Dagblaðið - 12.11.1977, Page 7
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 1977.
7
Hver þeirra fellur?
Benedikt, Eggert og Vilmundur leggja allt sitt
að veði—búizt við að utanf lokkamenn reyni
að hafa áhrif á gang mála
I dag og á morgun, sunnudag,
fer fram prófkjör Alþýöuflokks-
ins í Reykjavík fyrir framboös-
lista til alþingiskosninganna aö
vori. Talið er aö allt aö sex þús-
und manns muni taka þátt í próf-
kjöri þessu, sem óneitanlega
hefur vakiö mikla athygli, enda
leggja nokkrir af forvígismönn-
um flokksins þar alla sina póli-
tísku framtíð aö veði. Ljóst er að
einhver þeirra þriggja, Benedikts
Gröndal-, Eggerts G. Þorsteinsson-
ar og Vilmundur Gylfason, mun
ekki ná kjöri og verður það aö
teljast alvarlegt pólitískt áfall
fyrir viðkomandi.
Kjörstaðirnir eru fjórir og eru
opnir frá kl. 13 til 19 i dag og frá
kl. 10 í fyrramálið, sunnudag, til
kl. 19. Talning hefst þá fljótlega
en talið er að nokkuð verði liðið á
nótt er úrslit verða kunn.
Kjörstaðirnir eru: 1. Drafnar-
fell 2—4 (Dansskóli Heiðars Ast-
valdssonar, uppi) fyrir Breið-
holtshverfi 1-2-3, sem takmarkast
af Vatnsveituvegi að norðanverðu
og Reykjanesbraut og Kópavogi
að vestanverðu. 2. Fáksheimilið
fyrir Arbæjarhverfi, Fossvog,
Smáíbúðarhverfi og Bústaða-
hverfi að Grensásv. að vestan og
Miklubraut að norðan, 3. Síðu-
múli 37 1. hæð fyrir allt hverfið
norðan Miklubrautar að Snorra-
braut, ásamt Hlíða-, Háaleitis- og
Hvassaleitishverfi. 4. Iðnó, uppi
fyrir allt svæðið vestan Snorra-
brautar að Seltjarnarneskaup-
stað.
Atkvœðagreiðslan
Astæða er til að vekja athygli á
því að atkvæði er ekki gilt nema
greitt sé atkvæði um öll sæti á
iistanum, þ.e. einn mann í 1., 2. og
3ja sætið. Fyrir gæti komið að
menn í hita leiksins greiddu
aðeins „sínum“ manni atkvæði en
gleymdu hinum og er atkvæðið þá
ógilt.
Þessir hafa sótt um fyrsta sætið:
Benedikt Gröndal,
Eggert G. Þorsteinsson,
Sigurður E. Guðmundsson,
Vilmundur Gylfason.
Vetrarstarf
Kammersveitar
Reykjavíkur:
ÞRJÚ NÝ ÍSLENZK
VERKÁDAGSKRÁ
Kammersveit Reykjavíkur
byrjar vetrarstarf sitt á sunnu-
daginn kemur í samkomusal
HamrahÚðarskóla kl. 17. „Við
Þau taka þátt i flutningi tónleikanna á sunnudaginn. Frá vinstri er
Sesselja Halldórsdóttir (lágfiðla), Gunnar Egilsson (klarinett), Rut
Ingólfsdóttir (fiðla), Jón H. Sigurbjörnsson (fiauta), Helga Hauks-
dóttir (fiðla), Páll P. Pálsson, (stjórnandi), Pétur Þorvaldsson (selló)
og Monica Abendroth (harpa).
munum leggja áherzlu á að frum-
flytja verk íslenzkra listamanna,“
sagði Rut Ingólfsdóttir fiðlu-
leikari einn af frumherjum
Kammersveitarinnar sem hefur
nú sitt fjórða starfsár.
I vetur verða haldnir fernir
tónleikar fyrir áskrifendur,
þrennir í Hamrahlíðarskóla en
jólatónleikarnir í Bústaðakirkju.
Þrjú islenzk kammerverk verða
frumflutt á tónleikum vetrarins.
A sunnudaginn er á dagskrá verk
Jóns Asgeirssonar, Oktett fyrir
tréblásara, á tónleikum 12,
febrúar verður íslenzkt verk
frumflutt en ekki er búið að til-
kynna nánar um það verk né
höfund þess. Á síðustu tónleikun-
um verður flutt verk Gunnars
Reynis Sveinssonar, A þeim tón-
leikum verður og flutt verk eftir
John Speight, Strengjakvartett.
Speight er búsettur hér á landi.
Þá mun Miklos Maros koma fram
á lokatónleikunum og stjórna tón-
leikunum en eiginkona hans,
Ilona Maros, tekur þátt i flutningi
sumra verkanna.
