Dagblaðið - 09.01.1978, Síða 2
14
DAGBLAÐIÐ. MANUDAGUR 9. JANÚAR 1978.
I iþróttir______________íþróttir íþróttir
JR meistari
ífimmta sinn!
— ísveit akeppni
Júdósambands
íslands
Júdófélag Reykjavíkur varð
sigurvegari í sveitakeppni Júdó-
sambands fsiands — sigraði í
fimmta sinn, raunar öii skiptin er
keppt hefur verið. Keppt var í sjö
manna sveitum — einn maður i
hverjum þyngdarflokki — og
baráttan í ár var ákaflega tvísýn
og sigur JR á bláþræði.
Júdófélag Reykjavíkur þurfti
meir fyrir sigrinum að hafa en oft
áður — og sannar í raun þá
framför er vissulega er í júdó hér
á landi. Baráttan stóð milli JR og
Armanns — sveitirnar skildu
jafnar í innbyrðis viðureign sinni
— 3-3, og einu sinni jafntefli. En
JR var dæmdur sigur vegna fleiri
stiga, 20 gegn 13.
Sveit Armanns átti og i miklum
erfiðleikum með B-sveit Júdó-
félagsins — jafntefli varð, 3!4
gegn 3‘A, en Ármann sigraði —
hlaut fleiri stig.
Hins vegar sigraði Ungmenna-
félag Kefiavíkur B-sveit
Ármanns og hafnaði í þriðja sæti
— á eftir JR og A-sveit Armanns.
Fimm stiga
forusta
Real Madrid
Real Madrid hefur nú fimm
stiga forustu á Spáni í 1. deild-
inni — sigraði Hercules 3-2 i Ali-
cante. A meðan náði Barcelona
aðeins jafntefli gegn Vallecona
1-1 í Kataióníu — og virðist ein-
sýnt að titillinn stefnir nú aftur
tii Madrid. Atletico Madrid,
meistararnir frá í vor, hafa ekki
átt velgengni að fagna — en í gær
sigraði Madridliðið Elche 3-1 i
Madrid.
Staða efstu liða á Spáni er nú:
Real Madrid 16 13 1 3 41-16 26
Barcelona 16 8 5 3 25-11 21
Saiamanca 16 8 3 5 22-18 19
Atletic Bilbaol6 7 4 5 27-19 18
Vallecano 16 7 4 5 28-22 18
Naumur sigur
meistara Fram
Tveir leikir fóru fram í 1. deild
islandsmótsins i handknattleik
kvenna um helgina — og þeim
þrlðja var frestað, viðureign Þórs
og Vals á Akúreyri. íslandsmeist-
arar Fram sigruðu Ármann 13-12
og KR sigraði Víking 15-8.
íþróttir
HALLUR
SlMONARSON ®
íþróttir
Valur lagði Njarðvík að
velli í Ijónagryfjunni
— í Njardvíkum, 93-91. Ljótarsenur eftir leikinn — IR og
Fram sigruðu og dæmt í máli KR og Þórs í 1. deild körfunnar
Ahorfendur risu úr sætum
sínum, aðeins 21 sek. til leiksloka
og staðan 93-91 Valsmönnum í
hag. UMFN var með knöttinn.
Skyldi heimamönnum takast
að jafna og forða sér frá sinum
fyrsta ósigri i deiidinni þetta árið
eða tækist Valsmönnum að reyta
af þeim tvö stig. „Afram Njarð-
vík,“ hrópuðu flestir, „Afram
Valur,“ glumdi líka í salnum,
þeirra tryggu áhorfendur iétu sig
ekki vanta. En UMFN tókst ekki
að finna smugu í þéttri Valsvörn-
inni og tíminn rann út, 2-1-0 sek.
og hljóðmerki gaf til kynna að
orrustunni væri lokið. Vaismenn
tóku sigrinum með ró, fögnuðu að
vísu, en menn UMFN voru sýni-
lega ekki ánægðir og beindu
óánægju sinni að dómurunum.
Strax á fyrstu mínútunum kom
í ljós að UMFN liðið var ekki
„dús“ við körfuna. Skotin
geiguðu hvað eftir annað en aftur
á móti hittu Valsmenn svo til
100%, flest skot af löngum
færum. Heimamenn léku svæðis-
vörn fyrri hálfleikinn. Engu var
likara en Valsmenn reiknuðu með
þeirri aðferð og fengu því að
skjóta óáreittir „fyrir utan“ og
kom það sér vel fyrir Rick Hocke-
nos, Torfa Magnússon og Ríkharð
Hrafnkelsson og ekki sízt Þóri
Magnússon, sem sendu knöttinn
af einskærri lagni í UMFN-
körfuna meðan UMFN-vörnin
horfði á þá.
