Dagblaðið - 12.11.1977, Page 3
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 1977
3
Raddir lesenda eru á bls. 3 og 4
Ekki til of mikils mælzt að herinn kaupi landbúnaðarvörur af okkur
Á NIEÐAN NATO ER HÉR ÁN ÞESS AÐ
GREIÐA LEIGU
Sveinn Sigurjónsson í Keflavík
skrifar:
„í grein Vilmundar Gylfasonar
í DB 21. október lýsir hann því
yfir af mikilli mælsku hvað
Aðalverktakar græði mikið á
viðskiptum sínum við varnarliðið
og telur það leigupeninga seni
NATO greiði íslendingum. ÞettB
er alveg öfugt. Framkvæmdir sem
NATO lætur vinna geta ekki talizt
sem leiga. Eðlilega þarf að byggja
yfir fólkið, leggja vegi, endurnýja
flugbrautir, o. fl. i stöð sem
þessari. En það getur aldrei talizt
sem leigugjald.
Aðstöðugjald eða leiga er fyrir
það land sem herstöðin hefur sinn
rekstur á, sem er margþættur af
eðlilegum ástæðum. Fyrir þá
aðstöðu ber NATO að greiða og
hefði átt sóma sfns vegna að gera
allan þann tíma sem stöðin er
búin að vera hér. Það er ekkert
fyrirtæki hér á landi sem hefur
fría aðstöðu til athafna án
greiðslu nema NATO. Hver er
ástæðan? Það myndi engum detta
í hug nema V.G. að blanda þvf
saman, framkvæmdum, sem unn-
ar eru þarna f þágu her-
stöðvarinnar og lóðarleigu sem
greiðast ætti ef rétt væri á haldið.
Með þjóðnýtingu Aðalverktaka
hugsar V.G. sér sennilega rfkis-
rekstur. örugglega veit V.G.
hverjir standa að Aðalverktökum.
Við höfum annað ríkisrekið fyrir-
tæki sem grípur inn á svið her-
stöðvarinnar. Það er Sala varnar-
liðseigna. Það fer margt og mikið
f gegnum það fyrirtæki en þó
hefur enginn heyrt um stórar
fúlgur í rfkiskassann þaðan. Þó
hefur þar verið keypt ódýrt en
selt dýrt og frágangur hjáþví
fyrirtæki með eindæmum slæmur
eins og blaðaskrif hafá sýnt. Þar
eru ríkisstarfsmenn að verki og
þeir vilja hafa vel fyrir sinn snúð.
Nei, Vilmundur, þú skalt ekki
hugsa að þú getir komið nokkrum
leikmanni til að trúa þvf að
það sé það sama, byggingafram-
kvæmdir og annað viðhald á
svæði því sem herstöðin hefur
leigulaust hér á Miðnesheiði.
Enginn fæst til að trúa þvf að það
sé leiga sem NATO greiðir, nema
þá kannski langskólagengnir
menn og stjórnmálamenn sem
telja sig sjálfkjörna til að segja
þeim lftt menntuðu fyrir verkum
f þeim málum sem snerta peninga
og herstöðvamálin.
Það er alveg merkilegt að fólk
úti um hina dreifðu byggð
landsins, sem á við mjög óhag-
stæðar samgöngur að strlða að
öllu leyti, skuli ekki vakna og
krefjast þess að herstöðin sé látin
greiða aðstöðugjald og því fé
varið til samgöngubóta.
Þið sem eruð bundin á klafa
stjórnmálaflokkanna, hristið
hann af ykkur. Látið þá vita að
þið kjósið þá ekki lengur nema
þeir hafi það á stefnuskrá sinni að
herstöðin sé látin greiða fyrir að-
stöðu sína og gjaldið verði látið
ganga til samgöngubóta fyrir
dreifbýlið.
