Dagblaðið - 31.03.1978, Blaðsíða 17
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 31. MARZ 1978.
Myndlist
HrafnhildurSchram
mynstri pjötluverksins eöa þá aö þau
vinna á móti því og mynda sjálfstætt
mynstur og keppa við sjálft
pjötlumynstrið.
Linda er nýtin í listinni, um þaö bera
margvíslegir og sérstæðir efnisbútar
vitni. Aðferöin er að tengja saman
ólíkasfnisbúta mun vera upprunnin í
löndunum við botn Miðjarðarhafsins
og þaðan barst hún vestur um álfu og
yfir til Bandarikjanna þar sem hún
hefur þróast sem sérstæð alþýðulist, ef
til vill vegna skorts á efni og dýrra
innfluttra efna. í sumum ábreiðunum
sameinar Linda bandariska listhand-
verksarfleifð arabisku flatarskrauti en
Linda Schapper og Magnús Tómasson sýna að Kjarvalsstöðum
Magnús Tómasson: Úrfórum fakirsinsll
Hrafnhildur Schram
STUNGNAR
PJÖTLUÁBREIÐUR
OG „SMÁMUNIR”
augljóst er að hún hefur þegið mikið
frá skreytilist Araba í dvöl sinni i
Líbanon. 1 öðrum ábreiðum hefur
Linda tekið upp sigild bandarísk
mynstur sem notuð hafa verið i slíku
listhandverki af kynslóð eftir kyn-
slóð, þar má nefna ábreiðurnar Tulip
og Sun Burst. önnur nöfn t.d. Log
Cabin og Wild Goose Chase, gefa til
kynna að þau eru sprottin upp úr
bandarísku bændaþjóðfélagi þar sem
þetta sérstæða listhandverk hefur
blómstrað þrátt fyrir samkeppni
vélsaumaðra eftirlíkinga og þjónar þar
enn sinni félagslegu þörf meðal
kvenna sem af nák'. emni og hugviti
vinna sameiginlega að einni
ábreiðunni á eftir annarri.
Myndheimur
Magnúsar
í glerskápum, sem aðskilja kaffi-
stofu frá göngum hússins sýnir
Magnús Tómasson myndlistarmaður
„smámuni” gerða á árunum 1967-
1972. Þetta eru munir sem ekki gefa
sig fram sjálfir heldur ber gestinum að
leita þá uppi með opnum huga og gefa
sér góðan tima til að taka á móti þeim
nýju hugmyndatengslum, sem hann á
í vændum. Ekki er ósennilegt að
„smámunir” Magnúsar kunni að
vekja upp leyndar kenndir, jafnvel
smáhroll og viðbjóð, en láti gesturinn
það ekki á sig fá býðst honum að njóta
með Magnúsi hins absúrda og
neyðarlega húmors sem mörg þessara
verka búa yfir. Ekki er þar með sagt að
lita eigi á þessi verk sem brandara því
þau eru í eðli sínu háalvarleg og búa
yfir ádeilu sem Magnús kemur til skila
án þess að predika um of eða vera
leiðinlegur. Margt alvarlegt er oft sagt
I hálfkæringi. Þumlavél, brotin
gleraugu, þar sem skinnhnoðrar, sem
minna óþægilega mikið á ónefnt lítið
nagdýr, vaxa upp úr brotunum,
niðursuðudósir sem bjóða upp á
örþunna málmþreifara eða brúðufót
úr plasti eru framandi lystaukar á
sóffaborðum borgaranna og eflaust
ekki ætlaðir sem slíkir. Þeir sem ekki
treysta sér til að ganga inn í mynd-
heim Magnúsar og kynnast
töfrabrögðum hans geta þó alltaf
dáðst að aðdáunarverðu handbragði
og verklagni.
Linda Schápper
Nýtnií
listinni
Það er mikil litadýrð að Kjarvals-
stöðum þessa dagana. Stungnar
pjötluábreiður Lindu Schápper taka á
móti gestjnum í anddyri hússins og
leiða hann eftir göngunum og þegar
þeirri skoðunarferð lýkur er hann vis
til að ganga út I vorleysið ögn hressari
en áður, eftir að hafa sótt sér andlega
næringu i þá litagleði og ferskleika
sem listhandverk Lindu býr yfir. Linda
er bandarísk heimskona, búsett í París
eftir langdvöl I Líbanon áður en hin
blóðuga borgarastyrjöld braust út þar I
landi. Það var í Líbanon sem Linda
byrjaði fyrir þremur árum að sauma
ábreiður sínar og virðist henni ekki
hafa fallið verk úr hendi síðan þvi eftir
hana liggja nú u.þ.b. 70 ábreiður og
sýnir hún að Kjarvalsstöðum rúmlega
40. Á enskri tungu nefnast ábreiður
þessar „patchwork quilts” sem þýtt
hefur verið sem „stoppuð teppi” en
mér finnst stungnar pjötluábreiður ná
þessu hugtaki betur þar sem mikilvægi
þessa listhandverks liggur í því hvernig
pjötlurnar eru skeyttar saman og
mynstrið byggt upp og siðast en ekki
síst hvernig ábreiðurnar eru stungnar.
Mikil vinna liggur að baki hverrar
ábreiðu. Eftir að efnisbútarnir hafa
verið saumaðir saman og mynstur-
gerðinni er lokið er klæðið fóðrað og
er þá að lögun sem sængurver. Síðan
er stoppað með þunnu ítróðri (áöur
með baðmull en nú aðallega með
gerviefni). Síðan er ábreiðan stungin
þannig að þessi þrjú lög eru saumuð
saman. Stundum fylgja stungusporin
Vegna mikilla anna
getum við bætt við
okkur nokkrum bílum.
Sími41846 eða 42222.
Sendibílastöð Kópavogs
Hjallafiskur
Mcrkið scm vann harðfisknum nafn
F«»Jt hjd: KJÖTBÚÐIN IIORG
Laugavegi.
Hjallur hf. - Söiusími 23472
Bíll í sérflokki til sölu — Chevrolet pick-
up, fjórhjóladrif, 4 gíra gólfskiptur, 6 cyl.,
allur nýupptekinn.
Uppl. í síma 85040 og 75215 á kvöldin.
Lagerhúsnæði
Nálægt Hlemmtorgi, 150 ferm til leigu frá 1.
april til 30. september.
Uppl. gefur
Pétur Pétursson, heildverzlun
Sími 25101.
Höfum fjársterkan kaupanda að
tveim til þrem 15—20 tonna bát-
um, ekki eldri en 10—15 ára.
Bátarnir þurfa að vera útbúnir til
togveiða. Góðar tryggingar í boði
fyrir rétta báta.
EIGNAVAL SF
Suðurlandsbraut 10.
Sfmi 85650.
Heimasimi sölumanns 13542.