Dagblaðið - 03.01.1977, Síða 24

Dagblaðið - 03.01.1977, Síða 24
18 frfálst, oháð daghlnð MÁNUDAGUR 3. JANUAR 1977 Lsmbhrútur á áramóta- ferðalagi Hvítur lambhrútur var tekinn síðdegis á gamlárs- dag þar sem hann var á golf- vellinum við Grafarholt. Samkvæmt upplýsingum Ar- bæjarlögreglunnar var hrút- urinn frá bónda sem búsett- ur er austur í Saurbæ í Ölfusi. Arbæjarlögreglan hafði orð á því hve fallegur hrútur þessi væri. Er hann nú ge.vmdur í Fjárborg, þar sem fjáreigendur höfuð- borgarinnar hýsa fé sitt. Ekki er vitað hvaða ferða- lag var á hrútnum eða hvernig hann var kominn á golfvöllinn. A.Bj. Legiðágluggaog smáaf brot unnin Lögreglan hafði í ýmsu að snúast í nótt, því nokkuð var um afbrot og ólögleg athæfi þrátt fyrir leiðindaveður, rigningu og rok. Kl. eitt var lögreglan kölluð að húsi í Barmahlíð, en þar lá maður á glugga og gerði tilheyrandi ónæði með því atferli. Annar var staðinn að verki við bilþjófnað og fékk hann gistingu í fangageymslum í nótt fyrir til- tækið. Þá var brotizt inn í Nönnubúð að Bragagötu 22 með því að sparka hurðinni upp. Lögreglan kom fljóttá6taðinn en þá var hinn seki innbrotsþjófur á bak og burt og fannst ekki. -ASt. Ávísun og ríkis- skuldabréfum stolið Innbrot var framið í kjállara- íbúð að Miðtúni 90 nú um áramót- in. Varð innbrotsins vart í gær er húsráðendur komu í bæinn úr áramótaferð. - í ljós kom að stolið hafði verið ávísun og ríkisskuldabréfum, en í hve miklu magni lá ekki ljóst fyrir i morgun af skýrslum lög- reglunnar. -ASt. Féllístigaað Hótel Sögu Einn gesta Hótel Sögu var í gærkvöldi fluttur í slysadeild eftir að hafa fallið niður stiga í hótelinu. Slysið var tilkynnt kl. 22.13. Var þarna Reykvíkingur á ferð. Ekki var fullkunnugt um meiðsli mannsins, er DB hafði samband við lögregluna i morgun. -ASt. Sumarhiti víða um land — hvasst á suðvesturhorninu Mjög hvasst var i Revkjavik i nótt en þar voru átta vindstig klukkan sex í rnorgun. Hitinn hafði hækkað allverulega og var kominn upp í átta stig kl. 6. Það var einna hvassast á suðvestur- horninu, tíu vindstig í Vest- mannaeyjum kl. sex. Hægviðri var á Vestfjörðum en stinnings- ,kaldi fyrir norðan. Hiti var á bilinu frá þremur upp í átta stig. A Akurevri. Sauð- árkróki og Dalatanga var hann átta stig kl. sex í rnorgun. A.Bj. Guðbjartsmálið: Búið að yfirheyra nokkra menn — allt varðandi kærurnar þrjár Að sögn Erlu Jónsdóttur full- trúa í sakadómi er nú búið að yfirheyra fimm til sex menn vegna hins svonefnda Guðbjartsmáls og standa þær yfirheyrslur allar i sambandi við kærurnar þrjár sem lágu til grundvallar gæzluvarðhaldsúr- skurðinum sem Hæstiréttur ógilti síðar. Erla vildi ekki að svo komnu máli tjá sig um hvort eitthvert saknæmt athæfi Guðbjarts hafi þar komið fram og ekki vildi hún heldur tjá sig um hvort einn hinna yfirheyrðu bæri að Haukur Guðmundsson hafi samið kæruna fyrir sig, eða les- ið sér hana fyrir, eins og maður- inn hefur sagt í viðtali við DB. Sagði Erla að enn væri mikið verk óunnið við að raða saman gögnunum, sem fundust í fór- um Guðbjarts, en það væri ekki fyrr en að því loknu að hægt væri að draga upp einhverja heildarmynd. -G.S. FLUGELDASÝNING — utan dagskrár A miðvikudaginn varð sérstæð- ur bruni í radíóverkstæði og flug- eldasölu á Skólavegi í Vestmanna- eyjum. Logandi blys komst þar inn um hálfopnar dyr og hafnaði i sýningarglugga. Þar kveikti blysið í öðrum blysuni og flugeld- um og varð af mikið tjón á flug- eldabirgðum, viðtækjum, sem voru í viðgerðaverkstæðinu og á sjálfu húsinu. Myndina tók Ragnar Sigurjónsson. Ijós- m.vndari DB i Eyjum. 