Dagblaðið - 22.09.1977, Síða 7
7
DAtiBLAÐIÐ. F'IMMTUDAGUR 22. SEPTEMBER 1977.
Erlendar
fréttir
REUTER
Kóleran
breiðist
út
Kólerutilfellum heldur
áfram að fjölga í Miðaustur-
löndum. Tilkynnt hefur
verið um 50 ný tilfelli. í
Bangladesh hafa um 260
manns látizt úr kóleru á
nokkrum dögum.
I Amman, Sýrlandi og í
Libanon breiðist veikin út,
en f Sýrlandi hefur veikin
orðið útbreiddust. Alls hafa
um 70 manns látizt úr
veikinni, síðustu fjóra daga,
en talið er að enginn hafi
látizt á Sýrlandi, þrátt fyrir
að veikin sé þar útbreiddust.
Bandaríkin:
LANCE FJÁRMÁLA-
STJÓRISAGÐI
AF SÉR EMBÆTTI
— hann er heiðarlegur og gdður
maður, sagði vinur hans, Carter
Carter forseti Bandarfkjanna
tók í gær við afsagnarbeiðni
Bert Lance fjármálastjóra
Hvíta hússins. Þegar forsetinn
tók við afsögn vinar síns Lance,
sagði hann að hann væri „góður
og heiðarlegur rnaður". Forset-
inn og Lance eru miklir vinir,
en hann er frá Georgíu, sama
rfki og Carter.
Afsögnin mun væntanlega
verða til þess að forsetinn mun
ekki þurfa að svara fyrir þetta
mál meira, en hann hefur marg-
sinnis lýst stuðningi sínum við
Lance vin sinn og sagzt vera
„mjög stoltur af honum“.
Mál Lance hefur verið rann-
sakað undanfarnar vikur og þar
hafa komið við sögu ýmsar
nefndir í fulltrúadeildinni.
Hann hefur verið sakaður um
fjármálaspillingu á meðan
hann var bankastjóri í Georgiu.
Einnig er hann sagður hafa
notað flugvélar bankans í sína
þágu og vina sinna, t.d. notaði
hann hana til að fljúga með
Carter á kosningaferðalögum
hans.
Carter forseti sagðist taka við
afsögninni með sorg og sökn-
uði. Hann tók það einnig fram í
sjónvarpi „að Bert væri góður
maður“. Forsetinn sagði að
hann og Lance hefðu tekið
þessa ákvörðun i sameiningu,
vegna þess að það væri
ógerningur fyrir f jármálastjóra
að starfa þegar andrúmsloftið
væri eins og það hefði verið
undanfarið í hans garð.
Lance var fyrsti maðurinn
sem Carter tók með sér til
Washington. Hann sagðist
ekkert vita hver tæki við af
Carter forseti Bandaríkjanna með vini sínum, fyrrverandi fjár-
málastjóra Hvita hússins, Bert Lance. Þegar Carter tók við afsögn
Lance tók hann það fram „að hann væri mjög heiðarlegur og góður
maður".
Lance sem fjármálastjóri, en sem fjármálastjórinn leggur
það er mjög mikilvæg staða, þar drögin að fjárlagafrumvarpinu.
Líbanirfávopn
frá Banda-
ríkjunum
— þeir fá andviröi sem svarar um eitt
hundrað milljónum dala lánað
Akveðið hefur verið í Banda-
ríkjunum að lána Libanon, sem
svarar 25 milljón dollurum til
vopnakaupa. Vopnin eru fengin
frá Bandaríkjunum og verða
aðallega af minni gerðum.
Samkomulag vegna vopnakaup-
anna var undirritað í Pentagon af
hershöfðingja frá Líbanon, Victor
Khouri, og Bandarískum embætt-
ismönnum. Talsmaður stjórnar-
innar sagði að Bandaríkjamenn
ætluðu að láta Líbanon í té riffla,
bíla og létt vopn.
Utanríkisráðherrann Cyrus
Vance sagði í ferð sinni um löndin
fyrir botni Miðjarðarhafsins að
Bandaríkin myndu lána Líbönum
svo mikið fé að þeir gætu byggt
upp her sinn að nýju. Aætlað er
að Bandaríkjamenn muni lána
Líbanon vopn sem svarar til um
eitt hundrað milljón dollurum.
Alþjóðagjald-
eyrissjóður-
inn blankur
— það vantar um 10 billjónir
Bandaríkjadala ísjóðinn til að
hann þjóni tilgangi sínum
Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn
þarf aldeilis búbót ef takast á
að halda einhverju jafnvægi í
efnahagsmálum. Talsmenn
sjóðsins segja að sjóðurinn
þurfi um 10 billjónir Banda-
ríkjadollara til að geta þjónað
tilgangi sinum.
Richad Cooper aðstoðarvið-
skiptaráðherra og annar ráð-
herra sem hefur með gjald-
eyrismál að gera, sögðu þegar
þeir v.oru að gefa skýrslu í Full-
trúadeild bandaríska þingsins
um Alþjóðagjaldeyrissjóðinn,
að nauðsynlegt væri að fá þessa
upphæð. Ef til kæmi að á þyrfti
að halda, yrðu þessir peningar
að vera til í sjóðnum.
Cooper sagði að sum lönd
hefðu átt í erfiðleikum með að
afla sér viðunandi lána úr
smærri lánasjóðum og til þess
getur því komið á næstunni,
eða á næstu árum að ýmis lönd
fari að leita til sjóðsins í ríkara
mæli, en þau hefðu gert.
1 skýrslunni sem gefin var
fyrir Fulltrúadeildinni, kom
það fram að ef þessar 10
billjónir dala myndu fást, þá
myndi það stórauka traust það
sem sjóðurinn hefði aflað sér.
í dag kl. 15:00 á 20 ára afmæli Árbæjarsafnsins opnar
sérstök iðnminjasýning í sýningarsal Árbæjarsafns-
ins. Á sýningunni verða sýnd gömul iðnverkstæði,
hlutir úr iðnminjasafni Þjóðminjasafnsins, o.fl.
Sýningin verður opin daglega frá kl. 16:00 — 22:00, og
kl. 14:00 — 22:00 um helgar. Aðgangur er ókeypis.
Sérstök fólksflutningabifreið, yfirbyggð af Agli Vil-
hjálmssyni í Reykjavík fyrir 30 árum, flytur gesti iðn-
kynningar frá Laugardalshöll til Árbæjarsafns.
IÐNKYNNING í REYKJAVÍK