Dagblaðið - 24.09.1977, Side 10

Dagblaðið - 24.09.1977, Side 10
10 DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 24. SEPTEMBER 1977. frýálst, úháð dagblað Útgefandi DagblaAiö hf. Framkvœmdastjóri: Svoinn R. Eyjólfsson. Ritstjóri: Jónas Krístjánsson. Fróttastjóri: Jón Birgir Pótursson. Ritstjórnarfulltrúi: Haukur Holgason. Skrifstofustjóri ritstjómar: Johannes Roykdal. iþróttir: Hallur Símonarson. Aöstoðarfróttastjóri: Atli Steinarsson. Handrít: Ásgrímur Pálsson. Blaöamenn: Anna Bjamason, Ásgeir Tómasson, Bragi Sigurösson, Dóra Stefánsdóttir, Gissur SigurÖsson, Hallur Hallsson, Helgi Pótursson, Jónas Haraldsson, Katrín Pálsdóttir, Ólafur Geirsson, Ólafur Jónsson, Ómar Valdimarsson, Ragnar Lár. Ljósmyndir: Bjamleifur Bjamleifsson, Höröur Vilhjálmsson, Sveinn Þormóösson. Skrifstofustjóri: Ólafur Eyjólfsson. Gjaldkori: Þráinn Þorleifsson. Dreifingarstjóri: Már E. M. Halldórsson. Ritstiórn Síöumúla 12. Afgreiösla Þvorholti 2. Áskríftir, auglýsingar og skrífstofur Þverholti 11. Aðalsími blaösins 27022 (10 línur). Askríft 1500 kr. á mánuði innanlands. i lausasölu 80 kr. eintakiö. Setning og umbrot: Dagblaðið og Steindórsprent hf., Ármúla 5. Mynda og plötugerö: Hilmirhf. Síðumúla 12. Prentun: Árvakur hf. Skeifunni 19. Upprætiö þursana Vernd einstaklingsins gegn yfirþyrmandi ríkisvaldi var eitt aðalinntak samþykkta þings Sam- bands ungra sjálfstæðismanna um fyrri helgi. Ungir sjálfstæðismenn telja, að hið opinbera hafi brugð- izt skyldum sínum, þarfir einstakl- inga séu búnar til með ákvörðunum stjórnmála- manna og samhjálpin stórgölluð á veigamiklum sviðum. Þróunin hafi orðið, að í vaxandi mæli hafi þeir ráðin, sem telja, að hið opinbera hafi rétt til að ráða þörfum einstaklinganna. Þannig hafi afskipti hins opinbera af láns- fjármarkaðinum valdið stórkostlegu tjóni og misrétti í þjóðfélaginu. Fjármagn hafi verið fært frá sparifjáreigendum til skuldaranna. Það hafi komið verst við þá, sem minnst mega sín. íslenzkir sparifjáreigendur njóti verri kjara í sínu eigin landi en erlendir aðilar. Víðtæk lánsfjárskömmtun, sem hafi fylgt í kjölfarið, sé næring spillingar og hafi dregið verulega úr möguleikum þjóðarinnar til að lifa mannsæmandi lífi, því að við úthlutun fjár- magnsins sitji vinagreiðar og stjórnmálahags- munir fyrir eðlilegum viðskipta- og arðsemis- sjónarmiðum. Niðurgreiðslur á ýmsum vörutegundum séu fyrst og fremst liður í spili stjórnvalda með vísitölu framfærslukostnaðar, en grundvöllur vísitölunnar sé löngu úreltur. Þá er bent á, að víða myndist „þursar“ í búskap hins opinbera, sem hafi ekki annað markmið en að viðhalda sjálfum sér. Þátttaka hins opinbera í rekstri framleiðslufyrirtækja hafi í mörgum tilvikum stuðlað að verri lífs- kjörum. Ungir sjálfstæðismenn hvetja til endurskipulagningar á opinberum búskap. Gerðar eru tillögur um samdrátt í opinberum umsvifum. Hið opinbera verði að starfa í þágu einstaklinganna en eigi ekki að taka af þeim öll ráð eins og nú sé að gerast. Ungir sjálfstæðis- menn hvetja meðal annars til þess, að for- sendur verði skapaðar fyrir afnámi niður- greiðslna og útflutningsuppbóta en benda á neikvæðan tekjuskatt sem betra tæki til að jafna tekjur manna. Þarna eru hressandi viðhorf, sem eru and- stæð hinu staðnaða samtryggingarkerfi