Dagblaðið - 19.02.1977, Blaðsíða 23

Dagblaðið - 19.02.1977, Blaðsíða 23
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 19. FEBRUAR 1977. IÍ Utvarp Sjónvarp íkvöld kl. 21.55: 23 Sjónvarp FRABÆR BIOMYND MEÐ AFBRAGDS LEIKURUM í kvöld fáum við að sjá frábæra bíómynd er nefnist Rauða myllan. Þetta er brezk mynd frá árinu 1953 og nefnist á frummálinu Moulin Rouge. Hún fjallar um ævi franska listmálarans Toulouse-Lautrec, ástir hans og vonbrigði. Myndin hefst árið 1890 í Rauðu myllunni, sem er næturklúbbur i París þar sem Toulouse-Lautrec málar myndir af því sem fyrir augun ber. Listamaðurinn er mjög bæklaður og fer Jose Ferrer meistaralega vel með hlutverk hans. Hann verður að leika hlut- verk sitt á hnjánum til þess að bæklunin sýnist sem mest. Hann kynnist ungri stúlku og hjálpari henni að komast undan réttvís- inni. Með aðalhlutverkin fara José Ferrer, Colette Marchand og Zsa Colette Marchand og José Ferrer í hlutverkum sínum í mvndinni. t Utvarpiðídag kl. 11.15: Barnatíminn Þetta erum við að gera Hreint loft íFellahelli „Ég fór upp í Breiðholt og talaði þar við unglinga og börn. Ymislegt kemur fram, • bæði hvernig þeim finnst að búa þarna uppfrá í þessu nýja hverfi og eins hvernig félags- lífi í Fellahelli er háttað.“ Þetta hafði Inga Birna Jóns- dóttir kennari að segja um þátt sem hún stjórnar mánaðarlega V Inga Birna Jónsdóttir kennari hefur umsjón með þættinum Þetta erum vió að gera og ætlar í þetta sinn að ræða við börn og unglinga í Breiðholtinu. DB-mynd Sveinn Þorm. og nefnist Þetta erum við að gera. Hún brá sér í Fellahelli en í staðinn fyrir að telja upp hina mismunandi klúbba sem þarna eru starfræktir.fékk hún nokkra klúbbfélaga úr Reyk- ingaklúbbnum Hlíf (hreint loft 1 Fellahelli) til þess að segja frá starfsemi sinni. Meðal annars sem þeir hafa gert er að heim- sækja kaupmenn í hverfinu ti! þess að fá þá til þess að hætta tóbaksauglýsingum sínum. Með því að hlusta á þáttinn fáum við frekar að fræðast um hvernig þeir tóku i það. Þá vantar auðvitað ekki músíkina. Börn úr Fellaskóla greiddu atkvæði um hvaða ís- lenzk dægurlög þeim þættu bezt og heyrum við sennilega 4—5 lög úr efstu sætunum. EVI Zsa Gabor. Leikstjóri er John Huston. í kvikmyndahandbókinni okkar er lokið miklu lofsorði á þessa mynd, bæði töku, leik- stjórn, handrit og ekki sízt hinn frábæra leik José. En það hlýtur að hafa verið mikil raun fyrir hann að leika hlutverkið á hnján- um. Myndin fær þrjár og hálfa stjörnu. Þýðandi er Stefán Jökulsson og sýningartími er ein klukkustund og fimmtíu og fimm mínútur. A.Bj. Sjónvarp annað kvöld kl. 18.00: Öskudagsskemmtun í Stundinni okkar Nú fara í hönd gamlir tylli- dagar. bolludagurinn er á mánudaginn, sprengidagur á þriðjudag og öskudagurinn á miðvikudag. í tilefni af því verður árleg öskudagsskemmt-, un í stundinni okkar. sem er í sjónvarpinu kl. 18.00 eins og venjulega. Þar koma saman börn sem skemmta bæði sjálfum sér og öðrum með dansi og söng. Kynnir er Sigurður Sigurjóns- son og leikstjóri Jón Hjartar- son. Umsjónarmenn barnatímans eru Hermann Ragnar Stefáns- son og Sigríður Margrét Guð- mundsdóttir. Stjórn upptöku annast Kristín Pálsdóttir. A.Bj. <í ^ Sjónvarp í) Laugardagur 19. febrúor 17.00 Holl er hreyfing. Norskur mynda- flokkur um léttar æfingar cinkum ætlaðar fólki, sem komið er af léttasta skeiði. Þýðandi og þulur Sigrún Stefánsdóttir. (Nordvision — Norska sjónvarpið). 