Dagblaðið - 24.09.1977, Blaðsíða 6

Dagblaðið - 24.09.1977, Blaðsíða 6
6 DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 24. SEPTEMBER 1977. Kengbeygjan slæma á veginum í Breiðholt III: VERÐUR OGMUN SÍÐAR T-BEYGJA HÆTTUMINNIEN Mörgum hefur orðið tíðrætt um beygjuna miklu á veginum upp I Höfðabakka sem menn verða að fara til þess að komast upp i Breiðholt III. Beygjan er hið mesta slysasvæði og hafa þar orðið bilveltur og menn oft komizt f hann krappan. „Vegurinn allur er hluti af tveimur vegum,“ sagði Dlafur Guðmundsson, yfirverkstjóri hjá embætti gatnamálastjóra, í viðtali við DB. „Framkvæmdir við hann hafa hins vegar dregizt vegna þess samdráttar er orðið hefur i framkvæmd borgarinnar og er ekki vitað hvenær verkið verði klárað." Sagði Olafur að fyrirhugað væri að tengja veg, sem ætti að liggja yfir Elliðaárnar og út á Vesturlandsveg, þarna í beygjuna og yrðu þetta þá T-gatnamót. „Hvenær úr þeim framkvæmd- um getur orðið veit ég ekki, ætli það verði ekki innan tveggja ára,“ sagði Ólafur. „Þá á einnig að koma fyrir hitakerfi efst 1 brekk- unni undir nýtt slitlag en ekki er vitað hvort það verður gert á væntanlegum gatnamótum." - HP Helgi Vilberg skólastjóri að hengja upp myndirnar i Háhóli. Skólinn mun njóta hagnaðarins af sölu verkanna, en vel hefur gengið að seija myndirnar. -DB-mynd FAX. Myndlistarskóli 33 USTAMENN SÝNDU J HUG SINN TIL SKÓLANS — gáfu eina mynd hver til sölusýningar Myndlistarskólinn á Akureyri á marga góða vini. Það má sjá á sýningu sem haldin er þessa dagana á vegum skólans i Galleríi Háhóli. Skólinn fór þess á leit við allmarga listamenn, flesta þjóðkunna, að þeir gæfu skólan- um verk eftir sig. Þetta bar þann árangur að 33 myndir bárust á sölusýninguna, allt gjafir frá listamönnum, sem þakklátir eru skólanum fyrir norðan. Sýningunni lýkur núna á sunnudagskvöldið en opið er f Háhóli milli kl .13 og 22 i dag og á morgun. Listamennirnir sem gáfu verk á sýninguna eru þessir: Aðalsteinn Vestmann, Alfreð Flóki, Björg Þorsteinsdóttir, Bolli Gústavsson, Bragi Asgeirsson, Egill Eðvarðs- son, Einar Þorláksson, Eiríkur Smith, Gisli Guðmann, Guð- mundur Ármann, Helgi Vilberg, Hringur Jóhannesson, Jens Krist- leifsson, Jóhannes Geir, Jón Reykdal, Jónas Guðmundsson, Kjartan Guðjónsson, Kristinn G. Jóhannsson, Óli G. Jóhannsson, Pétur Friðrik, Ragna Róbertsdóttir, Sigurður Sigurðs- son, Sveinn Björnsson, Valtýr Pétursson, Veturliði Gunnarsson, Þorbjörg Þórðardóttir, Þorvaldur Skúlason, Þórður Hall, örlygur Kristfinnsson, örlygur Sigurðs- son, örn Ingi, örn Þorsteinsson. FLUGUMFERÐARSTJÓRAR EKKIMEÐ VERKFALLSRÉTT — heldur ekki ófélagsbundnir starfsmenn ríkisins Flugumferðarstjórar hafa ekki verkfallsrétt. Svo mun einnig vera með marga þá sem hjá ríki og bæjarfélögum starfa en eru ekki fullgildir félags- menn i Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja. 1 stærsta félaginu innan bandalagsins, Starfsmanna- félagi rikisstofnana, er talið að vanti nálægt 1000 einstaklinga sem starfa sinna vegna ættu að vera þar innan dyra. Félagaskrá bandalagsins og félaga innan þess hefur ekki legið fyrir fram að þessu. En í atkvæðagreiðslunni um sátta- tillögu i kjaradeilu opinberra starfsmanna munu þeir sem vafi leikur á um kjörrétt þó allir fá að kjósa. Verða atkvæði þeirra sótt sérstaklega og siðan úrskurðuð af sáttanefnd sem mun verða nokkurs konar yfirkjörstjórn að þessu leyti. Samkvæmt lögum um verk- fallsrétt opinberra starfsmanna hafa félagar í Bandalagi háskólamanna ekki verkfalls- rétt. I lögum um verkfallsrétt rikisstarfsmanna og fleira segir svo: „Lög þessi taka til allra starfsmanna sem eru félagar í BSRB eða félagi innan vébanda þess.