Dagblaðið - 12.11.1977, Page 22
22
STJÖRNUBÍÓ
The Streetfighter
CharleH Bronson
JamesCoburn
Islenzkur texti.
Hörkuspennandi ný amerísk
kvikmynd í litum.
Sýnd kl. 10.
Bönnuð börnum ipnan 14 ára.
Pabbi, mamma, börn og
bíll
Bráðskemmtileg ný norsk litkvik-
mynd fyrir alla fjölskylduna.
Sýnd kl. 4, 6 og 8.
AUSTURBÆJARBÍÓ
I
Simi 11384
íslenz'kur texti.
4 Oscarsverðlaun.
Ein mesta og frægasta stórmynd
aldarinnar.
Barry Lyndon
Mjög íburðarmikil og vel leikin,
ný, ensk-amerísk stórmynd í lit-
um.
Aðalhlutverk: Ryan O’Neal og
Marisa Berenson.
Sýnd kl. 5 og 9.
HÆKKAÐ VERÐ.
SJmi 16444
Trommur dauðans
Spennandi ný ítölsk-bandarísk
Cinemascope litmynd
TY HARDIN
ROSSANO BRAZZI
íslenzkur texti.
Bönnuð innan 16 ára.
Sýnd kl.3,5, 7,9ogll.
GAMLA BÍÓ
8
Sími 11475
Ben Húr
Ein frægasta og stórfenglegasta
kvikmynd allra tíma sem hlaut 11
óskarsverðlaun.
Nú sýnd með íslenzkum texta.
Sýnd kl. 5 og 9.
Venjulegt verð, kr. 400.
Síðasta sinn.
Hrói höttur
Disney teiknimyndin
Barnasýning kl. 3.
1
HÁSKÓLABÍÓ
8
sýnir stórmyndina
Maðurinn með
jórngrímuna
(The man in the iron mask)
sem gerð er eftir samnefndri sögu
eftir Alexander Dumas.
Leikstjóri: Mike Newell.
Aðalhlutverk: Richard Chamber-
lain, Patrick McGoohan, Louis
Jourdan.
íslenzkur texti.
Bönnuð börnum.
Sýndkl. 5, 7 og 9.
Sunnudagur:
Maðurinn með
jarngrimuna
Sýnd kl. 5, 7 eg 9.
Emil í Kattholti
Sýnd kl. 3.
d
LAUGARÁSBÍÓ
8
Simi 32075
Mannaveiðar
Endursýnum í nokkra daga þessa
hörkuspennandi og vel gerðu
mynd.
Aðalleikarar: Clint Eastwood,
George Kennedy og Vonetta
McGee.
Leikstjóri: Clint Eastwood.
Sýnd kl. 5 og 9.
Bönnuð innan 12 ára.
Svarta Emanuelle
Sýnd kl. 7.15 og 11.15.
Bönnuð innan 16 ára.
Síðustu sýningar.
TÓNABÍÓ
8
Ást og dauði
(Love and death)
„Kæruleysislega fyndin. Tignar-
lega fyndin. Dásamlega hlægi-
leg.“ — Penelope Gilliatt, The
New Yorker.
„Allen upp á sitt bezta.“ — Paul
D. Zimmerman, Newsweek.
„Yndislega fyndin mynd.“ — Rex
Reed.
Leikstjóri: Woody Allen.
Aðalhlutverk: Woody
Diane Keaton.
Islenzkur texti.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Allen,
Alex og
sígaunastúlkan
JACK GENEVIEVE
tEMMON BUJOLD
ALEX &- .
THE GYPSY
Gamansöm, bandarísk litmynd
með úrvalsleikurum, frá 20th
Century Fox. Tónlist Henry
Mancini.
Sýnd kl. 5, 7og9.
íslenzkur texti.
1
BÆJARBÍÓ
8
Slmi 50184
GlœpahringUrinn
Yakuza
Æsispennandi bardagamynd frá
Warner Bros, sem gerist að mestu
í Japan, enda tekin þar. Aðalhlut-
verk: Rober Mitchum, Takakura
Ken og Brian Keith.
