Dagblaðið - 16.09.1978, Side 3

Dagblaðið - 16.09.1978, Side 3
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 1978. 3 Að horfa á gamlan mann gráta að ÁVald skrifar: Sá fáheyrði atburður gerist nú fyrir skömmu að brotizt var inn hjá fátækum hugsjónamanni i höfuðstað íslands, Reykjavik. Þetta innbrot var að því leyti ólíkt þeim innbrotum, sem oft má sjá fréttir um á síðum dagblaðanna að ekki voru að verki ótindir þjófar og misyndis- menn heldur borðalagt yfirvald í embættisnafni. Aðfarir þeirra og eril tiunda ég ekki. Það hefur áður verið gert i máli og myndum en atlaga þessi mun fræg verða að endemum þegar fram liða stundir. Á hitt vil ég minnast sem mestu varðar, að hér er gerð svívirðileg atlaga að samvizkusömum og heiðarlegum hugsjónamanni sem af þrotlausri elju og umhyggjusemi hefur bariztvið að koma upp safni íslenzkra dýra ogfugla. Kristján Jósepsson er um margt sér- kennilegur persónuleiki. Fyrir liðlega 12 árum fékk hann áhuga á að koma upp sýnishorni íslenzkra dýra og hefur farið víða um land til fanga og brugðið við hart ef spurðist um sérkennileg af- brigði og sparaði þá hvergi fé og fyrir- höfn þegar um var að ræða að bæta og auka við safnið. Hver króna sem hon- um áskotnaðist umfram brýnustu lifs- nauðsynjar fór til viðhalds og uppbyggingar þessa safns, sem nú hefur verið tætt niður og flutt á brott. Óneitanlega fallast manni hendur þegar horft er á opinbera aðila eyðileggja margra ára þrotlaust menningarstarf sem unnið er í þeim tilgangi að gefa kaupstaðarbörnum, ekki sízt bomum og óbomum, kost á að sjá á einum stað það helzta úr íslenzku dýralifi. Ég ætla ekki að gera lítið úr kaupi íslendinga á hinum fræga geirfugli á sínum tíma en smá er skuld íslenzka dýrasafnsins við ríki og borg saman- borið við kaupverð þess góða geirfugls umreik'nað á núgildi. Hið sama má segja um Ijósakrónuna góðu og spegilinn svo fleira sé nefnt. Nei, góðir herrar. Þið sem að þessu standið hafið sett smánarblett bæði á ykkur sjálfa og á það embætti sem þið eigið að heita að vinna fyrir. Allir sannir og sómakærir Islendingar fyrir- lita vinnubrögð ykkar enda vart dæma að leita í siðfrjálsum heimi. að sjálf- borðið menningarstarf sé svo fótum troðið af ráðandi yfirvaldi. Nú hefur uppboðið verið auglýst í dag, laugardag, á dýrum Kristjáns Jósepssonar og að þvi uppboði loknu fullnægt hinni veraldlegu makt. Þvi skora ég á alla sanna drengskapar- menn að mæta á þessu uppboði og freista þess að safnið sundrist ekki frekar en orðið er og svara aðför þessari á þann eina hátt sem allra þjóða og allra tíma ójafnaðarmenn og kúgarar skilja: ÞOGN. EYÐA ÞARF AUÐVALDINU Lárus Ingibergsson verkamaður skrif- ar: Ég rakst á grein eftir Óskar P. Héð- insson í DB 1. sept. sl. þar sem hann ritar um ofsóknir kommúnista fyrr og nú. Ef þetta er ekki áróður hjá þessum blessaða manni þá veit ég ekki hvað áróður er, en hann úthúðar komm- únistum svo mér ofbýður. Það eru ábyggilega fleiri en verkamenn komm- únistar á Islandi. En þú segir orðrétt i grein þinni: „Ég sá fljótt í gegnum brögð þessa hyskis, sem var að megin- stofni skitugir verkamenn sem ekki buðu góðan dag.” Ja mikil er raun hinna háu herra þegar hinn skítugi verkamaður er hættur að skriða fyrir þeim og farinn að hugsa sjálfstætt. Því miður hafa verkamannaþrælamir þurft að vera illa klæddir og óhreinir i gegnum árin svo