Dagblaðið - 31.03.1978, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 31. MARZ 1978.
Reykjanes, hið erfiða kjördæmi—Fjðrirflokkartilbúnirmeð framboðin:
Heittí kolum hjá krötum
— annars staðar siglt í hægum byr
SVARTSENGI — heitasti punktur Reykjaneskjördæmis — og vegna fram-
kvæmdanna þar hefur oft hitnað i kolunum syðra. DB-mynd: Hörður.
Fjórir stjórnmálaflokkanna hafa nú
gengið frá framboðslistum sínum
vegna alþingiskosninganna í vor í
Reykjaneskjördæmi. Enn eiga Sam-
takamenn eftir að ganga frá lista sin
um og eins er ekki vitað, hvort upp
kemur óháð framboð Sigurður Helga-
sonar i Kópavogi og félaga, en það
hefur verið í deiglunni um tíma.
Reykjaneskjördæmi er það sem
stjórnmálamenn kalla „erfitt kjör-
dæmi”. Það er að sönnu, enda ægir
þar saman mjög ólikum sjónarmiðum
kjósenda sem vonlegt er, þar eð sjónar-
hólarnir eru nánast jafnmargir at-
kvæðunum. 1 kjördæminu er að finna
allt frá nýtízkulegum sjávarútvegi
með fullkomnum togurum og vinnslu-
stöðvum til trillukarla og minni fisk-
verkunarhúsa, sem sífellt hafa verið á
hausnum. Þar er fullkominn landbún-
aður og þúfurembingur smáhokrara
með nokkrar rollur og þar er fullkom-
inn iðnaður og bilskúrsverkstæði.
Svipaða sögu er að segja um verzlun-
ina, þar er allt milli himins og jarðar
allt frá fullkomnum sérverzlunum og
stórmörkuðum til „kaupmannsins á
horninu” og sjoppueigandans. Eitt
málið er einnig þýðingarmikið, en það
er hinn mikli fjöldi manna sem sækir
atvinnu sína til annarra byggðarlaga,
sérstaklega frá Kópavogi og Hafnar-
firði og svo hið eilífa þrætuepli, her-
stöðin í Keflavík, sem mjög er umdeild
um land allt, en sennilega hvergi eins
mikið og I nálægustu byggðarlögum,
sem í raun eiga mest undir henni með
atvinnu og þjónustu hvers konar.
öll þessi sjónarmið verða þingmenn
kjördæmisins að reyna að sameina og
er mál manna í kjördæminu, að það
•hafi þeim tekizt misjafnlega. Er
skemmst að minnast „vanda frystiiðn-
aðarins á Suðurnesjum”, sem frægur
er orðinn og enn hefur ekki verið
leystur svo merkjanlegt sé.
Alþýðuflokkur
Það er mál manna, að Alþýðuflokk-
urinn hafi grætt mikið á því forskoti
sem hann skapaði sér með því að hefja
kosningabaráttuna snemma í haust og
„hella sér út í slaginn” eins og það er
orðað. Þeir létu í veðri vaka, að það
væri gert til þess að „vera við öllu
búnir ef til kosninga skyldi koma fyrr
en ætlað er”, en enginn vafi er á því,
að prófkjör þeirra sérstaklega í
Reykjavík og á Reykjanesi vöktu
mikla athygli og umtal og Alþýðu-
flokkurinn komst á forsíður allra dag-
blaða.
Dagana 8. og 9. október efndu al-
þýðuflokksmenn til prófkjörs i Reykja-
neskjördæmi. Varð strax Ijóst er fram-
boðum var skilað að gera átti atlögu
að Jóni Ármanni Héðinssyni þing-
manni flokksins, því að fimm aðrir
frambjóðendur gáfu kost á sér i fyrsta
sætið. Lét Jón Ármann svo um mælt í
blaðaviðtali að „ég fæ fimm í fangið”
og einnig boðaði hann það sem koma
skyldi, því í öðru viðtali sagði hann:
„Það á að reyna að bola okkur Eggert
út...” Samt var hann óbanginn þvi i
sama viðtali lýsti hann því yfir, að
hann væri öllu vanur, enda sennilega
eini þingmaðurinn sem kjörinn hefði
verið á þing eftir tvö prófkjör.
