Dagblaðið - 24.01.1977, Blaðsíða 3

Dagblaðið - 24.01.1977, Blaðsíða 3
DACBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 24. JANUAR 1977. ■v Það var rætt um það á sínum tíma hvort veðurfræðingar ættu að bjóða gott kvöld, en fallið frá því, segir fyrrverandi starfsmaður við sjónvarpið. . Þessi mynd er tckin á Veður- f stofu íslands.' Þau eldri fáað vera inni ífrí- mínútum —en barnaskóla- krökkum er hent út Steipa í Brciðholtsskóla skrifar: Ég vil taka undir með Kristínu þar sem hún skrifar' um frímínútur í skólum um daginn í DB. Til hvers eru þær nú eiginlega? Jú, þær eiga að vera til þess að krakkarnir séu hressir en í raun og veru er ekki svo. í Breiðholtsskóla er stór skólalóð en hún er alveg ferlega leiðinleg, eintómar stéttir og gras. Ekkert sem við getum ge t í 15 mínútur nema að hanga. Þegar snjór er kasta strákarnir snjóboltum i okkur stelpurnar svo að við þurfum alltaf að vera á verði til að fá þá ekki í hausinn. Eldri krakkarnir í 13 og 14 ára bekk fá að vera inni í stórum sal en við í barnaskólanum verðum að fara út i brunagadd. Nú ættum við smábörnin, það er að segja 7, 8, 9, 10, 11 og 12 ára að heimta það að fá að vera inni í þessum frímínútum sem eru ejnungis tii þess að halda okkur lengur í skólanum. Fyrst þær þurfa endilega að vera. af hverju þá ekki að hafa einar hálftíma langar? Mér finnst að skólarnir ættu að taka þetta til athugunar og reyna að breyta til, og þá sérstaklega Breiðholtsskólinn. Hér eru krakkarnir í Fellaskóla að fara í tíma og bíóa eftir því aó hringt verði in n. EITT „GOTT KVOLD” Á AÐ NÆGJA Fyrrverandi starfsmaður sjón- varpsins hringdi: Vegna orða M.S. úr faliegri sveit fyrir norðan um ókurteisi veðurfræðinganna Páls Berg- þórssonar og Guðmundar Haf- steinssonar langar mig til að upplýsa það að á sínum tíma var mikið um það rætt hjá sjón- varpinu hvort veðurfræðing- arnir ættu að bjóða gott kvöld er þeir birtust á skjánum. Sú niðurstaða fékkst að góða kvöldið í upphafi fréttanna ætti að nægja fyrir fréttatímann og dagskrána til dagskrárloka. Ef við hugsum nánar um þetta þá kæmi það óneitanlega dálitið hjákátlega út ef til dæm- -is væri boðið gott kvöld í upp- hafi. Síðan kæmi Eiður Guðna- son og byði gott kvöld, þá Sig- rún Stefánsdóttir og byði einn- ig gott kvöld og síðan koll af kolli. Eg held að sjónvarpsáhorf- endur hljóti að eiga ágætis kvöld fyrir framan sjónvarpið, þó að þeir fái ekki gott kvöld frá fréttamönnum og veð- urfræðingunum einnig. Spurning dagsins Finnstþér þorramatur góður? Theódóra Marinósdóttir: Mér finnst hann vondur nema harð- fiskurinn, ég borða hann stund- um. Jóhann Kristjónsson: Hann er góður, ég tek ekki neitt eitt fram yfir annað og nýt hans meðan hann er á boðstólum. Högni Jónsson: Þetta er mesta ómeti, en það er hægt að borða svið ef þau eru ekki súr. Anna Guðmundsdóttir: Mér finnst hann ágætur, sérstaklega þykir mér gott hangikjöt og harð- fiskur. Kristján Friðriksson: Mér finnst hann mjög góður og skemmtileg tilbreyting. Auóur Björnsdóttir: Nei, ég hef aðeins einu sinni smakkað hann.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.