Þrátt fyrir breytta vörn, maður
á mann, tókst UMFN aldrei að ná
yfirhöndinni, aðeins að jafna, 91-
91. Valsmenn undir stjórn Hocke-
nos léku yfirvegað og komust um
tíma átta stig yfir, á meðan leikur
UMFN var í molum. Kári
Marísson reyndi að ná jafnvægi í
sína menn en honum tókst ekki að
hrista slenið af liðinu, þrátt fyrir
mjög góðan leik.
Eins og áður er greint var
Hockenos, þjálfari Valsmanna,
potturinn og pannan í leik liðsins,
en Torfi Magnússon átti einnig
afbragðsleik — skoraði flest stig
þeirra úr hornunum. Ríkharður
Hrafnkelsson skoraði 15 og átti
mjög góðan leik, sem og Haf-
steinn Hafsteinsson.
Þórir Magnússon skoraði 9 stig,
var fremur stutt inn á, sagður
nýkominn erlendis frá, en eigi að
siður skapaði hann ávallt mikla
hættu. Kristján Ágústsson
skoraði einnig 9 stig. Valsliðið
orkaði mjög heilsteypt, allir mjög
virkir og hittnir. Með þessum
sigri eygja þeir von í meistara-
titilinn, sem þeir hefðu getað af-
skrifað annars.
Auk Kára, sem skoraði 26 stig,
átti Gunnar Þorvarðarson og
Jónas Jóhannesson góðan leik, sá
fyrri drjúgur við að skora, eða 19
stig, sá seinni harður í vörninni
og fráköstunum — með 9 stig
skoruð. Brynjar Sigmundsson
byrjaði vel en fékk fljótt villur og
var því úr leik um miðjan seinni
hálfleik. Þorsteinn' Bjarnason
skoraði 15 stig en hann var
óvenju daufur vegna veikinda.
Dómarar voru þeir Jón Otti og
Guðbrandur Sigurðsson. Mikil
var óánægja heimamanna með úr-
Dregið í
riðlana á
laugardag
ÍHM
Hollendingum hefur nú verið
lofað að ekki verði tekin
ákvörðun um niðurröðun sæta
þegar dregið verður í riðla í
heimsmeistarakeppninni í knatt-
spyrnu í vikunni. Mál þetta hefur
verið ákaflega umdeiit — en
Argentínumenn ætluðu sér að
setja ítali í eitt af fjórum efstu
sætunum — við hlið Argentínu,
V-Þýzkalands og Brasilíumanna.
Hoilendingar hrepptu silfur-
verðlaunin í heimsmeistara-
keppninni í V-Þýzkalandi og telja
sig eiga rétt á að verða raðað við
hlið Argentínu, Brasiiíu og V-
Þýzkalands.
A laugardag verður dregið
endanlega — en á miðvikudag
verður ákveðið hvaða þjóð skuli
sett við hlið þjóðanna þriggja.
skurði þeirra, sérstaklega
Hilmars Hafsteinssonar þjálfara
UMFN. Hljóp skapið með hann I
gönur eftir leikinn, í búningsher-
bergjunum. Lét hann þung orð
falla í garð dómara og fékk að
minnsta kosti tvisvar sinnum að
llta rauða spjaldið. Einhvern veg-
inn finnst manni nú samt, að
þjálfari eigi fremur að leita að
orsökum fyrir tapi liðs síns í leik
þess og leikmönnum en hjá
dómurunum, — þótt ekki væri
nema til þess að forðast rauðu
spjöldin.
- emm
íslandsmeistarar IR sigruðu
nýliða Þórs 102-81 eftir að hafa
haft yfir 58-49 í leikhléi.
iR-ingar sigu framúr
í síðari hálfleik og unnu öruggan
sigur. Agnar Friðriksson sýndi
gamla snilldartakta, sinn bezta
leik í vetur og skoraði 24 stig.
Erlendur Markússon skoraði 27
stig — og Kristinn Jörundsson 16.
Mark Christansen var stiga-
hæstur Akureyringa með 30 stig,
Jón Indriðason skoraði 18.
Þá fór einnig fram í Hagaskóla
á laugardag viðureign Fram og
Ármanns — og Fram hafði þar
betur eins og raunar var búizt við
fyrirfram. Fram sigraði 91-81 —
og staða Ármanns er nú orðin
verulega slæm og rétt eins og hjá
Þór virðist fall í 2. deild blasa við.
Atli Arason skoraði mest fyrir
Ármann, 27 stig, en Símon Ölafs-
son var stigahæstur leikmanna
Fram — með 24 stig. Þá var dæmt
í kæru KR á Akureyri þegar
leikur Þórs og KR var flautaður á
og af — þar sem KR-ingar komust
ekki norður vegna veðurs. Niður-
staða dómsins varð, að liðin verða
að leika að nýju — og KR hefur
því eins og Njarðvík og ÍS
tapað aðeins tveimur stigum.
