Dagblaðið - 03.01.1977, Blaðsíða 9
DAGRLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 3. JANUAR 1977.
9
Bruninn í Aðalstræti 12:
Litlu munaði að Grjóta-
þorp brynni á nýársnótt
„Það mátti ekki miklu ntuna
að eldurinn kæmist í timbur-
húsin, sem eru þarna allt í
kring, og þá hefði getað farið
mjög illa," sagði Gunnar
Sigurðsson, varaslökkviliðs-
stjóri í Reykjavík, i samtali við
DB um brunann í Aðalstræti 12
á nýársnótt.
Ris hússins og eíri hæð fóru
illa í eldinum, en'hann virðist
hafa komið upp í mannlausri
íbúð á annarri.hæð og brotizt
síðan upp í risið. Þar voru þrir
menn, sem ekki treystu sér nið-
ur stigaganginn og forðuðu sér
út á þak. Þaðan bjarðaði lög-
reglan þeim ómeiddum.
Það var kl. 04.10 sem tiikynn-
ing barst um eldinn og var þá
talið að eldurinn væri í Bröttu-
götu 4 sem er næsta hús fyrir
aftan Aðalstræti 12. Tvöföld
vakt hafði verið á slökkvistöð-
inni frá kl. 9 um kvöldið til kl. 3
um nóttina, þannig að aðeins
tíu slökkviliðsmenn börðust við
eldinn til að byrja með. Varalið
var kallað út, tveir menn með
fullkominn slökkvibíl komu frá
Slökkviliðinu á Reykjavíkur-
flugvelli og tveir félagar úr
Björgunarsveitinni Ingólfi
veittu aðstoð, þannig að alls
voru 37 menn að störfum þegar
mest var.
Fyrsta verk slökkviliðsins
var að senda reykkafara inn i
húsið og fór hann alla leið upp í
ris þar sent talið var að fólk
kynni að vera í húsinu. Fann
reykkafarinn ekki fólk en hann
fann kött sem hann bjargaði út
úr húsinu. Fór hann siðan aftur
inn í húsið með slöngu og upp á
aðra hæð þar sem hann hafði
fundið rnikinn hita leggja út úr
herbergi. Þegar hann byrjaði
að sprauta varð mikil reyk-
sprenging, eða um leið og súr-
efnið náði að blandast innilok-
uðum reykefnunum. Við það
jókst eldurinn til muna og tætt-
ust rúður úr húsinu. Reykkaf-
arinn varð þó ekki fyrir spreng-
ingunni og meiddist ekki.
Að sögn Gunnars Sigurðsson-
ar varaslökkviliðsstjóra tók
aðalslökkvistarfið um hálfa
aðra klukkustund og gekk það
fljótt fyrir sig þegar fullur
kraftur var kominn á dælingu
úr sex brunahönum I nágrenn-
inu. Byrjað var að dæla úr
brunahönunum eftir að reyk-
sprengingin varð í húsinu.
Eldsupptök eru ókunn en
rannsóknarlögreglan í Reykja-
vík vinnur að rannsókn, máls-
ins.
-ÓV
Eyðileggingin er mikil, eins og sjá má á þessari mynd. Hún er tekin
á lögfræðiskrifstofu í húsinu.
(DB-mynd: Arni Páll.)
^~ .» ... ..................................... iwiTnrwwaw'naBBBM—Baai
Við sprenginguna. sem varð í Aðalstræti 12 í upphafi slökkvistarfsins. magnaðist eldurinn og teygði
sig upp í risið.
(DB-mynd: Sv. Þorm.)
NÍTJÁN MANNS LÉTUST í UMFERÐAR-
SLYSUM1976
A þriðja hundrað manns hafa látizt síðan 1966
Atján banaslys urðu í umferð-
inni á íslandi á árinu 1976 og létu
19 manns lífið í þeim, segir í
skýrslu Umferðarráðs, sem blað-
inu hefur borizt. Eru þetta t'als-
vert færri slys en urðu á árinu
1975 en þá létust 33 í 30 slysum. 1
skýrslunni segir ennfremur að
miðað við mánaðamótin nóvemb-
er/desember hafi alvarlegum
slysum ekki fækkað sem neinu
nemur frá árinu 1975.
Meðalaldur þeirra sem látizt
hafa á þessu ári er 42,5 ár. Er það
hærri meðalalduren verið hefur
undanfarin ár. Arið 1974 var
hann 33 ár og 1975 33,5 ár. Ellefu
banaslys urðú i þéttbýli á móti 16
árið 1975 en 7 i dreifbýli á móti 14
árið 1975. í Reykjavík urðu 6
banaslys en árið 1975 létust 10
manns I 9 banaslysum í Reykja-
vík. I.ailgflest banaslysin, eða 11
af 18, urðu á suðvesturkjálka
landsins, þ.e.a.s. frá Kjós til
Hellisheiðar.
Mikill meirihluti þeirra sem
látizt hafa eru karlmenn eða 15.
Þar af voru tveir drengir 14 ára
og yngri. 4 konur létust, þar af ein
stúlka undir 14 ára aldri. Af þeim
19 sem létust á árinu 1976 voru 9
ökumenn bifreiða, einn ökumað-
ur bifhjóls, tveir farþegar í bif-
reiðum, sex gangandi vegfarend-
ur og einn reiðhjólamaður.
Frá og með árinu 1966, eða á
ellefu ára tímabili, hafa 218
manns farizt í umferðarslysum á
íslandi en síysin eru 203 talsins.
Að meðaltali eru það 20 manns á
ári. Árið 1968 Iétust fæstir i um-
ferðarslysum eða sex manns og
flestir, eða 33, létust eins og áður
sagði á árinu 1975.
-ASt.