Dagblaðið - 13.09.1978, Blaðsíða 8
8
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 13.SEPTEMBER 1978.
Fulltrúastaða í
utanríkisþjónustunni
Staða fulltrúa í utanríkisþjónustunni er laus til
umsóknar. Laun samkvæmt launakerfi starfs-
manna ríkisins.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf sendist utanríkisráðuneytinu,
Hverfisgötu 115, Reykjavík, fyrir 25. sept-
ember 1978.
U tanríkisráðu ney tið,
Reykjavfk, 8. september 1978.
Fríkirkjusöfnuðurinn í Reykjavík
Prestskosning
Kosning safnaðarprests við Fríkirkjuna í
Reykjavík fer fram í Miðbæjarskólanum laug-
ardaginn 16. og sunnudaginn 17. september
nk. kl. 10.00 til 18.00 báða dagana.
í kjöri er:,
Sr. Kristján Róbertsson
prestur að Kirkjuhvoli.
Þeim safnaðarmeðlimum sem ekki koma því
við að kjósa framangreinda daga gefst kostur á
að kjósa í kirkjunni kl. 16.00 og 18.00 fram að
kjörfundi.
Safnaðarstjórn hvetur alla meðlimi
safnaðarins að taka þátt í kosningunni.
Mætum öll á kjörstað og lýsum þannig sam-
stöðu með hinum nýja presti.
Reykjavík, 8. september 1978.
Safnaðarstjórn.
CASIO- umboðið
Bankastræti 8 - Simi 27510
Olía á hafsbotni við NA-land:
BEZT GEYMD ÞAR
SEM HÚN ER
FYRST UM SINN
„Olía sem hugsanlega er til staðar við
landið er bezt geymd á hafsbotni fyrst
um sinn.” Þetta ályktuðu fundarmenn á
aðalfundi SUNN, samtaka um náttúru-
vernd á Norðurlandi á dögunum.
í sambandi við olíuleit varaði fundur-
inn eindregið við þeirri hættu sem hann
telur að samfara sé því að erlendum auð-
félögum sé veitt leyfi til olíuleitar hér við
land. Eigi íslendingar að annast slíkar
rannsóknirsjálfir.
í ályktun fundarins segir ennfremur:
„Fundurinn bendir á að oliuvinnsla
við Norðausturland hljóti að valda
geysilegri byggðaröskun í þeim lands-
hluta og raunar í öllu landinu, sem leiða
myndi til eyðileggingar hefðbundinna
atvínnuvega. Einnig myndi hún valda
mikilli mengunarhættu í sjónum á þessu
svæði sem leitt gæti til eyðingar fiski-
miðanna þar og gæti haft áhrif á sjávar-
líf umhverfis allt landið.
Fundurinn telur sýnt að islenzkir aðil-
ar muni ekki haia fjárhagslegt bolmagn
til oliuvinnslu við landið, og því muni
það verða erlendir auðhringar sem fyrst
og fremst hagnast á vinnslu olíunnar
hér. Umsvifum olíuhringanna mun
fylgja margvísleg íhlutun i málefni þjóð-
arinnar, svo hætta er á að sjálfstæði
hennar verði stórlega skert.”
— JBP
»
Það er þessi sjón sem SUNN-félagar
vilja helzt ekki aó blasi við sjónum
manna sem leið eiga um hafsvxðin út af
Norðausturlandi. Myndin er af Frigg-
olfusvæðinu sem Norðmenn nýta.
segir í ályktun SUNN-félaga
KÁRIFYLGIR ÞJÓÐ-
VIUABULLI
— segir Vilmundur Gylfason um hugleiðingar Kára Arnórssonar
um átök innan Alþýðuflokksins
„Gylfaliðið barðist hart gegn þátttöku
Alþýðuflokksins í ríkisstjórn undir for-
sæti Ólafs Jóhannessonar,” segir Kári
Arnórsson í nýútkomnu tölublaði Nýrra
Þjóðmála, málgagns Samtaka frjáls-
lyndra og vinstri manna. Og Kári heldur
áfram: „Á þessum fundi." þ.e. fundi Al-
þýðuflokksins, „bar Benedikt sigur af
hólmi. Gylfi hafði þó fengið Sjálfstæðis-
flokkinn til þess að senda bréf inn á
fundinn um boð upp á hlutleysi við
minnihlutastjórn Alþýðuflokksins, sem í
framtíð myndi þýða ný viðreisn.
