Dagblaðið - 12.11.1977, Qupperneq 24
Lagning varanlegs slitlags á þjóðvegi:
Arðbær fjárfestíng og
möguleg á fáum árum
Hægt að leggja á 830 km án endurbyggingar
. . ^ lA., iToitra. oni m'i án sérstakrar endur- telur að veeakaflar. sem
Það verður að teljast nokkuð
undarlegt hve lagning vega
með varanlegu slitlagi hefur
dregizt úr hömlu hér á landi.
Viðurkennt er að lagning
varanlegs slitlags á vegi er
mjög arðbær fjárfesting og
komið hefur i ljðs að sllk fram-
kvæmd er viðráðanleg á fáum
árum og jafnvel væri hægt að
fjármagna slíkar framkvæmdir
með innlendu fé ef allar álögur
á bifreiðaeigendur væru
notaðar til slíkra framkvæmda.
Það kom m.a. fram í DB á mið-
vikudag að aðeins hækkun á
bensíngjaldi milli áranna 1977
og ’78 fer langt með það að
kosta lagningu varanlegs slit-
lags á veginn á milli Reykja-
víkur og Akureyrar, svo dæmi
sé nefnt.
Þá kom það m.a. fram að
hægt væri að leggja olíumöl frá
Reykjavík til Akureyrar eða frá
Þjórsá til Hafnar í Hornafirði
fyrir það fjármagn sem fer í
Borgarfjarðarbrúna.
I þingsályktunartillögu Ölafs
Silfur
hafsins
beintá
diskinn
Það hefur verið nóg framboð af
glænýrri og góðri síld að undan-
förnu í fiskbúðunum. Sæikerarn-
ir renna á lyktina og festa kaup á
þessum góða en ódýra fiski. En
nú líður senn að því að silfur
hafsins sjáist ekki í bökkunum i
fiskbúðunum. Þessi mynd var
tekin af f.isksala vestur i bæ að
afgreiða viðskiptavin sem leizt
vel á síldina.
— DB-mynd Sv. Þorm.
G. Einarssonar og Jóns Helga
sonar um lagningu bundins slit-
lags á þjóðvegi er stefnt að því
að ljúka lagningu slitlags á
helztu þjóðvegi landsins á
næstu 10—15 árum. Slitlagið
verði lagt á vegina eins og þeir
eru nú án sérstakrar endur-
byggingar þeirra þar sem það
er mögulegt. Heildarlengd
þeirra vega, sem falla undir til-
löguna, er um 2300 km. Þar af
hefur verið lagt varanlegt slit-
lag á um 170 km og Vegagerðin
telur að vegakaflar, sem litinn
undirbúning þurfi til þess að
lagt verði á bundið slitlag, séu
um 830 km. Það eru því u.þ.b.
1300 km vegar sem þurfa lag-
færingar við, að vísu misjafn-
lega mikla. Tillagan gerir ekki
ráð fyrir hliðstæðri undirbygg-
ingu og unnin hefur verið við
hina fjölförnu vegi út frá
Reykjavík.
Ending bifreiða, sem um vegi
með slitlagi fara, margfaldast
og það hefur í för með sér
beinan peningalegan sparnað
fyrir eigendur bifreiðanna og
þjóðfélagið í heild. Þá stór-
lækkar viðhaldskostnaður vega
og aukin umferð um þá hefur í
för með sér auknar tekjur i
vegasjóð. Þá er ótalin sú mikla
rykmengun sem fylgir malar-
vegum og spillir gróðri og
andrúmslofti en hyrfi með
lagningu slitlags.
Það er kominn tími til að
bregðast raunhæft við vaxandi
bifreiðaeign landsmanna.
JH
„RANNS0KN 0KKAR HEFUR BEINZT AÐ
SKIPAKAUPUM FRÁ ANKERLÖKKEN”
—segir gjaldey risefti rlitið—Ekkert bendir til misferlis
íslenzkra skipakaupenda
„Þetta er einn þeirra mörgu
viðskiptaaðila íslenzkra skipa-
kaupenda sem rannsókn okkar
hefur beinzt að,“ sagði Sig-
urður Jóhannesson, forstöðu-
maður gjaldeyriseftirlits Seðla-
bankans, í viðtali við DB. „At-
hugun okkar á viðskiptum við
þetta fyrirtæki hefur ekki leitt
neitt misferli í ljós,“ sagði Sig-
urður.
Norska skipasmíðafyrirtækið
Ankerlökken hefur nú verið
kært fyrir stórfelld lögbrot.
Fyrirtæki þetta hefur um langt
árabil smíðað fiskiskip fyrir ís-
lenzka aðila og gengið frá sölu
,yfir 40 skipa sem keypt hafa
verið til Islands.
Fréttamaður DB sneri sér til
gjaldeyriseftirlitsins, sem gaf
greiðlega ofangreind svör við
spurningu hans. Sigurður bætti
við: „Með þessu máli, sem upp
er komið í Noregi, verður fylgzt
mjög náið.“
Rannsókn gjaldeyriseftirlits
Seðlabankans hefur staðið í
nokkur ár. Margvíslegir erfið-
leikar eru á öflun upplýsinga
erlendis frá. Hafa þeir löngum
torveldað viðleitni gjaldeyris-
eftirlitsins til rannsókna. í
skjóli viðskipta- og banka-
leyndar hefur verið synjað um
úpplýsingar sem um er beðið.