í prófkjörinu var hart barizt og
greindi DB frá því, að menn hefðu
heilsazt í styttingi á tröppum meðmæl-
enda sinna.
Helztu mótframbjóðendur Jóns
voru þeir Kjartan Jóhannsson, bæjar-
fulltrúi i Hafnarfirði, Karl Steinar
Guðnason, bæjarfulltrúi og verkalýðs-
frömuður í Keflavík, og Ólafur Björns-
son, útgerðarmaður í Keflavík.
Þingmaðurinn féll
Er upp var staðið 10. október blasti
staðreyndin við. Jón Ármann Héðins-
son, þingmaður Alþýðuflokksins i
Reykjaneskjördæmi, hafði fallið í
prófkjörinu og misst „öruggt sæti”.
Bæði Kjartan og Karl Steinar hlutu
fleiri atkvæði en hann og hafa þetta án
efa verið vonbrigði fyrir Jón.
Kjartan varð sigurvegari prófkjörs-
ins, hlaut 1008 atkvæði en Karl 986 í
fyrsta sæti. Hann hlaut hins vegar
1592 atkvæði samanlagt í fyrsta og
annað og varð þvi annar í röðinni.
Jón hlaut 681 atkvæði í fyrsta sæti
og hafði ekki boðið sig fram i annað.
Gunntaugur Stefánsson guðfræðinemi
úr Hafnarfirði fylgdi fast á eftir þeim
Kjartani og Karli með 1093 atkvæði i
annað sætið.
Fram yfir áramót voru menn að
velta því fyrir sér, hvort Jón Ármann
myndi skipa þriðja sætið á listanum og
í janúar segir Jón í viðtali, að það
„hafa ýmsir talað við mig, en ég veit
ekki hvað verður. Þetta er allt I deigl-
unni.”
Listinn var svo birtur í endanlegri
gerð i febrúar og þá var Jón ekki á
honum:
1. Kjartan Jóhannsson, verkfr.
Hafnarfirði.
2. Kari Steinar Guðnason, form.
verkl.- og sjóm.fél. Keflavíkur.
3: Gunnlaugur Stefánsson, guð-
fræðinemi, Hafn.
4. Ólafur Björnsson, útgm., Kefla-
vík.
5. Guðrún H. Jónsdóttir, banka-
starfsm., Kóp.
6. örn Eiðsson, fulltrúi, Garðabæ.
7. Jórunn Guðmundsdóttir, hús-
móðir, Sandgerði.
8. Reynir Hugason, verkfræð., Mos-
fellssveit.
9. Jón Hólmgeirsson, skrifststj.,
Grindavík.
10. Emil Jónsson, fyrrv. ráðherra,
Hafnarfirði.
Jón Ármann var landskjörinn þing-
maður fyrir Alþýðuflokkinn i Reykja-
neskjördæmi og er því á brattann að
sækja fyrir flokkinn. Hins vegar er
hugur I alþýðuflokksmönnum og
mátti merkja greinilega fylgisaukn-
ingu flokksins, ef marka má þátttök-
una í þessu sögulega prófkjöri.
Sjálfstæðisflokkur
Sjálfstæðisflokkurinn hlaut þrjá
menn kjörna í Reykjaneskjördæmi i
siðustu kosningum, þá Matthías Á.
Mathiesen fjármálaráðherra og þing-
mennina Odd Ólafsson úr Mosfells-
sveit og Ólaf G. Einarsson úr Garða-
bæ. Þá var Axel Jónsson úr Kópavogi
landskjörinn.
1 fremur litlausu prófkjöri 5. og 6.
febrúar hélzt þessi efsta röð óbreytt,
en þó með þeirri undantekningu, að
Axel Jónsson gaf ekki kost á sér í próf-
kjörinu.
Ergilegir út af stöðu fiskiðnaðarins
á Suðurnesjum og „fulltrúaleysi”
ákváðu Suðurnesjamenn innan flokks-
ins að sameinast um einn mann á list-
anum og efndu til forprófkjörs í nóv-
ember. Þar varð efstur Eiríkur Alex-
andersson bæjarstjóri í Grindavík og
er talningu atkvæða lauk eftir próf-
kjörið hafði hann hafnað i fjórða sæti.
Endanlega lítur listinn svona út:
1. Matthías Á. Mathiesen, ráðherra,
Hafnarfirði.