Benedikt vildi ekki fara með flokkinn i
sama farveg og hann var i á siðasta ára-
tug. En óheilindi Gylfa Þ. Gislasonar í
garð íslenzkra launþega og íslenzkrar
vinstristéfnu eru söm við sig. Sigur
Benedikts i þessu máli eru fyrsta vís-
bending um að hann sé að öðlast for-
ingjareisn og enga ósk á ég betri Bene-
dikt og Alþýðuflokknum til handa en þá
að hann geti losað flokkinn undan áhrif-
um Gylfa. En þar er við ramman reip að
draga. Á þessu mun þó velta um framtið
Alþýðuflokks sem vinstri flokks og stöðu
og styrkleika Benedikts sem forystu-
manns.”
Gylfi Þ. Gíslason er ekki á landinu og
því bar DB þessi ummæli Kára Arnórs-
sonar undir Vilmund Gylfason alþingis-
mann Alþýðuflokksins. Vilmundur tók
það fram i upphafi að hann gæti ekki
svarað fyrir Gylfa, slíkt yrði hann að
gera sjálfur.
„En hvað mig varðar,” sagði Vil-
mundur, „sé ég í hendi mér að Kári er
bullukollur sem hefur ekki hugmynd um
hvað hann er að ræða. Það hefur ekkert
slíkt sem Kári lýsir þarna verið i bígerð.
í þessum viðræðum var um tvennt að
ræða. Það var í fyrsta lagi nauðsynin á
myndun rikisstjórnar og i öðru lagi hve
mikið menn voru fúsir að hvika frá því
sem barizt var fyrir í kosningabarátt-
unni. Margir þingmenn Alþýðuflokks-
ins, þar á meðal ég, höfðu fyrirvara á þvi
hve langt væri eðlilegt að semja af leið.
Kári fylgir hér aðeins bulli sem Þjóð-
viljinn hefur búið til um vinstri og hægri
stefnu. En ég tek ekki við slíkum mál-
flutningi. Þetta eru óupplýstar upphróp-
anir, þar sem vinstri er samasemmerki
fyrir góður og hægri samasemmerki
fyrir vondur.
Það má af þessu ráða að Kári virðist
ekki vita hvað um er að ræða, t.d. hvað
varðar Vísitölumál og vaxtapólitik, þar
sem stefna Alþýðuflokksins og Alþýðu-
bandalagsins er gerólik. Og það er helviti
hart að semja allt slíkt af sér,” sagði Vil-
mundur Gylfason alþingismaður.
—JH
Hljómtæki vinsæl hjá innbrotsþjóf um
Flljómflutningstæki virðast vera skot- plötuspilara. Hitt tilfellið var í Hraunbæ þúsund krónum í húsakynnum Málara-
spónn innbrotsþjófa í æ ríkara mæli. þar sem hljómflutningstækjum var meistarans við Grensásveg. Þá var gerð
Um s.l. helgi var t.d. brotizt inn á tveim- stolið. tilraun til innbrots í íbúðarhús i Flúða-
ur stöðum og slikum tækjum stolið. seli — kannski eftir hljómflutningstæki.
Annað innbrotið var í hús við Kárastig Þrjú innbrot voru framin í bíla um síð- Tilraunin tókst ekki.
og þar var segulbandstæki áfast við Ustu helgi og einnig var stolið 10—12