Þegar erlendir viðskiptaaðil-
ar íslenzkra skipakaupenda
hafa orðið gjaldþrota, eða þeir
hafa af öðrum ástæðum orðið
að sæta opinberri rannsókn,
hafa hins vegar opnazt mögu-
leikar til að fá upplýsingar sem
annars voru ófáanlegar. Þannig
má telja víst að rannsókn á
Ankerlökken-fyrirtækinu auð-
veldi aðgang að réttum upp-
lýsingum um viðskipti þess við
íslenzka aðila. Ekkert hefur þó
komið fram sem vekur grun-
semdir um að þau séu ekki að
öllu leyti lögum samkvæmt.
Eigandi Ankerlökken, Ole
Aaserud, hefur nú verið
kærður fyrir tollsvik og gjald-
eyrissvik. Auk þess tekur kær-
an til þess að fyrirtækið hefur í
vissum tilvikum haft eitt bók-
hald fyrir raunveruleg við-
skipti og annað til þess að
svikja út úr ýmiss konar
sjóðum verulegar fjárhæðir.
Einkum eru þetta sjóðir sem
lána fé til skipasmíða eftir sér-
stökum reglum miðað við
kostnaðarverð sem Ankerlökk-
en hefur gefið falskar skýrslur
um.
Talsverður hluti þess fjár,
sem þannig var svikið út úr
lánasjóðum með fölskum
skýrslum, hefur verið fluttur á
bankareikninga í Sviss. Nemur
það fé milljónum norskra
króna.
Til þess að sannfæra lána-
sjóði um réttmæti hins falska
bókhalds hefur fyrirtækið t.d.
gert tvo samninga um sama
skipið við kaupendur. Annar
samningurinn.er réttur og eftir
honum farið I viðskiptum við
kaupanda. Hinn samningurinn
hefur verið notaður til lánsfjár-
öflunar og í honum miklu hærri
kostnaðartölur en hinar réttu
og raunverulegu.
Þegar fyrirtæki eins og
Ankerlökken i Noregi verður
uppvíst að stórfelldu fjármála-
misferli af ýmsu tagi vaknar
eðlilega sú spurning hvort við-
skiptavinir þess hafi ekki með
eirihverjum hætti flækzt inn í
vafasöm og óiögmæt viðskipti.
Sem fyrr segir verður fylgzt
með rannsókn þessa máls af
gjaldeyriseftirlitinu íslenzka
og væntanlega skattyfirvöldum
hér. . BS
frjálst, óháð dagblnð
LAUGARDAGUR 12. NÓV. 1977.
Strætö-
gjöldin
hækka
Einhverjum bregður trúlega 1
brún í dag þegar vagnstjórar SVR
krefja um hærra fargjald en verið
hefur. Einstök fargjöld kosta nú
70 krónur, fyrir börn 20 krónur.
Með því að kaupa farmiðaspjöld
má sannarlega spara fé. Spjöld
fyrir fullorðna, 17 miða spjöld,
kosta 1000 krónur, með 38 miðum
2000 krónur en öryrkjar fá helm-
ings afslátt. Farmiðaspjöld barna
kosta 500 krónur fyrir 34 miða.
Meðaltalshækkunin er 14,7%.
- JBP-
Utvegsbank-
inn opnar í
Firðinum
Utvegsbanki íslands er nú að
svipast um eftir hentugu húsnæði
fyrir útibú í Hafnarfirði. Ekki
hefur fengizt staðfest að bankan-
um standi til boða húsnæði á
Flatahraunssvæðinu fyrir 30
milljónir króna út í hönd. Hitt er
vist, að ennþá hefur ekki fengizt
formlegt leyfi Seðlabankans til
þess að opna þetta útibú.
Nýlega opnaði bankinn útibú á
Smiðjuveginum í Kópavogi og
verið er að undirbúa opnun úti-
bús á Seltjarnarnesi.
- BS
„Grafa undan
afkomu
fyrirtækisins”
— segir íályktun
stjömar Flugleiða
„Oheftar flugsamgöngur Is-
lands við umheiminn eru ekki
venjulegt hagsmunamál heldur
öryggismál. Því öryggi má ekki
eyða í eldi verkfalla og vinnu-
deilna," segir í ályktun sem sam-
þykkt var fyrir nokkrum dögum
af stjórn Flugleiða. Lýsir stjórnin
áhyggjum sínum af tíðum verk-
föllum sem raska eða stöðva
rekstur fyrirtækisins og grafa
undan afkomu þess, eins og segir
í ályktuninni sem örn O. Johnson,
stjórnarformaður Flugleiða,
hefur sent blaðinu.
I ályktuninni segir að lokum:
„Stjórn Flugleiða er ljóst að eng-
inn einn aðili hefur öll ráð í hendi
sér til að ráða bót á þeim vanda
sem hér er á drepið. Hún vill hins
vegar hvetja bæði stjórnvöld,
samtök vinnuveitenda og stétta-
samtök til þess að leita nýrra úr-
ræða í þessum efnum.“
- JBP-