Dagblaðið - 12.11.1977, Blaðsíða 12
u
DAGBLAÐIÐ, LAUGARDAGHR 12. NÓVEMBER 1977.
PETER FALK í HJÓNABAND UM JÓLIN
Leikarinn Peter „Columbo“
Falk hyggst ganga í hjónaband
í kringum jólin og hann hefur
þegar lýst því yfir að hann og
ástkonan hyggist eiga að
minnsta kosti tvö börn.
Falk sem er fimmtugur að
aldri ætlar að giftast 27 ára
gamalli leikkonu sem heitir
Shera Danese. Þau hafa leitað
dauðaleit undanfarið að
draumavillu í Beverley Hills.
Falk segist vera reiðubúinn til
að reiða af höndum milljón
dollara fyrir slíkt hús (210
milljónir íslenzkar).
„Maður verður að eiga hús
þegar maður giftir sig og þvf er
ég að leita að húsi,“ segir Falk
sem er nýskilinn við fyrri konu
sína. Þau Shera búa núna
saman í lítilli Ibúð.
Falk segir konuefnið vera
mörgum kostum búið en þó rísi
tveir hæst. Hún sé lagleg og
hún komi sér til þess að hlæja.
Með henni geti hann gleymt
starfinu og tekið upp léttara
hjal.
Alvaran skfn þó út úr þeim
er þau ræða um ástina og
draumahúsið sem á að vera
með nógu mörgum svefnher-
bergjum til þess að rúma öll
börnin sem þau ætla að eignast.
Falk tekur það skýrt fram að
hann gæti ekki hugsað sér að
giftast konu sem tæki sinn
eigin frama fram yfir að eiga
hann og börn. Sheru segir
hann vera mikinn hundadýrk-
anda og ef hún veiti barni þó
ekki væri nema þriðjung'
þeirrar umhyggju sem hún
veitir hundi sínum þá væsi ekki
um það barn.
Olíkt mörgum öðrum leikur-
um segist Falk ekki vilja
einangra framtíðarheimili sitt.
Hann vilji búa við götu sem
fjöldi húsa standi við og sé það
sem hann kallar vinaleg og
mannmörg án þess þó auðvitað
að um of sé að honum þrengt.
Tennisvöllur verður að vera við
húsið. Falk hefur alla tíð verið
mikill golfleikari en nú hyggst
hann leggja stund á tennis þess
í stað.
Falk á tvær dætur með fyrri
konu sinni. Sjálfur segist hann
styðja hjónabönd mjög þvi öll
óhöpp og allur sjúkleiki, svo
ekki sé talað um hluti eins og
sjálfsmorð, rótleysi og slikt eigi
sér langoftast stað meðal
einhleypra karla. Hann telur
einlífið reyna meira á karl-
menn en konur.
DS-þýddi
Brúðhjónin tilvonandi sem nú
leita dauðaleit að drauma-
heimilinu.
I mm til okKar ne VIÐ MUHUM FIHHA lijseiga viiitar latj
Sölustjóri: Sigurður Benediktsson Haraldur Magnússon Viðsk.fr. _
Verðmetum íbúðina samdægurs, yður að kostnaðarlausu og án skuldbindinga. Opiö 9-12 og 13.30-18 Kvöldsími 42618
Y Það í' víst
/ ekkert oýtt að
þú komist el:ki
s|)o>-uiium!
Vertu ekki að
vera sniðugur.
Mér er alvara!
Ei þú fyodinn!
Hos, hœ. Þarna
kemur skjalda.
Ég œtla að skreppa
inn og hvíla mig <
, aðeins! J
Ég steingleymdi...
Albert fékk að nota mig fyrir
bilskúr í gter!!
almóttugur.
Það var
engin
furða.