Dagblaðið - 20.05.1978, Qupperneq 4
4
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 20. MAÍ 1978.
Vilja byggja íbúð-
arhúsákirkju-
lóðinni
í Súgandafiröi er náttúrufegurð með
eindæmum — að minnsta kosti þegar
komið er niður af hrikalegri Breiðadals-
heiði þar sem snjóskaflar eru 2—3 metra
háir i byrjun maí.
Þorpið Suðureyri býður einnig af sér
góðan þokka. Þar hlupu hross eftir stein-
steypri aöalgötunni þegar fréttamann
DB bar að og hurfu síðan fyrir horn.
Þorpið hefur þó nýlega verið girt-af fyrir
ágangi búfénaðar.
Það hefur mikið verið gert i bæjarmál-
um á Suðureyri á því kjörtímabili sem er.
að líða. Þar hefur verið við völd meiri-
hluti vinstri kjósenda, sem er sam-
bræðsla Alþýðubandalags, Alþýðu-
flokks og Framsóknarflokksins. Hafa
þessir flokkar haft þrjá hreppsnefndar-
fulltrúa i sameiningu á móti tveimur
fulltrúum Sjálfstæðisflokks og óháðra.
Vinstri kjósendur hafa ráðið hrepps-
málum i Suðureyrarhreppi að minnsta
kosti siðan í byggðakosningunum 1962.
Árið 1970 buðu fjórir flokkar fram eins
og nú. Þá fengu sjálfstæðismenn og
óháðir tvo fulltrúa og vinstri flokkamir
einn hver.
Atvinnulíf á Suðureyri byggist fyrst
og fremst á sjávarútvegi. Þar starfar tals-
verður hópur aðkomufólks, bæði lslend-
ingar og útlendingar. Unnið er myrkr-
anna á milli. Þegar fréttamaður DB kom
á Suðureyri á uppstigningardag var
unnið á vöktum í Fiskiðjunni við fryst-
ingu grálúðu. Sólarhringstarnir þykja
ekki tiltökumál.
Húsnæðisskortur hefur staðið eðli-
legri uppbyggingu og eflingu atvinnulífs
nokkuð fyrir þrifum. Skortur á bygg-
ingarlóðum er svo mikill að menn hafa
jafnvel falazt eftir byggingarlóðum á
sjálfri kirkjulóðinni!
Dagblaðið tók efstu menn listanna
fjögurra tali og ræddi við þá um kom-
andi hreppsnefndarkosningar.
• ÓV
Urslitífjórum
síðustu
kosningum
Lofa heilbrigðari stjórn á fjármálum hrepps-
félagsins — segir efsti maðurá D-lista
„Ég er náttúrlega í framboði vegna
þess að ég vill vinna byggðarlaginu
gagn,” svaraði Einar Ólafsson útgerðar-
maður spurningu DB um hvers vegna
Einar Ólafsson: „Við minnihlutamenn
höfum alveg staðið utan við alla á-
kvarðanatöku.”
hann væri i framboði til hreppsnefndar-
kosninganna í Suðureyrarhreppi. Einar
er efsti maður á lista Sjálfstæðis-
flokksins og hefur setið i hreppsnefnd
undangengið kjörtímabil.
„Þetta hefur nú verið þannig að
meirihlutinn hefur algjörlega ráðið
þessu. Við minnihlutafulltrúarnir tveir
höfum alveg staðið utan við alla
raunverulega ákvarðanatöku. Þeir hafa
haldið sellufundi og síðan tekið beinar
ákvarðanir á málamyndarhreppsnefnd-
arfundum,” sagði Einar um samstarf
hreppsnefndarinnar.
Hann nefndi sem dæmi að minni-
hlutamenn hefðu viljað láta bjóða út
hitaveituframkvæmdir og einnig þær
átta leiguibúðir sem verið væri að
byggja. „Hér hefur mikill húsnæðis-
skortur staðið eðlilegri fjölgun og upp-
byggingu atvinnulífsins fyrir þrifum,”
sagði Einar.
„Hverju vilt þú lofa kjósendum
þínum?” spurði útsendari DB.
„Ja, ég vil allavega lofa þeim heil-
brigðari stjórnun á fjármálum hreppsins.
Ég get nefnt sem dæmi að hér kostar
50 fermetra ibúð í kjamahúsi orðið 15
milljónir og 100 fermetra íbúð fer
sennilega i tuttugu milljónir. Samtals
hefur hreppurinn borgað 89 milljónir
auk verðbóta fyrir þessar átta ibúðir,”
sagði Einar Ólafsson.
ÓV.
Flokkarnir óskuðu eftir
sjálfstæðum framboðum
— rætt við efsta mann á B-lista
„Ég hef alla ævi verið geðríkur maður
og kann því betur að stjórna öðrum en
láta stjórnast,” svaraði Ólafur Þórðar-
son, oddviti og skólastjóri á Suðureyri,
þegar DB spurði hann hvað hann vildi
með því að fara i framboð. Ólafur skipar
efsta sæti á B-lista Framsóknarflokksins
við hreppnefndarkosningamar. „Grín-
laustbætti Ólafur við, „þá trúa flestir
þvi að þeir geti gert byggð sinni gagn, og
það geri ég líka.”
