fór þar í gegnum þakið, að því
er virðist, og lenti í svefnher-
bergisálmu hússins. Til merkis
um kraft þessa ,,vígahnattai"‘
er lítið gat á þakjárninu.
Það var sonur húsráðandans,
sem kom heim til sín einhverra
erindagjörða urn miðnættið á
gamlárskvöld, og varð þá elds-
ins var. Var þá eldur og reykur
í svefnherbergisálmu og bað-
herbergi. Lét hann slökkviliðið
þegar vita og gekk greiðlega að
slökkva eldinn sem aðallega var
innan á þakinu, að sögn
slökkviliðsstjórans í Hafnar-
firði, Ölafs Arnlaugssonar.
Litlar skemmdir urðu og tjón
ekki talið verulegt.
Slökkviliðið í Hafnarfirði var
þrisvar sinnum kallað út á
nýársnótt. Smávægilegur eldur
meó reykjarkófi kom upp
í kjallara húss í gamla bænum
og skömmu síðar lenti flugeld-
ur eða blys inn í raftækjaverzl-
un við Strandgötu. Lögreglan
kom mjög fljótlega á staðinn og
hafði slökkt eldinn þegar
slökkviliðsmenn bar þar að.
Tjón er ókannað en virðist ekki.
vera mikið.
-ÖV.
Slökkviliðið kallað út
356 sinnum 1976
Slökkviliðið í Reykjavík var
kallaö út 356 sinnum á sl. ári.
..Mjög gott ár," sagði Gunnar
Sigurðsson, varaslökkviliðs-
stjóri í Reykjavík, í samtali við
fréttamann blaðsins í gær.
Stærsti bruninn, sá sem olli
mestu tjóni, varð á Laugavegi
168 5. september. Aðrir stærstu
brunarnir voru í Heiðarbæ i
Þingvallasveit 6. október. þar
sem slökkviliðið var kvatt til
aðstoðar. og á Hverfisgötu 66A
á jölanótt. þar sent fullorðin
hjön brunnu inni.
Flest hafa útköll orðið 1965,
samtals 534 en fæst 1970, alls
332. Gunnar Sigurðsson sagði
skýringuna á þessunt ntismun
ligg.ja í auknu fræðslu- og upp-
lýsingastarfi slökkviliðsins og
eldvarnareftirlitsins. ÓV
SLEniSTUPP
ÁVINSKAPINN
ÁÓÐALI
Rétt fyrir klukkan eitt á
nýársnótt slóst upp á vinskap
ungmenna sem voru á áramóta-
skemmtun á Öðali. Flugust þau
á með þeini afleiðingum að
stúlkan var flutt á slysadeild
Borgarspitalans þar sem gert
var að meiðslum hennar. Kékk
hún síðan að fara til sins heima.
A.Bj.