Islenzkur texti.
Sýnd kl. 5 og 9.
Bönnuð börnum.
phyrris
fyrir vlðkvæma húð.
PHYRIS snyrtivörur eru húð-
snyrtlng og hörundsfcgrun með
hjálp blóma og jurtaseyða.
PHYRIS fyrir allar húðgerðir.
PHyRIS fæst I helztu snyrti-
vöruverzlunum og apótckum.
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 1977.
Útvarp
Sjónvarp
Útvarp íkvöld kl. 20.55: Frá haustdögum
Evröpa að breytast
Fólk er orðið hrætt hvert við annað
8
Hinn bráðskemmtileg: rit-
höfundur Jónas Guðmúndsson
talar I kvöld I útvarpið um ferð
sem hann fór fyrir skömmu til
Vestur-Evrópu.
Haft var samband við Jónas og
hann spurður að því hvað væri
títt þarna að sunnan. „Evrópa er
að breytast rnikið," sagði hann.
„Fólk er hætt að vera hrætt við
flugvélar og slíkt og farið að
verða hrætt við hvert annað.
Hryðjuverkamennirnir vaða líka
uppi."
Jónas fer, eins og útvarpshlust-
endum er kunnugt af mörgum
erindum hans, oft til Evrópu. Að-
spurður um ástæður þess sagðist
hann stunda útflutning. Ekki þó á
fiski eða kjöti heldur málverkum
eftir sjálfan sig. En eins og hann
orðaði það sjá blöðin ekki
ástæðu til þess að skrifa um slíkan
útflutning þótt þau skrifi stórum
stöfum um útflutning nokkurra
kinda. Jónas er sjálfur blaða-
maður á Tímanum og veit því
manna bezt um þau mál.
Þess má geta að ný bók
tftir Jónas er væntanleg núna
um eða eftir helgina. Er það 14.
Jónas Guðmundsson málari, rithöfundur og blaðamaður við eitt mál-
verka sinna.
bók hans og nefnist hún
„Skriftir”. Ef að líkum lætur
játar Jónas þar slnar fjöl-
mörgu(?) syndir. Sjálfur sagði
hann að I bókinni væri ýmislegt
að finna sem hann hefur flutt
áður I útvarpi.
- DS
Sjónvarp ídag kl. 18.30: Kathy
HÁLFGERÐUR ÆRSLABELGUR
I dag hefst nýr framhalds-
myndaflokkur I sjónvarpinu fyrir
börn og unglinga. Er óhætt að
segja að þetta er það eina sem
sjónvarpið gerir fyrir börn núna
því Stundin okkar er einungis
með gamlar lummur og Bleiki
pardusinn virðist gufaður upp.
Börnin virðast þannig njóta lítill-
ar hylli um þessar mundir.
Flokkurinn, sem hefst f dag,
heitir eftir einni aðalpersónunni,
Kathy. Að sögn Jóhönnu Jóhanns-
dóttur þýðanda er flokkurinn
nokkuð góður. Hún sagði að sögu-
þráðurinn væri í stórum dráttum
sá í fyrsta þættinum af sex að
læknir einn, sem á fjögur börn og
hefur misst konu sína frá þeim, á
í nokkrum vandræðum með elztu
dóttur sfna, Kathy. Hún er nokk-
uð baldin og mikill fjörkálfur er
sést ekki alltaf fyrir. Hún veldur
bæði föður sfnum og frænku sinni
gamalli, sem til þeirra hefur
flutzt, áhyggjum með hegðun
sinni. Hún lendir f miklum ævin-
týrum, bæði í skólanum og heima
fyrir.
Flokkurinn er brezkur og
byggður á sögu eftir Susan
Collidge. Leikstjóri er Julia
Smith. Aðalhlutverkin eru f hönd-
um þeirra Claire Walder, Ed
Bishop og Júliu Lewis.
Þýðandi er, eins og áður sagði,
Jóhanna Jóhannsdóttir. Þættirnir
eru í litum.
