Dagblaðið - 20.05.1978, Side 5
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 20. MAÍ 1978.
5
Góðhestar dæmdir á hestaþingi Fáks:
GRÓF MISTÖK KNAPA
ER SIGUR VAR í AUGSÝN
Sigurjón
Valdimarsson
skrifar
umhesta
ogmenn
Framar á myndinni eru þrír fyrstu hestarnir í A-flokki, Hjörvar næst á myndinni en
aftar eru þrir fyrstu i B-flokknum, Brjánn næstur á myndinni í þeim hópi. — DB-
myndir Gunnbjörn Marinósson.
Sannarlega kom margt á óvart er
gæðingar voru dæmdir þegar Fákur hélt
hestaþing sitt um síðustu helgi. Trúlega
hefur A-flokkur ekki verið jafnlélegur í
mörg ár enda þótt landsmótsár sé. Þó
hefur ögri Gísla B. Björnssonar vafa-
laust valdið mestum vonbrigðum. 1 fyrra
vann hann með glæsilegri einkunn og
var álitinn líklegur til sigur á lands-
mótinu í sumar. En hann kolféll, lenti í
6.-7. sæti með 8.13 i einkunn og töldu
sumir að hann hefði þó notið fornrar
frægðar hjá dómurunum.
Gróf mistök
þegar sigur var
í augsýn
Ljúfur Harðar G. Albertsson stóð sig
frábærlega vel og var kominn með
einkunnir sem nægðu honum til sigurs
ef síðasta greinin, skeiðið sem var eitt
eftir — hans öruggasta grein — tækist
vel. En hér gerði knapinn, Sigurbjörn
Bárðarson, sig sekan um gróf mistök,
náði honum ekki niður fyrr en eftir hopp
og skæling rúmlega hálfan völlinn og
fékk lága einkunn. Fyrir bragðið lenti
Ljúfur í 5. sæti með 8.40. Undarlegt er
það annars með þennan tvítuga klár,
hann virðist stöðugt bæta sig og hefur
víst ekki verið betri fyrr.
byggður hestur með ágætt tölt,
hágengur með gott framgrip og gott
samræmi í tölthreyfingum. Hins vegar
sá ég ekki betur en hann færi á tölti alla
skeiðbrautina. Eigandi Hjörvars er
Sigurbjörn Bárðarson, knapi Aðalsteinn
Aðalsteinsson. í öðru sæti kom Feykir, 9
vetra leirljós frá Skógum, Eyjafirði,
eigendur Friðrik Jörgensen og Halldór
Eiríksson, knapi Reynir Aðalsteinsson,
einkunn 8.50. Þriðji varð svo Garpur
eins og í fyrra. Eigandi er Hörður G.
Albertsson, knapi Sigurbjörn Bárðarson,
einkunn 8.47. Kóngur Hjalta Pálssonar
lenti í fjórða sæti með 8.43.
Snjallir gæðingar
í B-flokknum
Allt annar og mun skemmtilegri
svipur var yfir B-flokknum. Líklega hafa
aldrei komið jafnmargir snjallir
gæðingar fram i þessum flokki á móti
hérá landi.
Brjánn Harðar G. Albertssonar sigr-
aði nú eins og í fyrra en fékk nú, fyrstur
gæðinga i B-flokki eftir þvi ég veit bezt,
yfir 9, hlaut 9.17. Þrátt fyrir hærri ein-
kunnir þótti ýmsum þó skorta á að sam-
ræmi I hreyfingum væri jafngott nú,
hreyfingar afturfóta nokkuð stirðlegri en
hrtfandi hreyfing framfótanna og reis-
ingin hin sama og fyrr. Sigurbjörn
Bárðarsonsat Muggeinsogáður
JHvílíklr kostir!
Muggur hans Sigurbjörns Bárðar-
sonar, 11 vetra fyrrverandi kappreiða-
hestur, sýndi tilþrif sem fæstir bjuggust
við. Muggur var taminn og þjálfaður til
keppni í stökki og hljóp oft vel áður fyrr
þótt fáa hlyti hann sigrana. Síðastliðið
sumar sannfærði muggur eiganda sinn
um að hann væri búinn að missa áhuga
á þeim leik. Tók Sigurbjörn þá að ríða
honum til kosta í vetur. Og hvílíkir
kostir! Margir áhorfenda töldu hann
eiga fyrsta sætið en dómarar settu hann
í annað sætið með einkunnina 9.03.
Knapinn, Aðalsteinn Aðalsteinsson,
hefði trúlega komið Mugg í fyrsta sæti
hefði hann sýnt hina geysilegu brokk-
yfirferð sem hesturinn býr yfir.