flokk- anna. Hins vegar er tekið undir margt af því, sem Dagblaðið hefur haldið fram um yfirgang ríkisvaldsins. Auðvitað er augjóst, að í gagn- rýni sinrti eru ungir sjálfstæðismenn að beina spjótum gegn forystunni í eigin flokki, ekki síður en í öðrum flokkum. Sjálfstæðisflokkurinn ber meginábyrgð á því, sem gerzt hefur, sífelldri skerðingu á rétti einstaklingsins. Ekki er vanþörf á að hvetja þá ungu sjálfstæðismenn, sem stóðu að þessari samþykkt, til að láta ekki deigan síga heldur ganga fram til að uppræta þursana í búskap hins opinbera. „SVÍAKÓNGUR ER ALGiÖR KVENNABÓSI” * —segir í sænsku blaði sem seldist upp á nokkrum klukkutímum vegna sögunnar um ævintýri kóngsins íBandaríkjunum Það hlýtur að vera eitthvað forvitnilegt í blaði, sem selst upp á einum eftirmiðdegi. Sænska blaðið „Pockettidning- en R“ seldist eins og heitar lummur. Allir kepptust við að ná sér í eintak og lesa hneykslissöguna um Karl Gústaf Svíakóng. Sagan um kónginn i sænska blaðinu varð til þess að hótað hefur verið að fara í mál við blaðið. Sænskir embættismenn hafa lýst fyrirlitningu sinni á þeim skrifum sem þar koma fram. Eitt er vist að allir vildu eignast eintak, hvað sem svo stóð i blaðinu um kónginn. Allir töluðu um söguna sem stóð í blaðinu, og ef þú vissir ekkert um hana, þá varstu ekki viðræðuhæfur. Kóngurinn er kvennabósi I þessu hefti blaðsins, sem var rifið út á nokkrum tímum, var fjallað um vændi. Það var reynt að gera þvf skil, hvaða þjóðfélagshópar færu á fund vændiskvenna. Þetta var þykkt blað, sem hafði að geyma margt um vændi og hversu útbreitt ' ' ' I Morgunblaðinu þann 18. ágúst 1977 er grein eftir Sigurð Draumland, þar sem hann gerir að umtalsefni trúmál og um margskonar siði og aðferðir sem ýmsir trúflokkar nota við útbreiðslu skoðana sinna. Ég verð að játa mig svo fá- vísan að ég á erfitt með að skilja sumt i greininni. Til dæmis þetta orðrétt: Fimmtug- asti langafi fimmtugasta lang- afa hvers manns er orðinn svo þroskaður að honum er minnk- un að framferði æsingaflokka í trúmálum. Síðan er talað um menn sem „elti börnin á heiðum uppi og grenjað í eyru þeirra hvort að þau tryðu á Jesúm, aðrir stóðu á trékössum hótandi helvíti hér og þar og þegar í stað“. Eg hélt nú að þessi ágæti maður vissi að það er ekkert atriði hvar predikari guðsorðs stendur, heldur er það fyrst og fremst sannfæringar- kraftur predikarans og lífsbæt- andi áhrif til þeirra sem hlýða. Svo er það rúsínan i pylsuend- anum orðrétt: „Vmsir sérsöfn- uðir á landinu hafa gefið út sálmabók, hver fyrir sig. Flest af þeim samsetningi, sem þær flytja er flatrímað holtaþoku- væl. Sálmabækur gera það helst að spilla málkennd og hugsunarskýrleika þjóðar- innar." Ennfremur: „Að einu leyti er sótið svartast hjá þjóð- kirkjunni. Það ætti að vera fyrir áhrif hennar að hin sjái blessun sára í því að fá því til leiðar komið með lipurð og festu að hverrar trúar sem söfnuðir eru, verði skyldir til að geta þess, að öll boðun trúar, f húsi sem utan, fari fram á sómasamlegan hátt. Hins konar aðferðir (hverjar? innskot) eru eins og verið sé að bera sól- skinið á kerlingasvuntu frá 17. öld í gluggalaust hús hér norður á Brakanda — í staðinn fyrir að bera fólkið út I sólskin- ið.