“ Ennfremur munu lögin gera ráð fyrir því að starf hjá ríkinu eða bæjarfélagi verði að vera aðalstarf til að starfsmaður njóti verkfallsréttar. -ÖG. Snemma í vor var Btrgisbraut malbikuð og var það mjög til bóta. Fyrirhugað er að koma fyrir bitakerfl i götunni þegar fram liða stundir og eins verður nýr vegur tengdur inn i beygjuna hættulegu. Þetta er opinberum starfsmönnum boðið Sáttatillagan sem lögð var fyrir opinbera starfsmenn fékk dræm- ar undirtektir á fundi stjórnar og samninganefndar BSRB. Þar sam- þykktu allir viðstaddir að skora á félaga sína að fella tillöguna i væntanlegri allsherjarat- kvæðagreiðslu. DB birtir nú töflu þar sem fram koma núverandi laun eins og þau Fjármálaráöuneytió Launadeild 77.09.23 SP/vq voru greidd út 1. september siðastliðinn. í öðrum dálki eru birtar tölur samkvæmt sáttatillögunni, sem sagt það tilboð sem afgreitt verður I atkvæðagreiðslunni. Aftast koma siðan upplýsingar um hve hækkunin nemur miklu, bæði hlutfallslega og i krónum. -ÓG. BSRB-LAUN LAUNASTIGASAMANBURÐUR NÓVERANDI LAUN OG SATTATILLAGA SEPTEMBERLAUN Septeraber laun Hækkun Hækkun Lf 1. Núverandi Sáttatillaga % kr. 01 88.727 98.708 11,2 9.981 02 91.180 100.921 10,7 9.741 03 94.430 103.849 10,0 9.419 04 ya.572 107.584 9,1 9.012 05 102.709 112.939 10,0 10.230 06 106.575 118.222 10,9 11.647 07 110.441 123.505 11,8 13.064 08 114.311 128.789 12,7 14.478 09 118.176 134.074 13,5 15.898 10 122.045 139.358 14,2 17.313 11 125.915 144.643 14,9 18.728 12 129.778 149.924 15,5 20.146 13 133.550 155.215 16,2 21.665 14 138.643 161.035 16,2 22.392 15 143.931 167.001 16,0 23.070 16 149.419 173.Q62 15,8 23.643 17 155.117 179.225 15,5 24.108 18. 161.032 185.492 15,2 24.460 19. 167.173 191.866 co T H 24.693 20. 173.546 1§8.354 14,3 24.808 21. 180.167 204.958 13,8 24.791 22. 187.046 211.688 13,2 24.642 23. 194.168 218.534 12,5 24.366 24. 201.576 225.518 11,9 23.942 25. 209.261 232.634 11,2 23.373 26. 215.576 239.092 10,9 23.516 27. 222.080 245.641 10,6 23.561 28 228.781 252.285 10,3 23.504 29. • 235.684 259.027 '9,9 23.343 30. 242.794 265.868 9,5 23.074 31. 250.078 272.793 9,1 22.715 Láunatölur þessar eiga viö 3ja þrep launastigans , þaö er laun eftir 6 ára starfsaldur eöa aó náöura 32 ára ævialdri. Þrír hafnfirzkir drengir í slysadeild Þrír unglingar i Hafnarfirði voru i fyrradag fluttir i slysadeild eftir minniháttar umferðaróhöpp. Einn var á reiðhjóli við Þúfubarð er hann varð fyrir bifreið. Tveir féllu hins vegar af skellinöðrum. Enginn þeirra hlaut alvarleg sár. Nokkur faraldur er nú f Hafnar- firði að því er varðar skellinöðru- akstur og skellinöðrukaup. Er ástæða til að hvetja unga pilta til. að fara varlega. - ASt.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.