Dagblaðið - 13.09.1978, Page 9
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 13. SEPTEMBER 1978.
9
Fatlaðir marséra á fund borgarstjórnar:
„VIÐ VIUUM BARA JAFNRETTl”
„Eini galiinn við gúmmiið neðan á þessum stöfum er sá að það verður svo ógurlega hált i frostum. Ég fékk mér þvi hreinlega
mannbrodda sem hægt er að skjóta út,” segir hinn sihressi Magnús Kjartansson.
Fatlaðir menn í Reykjavik og ná-
grenni hyggjast marsera á þriðjudaginn
frá Sjómannaskólanum niður á Kjar-
valsstaði. Þar ætla þeir að ræða við full-
trúa borgarstjórnarinnar og gera grein
fyrir kröfum sínum um jafnrétti við aðra
menn, hvorki meira né minna.
Lagt verður af stað frá Sjómannaskól-
anum klukkan þrjú. Gangan niður eftir
á að vera eins hressileg og nokkur kostur
er og ætla menn að hún taki ekki nema
klukkutima. Til þess að hvetja menn
leikur á undan göngunni lúðrasveit ungs
fólks. Ef forstöðumenn göngunnar fá
vilja sinum framgengt verður svo margt
í göngunni að ekki komast allir inn á
Kjarvalsstaði.
betur, en alheilir menn geta fáir vinnu-
staðir ráðið til sín fatlað fólk vegna að-
stæðna. Stigar, þröngar lyftur, þröngar
dyr, salerni sem eru það mjó að ekki er
hægt að koma hjólastólum inn á þau,
þröskuldar og svo framvegis og svo
framvegis. Allt þetta gerir fötluðu fólki
þann kost einan að sitja heima og horfa i
gaupnir sér á meðan þjóðfélagið gæti vel
notað sér starfsgetu þess.
Magnús Kjartansson sem er fram-
kvæmdastjóri göngunnar vitnaði I það
að í Bandaríkjunum gat Franklin D.
Roosewelt unnið sem forseti landsins þó
hann væri í hjólastól. Ef hann hefði
verið íslendingur hefði honum ekki
Ganga er ef til vill ekki rétta orðið.
Því þrátt fyrir að skorað sé á alheilt fólk
að koma lika verða fatlaðir líklega í
meirihlutaj á hjólastólum, með stafiA
hækjur og annan þann útbúnað sem-gér-
ir fötluðum kleift að komast áfram.
En þó að þessi útbúnarður sé góður og
gegni miklu hlutverki er hann samt
þannig að fatlaðir komast ekki nærri því
alltaf leiðar sinnar og það er málið sem
'allt snýst um. Fatlaðir vilja að aðstæður
verði gerðar þannig að fullt tillit sé tekið
til sérþarfa þeirra. Þvi þrátt fyrir að fatl-
aðir geti heilsu sinnar vegna unnið hin
margvíslegustu störf jafn vel. ef ekki
Forgöngumenn göngunnar miklu. Rafn Benediktsson formaður Sjálfsbjargar i
Reykjavik, Sigurður Guðmundsson varaformaður, Arnór Pétursson formaður
iþróttafélags fatlaðra, Magnús Kjartansson framkvæmdastjóri göngunnar, Theo
dór A. Jónsson formaður landssambandsins Sjálfsbjargar °8 Sigursveinn D.
Kristinsson varaformaður. — DB-mynd Hörður.
Við hortum ailtaf
v vd tjl bc-gj>ja hí:ða
áður cn við gðngum
yfu akbrautina.
I hvert sinn sem skólabörn i Ungir veg-
farendur eiga afmæli fá þau sendar
heillaóskir frá skólanum sinum ásamt af-
mælisserviettum og fleiru slíku.
„Ungír vegfarendur” 10 ára
93% 3-6 ára barna
í umferðarskólanum
Umferðarskólinn Ungir vegfarendur
er 10 ára á þessu ári. Eru núna 18.400
börn i skólanum eða 93% af öllum 3—6
ára börnum á landinu. Markmið skólans
er þó að öll börn á landinu geti verið
með. En til þess þarf þátttaka sveitarfé-
laganna að koma til.
Umferðarráð er sá aðili sem rekur
skólann með sveitarfélögunum. Er til-
gangur skólans að koma i veg fyrir slys á
börnum i umferð tneð öflugri fræðslu.