Ólafur sagði að hann hefði sjálfur
óskaö eftir því að allir flokkar á staðnum
stæðu að sameiginlegu framboði en
flokkarnir i Reykjavík hefðu „óskað
eftir að boðið væri fram sjálfstætt á
þessu kosningavori”.
Stærstu málin á liðnu kjörtímabili
hafa verið hitaveitan, sem komin er í
nær hvert hús, bygging flugvallar,
gatnagerð og bygging íbúðarhúsnæðis.
Sorpbrennari verður tekinn í notkun
fljótlega. Viðbygging barnaskóla hefur
verið boðin út og hafnarmannvirki lag-
færð.
„Ef ég fæ ráðið,” sagði Ólafur, „þá
verður á næsta kjörtímabili byggður
áfangi við barnaskólann, byggður leik-
skóli, plastsundlaug við barnaskólann,
ný hafnarvog og frekari framkvæmdir
Ólafur Þórðarson: „Kann þvl betur ad
stjórna öðrum en að láta stjómast.
verða einnig við höfnina, fái ég ráðið.”
Ólafur sagðist að lokum vilja hæla sér
af því að hann hefði lagt gjöld á þá út-
lendinga sem á Suðureyri hafa starfað.
„Ég tel að nú riki meðal þeirra fullur
skilningur á nauðsyn þess,” sagði hann.
-ÓV
Fólkið velur ekki f rambjóðendur nema að
___ ' > \ í
Birkir Friðbertsson: „Óttast
flokkarnir spyrni gegn réttu svari
kjósenda.”
Inní botni Súgandafjarðar er bærinn
Birkihlíð. Þar býr ásamt fjölskyldu sinni
Birkir Friðbertsson bóndi sem skipar
efsta sæti á framboðslista Alþýðubanda-
lagsins við hreppsnefndarkosningamar í
Suðureyrarhreppi i vor.
litlu leyti — segir efsti maðurá G-lista
„Mitt framboð er náttúrlega
pólitískt,” sagði Birkir þegar fréttamaður
DB ræddi við hann á Suðureyri. „Það er
tilkomið vegna vilja félagsmanna. Ég
var varamaður í hreppsnefnd til 1974 og
hef verið aðalmaður síðan.”
Birkir sagði að undanfarin fjögur ár
hefði verið mikið framkvæmdatimabil I
hreppnum. „Niðurstaða kosninganna
nú verður svar kjósenda við störfum
okkar,” sagði hann. „Ég óttast helzt að
flokkarnir spyrni gegn því að svarið
verði rétt. Kjósendur gætu verið
bundnir af flokkum sínum fram i rauðan
dauðann enda velur fólkið sjálft ekki
frambjóðendur nema að litlu leyti.”
Hann sagðist alls ekki vera öruggur
með að ná kjöri nú. „Flokksfylgi G-list-
ans dugar varla nema fyrir hálfum
manni og nú bjóða fjórir listar fram
þannig að alls ekki er vitað hve mörg at-
kvæði hver maður þarf að hafa á bak við
sig.”
Um stöðu hreppsnefndarinnar gagn-
vart kjósendum I sveitarfélaginu sagði
Birkir að ekki hefði verið mikið sett út á
framkvæmdaröðun eða framkvæmda-
hraða heldur miklu frekar sjálf vinnu-
brögðin. Hann fullyrti þó að fjármál
sveitarfélagsins væru i betra lagi nú en
fyrir fjórum árum.
„Ég lofa engu nema þvi sjálfsagða,”
sagði Birkir að lokum, „að gera mitt
bezta.” -ÓV.
Handbragð kvenna vantarí hreppsnefndma
m m m .. æt. *m ■
Ingibjörg Jónasdóttir: „Margir vita
ekki hvað þeir eiga að borða næstu
daga.”
Nái Ingibjörg Jónasdóttir, efsti
maður á lista Alþýðuflokksins og óháðra
við hreppsnefndarkosningarnar, kjöri í
vor verður hún fyrsta konan sem setið
hefur I hreppsnefnd Suðureyrarhepps.
„Það vantar handbragð kvenna í
hreppsnefndina,” sagði Ingibjörg í sam-
tali við DB. „Hér vantar nauðsynlega
einhvern aðila til að annast sjúka og
aldraða. Við konurnar hér höfum reynt
að beita okkur fyrir því.”
Ingibjörg sagði sérstakt áhugamál sitt
að ný sundlaug fengist á Suðureyri. Sem
stendur er lítil sundlaug alveg niðri við
sjó innar í firðinum en sú er nær ein-
göngu notuð af börnum og unglingum.