15 ARA PILTUR VARD ÚTIA NÝÁRSNÓTT sof naði í sn jóskaf li við Sveinatungu í Garðabæ Fimmtán ára gamall piltur, Guðjón Sigurður Hermannsson. Goðatúni 5 i Garðabæ, l'annst látinn við Sveinatungu í Garða- bæ um hádegisbilið á nýársdag. Talið er að hann hafi sofnað í snjóskafli við Sveinatungu. þar sem bæjarskrifstofurnar eru til húsa, og orðið úti. Það var um kl. 12.30 á nýárs- dag að maður nokkur kom að húsinu, sem er 6-7 metra frá Vífilstaðaveginum á mótum Hafnarfjarðarvegar, og sá þá piltinn liggja í skaflinum. Taldi maðurinn að urn leik væri að ræða og fór aftur upp á veginn til að huga að bil sínum. Þegar hann sneri aftur niður að hús- inu lá pilturinn í sömu stelling- um og kom þá í ljós hvers kyns var. Að sögn rannsóknarlögregl- unnar i Hafnarfirði virðist sent Guðjón Sigurður hafi fallið aft- ur vfir sig í djúpan snjóskafl, semvarvið Sveinatungu, og síð- an sofnað. Engir áverkar fund- ust á líkinu, en réttarkrufning fer fram í dag og ýfirheyrslur sömuleiðis. Guðjón Sigurður kom heim til sín um tvöleytið á nýársnótt til að skipta um buxur. Um ferðir hans eftir það er ekki vitað, en réttarkrufningin sker væntanlega úr um hvenær næt- ur hann lézt og e.t.v. orsök þess. -ÓV Tekin á flótta eftir misheppnað innbrot Maður um tvítugt og 18 ára stúlka voru handtekin á flótta í nótt, eftir að þau höfðu brotizt inn i Matvörumiðstöðina við Leirubakka í Breiðholti. Brutu þau sér leið inn í verzlunina með því að brjóta hurð og við það varð vart við ferðir þeirra. Lögreglan kom skjótt á vett- vang og hafði hendur í hári þeirra eftir stuttan eltingaleik. Ekki voru þau með neitt með sér á flóttanum. Fólk þetta er vel kunnugt meðal lögreglumanna vegna margra þjófnaða. Var því stungið í fangageymslur í nótt og mál þess átti að rannsakast í dag. I ljós kom að stúlkan á árs- gamalt barn og skildi hún það eitt eftir meðan hún fór í ráns- ferðina. Barninu var komið fyrir hjá nágranna meðan móð- irin fór i fangageymslur. -ASt, Úráramótaræðu forsetaog forsætis- ráðherra: Við skulum verða öðrurn til fyrirmyndar um fiskivernd og fara að ráðum fiskifræðinga, sagði dr. Kristján Eldjárn, for- seti íslands, i ávarpi á nýárs- dag. Hann sagði að árið 1976 hefði verið það ár, sem við hefðum fengið óskoruð yfirráð yfir fiskveiðum i lögsiigu okkar. Við hefðum verið til fyrir- Verðum öðrum fyrir mynd um fiskivernd 19 myndar i landhelgismálum. Forseti íslands sagði, að við skyldum heilsa ári með bjart- sýni, en hins vegar ræddi hann þá hættutíma, sem við lifuin. Nóbelsverðlaunahafi, sem hér var staddur fyrir skiimmu, lét svo ummælt. að nú væru til k.jarnavopn, sem gætu dey.tt tilll mannkyn lultugu sinnum. Geir Hallgrímsson forsætis- ráðherra ræddi i áramótaávarpi sinu meðal annars, að rnargir tiiluðu nú um siðferðislega upp- lausn í þjóðfélaginu. Þar kænti tvennt til. Annars vegar vildu margir ..láta allt eftir sér". Hins vegar væru margir þeirrar skoðunar, að menn fengju engu áorkað nema með ofbeldishót- un eða þvíliku. Forsætisráðherra sagði, að á skyldi að ósi stemma. Hann hvatti til inannræktar. Þá varpaði hann þeirri spurningu fram. hvort upplausn væri tesk- unni að kenna. og taldi. að sök- in væri ekki siður hinna full- orðnu. Forsætisráðherra nefndi. að viðurkenning 200 mílnanna hefði fengizt á árinu 1976. Kinnig hefði rofað til i efna- hagsmálum. en við mikinn vanda væri að etja. Meðal ann- ars þyrfti að reka verðbólguna á dvr. -HH

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.