17.15 íþróttir. Umsjónarmaður Bjarni Felixson. 18.35 Emil í Kattholti. Sænskur mynda- flokkur. Húsvitjun. Þýðandi Jóhanna Jóhannsdóttir. Sögumaður Ragn- heiður Steindórsdóttir. 19.00 iþróttir. Hló. 20.00 Fréttir og veAur. 20.25 Auglýsingar og dagskrá. 20.30 Hótel Tindastóll. Nýr, breskur gamanmyndaflokkur í sex báttnm um seinheppinn gistihúseiganda, starfs- lið hússins og gesti. 1. þáttur. Þýðandi Stefán Jökulsson. 20.55 Úr einu í annaö. Umsjónarinenn Berglind Ásgeirsdóttir og Björn Vign- ir Sigurpálsson. Hljómsveitarstjóri Magnús Ingimarsson. Stjórn upptöku Tage Ammendrup. 21.55 RauAa myllan. (Moulin Rouge). Bresk biómynd frá árinu 1953. Leik- stjóri John Huston. Aðalhlutverk José Ferrer og Zsa Zsa Gabor. Myndin hefst árið 1890 í næturklúbbnum rauðu myllunni i Paris, þar sem hinn bæklaði málari Toulouse-Lautrec málar myndir af þvi, sem fyrir augu ber. Hann kynnist ungri stúlku og hjálpar henni að komast undan lög- reglunni. Þýðandi Stefán Jökulsson. 23.50 Dagskráriok. ^ Sjónvarp Sunnudagur 20.febrúar 16.00 Húsbaendur og hjú. Breskur mynda- flokkur. Hjónaástir. Þýðandi Krist- mann Eiðsson. 17.00 Mannlífiö. Sköpunargáfa. Börn hafa sköpunargáfu, sem nær að þroskast misjafnlega, en sannir listamenn eru gæddir henni í ríkum mæli. I þessum þætti er rætt við tónlistarmann. mál- ara, töframann. leikkonu og popp- söngvara. Við kynnumst viðhorfum þessa. fólks o£ heyrum sýnishorn af list þess. Þýðandi og þulur Öskar Ingimarsson. 18.00 Stundin okkar. Sýndar verða myndir u(n Kalla og Amölku. og siðan er hin árvissa öskudagsskemmtun. það er skemmtun í sjónvarpssal með þátttöku barna. Kynnir er Sigurður Sigurjónsson og leikstjóri Jón Hjart- arson. Umsjónarmenn Hermann Ragnar Stefánsson og Sigríður Margrét Guðmundsdóttir. Stjórn upp- töku Kristín Pálsdóttir. 18.55 Enska knattspyman. Kynnir Bjarni Felixson. Hlé. 20.00 Fréttir og veöur. 20.25 Auglýsingar og dagskrá. 20.30 Vatnajökull. Þáttur um visinda- rannsóknir á Vatnajökli. Sýndir verða kaflar úr gömlum og nýjum kvik- mvndum. sem teknar hafa verið i leiðangursferðum á jökulinn. Mynd- irnar tóku Steinþór Sigurðsson, Magnús Jóhannsson. Arni Stefánsson og sjónvarpsmenn. Umsjónarmenn eru jarðfræðingarnir dr. Sigurður Þórarinsson og Sigurður Steinþórs- son. en textahöfundar og þulir Sigurður Þórarinsson, Árni Stefáns- son. Sigurjón Rist og Bragi Arnason Rúnar Gunnarsson stjörnaði gerð og upptöku þessarar dagskrár. 21.40 Jennie. Breskur framhaldsmvnda- flokkur. 3. þáttur Afturbati. Efni annars þáttar: Jennie er þunguð og sest að í Blenheimhöll. Henni leiðist vistin þar, en huggar sig við tilhugs- unina. um að brátt geti hún farið að taka þátt i samkvæmislífinu á ný. Hún elur son. sem hlý.tur nafnið Winston Leonard. Randolph er bendlaður við alræmt hneykslismál. Hann móðgar ríkisarfann með þeim afleiðingum. að þau Jennie hrökklast úr landi. llann gerist ritari föður síns. sem er land- stjóri á lrlandi. Þýðandi Jón- 0. Edwald. 22.30 Aö kvöldi dags. Séra Hjalti Guð- mundsson. dómkirkjuprestur i Reykjavík. flytur hugvekju.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.