Eyjólfur ísólfsson sýndi Glaum, af-
burða glæsilegan gæðing sem Sigurbjörg
Sigurbjörnsdóttir á. Hlaut hann þriðja
sætið með 8.70 og fannst mér bilið milli
hans og hinna tveggja fyrstu meira en
efni stóðu til. Næstu tveir hlutu 8.60 i
einkunn, Gullfeti Halldórs Sigurðssonar
gullsmiðs, sem hann sat sjálfur, og
Höttur Guðmundar Guðmundssonar
sem Bjarni Þorkelsson sat.
Fákur er nú meðal þeirra félaga sem
ekki virða dómararéttindi Landssam-
bands hestamanna. 1 dómnefnd sátu
tveir réttindalausir menn og mátti sjá
þess vott á dómunum. Yfirleitt fundust
mér dómar fullrausnarlegir og mátti sjá
allt að þriggja stiga mismun á milli dóm-
ara. Alvarlegust mistök voru þó að
nokkrum sinnum gáfu þeir B-flokks
hestum 9.5 eða 10.0 fyrir fjölhæfni og
hlýðni en það er ekki heimilt i dómregl-
um.
- LH
ÆSISPENNANDIÞEGAR GJALP VANN STÖKKIÐ
Gjálp, fjær á myndinni, kemur i mark sem sigurvegari i 350 metra stökkinu. Nær á
myndinni er Loka. — DB-myndir Gunnbjörn Marinósson.
Vorleikir
Erling Sigurðsson kom með Möngu
hans Gunnars Eyjólfssonar til keppni.
Gunnar sagði einhvern tima frá þvi að
Manga héti i höfuðið á Kristínu
vinkonu sinni! Maðurinn hennar væri
alltaf að manga til við hana! Hvað um
það, Manga var illa upplögð, hafði
sýnilega meiri hug á öðrum vorleikjum
en þeim sem hér fóru fram, stoppaði og
vildi hætta. Betur ef Erling hefði sýnt
henni meiri skilning og hætt keppni. En
því miður hafði hann ekki stjórn á
keppnisskapinu og dómnefndin lét undir
höfuð leggjast að vísa honum frá. Ættu
knapar að vita hvenær hesti sem þeir
riða til dóma hefur mistekizt svo
tilgangslaust sé að halda áfram. Ekki
tjóar að taka vonbrigði sín út á
hestinum.
Hjörvar, 8 vetra, rauður, frá
Brunnum i Suðursveit reyndist vera
sigurvegarinn, aðaleinkunnin 8.53.
Hjörvar er sterklegur og nokkuð gróf-
Einkennilegt er það hvað Fákur sinnir
unga fólkinu sínu lítið. 1 mótaskrá var
aðeins að finna tvær linur um unglinga-
keppni, ekki staf um hvaða unglingar
kepptu og því síður á hvaða hestum,
ekkert um stjórn eða dómara. Og þegar
til leiks kom mættu dómararnir ekki
einu sinni allir en höfðu þó lofað að
starfa. Þau Ragnar Tómasson og
Kolbrún Kristjánsdóttir stýrðu keppn-
inni og eiga lof skilið fyrir.
Þetta eru bara krakkar, hugsa víst
Það er með töluverðri forvitni að
rennt er augum yfir mótsskrá fyrstu
kappreiða ársins. Hverjir þekktustu
hlaupara síðustu ára eru skráðir?
Knapaskipd? Eigendaskipti? Og hvað
um ungu hrossin sem hlupu hvert öðru
betur í fyrra en eru nú skráð meðal
hinna „fullorðnu” í ár?
Fyrstir á skrá eru brokkhestar, þar
vekur fyrst athygli að Sigurður
Sæmundsson er nú skráður knapi á
Faxa í stað Eyjólfs ísólfssonar og
Ragnar Tómasson hefur tekið við
Smyrli af Tómasi syni sinum. En Tómas
kemur með eigin hryssu sem hann kallar
Þrumu. Hann er lika skráður á tvo hesta
i 800 m stökki. Þar eru líka skráðir til
leiks þeir Geysir og Jerimías, sem
kepptu af hörku I fyrra, og Ægir sem
vann flesta sigra i unghrossahlaupinu i
fyrra.
leiðandi menn í félaginu og þykir ekki
taka því að sýna þeim tillit eða virðingu.
Á myndinni er Tómas Ragnarsson áð
taka við verðlaunum fyrir sigur í
unglingaflokki (10—12 ára) Formaður
Fáks, Guðmundur Ólafsson afhenti
verðlaunin. Kristján Ingvarsson varð
annar og Ester Harðardóttir þriðja. í
flokki 13—15 ára sigraði Ásta Sigurjóns-
dóttir, Guðmundur Björnsson varð
annar og Orri Snorrason þriðji.
1 skeiðið eru skráðir m.a.'Fannar, Ás,
Vafi og Hrannar, a!lir með sömu knapa
og I fyrra, en Ragnar Tómasson situr nú
Hofstaðajarp en ekki Tómas sonur hans.
