Dagblaðið - 03.01.1977, Qupperneq 7
DACHI.AÐIÍ). MANUDAlíUR 3. JANUAR 1977.
Talsmaður kínverskra stjórnvalda:
Óeirðum er
enn ekki iokið
Oeirðir þær sem orðið hafa í
Kina o« fréttir hafa borizt af til
annarra landa virðast að mestu
hafa hafizt í október en ennþá
hafa þær ekki verið brotnar á bak
aftur. að söfjn talsmanns kín-
verskra yfirvalda í gærkvöldi.
Sagði hann fréttamönnum að
vopnuðum átökum væri nú lokið i
borsinni Paotins. þar sem niikið
hefur Keitftið á að undanförnu.
Borfjin er í um 130 kílómetra fjar-
læjjð frá höfuðborfjinni, Pekinfj,
ofj bætti talsmaðurinn því við að
enda þótt bardöfjum væri lokið,
væri ekki búið að uppræta vanda-
ntálið.
Safjði hann að rétt væri, að til
töluverðra deilna hefði kontið í
sumum héruðum landsins undan-
farin ár, en lítið hefði borið á
slíku eftir að Shanfjhai-klíkan
svonefnda hefði verió handtekin.
Hefur áður komið fram sú
skoðun kinverskra stjórnvalda að
ekkja Maos, Chiang Ching, og
róttækir félagar hennar hafi
ætlað að standa að stjórnarbylt-
ingu eftir lát formannsins.
Richard og Vorster ræðast við í dag:
Ródesía beitt
þvingunum?
Það voru þeir Vorster og Kissinger sem fyrstir komu friðarviðræðun-
um í Genf á laggirnar eftir að Vorster er talinn hafa haft í hótunum
við Smith. forsætisráðhi rra Ródesíu.
Sérlegur sendiherra Breta. lvor
Richard. mun í dag reyna að
vinna stuðning John Vorsters for-
sætisráðherra Suður-Afríku við
tillögur sínar urn það hvernig
Ródesía eigi að öðlast fullt sjálf-
stæði og meirihlutastjórn svartra
manna verði komið á þar í landi.
Viðræður þeirra tveggja munu
eiga sér stað á sumardvalarheim-
ili Vorsters. Outbosst, um 80 km
frá borginni Port Elizabeth og eru
taldar undirstöðuatriði undir
framtíð viðræðna Richards á
ferðalagi hans urn sex Afríkuríki,
til þess að reyna að koma friðar-
viðræðunum um Ródesíu í Genf í
Sviss aftur á laggirnar.
Það mun hafa verið Vorster,
sem hvatti Ian Smith, forsætisráð-
herra Ródesíu til þess að sam-
þykkja upphaflegu friðaráætlun
Bandaríkjamanna og Breta, sem
Henr.v Kissinger kynnti honurn
fyrstur og varð til þess, að umræð-
urnar fóru í gang.
Vorster hefur alltaf neitað þvi.
að hafa þrýst á Ródesiumenn, en í
ræðu. er hann flutti 2. september
sl. sagði Smith aö þeir hefðu ekki
átt annarra kosta völ, og gaf þar
með í skyn. að hinn voldugi ná-
granni þeirra myndi hafa ætlað
að beita þá viðsKiplaþvingunum.
Er hald fréttamanna að Vorster
muni enn hafa hönd í bagga með
að konta vitinu fyrir Smith i þetta
sinn, enda berast sifellt fréttir af
harðnandi átökum skæruliða á
landamærum Ródesíu við Mosam-
bique.
HURRICANE DÆMDUR Á NÝ
P'yrrum millivigtarhnefaleikar-
inn Rubin (Hurricane) Carter og
John Artis, sem talinn er hafa
verið honum samsekur, voru
fundnir sekir urn aðild að fyrstu
gráðu morði í borginni Peterson í
New Jersey fyrir skömmu.
Hefur niðurstaða réttarhalda
árið 1967 því verið staðfest.
Carter og Artis voru í niu ár í
fangelsi áður en hæstiréttur ríkis-
ins fyrirskipaði ný réttarhöld í
máli þeirra á þeim grundvelli, að
mikilvægum sönnunargögnum
hefði verið sleppt er fyrstu réttar-
höldin voru haldin. Hafði geysi-
vinsælt lag Bob Dylans, ..Hurri-
cane“ ekki átt svo lítinn þátt í
þessú.
Hin nýju réttarhöld voru fyrir-
skipuð eftir að tvö vitnanna höfðu
breytt framburði sínum en aðal-
vitnið breytti honurn svo enn á
ný.
Beztu óskir um gott og heillaríkt
komandi ár með þökk fyrir það liðna.
RAMMABÆR, innrömmun
Heiðarbæ 8
Flokkar við allra ha-fi.
Morguntíinar — dagtimar — kviildtiina
Gul'a — l.jós — kaffi — nudd.
Innritun og upplýsingar i síina 83295
alla virka daga kl. 13—22.
Júdódeild Ármanns
Ármúla 32.
7
ÍTALSKIR
BARNASKÓR
i fjöibreýttu úrvali
Teg. 1011
Litir: Rautt og
blátt
Teg. 1016
Litit: Hvftt og
Ijösbrúnt
Þannigersólinn:
Á öllum gerðum er
leðursóli með gúmmíhæl,
sem nær undir ilina og
stömum fleti á framsóla.
Skórnir eru allir úr mjiíku
skinni ogeru bólstraðir
bæði undir iljarnarog
ökklana.
Stærðir 18i-22
Verðkr. 2.350.-
Domus Medica
Egilsgötu 3. Sími 18519
Fiskbúð
Til sölu ermjöggóð fiskbúö ásamt tækjum,
bill gæti fylgt.
Tilboð sendist DB. merkt „góð vetta”
fyrir 15. jan. 77
Auglýsingastörf
Óskum að ráða sem fyrst starfsfólk á
auglýsingaskrifstofu.
Góð íslenzku- og vélritunarkunnátta
nauðsynleg.
Umsóknum með upplýsingum um
aldur, menntun og fyrri störf skal
skilað á afgreiðslu Dagblaðsins, Þver-
holti 2.
Utanáskrift „38435“.