- DS
Ifr
Kathy rólar sér þarna sæl og
ánægð og hugsar ekkert um að
faðir hennar og frænka hafa
áhyggjur af henni og hvetja hana
sífellt til betri hegðunar og til að
vera systkinum sínum gott for-
dæmi.
Sjónvarp íkvöld kl. 21.45:
Hljóðláti maðurinn
Slagsmálahundur-
inn barinn niður
Kvikmyndin Hljóðláti maður-
inn (The Quiet man) sem á dag-
skrá sjónvarpsins er í kvöld fær
fjórar stjörnur f kvikmyndahand-
bókinni okkar og er það hið mesta
sem gefið er og þýðir að myndin
sé afar góð. Seint verður þó of
varað við því að ekki er þar með
sagt að öllum þyki gaman að
henni. Siíkt mat hlýtur alltaf að
vera einstaklingsbundið.
Sagt er frá Sean Thornton sem
eftir að hafa orðið manni að bana
í hnefaleikakeppni kemur aftur
til heimabæjar síns í Irlandi. Þar
hlýtur hann þau örlög að vera
barinn niður af strák einum sem
mikill er f skapi.
Aðalleikari myndarinnar er
enginn annar en Jón væni eða
John Wayne. A móti honum leika
Maureen O’Hara, Barry Fitz-
gerald og Ward Bond. Allt er
þetta fólk, að minnsta kosti þeir
fyrst töldu, þekkt fyrir góðan
leik.
Leikstjóri er John Ford og
spillir það að lfkindum ekki fyrir
gæðunum;
Myndin um hljóðláta manninn
er rúmra tveggja stunda löng.
Hún hefst klukkan korter fyrir
tfu og lýkur tíu mfnútum fyrir
tólf. Þýðandi er Jón Thor Har-
aldsson. Myndin er svört/hvít.
Þarna virðast þau Maureen
O’Hara og John Wayne vera
komin anzi nálægt þröskuldi
hjónabands.
Hún er bandarfsk og gerð árið
1952. - DS
í
8
^ Sjónvarp
Laugardagur
1 (>.30 íþroitir. Umsj6narmaður Bjarni
FVIixson.
18.15 On Wo Go. Enskukennsla. 4. þáttur
endursýndur.
18.30 Katy (L). Nýr. breskur mynda-
flokkur I sex þáttum. byj’j’dur á sftjju
eftir Susan Collidge. Leikstjrtri Julia
Smith Art Ihlutverk CI ire W l-'er.
Ed Bishop og Julia Lewis. 1. þáttur.
Katy er fimmtán ára gömul. Hún býr í
smábæ I Bandaríkjunum ásamt þrem-
ur systkinum sínum og föður, en
mrtðir barnanna er látin fyrir nokkr-
um árum. Þýðandi Jóhanna Jóhanns-
dóttir.
18.55 Enska knattspyrnan. Hlé.
20.00 Fréttir og voftur.
20.25 Auglýsingar og dagskrn.
20.30 Undir sama þaki. Isleuskur fram-
haldsmyndaflokkur i léttum dúr. 3.
þáttur Milli hœfta. Þátturinn verður
endursýndur miðvikudaginn 16.
nrtvember.
20.55 Gaupan í skógum Sviþjóðar. Sænsk
fræðslumynd um gaupur. Kvikmynda-
tökumaðurinn Jan Lindblad fylgdist
með læðu og tveimur kettlingum
hennar einn viðburðaríkan ágústdag.
Þýðandi og þulur Björn Baldursson.
(Nordvision —Sænska sjrtnvarpið).
21.45 Hljóðléti mafturinn (The Quiet
Man). Bandarisk bíómynd frá árinu
1952 Leikstjrtri John FÓri!.’Að lÍTliit-
verk John Wayne og Maureen O'Hara.
Hnefaleikarinn Sean Thornton verður
manni að bana í keppni. Hann ákveð-•
ur því að hætta hnefaleikum og snúa
ftur til heim’hæj r síns Þýð n<,{
Jrtn Thor H r ldsson
23.50 Dagskrárlok.