Sigurður Sæmundsson kemur með
vekring sem hann á í félagi við Eggert
Hvanndal. Hestur þessi vekur forvitni.
Sigurður er ekki þekktur fyrir að koma
með hesta til uppfyllingar, hann hugsar
um fyrstu sætin.
Mest spennandi verður 350 metra
stökk. Þar eru skráðar til leiks Loka og
Glóa sem voru ásamt Nös í sérflokki sl.
sumar. Gjálp, sem i fyrra setti met I ung-
hrossahlaupi, hljóp á 18.0 sek., og Lotta,
sem hljóp á 18.1 sek., keppa nú í 350
metra stökki. Nýir knapar eru nú skráðir
á allar þessar hryssur: Fríða Steinars-
dóttir á Loku og Glóu, Gylfi Þorkelsson
á Gjálp og Guðrún Fjeldsted á Lottu. Þá
hefur Þróttur bætzt I þennan flokk með
nýjan eiganda og knapa, Tómas
Ragnarsson. Hét Þróttur í fyrra Hóla-
Gráni og hljóp unghrossahlaupið á 18.7
sek.
Og þá er það keppnin sjálf. í 800
metra brokki gerðist ekkert óvænt. Þrír
fyrstu voru þeir sömu og stóðu sig bezt
hér sunnan- og vestanlands í fyrra. Faxi
bætti nú metið í 1:39,5 mín. Faxi er
rauður frá Hvitanesi í Borgarfirði. Eig-
andi er Eggert Hvanndal og knapi
Sigurður Sæmundsson. „Ég bæti metið
enn betur í sumar,” sagði knapinn eftir
mótið. Blesi Valdimars Guðmundssonar
varð annar á 1:40.8 mín. og Smyrill
Dagnýjar Gisladóttur þriðji á 1:50.0
mín.
Þjálfi Sveins K. Sveinssonar sigraði
örugglega í 800 metra stökki, virðist
búinn að ná sér eftir fótaveilu sem háði
honum í fyrra. Guðrún Fjeldsted sat
Þjálfa, tíminn 63.1 sek. Annar varð
Jerimías sem Björn Baldursson sat,
tíminn 64.1 sek., og þriðji Kóngur á 64.5
sek. Knapi Kóngs var Gaukur Jónsson.
Skeiðið reyndist lélegt. Af 19 skráðum
hestum lágu aðeins 8, þar af tveir báða
sprettina. Aðeins einn hestur sýndi
framför frá í fyrra, Hrannar Gunnars
Arnarsonar í Hafnarfirði. Hrannar hljóp
á nokkrum mótum I fyrra og náði bezt
24.3 sek. Nú lá hann báða sprettina og
varð annar á 24.0 á efúr Fannari sem
sigraði á 23.0 sek. Þriðji varð Vafi á
24.3 sek. Stökk — 350 m — varð
æsispennandi .eins og við mátti búast.
Þar er skemmst frá að segja að Gjálp,
brúnskjótta hryssan þeirra Laugarvatns-
feðga, skaut hinum fótfráu stöllum
Loku og Glóu aftur fyrir sig á úrslita-
sprettinum og sigraði á 25,4 sek. Loka
varð önnur á 25,5 sek. og Glóa þriðja á
25,6 sek. Miðað við fyrri árangur og
ágæta aðstöðu, góðan völl, meðvind og
mikla keppni eru tímarnir ef til vill ekki
nægilega góðir en í undanrásum hljóp
Loka á bezta tima sinum til þessa, 24,8
sek., og þá hljóp Gjálp á 25.0 sek. Það
er ljóst að mikil keppni verður í 350 m
stökki í sumar, Lotta á eflaust eftir að
komast i þennan hóp, þótt hún næði
ekki að komast í úrslit núna, og ef Nös
frá Urriðavatni kemur svo til að keppa
við þessar fjórar trúi ég margir verði
spenntir. Skipt hafði verið um knapa á
öllum hryssunum þrem: Gunnar
Sigurðsson frá Bjamastöðum í
Grimsnesi, ungur og efnilegur knapi, sat
Gjálp, Vilhjálmur Hrólfsson sat Loku
og Stefán Sturla Sigurjónsson sat Glóu.
í unghrossahlaupinu sigraði Reykur
frá Laugabæ i Borgarfirði. Eigandi er
Hörður G. Albertsson, knapi Friða
Steinarsdóttir, timi: 19,1 sek. Freisting
sem Gunnar Sigurðsson, knapinn sem
sat Gjálp, á og sat varð önnur á 19,4 sek.
og Léttir frá Helgadal varð þriðji á 19,5
sek. Baldur Oddsson á Létti en Björn
sonur Baldurs sat hann.
SV
■T
= Á
BILASALAN
Flestargeróir
bifreiða
— Opiðíhádeginu
Z Sfmar29330og29331
VITATORGI
i:
Hvað ungur nemur...
ÆSKUNNILÍTT SINNT