Dagblaðið - 20.05.1978, Qupperneq 24
SYKNAÐUR AF
KYNFERÐISBROTI
— báðirdæmdirí
undirrétti, annar
sýknaður íHæsta
rétti, hinn áfrýjaði
ekki ogsituruppi
með dóminn
Hæstiréttur sýknaði nýlega mann i
Hafnarfirði af kröfum ákæruvaldsins
um meint kynferðisafbrot. 1 Sakadómi
Hafnarfjarðar hafði þessi maður verið
sakfelldur ásamt öðrum manni. Þóttu
meintir verknaðir þeirra varða við
m.a. þær greinar hegningarlaga sem
fjalla um samræði við barn yngra en
14 ára. Þá þótti atferli mannsins sem
áfrýjaði vera brot á ákvæðum
hegningarlaga um viðurlög við hold-
legt samræði foreldra og barna.
Sakadómur Hafnarfjarðar taldi
mennina tvo hafa gerzt brotlega með
atferli sem refsing liggur viö og fjallað
er um í kafla hegningarlaga um skír-
lifis- og sifskaparbrot. Hlaut annar
maðurinn 18 mánaða fangelsisdóm en
hinn 14 mánaða fangelsi.
Sem fyrr segir áfrýjaði annar
maðurinn málinu til Hæstaréttar: Það
var sá sem hlaut þyngri dóm. Hinn
maðurinn áfrýjaði ekki máli sinu til
Hæstaréttar. Virðist því dómur undir-
réttar standa óhaggaður gagnvart
honum. Vandséð er hvernig ástæða
getur verið til að fullnægja dóminum
með fangelsisvistun. Jafnvel þótt
náðunar yrði beiðst, og hún veitt,
stendur eftir sem áður dómurinn sem
kveðinn var upp yfir manni sem telja
má víst að Hæstiréttur hefði sýknað.
í ákæruskjali voru ákærðir bornir
þeim sökum að hafa tvívegis haft
samræði og önnur kynferðismök við
dóttur mannsins sem áfrýjaði málinu
til Hæstaréttar. Segir í ákæruskjali að
þeir hafi gerzt sekir um þetta athæfi i
tvö skipti, i fyrra skiptið um áramótin
1971—72 og síðara skiptið um
mánaðamótin mai-júni 1972.
Mál þetta var á sínum tíma talsvert
til umfjöllunar i fjölmiðlum. Meðal
annars kom til kasta bæjaryfirvalda i
Hafnarfirði, þar sem m.a. um 40 aðilar
sendu yfirvöldunum undirritað skjal
varðandi þetta mál.
Báðir mennirnir sættu gæzluvarð-
haldi meðan á rannsókn málsins stóð
en faðir stúlkunnar, sem áfrýjaði
málinu til Hæstaréttar, synjaði stað-
fastlega fyrir sekt sína.
í dómi Hæstaréttar er hann
sýknaður af öllum kröfum ákæru
valdsins i málinu og allur sakar-
kostnaður, bæði í héraði og fyrir
Hæstarétti, lagður á rikissjóð, þar með
talin þóknun skipaðs verjanda hans í
undirrétti, Jóns E. Ragnarssonar hrl.,
kr. 70.000,00 og skipaðs verjanda
hans í Hæstarétti, Jóns Oddssonar
hrl., kr. 150.000.00, svo og réttar-
gæzlulaun kr. 25.000.00 Af hálfu
ákæruvaldsins flutti málið Þórður
Björnsson rikissaksóknari.
í forsendum fyrir dómi Hæstaréttar
kemur einkum til álita sönnunarbyrði
sem hvilir á ákæruvaldinu auk þess
sem nokkur ný gögn voru lögð fram í
Hæstarétti. Dóminn kváðu upp hæsta-
réttardómaramir Ármann Snævarr,
Benedikt Sigurjónsson, Björn Svein-
björnsson, Logi Einarsson og Þór
Vilhjálmsson.
BS
Auðvitað er Dagblaðið lesið á götum úti og kevpt i lausasölu — en við viljum gjarna hvísla að vinum okkar: Áskrift er mun ódýrari. Þessar kátu hnátur voru að lesa DB i
miðhorg Reykjavíkur. DB-mynd Hörður.
ERTU MEB ÚT í HEIM?
fijálst, úháð dagbJað
LAUGARDAGUR 20. MAÍ 1978.
Efnahagslögin segja
nú til sín:
Fleiri krónur
verða nú
í launaum-
slaginu
— en helmingur
verðbótavfsitölu,
6.4% launahækkun,
fellur óbættur
hjá garði
Fólk ætti um næstu mánaöamót að
geta tint fleiri krónur en áður upp úr
launaumslögum sinum. Auk jvess sem
launjtegar innan ASÍ, BSRB og BHM fá
áfangahækkun launa frá I. júní 1978
samkvæmt ákvæðum kjarasamninga
eiga allir að fá 6,4% verðbótahækkun
launa frá sama tima. Kemur sú hækkun
á mailaun 1978, að undanskildum verð-
bótaviðauka ef um hann hefur verið að
ræða.