þið háu herrar gætuð lifað i vellystingum. Þú sérð kommún- ista í öðrum hverjum manni sem ekki er titlaður framkvæmdastjóri eða meira. og sem ekki hafa getað borgað mannsæmandi laun. þannig að verka- menn gætu fengið sér mannsæmandi föt svo þeir óhreinki ykkur ekki þegar þess er krafizt að þeir bjóði góðan dag. En góði maður hefurðu ekki gert þér grein fyrir því að við búum í lýð- frjálsu landi, þar sem hver maður má hafa sína trú og sína skoðun. Og að ætla að Sjálfstæðisflokkurinn eigi að drepa niður kommúnista finnst mér fáránlegt eða heldurðu að hann hafi verið stofnaður til þess. En nóg um það. Siðar í sömu grein kemur þú, hr. framkvæmdastjóri, inn á álverið við Straumsvik þar sem þú segir að ham- ingja og gleði hafi skinið út úr and- litum verkamannaog þeir jafnvel sung- ið við vinnu sina (Erlu viss um að þeir hafi ekki verið kommúnistar?) Ég á bágt með að trúa þessu þar sem þetta er þannig vinna við erfiðar aðstæður og mikinn hita. Mig minnir að það hafi verið og sé enn afar óhollt að vinna þar og menn eigi það á hættu að fá svokallað stállunga. og þá sérstak- lega í kerskálunum. þó það hafi kannski lagazt eitthvað eftir að byggt var yfir hluta af kerjunum. Kannski þeir hafi verið svona hamingjusamir yfir að eiga von i að komast inn i alls- nægtirnar á Vífilsstöðum sem þú segir aðséu þar. Svo að lokum þetta: þegar plast- kvoðutankur ykkar feðganna sprakk í loft upp á Reyðarfirði segir þú að þessi atburður hafi verið hið mesta happ fyrir byggðarlagið. Ja. er það ekki furðulegt að þegar þorri landsmanna er að berjast á móti mengun i landinu skuli vera til sá maður sem hreinlega hælir sér af því að hafa mengað heilt byggðarlag. Já er það ekki furðulegt hvar sumir nienn eru þjóðhollir. Guð blessi hina frjálsu Íslendinga segir þú þegar fráfarandi ríkisstjórn sem sat í fjögur ár (fjórum árum of lengi) er svo gott sem búin að setja þennan hraunhólma.á hausinn vegna erlends skuldabagga sem nemur mörg hundruð þúsundum á hvert manns- barn í landinu. Og sem ekki hafa getað haldið uppi sjálfstæði i landinu nema pieð tilkomu hers sem sjálfstæðismenn hafa nú tryggt okkur til eilifðar. Bréfritarí segir að afar óhollt sé að vinna i Álverinu. Torfæruaksturskeppni Björgunarsveitin Stakkur í Keflavík heldur torfæruaksturskeppni viö Grindavík sunnudaginn 17. sept. og hefst kl. 14. Væntanlegir keppendur láti skrá sig í símum 92-2874 (Ragnar) eda 92-2009 (Verzl. Duus) fyrir hádegi laugardaginn 16. sept. Spennandi keppni — Góð verð/aun Björgunarsveitín Stakkur Spurning dagsins Hver er uppáhalds- íþróttahetjan þín? Jóhann Björgvinsson, 14 ára: Ath Eðvaldsson i Val. Hann er mjög góður knattspyrnumaður. Margrét Ötöf Héðúisdótttr, II ára: Hreinn Halkkmson. Hann vann i Fvrópumeisiaramóti I kuluvarpi. svo er hann svakalega sterkur maður. Jón Sigurðssun, 12 ára: Auðvitað strákarnir i Val. Þeir urðu Íslandsmeist arar i knattspyrnu. þess vegna eru þcir i uppáhaldi hjá mér. Ég held lika með Val. Egill Arnarsson, II ára: Það er hann Hreinn Halldórsson. Hann cr lika ofsalega sterkur. F.lin Jónsdóttir, 10 ára: Hreinn Halldórsson. Hann er góður i kúluvarpi. Hann er lika næstum þvi sterkasti maður i heimi. Ingigerður Fanney Bragadóttir, 9 ára: Hreinn Halldórsson. Hann hefur unnið svo mörgum sinnum. Svo er hann líka svakalega sterkur.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.