2. Oddur Ólafsson, alþm., Mosfells-
sveit.
3. Ólafur G. Einarsson, alþm.,
Garðabæ.
4. Eiríkur ALxandersson, bæjar-
stjóri, Grindavik.
5. Salome Þorkelsdóttir, frú, Mos-
fellssveit.
6. Sigurgeir Sigurðsson, bæjarstjóri,
Seltj.nesi.
7. Ásthildur Pétursdóttir, frú, Kópa-
vogi.
8. Hannes Gissurarson, nemi, Kópa-
vogi.
9. Ellert Eiríksson, verkstj. Keflavík.
10. Axel Jónsson, alþm., Kópavogi.
Framsóknarflokkur
Framsóknarmenn hafa um langan
tíma aðeins haft einn þingmann í kjör-
dæminu, Jón Skaftason úr Kópavogi.
Hefur hann 'ekki þótt leiðitamur og
verið fylginn sér og farið oftlega eigin
leiðir, enda eins og áður sagði erfitt að
samræma þessi misjöfnu sjónarmið
innan kjördæmisins því sem er að
gerast í landsmálum yfirleitt.
Ekki töldu framsóknarmenn í
Reykjaneskjördæmi viturlegt að
vera að efna til prófkjörs um skipan á
lista sinn, enda „fer enginn á móti
Jóni,” eins og einn þeirra komst að
orði.
Uppstillingarnefnd fulltrúaráðsins
setti þvi framboðslistann saman og
lítur hann svona út:
1. Jón Skaftason, alþm., Kópavogi.
2. Gunnar Sveinsson, kaupfélstj.,
Keflavík.
3. Ragnhildur Sveinbjörnsdóttir, rit-
ari, Hafn.
4. Haukur Nielsson, bóndi, Helga-
felli.
5. Sigurður J. Sigurðsson, verkstj.,
Keflavik.
6. Dóra Sigurðardóttir, hjúkrunar-
fr„ Seltj.
7. Halldór Ingvarsson, kennari,
Grindavík.
8. Gylfi Gunnlaugsson, gjaldk.,
Sandgerði.
9. Valtýr Guðjónsson, fyrrv. útibús-
stj., Kefl.
10. Hrafnkell Helgason, yfirlæknir,
Vifilsstöðum.
Alþýðubandalagið
„Virkt lýðræði án slagsmála” hét
aðferð alþýðubandalagsmanna við að
velja menn á lista sinn til alþingiskosn-
inganna, eða forval. Þótti það við
fyrstu sýn nokkuð flókið og skrif-
finnskulegt.
Aðferðin er i stuttu máli sú, að allir
félagar í hinum 6 félögum i kjördæm-
inu tilnefndu skriflega tíu menn til
framboðs eða jafnmarga og á listanum
eru. Síðan var þessum tilnefndu raðað
upp á lista eftir stafrófsröð og sá listi
siðan sendur félagsmönnum.
Tilnefndu þeir siðan tíu menn af þeim
lista og i þeirri röð, sem þeir vildu hafa
þá á listanum. Kjördæmisráð tók svo
endanlega ákvörðun um uppröðunina
á listanum.
Þetta er hljóðlát aðferð við að velja
fólk á framboðslista og fór ekki mikið
fyrir forvali þessu í blöðum. En hér er
listinn i endanlegri mynd en við síð-
ustu þingkosningar hlaut Alþýðu-
.bandalagið einn mann kjörinn, Gils
Guðmundsson, Revkjavík, en Geir
Gunnarsson, Hafnarfirði, var lands-
kjörinn.
1. Gils Guðmundsson, alþm.,
Reykjavík.
2. Geir Gunnarsson, alþm., Hafnar-
firði.
3. Karl Sigurbergsson, skipstj.,
Keflavik.
4. Bergljót Kristjánsdóttir, kennari,
Hafnarf.
5. Svandis Skúladóttir, fóstra, Kópa-
vogi.
6. Björn Ólafsson, verkfr., Kópavogi.
7. Albína Thordarson, arkitekt,
Garðabæ.
8. Kjartan Kristófersson, sjóm.,
Grindavík.
9. Njörður P. Njarðvik. lektor, Sel-
tjarnarnesi.