“ „Holtaþokuvœl“ Eflaust upplýsir Sigurður hvers konar aðferðum hann vill að þjóðkirkjan beiti til eflingar guðskristni í þessu landi. Eg get ekki betur séð en að þessi síðasta grein sé að nokkru grímuklædd árás á það fólk sem hefir af mikilli fórnfýsi og áhuga stutt kristilegt starf hér. Það er til dæmis ekki litið upp- örvandi fyrir það ágæta fólk sem enn þá heldur uppi kirkju- söngnum að lfkja söng þess og ii Sækið sólskin trúarínnar í kirkjurnar sálmunum sem sungnir eru við „flatrímað holtaþokuvæl"!! Það eru líka þeir sem niddir eru niður í svaðið: Flest sálmalögin eru samin af frægum snilling- um. Nefni Mikael Haydn, Mozart, Johann Criiger, Hart- mann, Weyse, Berggreen, Sig- valda Kaldalóns, Pál tsólfsson, tsólf Pálsson, Sigíirð Þórðar- son. Sálmaskáld nefni ég þessi: Matthías Jochumsson, Valdi- mar Briem, Davíð Stefánsson, Einar Benediktsson, Hallgrim Pétursson. Það eru sannarlega engin smámenni sem Sigurður brennimerkir með „flatrímaða holtaþokuvælsstimplinum". Það eru f jölmargir fleiri sem hafa áratugum saman reynt að útrýma kristnum dómi, stjórn- málamönnum, stórskáldum, kennurum æðri og lægri skóla og fleirum. Afleiðingarnar sjá allir í þvi upplausnarástandi sem alls staðar blasir við sjónum i þjóðfélaginu. Allt trúarlíf er afgreitt sem „drasl" er fleygja beri á gleymskunnar hauga. Það er undravert að nokkurt trúárlegt starf skuli Iengur lifa á landi hér eftir hinn langvarandi áróður gegn kristni og kirkju. Sigurður vill láta kirkjuna bera fólkið út í sólskinið, eflaust að honum meðtöldum. Það er vist ekki nein vanþörf á, því ég get ekki betur séð en að stör hluti þjóðarinnar sjái tæpast dýrð guðs í náttúrunni kringum sig. Þetta tel ég vera vegna trúar- niðurrifsaflaáhrifa hér á landi qg víðar. Sigurður mælir með því að biðja til guðs í einrúmi. Ég veit að það er styrkur hverjum trúuðum manni. Hitt tel ég þó miklu áhrifameira að taka þátt í guðsþjónustu þar sem fjöldi fólks sameinast af einlægum huga með bænagjörð og fjölda- lofsöng. Sálmabókina tel ég með fremstu trúarlegu bókum okkar. Það má segja að gull- perlur trúarinnar glitri þar á hverri síðu. Ef til vill er það einmitt þess vegna að hún er lögð í einelti. Nútímastressið Ég vil ráðleggja öllum sem eru áð farast í moldviðri trú- leysisáróðursins að sækja sól- skin trúarinnar í kirkjur lands- ins. Ef meirihluti þjóðarinnar gerði það þá þyrfti hvorki félagsráðgjafa né sálfræðinga, engar rándýrar afslöppunar- stofur, alls konar glæpum og auðgunarbrotum mundi stór- fækka, sálarfriður kæmi 1 stað nútímastress, sem allt er að færa i kaf, birta myndi breiðast yfir mannlifið í stað tilbúna gerningamyrkursins, sem nú þjáir þessa þjóð. Ég vil benda fólki /á að kynna sér þessa sálma i sálmabókinni: 0 þá náð að eiga Jesúm þýtt af Matthíasi Jochumssyni, A hendur fel þú honum, þýtt af Birni Halldórs- syni, Hvað bindur vorn hug við heimsins glaum eftir Einar Benediktsson, Þú Guð sem stýrir stjarna her eftir Valdi- mar Briem. Sigurður gerir lítið úr is- lensku trúboði í hinum sár- þjáðu Afríkulöndum, nær að gera meira í þeim anda hér heima. Ég tel að öllum þjóðum sem telja sig kristnar sé skylt að hlýða boði Krists að gera allar þjóðir að lærisveinum.Við eigum lika að gegna þvi kalli að likna þeim sem liggja þjáðir við

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.