En nú fær fólk allmjög að finna fyrir
lögunum um ráðstafanir i efnahagsmál-
um. Samkvæmt þeim hækka laun ekki
nema sem svarar helmingi þeirrar
hækkunar verðbótavísitölu og verðbóta-
auka sem Kauplagsnefnd reiknar sam-
kvæmt ákvæðum kjarasamninga að hafi
átt sér stað frá næstliðnu 3ja mánaða
greiðslutímabili. Hækkunin nam
12,794% og skal þvi verða 6,4% verð-
bótahækkun launa. Hinn helmingur
verðbótavisitölunnar fellur dauður
niður og óbættur hjá garði vegna lag-
anna um efnahagsráðstafanir. - ASt.
Vísitalan
hækkarum
108 stig
Vísitalan i maibyrjun reyndist vera
1044 stig samkvæmt útreikningum
Kauplagsnefndar. Er hækkunin 108 stig
frá þvi i febrúarbyrjun sl.
í fréttatilkynningu Hagstofunnar
segir að nákvæmlega sé hækkun vísitöl-
unnar frá því í febrúarbyrjun 108,25 stig
eða 11,57%. Var um að ræða hækkun á
fjölmörgum vöru- og þjónustuliðum,
innlendum og erlendum, meðal annars
vegna gengisfellingar 10. febrúar og
launahækkana 1. marz. ASt.
Núerboðið
— áskrifendur DB eiga kost á 30 daga hnattreisu með haustinu
Áskrifendaleikur DB — Umhverfis
jörðina á 30 dögum. hefur vakið feikna
athygli. meiri en þótt 3 glæsibilar væru i
boði. Og hvern langar svosem ekki i
lystireisu með öllum þeim munaði sem
um getur?
Og hvað skal gera? Jú, áskrifendur fá
allir að vera með. séu þeir skuldlausir.
Og nú er um að gera að drifa i að gerast
áskrifandi sem allra fyrst. Um hver mán-
aðamót reiknar áskriftatölvan áskrifend-
um einn „miða” i áskrifendaleiknum.
Gerist menn áskrifendur fyrir mánaða-
mót aukast þvi likurnar á lystireisunni.
Þegar þar að kemur verður dregið
nafn eins heppins áskrifanda. Hann skal
mæta hjá DB og svara spurningunni um
það hvert simanúmer Dagblaðsins er...
Einfalt.ekki satt?
Og númerið er reyndar 27022. Þar er
tekið við áskriftabeiðnum til kl. 17 í dag
— og frá kl. 14 til 22 á sunnudaginn.
- JBP
Sviptingarum prófessorsstöðu:
Atkvæði stúdenta ráða úrslitum
— en atkvæðisrétturþeirra vefengdur
Deilur eru komnar upp i heimspeki-
deild Háskóla íslands um hvort stofna
beri prófessorsembætti i örnefnafræð-
um við skólann, tengt nafni Þórhalls
Vilmundarsonar prófessors.
Á deildarfundi í heintspekideild
fyrir nokkrum dögum báru þeir
Gunnar Karlsson lektor og Ólafur
Hansson prófessor upp tillögu þessa
efnis. Gera þeir ráð fyrir að 37. gr. há-
skólalaga verði breytt og í stað ákvæða
um prófessorsembætti i ættfræði komi
ákvæði um embætti i örnefnafræðum.
Sveinn Skorri Höskuldsson prófess-
or lagðist gegn tillögunni og bar fram
frávisunartillögu, sem felld var meö 12
atkvæðum gegn 10. Fimm fulltrúar
nemenda tóku þátt i atkvæðagreiðsl-
unni og munu þeir hafa ráðið úrslitum
um að tillagan var felld. Sveinn Skorri
taldi mikinn vafa leika á þvi að stúd-
entamir hefðu atkvæðisrétt um þetta
mál. Krafðisl hann þess að lögfræð
ingur yröi fenginn til aö skera úr því.
Varð að fresta fundi og brjóta nú lög-
fræðingarnir Jónatan Þórmundsson
og Jóhannes L.L. Helgason heilann
um málið.
Fyrir næsta deildarfundi, sem óvist
er hvenær verður haldinn. liggur
einnig brey tingartillaga frá Sveini
Skorra Höskuldssyni þar sem lagt cr til
að hið nýja prófessorsembætti verði
ekki tengt nafni Þórhalls Vilmundar-
sonar.
Talið er að úrskurður lögfræðinga
um atkvæðisrétt stúdenta muni skipla
sköpum um framvindu þessa máls.
Verði hann neikvæöur má ætla að til-
laga Gunnars Karlssonar og Ólafs
Hanssonar nái ekki fram að ganga.
Endanlegákvörðun um stofnun nýs
prófcssorsembættis er í höndum Al-
þingis. -GM
til ókeypis
kappreiða
Fákur býður öllum til ókeypis kapp-
reiða á félagssvæðinu á Viðivöllum í
dag, laugardag, og hefst keppni þar
klukkan 3.
Þarna fer þá fram firmakeppni félags-
ins sem halda átti fyrir nokkru en var þá
frestað vegna roks og rigningar. Um 170
firrnu taka þátt i keppninni sem haldin
ertilágóða fyrir starfsemi Fáks. Verður
þarna hægt að sjá margan góðan gæð-
inginn á góðum spretti. - ASt.