10. Magnús Lárusson, smiður, Kjós.
Eins og áður sagði hafa Samtök
frjálslyndra og vinstri manna enn ekki
ákveðið framboð i kjördæminu né
heldur er víst um óháð framboð.
• HP
Kratana vantaði
549atkvæði
Hvernig fer i Reykjaneskjördæmi
nú? Um það verður litið sagt, en siðast
komst þriðji maður á lista Sjálfstæðis-
flokksins inn sem fimmti kjörinn þing-
maður kjördæmisins. Alþýðuflokkinn
vantaði þá 549 atkvæði til að koma að
manni og hindra kjör þriðja manns
Sjálfstæðisflokksins.
Fimm þingmennirnir komu inn í
þessari röð: Fyrstur Matthías Á.
Mathiesen (S) á 9751 atkvæði, annar
Oddur Ólafsson (S) á helmingi at-
kvæðamagns Sjálfstæðisflokksins um
4875 atvkæðum. Þriðji varð Gils
Guðmundsson (AB) á 3737
atkv. Fjórði Jón Skaftason (F) á
3682 atkvæðum. Fimmti þing-
maðurinn varð Ólafur G. Einarsson
(S). Á hann kemur þriðjungur af
atkvæðamagni Sjálfstæðisflokksins,.
um 3750 atkvæði. Alþýðuflokkurinn
fékk 2702 atkvæði og engan .jörinn og
Samtökin 764 aikvæði og cn an.
Sauöárkrókun
Prófkjör hjá sjálf-
stæðismönnum
Bogi efstur
Bogi G. Hallgrímsson varð
efstur á lista framsóknarmanna til
bæjarstjórnarkosninga í Grindavík
i vor i prófkjöri sem þar fór fram
um páskana. Hlaut hann 87.20%
atkvæða en næstur varð Halldór
Ingvarsson með 58.2%.
1 þriðja sæti varð Hallgrímur
Bogason, i fjórða sæti Svavar
Svavarsson og í fimmta sæti Will-
ard Ólason.
1 síðustu bæjarstjórnarkosning-
um buðu framsóknarmenn i
Grindavík fram lista með alþýðu-
bandalagsmönnum og hlutu þeir
tvo menn kjörna. - HP
Sjálfstæðismenn á Sauðárkróki efna
til prófkjörs um skipan sæta á lista fyrir
bæjarstjórnarkosningarnar núna i vor
um helgina 1. og 2. april.
Þessir hafa gefið kost á sér:
Árni Guðmundsson framkvæmda-
stjóri, Pálmi Jónsson verktaki, Guð-
mundur Tómasson hótelstjóri, Þorbjöm
Árnason lögfræðingur, Birna Guðjóns-
dóttir húsfrú, Sigurður Hansen lögreglu-
þjónn, Björn Guðnason byggingameist-
ari, Friðrik J. Friðriksson læknir, Fjóla
Sveinsdóttir húsfrú og Bjarni Haralds-
son kaupmaður.
Rétt til þátttöku í prófkjörinu eiga allir
stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins 18
ára og eldri og verður kosið í Sæborg.
Hefst kjörfundur klukkan tíu báða
dagana og stendur til kl. 17 á laugardag
og 19 á sunnudag.
- HP
Grindavík:
Tíu manns í prófkjöri
Alþýðuflokksins núna um
helgina
Frambjóðendur i prófkjöri Alþýðu-
flokksins i Grindavík til bæjarstjórnar-
kosninganna i vor, sem fram fer
sunnudaginn 2. apríl nk„ eru tíu tals-
ins. Þeir eru: Guðbrandur Eiríksson,
Jón Gröndal, Jón Hólmgeirsson, Jón
Leósson, Lúðvík Jóelsson, Pétur Vil-
bergsson, Sigmar Sævaldsson, Svavar
Árnason, Sverrir Jóhannsson og Sæ-
unn Kristjánsdóttir. Öll bjóða þau sig
fram i öll sætin nema Jón Gröndal
sem býður sig fram i fjórða og fimmta
sæti.
Kjörstaður verður i félagsheimilinu
Festi, uppi, frá kl. 10.00 til 22.00 á
sunnudag.
Atkvæðisrétt hafa allir Grindvík-
ingar, sem þar eru búsettir, 18 ára og
eldri, sem ekki eru flokksbundnir í
öðrum stjórnmálasamtökum. - HP