Það hriktir í öllum stoðum
þjóðfélagsins vegna skulda. Það
er varla mikil eftirsjá f þessum
betlurum sem setið hafa á þingi
áratugum saman. Ætli það sé ekki
kominn tími til að breyta
um andlit?
Bændur! Finnst ykkur umboðs-
menn þeir er þið látið sjá um
afurðasölu, kjöt og mjólkurvöru,
standa sig nógu vel? 1 mötuneyti
herstöðvarinnar á Miðnesheiði er
mikið notað af þessum vörum og
komið mun hafa fyrir að lamba-
kjöt hafi verið flutt inn frá Nýja
Sjálandi. Væri til of mikils mælzt
að herstöðin keypti það kjöt og
mjólkurvörur (mjólkina kaupir
hún) sem við þurfum að selja úr
landi með stórum niður-
greiðslum?
Sýnið nú ykkar alþekkta
dugnað og krefjizt þess af
umboðsmönnum ykkar að
herstöðin kaupi það af kjöti,
ostum og fleiri vörum, sem liðið
þar getur notað og okkur vantar
hagstæðan markað.
Ef NATO vill ekkert gera fyrir
okkur, gott og vel, þá viljum við
ekkert meo pá hafa án
aðstöðugjalds. Þeir eru ekki hér
fyrir okkur, það hafa þeir þegar
sýnt.
Bændur, elskið þið NATÖ-
dátana á Miðnesheiði svo mikið að
ykkur finnist þetta ósanngjörn
uppástunga? Hugsið málið til
kosninganna að surnri."
Ný ókeypis
þjónusta:
Smáauglýsingaþjónusta
, ,Smáauglýsingaþjónusta”
heitir nýja þjónustudeildin
okkar.
Setjir þú smáauglýsingu í
Dagblaðið getyr þú beðið um
eftirtalda þjónustu hjá smá-
auglýsingaþjónustu blaðsins
þér að kostnaðarlausu:
Tilboðamóttöku í síma. Við
svörum þá í síma fyrir þig og
tökum við þeim tilboðum sem
berast.
Upplýsingar í sima. Við
veitum fyrirspyrjendum
upplýsingar um það sem þú
auglýsir, þegar þeir hringja til
okkar.
Að sjálfsögðu aðstoðum við
þig, ef þú óskar þess, við að
orða auglýsingu þína sem
best.
Njóttu góðrar þjónustu
ókeypis.
BIAÐIÐ
er smáauglýsingablaðið
bverholtiTI sími 2 70 22 Opið til kl.10 í kvöld
Spurning
dagsins
Hvernig lízt þér á fram-
bjóðendur í prófkjöri
Alþýðuflokksins í Reykja-
vík sem verður um
helgina?
Ingólfur Þorvaldsson, vinnur hjá
ísal: Mér lízt ágætlega á Vilmund,
held hann geti svarað þeim. Og
svo er það auðvitað hann Gröndal.
Karl V. Dyrving glerísetnlngar-
maður: Hef ekki hugmynd um
hverjir þeir eru. Ég hef svo sem
tekið eftir að verið er að kynna
menn I ýmsum prófkjörum en
ekki tekið sérstaklega eftir
þessum.
Hans Rödtang (Þangbrandur)
húsasmiður: Ég hef tekið eftir að
prófkjör standa nú yfir en hef
ekki kynnt mér frambjóðendur
Alþýðuflokksins sérstaklega. En
þétta eru vafalaust ágætismenn
allt saman.
Guðni Gústavsson lögg. endur-
skoðandi: Þvi miður, veit ekki
hverjir það eru. Yfirleitt fylgist
ég lftið með i pólitikinni, lief ekki
tima til þess.
Mér lfzt ljómandi vel á þá alla en
hef lítið hugsað málið.
Einar Davfðsson, fúskar við hús-
gagnasmfði: Ég er alveg úti að
aka og þekki víst engan mann í
flokknum nema auðvitað hann
Eggert, við vorum saman i
Iðnskólanum i gamla daga.