Blómabúðin
Lilja
Laugarásvegi 1 — Sími 82245
Gjafavörur íúrvali
Úrval afskorinna blóma
Ný pottaplöntusending
•
Blómaskreytingar, tækifæris-
og boröskreytingar,
blómakörfur, brúðarvendir,
útfararskreytingar
•
Haustlaukaútsala
Kertaúrval
Opið alla daga (líka laugar-
daga og sunnudaga) 9-22
Sendum innanbæjar og um
allt land
Um annað sætið:
Bragi Jósepsson,
Eggert G. Þorsteinsson,
Sigurður E. Guðmundsson,
Vilmundur Gylfason.
Um þriðja sætið:
Bragi Jósepsson,
Jóhanna Sigurðardóttir,
Sigurður E. Guðmundsson.
Hverjir mega kjósa?
Það verður engin utankjör-
staðaatkvæðagreiðsla við próf-
kjörið. Allir sem orðnir eru 18 ára
og eldri 13. nóv. 1977 og ekki eru
flokksbundnir í öðrum stjórn-
málaflokkum og eiga lögheimili í
Reykjavík mega taka þátt í próf-
kjörinu.
Það má segja að það sé þetta
atriði sem gerir prófkjör alþýðu-
flokksmanna spennandi. For-
maður flokksins lýsti því yfir í
viðtali við DB í gær að hann hefði
þá trú á stjórnmálalegu siðgæði
fólks að það myndi ekki misnota
þær frjálslegu reglur sem gilda
um prófkjörið.
Kjörstjórn hefur látið prenta
um tíu þúsund kjörseðla.
Það er hins vegar ljóst að af
þeim fimm eða sennilega um sex
þúsund manns, sem talið er að
taki þátt í pr.ófkjörinu, viti fram-
bjóðendur ekki um skoðanir
nema a.m.k. helmingsins.
Hinir eru þar með óþekktar
stærðir og er jafnvel talið að
framsóknarmenn muni reyna að
hafa áhrif á gang mála, enda er
vitað að þeir bera engan hlýhug
til Vilmundar Gylfasonar.
Eins og áður sagði verða úrslit
prófkjörsins ekki ljós fyrr en
langt verður liðið á aðfaranótt
mánudagsins en Dagblaðið mun
skýra frá þeim á mánudagsmorg-
uninn.
Atkvæði verða talin í Kristals-
sal Hótels Loftleiða.
- HP
Styrkir til háskólanáms eða
rannsóknastarfa íFinnlandi
Finnsk stjórnvöid bjóða fram styrk handa íslendingi til
háskólanáms eða rannsóknastarfa i Finnlandi námsárið
1978-79. Styrkurinn er veittur til níu mánaða dvalar frá
10. september 1978 að telja og er styrkfjárhæðin 1.000
finnsk mörk á mánuði. Skipting styrksins kemur þó til
greina.
Þá bjóða finnsk stjórnvöld einnig fram eftirgreinda
styrki er mönnum af öllum þjóðernum er heimiit að
sækja um:
1. Tíu fjögurra og hálfs til níu mánaða styrki til náms í
finnskri tungu eða öðrum fræðum er varða finnska
menningu. Styrkfjárhæð er 1.000 finnsk mörk á mán-
uði.
2. Nokkra eins til tveggja mánaða styrki handa vísinda-
mönnum, listamönnum eða gagnrýnendum til sér-
fræðistarfs eða námsdvalar í Finnlandi. Styrkfjárhæð
er 1.300 finnsk mörk á mánuði.
Umsóknum um framangreinda styrki skal komið til
menntamálaráðuneytisins, Hverfisgötu 6, Reykjavík,
fyrir 15. janúar nk. Umsókn skal fylgja staðfest afrit
prófskírteina, meðmæli og vottorð um kunnáttu í
finnsku, sænsku, ensku eða þýsku. Sérstök umsóknar-
eyðublöð fást i ráðuneytinu.
Menntamálaróðuneytið
8. nóvember 1977.
Hótel Loftleiðir
Óskum aö ráöa vana
smurbrauðsstúlku
Uppl. gefuryfirmatreiöslumaöur
ámánudagmillikl. 10 og 15
Útboð
Stjórn verkamannabústada í Reykja-
vík óskar eftir tilboðum í byggingu 18
fjölbýlishúsa (216 íbúðir) í Hóla-
hverfi.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu
V.B. Mávahlíð 4 Reykjavík, gegn 100
þús. kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð þriðjudaginn 6.
des. 77 kl. 14.
Laus staða
Laus er til umsóknar staða læknis við
heilsugæzlustöð í Breiðholti III.
Staðan veitist frá 1. janúar 1978.
Umsóknir sendist heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytinu fyrir 10.
desember 1977.
Heilbrigðis- og tryggingamólaráðuneytið
9. nóvember 1977.