Staðan í 1. deild er því:
Njarðvík 7 6 1 651-545 12
Valur 7 5 2 615-566 10
ts 6 5 1 515-496 10
KR 5 4 1 449-333 8
ÍR 7 3 4 576-635 6
Fram 7 2 5 558-614 4
Þór 6 1 5 447-503 2
Ármann 7 0 7 546-683 0
Þróttur sigraði HK
í Ásgarði í 2. deild!
— ogfjögur liö hafa nú hlotið 9 stig í baráttunni um 1. sæti
Þróttur vann dýrmætan sigur
gegn efsta liðinu í 2. deild, HK úr
Kópavogi, i íþróttahúsinu í Garða-
bæ í gærkvöld, 26-22. Þar með
þokaði Þróttur sér að hlið HK og
Fylkis, öll liðin hafa hlotið 9 stig
— en Fylkir hefur leikið leik
minna.
Norður á Akureyri vann KA
stóran sigur á Leikni — og náði að
sýna sinn bezta leik í vetur. Yfir-
burðir KA voru algjörir — staðan
i leikhléi var 16-6 og lokatölur
30-14. Jón Hauksson skoraði 8
mörk fyrir KA og Þorleifur
Ananíasson 7 — hjá Leikni
skoruðu Hafliði Kristinsson og
nafni hans Pétursson mest, 4.
mörk hvor.
Stjarnan þokaði sér i baráttu-
sæti í 2. deildinni með öruggum
sigri gegn Gróttu f Garðabæ í gær-
kvöld, 28-18. Baráttan í 2. deild er
nú ákaflega hörð — í raun berjast
sex lið um efstu sætin í 2. deild.
Þá hefur verið ákveðið að KA og
Þór teiki aftur jafnteflisleik sinn
— 14-14.
Staðan í 2. deild er nú:
Fylkir 7 4 1 2 135-128 9
KA 7 4 1 2 160-140 9
HK 8 4 1 3 187-161 9 I
Þróttur 8 4 1 3 162-160 9
Stjarnan 7 4 0 3 160-142 8 |
Pearson
til QPR?
— Man. Utd. náöi
íJoeJordan
Manch. Utd. keypti á föstudag
Joe Jordan, miðherja Leeds og
Skotlands, fyrir 350 þúsund sterl-
ingspund. Jordan getur ekki
byrjað strax að ieika með sínu
nýja félagi, þar sem hann er í
leikbanni í þrjá leiki. Á laugar-
dag fylgdist framkvæmdastjóri
QPR, Frank Sibley; með miðherja
Man. Utd. Stuart Pearson, enska
iandsliðsmiðherjanum, en vera
kann að hann fari frá Manch.
Utd. vegna komu Joe Jordan
þangað.
Þór 6 3 0 3 122-133 6
Leiknir 8 3 0 5 175-190 6
Grótta 7 1 0 6 132-169 2
Það var hart barizt í Njarðvík oj
þjáifara sins. Rick Hockenos. 93-91
Ungverja
Norömer
— 23-19 ívináttul
Ungverjar halda áfram undir-
búningi sínum undir heims-
meistarakeppnina í Danmörku af
krafti — í gær léku Ungverjar við
Norðmenn í Skien í Noregi og
sigruðu Ungverjar nokkuð örugg-
iega, 23-19. Staðan í ieikhiéi var
13-11 Ungverjum í vil.
Nú eru aðeins tæpar þrjár
vikur þar til HM í Danmörku
hefst — og hafa Ungverjar leikið
fjölda landsleikja að undanförnu.
Breiöabl
tvívegis
Í3. deild íslandsmól
Efsta liðið í 3. deild tslands-
mótsins í handknattleik, Breiða-
blik í Kópavogi, gerði litla
frægðarreisu til Vestmannaeyja
um helgina. Tapaði báðum leikj-
um sínum þar fyrir Vestmanna-
eyjaliðunum í 3. deild.
A laugardag sigraði Þór Breiða-
blik með 20-17 eftir að staðan
hafði verið 9-8 fyrir Þór í hálf-
leik. Breiðabliksmenn réðu
ekkert við Hannes Leifsson (áður
Fram) í leiknum. 11 sinnum
sendi Hannes knöttinn i mark
þeirra. Þá skoraði Herbert Þor-
leifsson fimm mörk fyrir Þór.
í gær sigraði Týr svo Breiða-
blik með 17-16 eftir að staðan var
8-6 fyrir Breiðablik í hálfleik.
Leikurinn var mjög tvísýnn en
Egill, markvörður Týs, var
maðurinn að baki sigurs Týrsara
Knattspyrnumaðurinn kunni,
Siguriás Þorleifsson, skoraði
langflest mörk í leiknum — eða
níu fyrir Tý. RS.
A Akranesi áttust við Skaga-
menn og Afturelding úr Mosfells-
sveit — Afturelding sigraði 24-17.
Staðan í 3. deild er því:
Breiðablik 8 5 1 2 202-168 11
Týr 6 4 1 1 127-112 9