„Ég er búin að vera formaður i Al-
þýðuflokksfélaginu hér lengi,” sagði
Ingibjörg, „en vil samt alls ekki vera á
ákveðinni línu. Maðurinn minn er kaup-
maður, þannig að þótt ég hafi verið alin
upp i baráttu þarf ég ekki að kvarta yfir
lífinu. Ég veit þó að þeir eru margir sem
vita ekki hvað þeir eiga að borða næstu
daga.”
Hún kvaðst einnig vilja beita sér fyrir
aukinni aðstöðu fyrir tómstundastarf-
semi á Suðureyri og kvað skort á dag-
vistunarplássum mjög tilfinnanlegan.
1974 1970 1966
Sjálfstæðismenn og óhóðir 125-2 88-2 71-2
Vinstri kjósendur 132-3
Alþýðuflokkur 49-1 57-1
Framsóknarfl. 61-1
Alþýðubandalag 50-1 86-2
Frjðlslyndur vinstri
listi kjósenda
Óháðir kjós.
1962
134-4
54-1
Fjórir listar í kjðri
G-listi
Alþýðubandalags:
1. Birkir Friðbertsson bóndi
2. Gestur Kristinsson rafgæzlumaður,
3. Guðni A. Einarsson stýrimaður,
4. Guðmundur V. Hallbjömsson sjómaöur,
5. Guðmundur Ingimarsson stýrimaður,
6. Hannes Alexandersson sjómaður,
7. Sveinbjöm Jónsson verkamaður,
8. PáJmi Jóhannsson matsveinn,
9. HalJbjöm Guðmundsson sjómaður,
10. EinarGuðnason skipstjóri.
D-listi
Sjálfstæðisfiokks:
1. Einar Ólafsson framkvstj.,
2. Lovisa Ibsen sjúkraliði,
3. Óskar Kristjánsson framkvstj.,
4. Halldór Bernódusson skrifstm.,
5. Karlotta Kristjánsd. húsm.,
6. óskar Sigurðsson húsgagnasmm.,
7. Þorleifur Hallbertsson verksmstj.,
8. Jón Valdimarsson skrifstm.,
9. Jón Kristjánsson verzlunarm.,
10. Sturla ólafsson rafvirkjam.
B-listi
Framsóknarflokks:
1. Ólafur Þ. Þórðarson skólastj.,
2. Eðvarð Sturluson bifreiðastj.
3. Karl Guðmundsson bóndi,
4. Brynja Magnúsdóttir húsmóðir,
5. Bragi Ólafsson skipstjóri,
6. Reynir Jóhannesson sjómaður,
7. Kjartan Þ. Kjartansson sjóm.,
8. Dagbjört H. Guðmundsd. húsm.,
9. Páll H. Pétursson verkam.,
10. Þórður Á. Ólafsson bóndi.
A-listi
Alþýðuflokks
og óháðra kjósenda:
1. Ingibjörg Jónasdóttir húsmóðir,
2. Ámi Pálsson rafvélavirkjameistari,
3. Hannes Einar Halldórsson verkstjóri,
4. Jóhann Bjamason verkstjóri.
5. Bjami H. Ásgrimsson stýrimaður,
6. Bjami Kjartansson skipstjóri,
7. Guðni Guömundsson verkamaður,
8. Kristín Kristjánsdóttir húsmóðir,
9. Guðrún Hauksdóttir verzlunarmær,
10. Jón Ingimarsson húsasmíðameistari.
fp —^
Spurning
i;----—
Hvéfju spáir þú um
úrslit hreppsnefndar-
kosninganna?
Ásgeir Þorvaldsson verkamaðun Ætli
þetta verði ekki ósköp svipað. Ég hef
ekki trú á að það verði neinar meirihátt-
ar breytingar. Áhugi hér fyrir kosning-
unum er talsverður — hreppapólitikin er
alltaf fyrir hendi. Ég gef ekkert upp um
hvaðégkýs.
Gestur Kristinsson hreppstjóri:
thaldið fær tvo menn, hinir einn hver,
þannig að þetta verður óbreytt. Sjálfur
kýs ég Alþýðubandalagið.enda annar
maðurá listanum.
'Pálfna Pálsdóttir verkakona og hús-
móðir: Ég er nú lítið I pólitíkinni en hef
ekki mikla trú á að núverandi meirihluti
haldist. Það eru skiptar skoðanir um
þetta hér, þeir hafa gert miklu meira en
áður — kannski of mikið. Ég kýs
Alþýðuflokkinn.
Elisabet Þórðardóttir verkakona: Ég
veit ekki. Þetta verður líklega svipað og
verið hefur — en vonandi betra, ég er
ekki ánægð. Ég ætla að kjósa, jú, en segi
ekki hvað.
Jón Viðir verkamaðun Sjálfstæðismenn
fá þrjá. Framsóknarmenn og Alþýðu-
bandalagið halda sínum manni inni.
Sjálfur ætla ég ekki áð kjósa.
Helga Holm húsmóðir: Ég vona bara að
það verði einhverjar breytingar á þessu.
Annars hef ég lítið vit og áhuga á pólitik
og er ekki farin að hugsa svo langt að ég
sé búin að ákveða hvað ég ætla að kjósa
sjálf.