Hún fer þannig fram að skólinn sendir
nemendum sínum bæklinga og annað
fræðsluefni. Er það gert tvisvar á ári á
bilinu febrúar-júní og ágúst-september.
Mestur vandi við þetta fræðslustarf
hefur verið að foreldrar Iáta ekki vita
nógu snemma um breytt heimilis-
föng. Þvi kemur það stundum fyrir
að börnin bíða árangurslaust eftir um-
ferðarskólanum sinum. Upplýsingar um
breytt heimilisföng er hægt að veita í
síma 27666 eða með því að skrifa til Um-
ferðarráðs.
DS.
verið gert kleift að vinna neitt þrátt fyrir
hæfileikana.
Blindum og heyrnarlausum er líka
gert lifið eins erfitt og kostur er.
Hús eru illa merkt, meira að segja þann-
ig að sjáandi eiga erfitt með að átta sig
á þvi hvað innan veggja þeirra er
og hljóðvitar við gangbrautir eru aðeins
3 í allri Reykjavik.
Sjálfsbjörg í Reykjavík gengst fyrir
göngunni og eru menn endilega hvattir
til þess að gera skrifstofu félagsins að
Hátúni 12 viðvart um ef þeir hyggjast
ganga en treysta sér ekki til þess að kom-
ast á áfangastað. Eins eru menn hvattir
til að hafa samband ef þeir telja sig geta
aðsloðað eitthvað. Svarað verður i þrjá
sima á milli 2 og 10 alla daga fram að
göngunni, 17868,29128 og 29136.
DS.
Sfmi 16180
Seljendur fasteigna
Nú að loknum sumarleyfum vantar okkur allar
tegundir fasteigna á skrá. Við munum aðstoða við að
verðmeta og kappkosta að veita sem bezta þjónustu.
Vinsamlegast hafið samband við okkur.
SKÚLATÚN SF.
SKÚLATÚNI6,3. HÆÐ
Sölumenn: Esther Jónsdóttirog Guðmundur Þórðarson.
Kvöldsími 35130.
Lögfræðingur: Róbert Árni Hreiðarsson.
Sími 16180
Kópavogur — Einbýlishús
Sérstaklega vel um gengið og snyrtilegt einbýlishús á 2
hceðum (grunnfiötur ca 96 fm). ásamt vönduðum bíl-
skúr ogfallegri lóð. í húsinu má hafa hvort heldur vill
eina eða tvær íbúðir.
SKÚLATÚN SF.
SKÚLATÚNI6,3. HÆÐ
Sölumenn: Esther Jónsdóttir og Guðmundur Þórðarson
Kvöldsími 35130.
Lögfræðingur: Róbert Árni Hreiðarsson.
Simi 16180 ~
í suðausturborginni
Höfum í einkasölu efri hæð og ris í timburhúsi, ásamt
bílskúr og hlutdeild í garði. Ibúðin er 2 samliggjandi
stofur og 3—4 svefnherbergi. Góður og rólegur staður
steinsnarfrá miðborginni.
SKÚLATÚN SF.
SKÚLATÚNI6,3. HÆÐ
Sölumenn: Esther JónsdóttirogGuðmundur Þórðarson.
Kvöldsími 35130.
Lögfræðingur: Róbert Árni Hreiðarsson.
Sími 16180
iðnaðarhúsnæði
Höfum fengið í sölu iðnaðarhúsnæði á bezta
stað í Kópavogi. Húsið er kjallari, 390 fm og
þrjár hæðir, 490 fm hver hæð. Húsið selst
múrhúðað að utan, járn á þaki með rennum
og niðurföllum, vélpússuð gólf, plast í glugg-
um, sameign múrhúðuð, vatn og skolp tengt
bæjarkerfi. Innkeyrsludyr í kjallara og á l.
hæð. Teikningar og nánari upplýsingar á skrif-
stofu okkar.
SKÚLATÚN SF.
FASTEIGNA- OG SKIPASALA
SKÚLATÚNI 6,3. HÆÐ.
Sölumenn: Esther Jónsdóttirog Guðmundur Þórðarson.
Kvöldsími 35130.
Lögfræðingur: Róbert Árni Hreiðarsson.