Dagblaðið - 16.09.1978, Blaðsíða 24

Dagblaðið - 16.09.1978, Blaðsíða 24
 Kjarabótakjötið” var vföa uppselt er til átti að taka Forráðamenn kjötmála telja þó 600tonn til í landinu ) Mikil örtröð var hjá kjötverzlunum í gær og vildu jafnvel fleiri en fengu kaupa heila skrokka af gamla kjötinu frá í fyrra, enda var gott verð á kjötinu eða 679 krónur í heilum skrokkum. En viða gripu menn i tómt. Birgðir verzlana gengu viða til þurrðar og annars staðar hafðist ekki undan 'að saga svo ekki fengu allir að njóta „kjarabótakjötverðsins” í gær. Þeir sem hugðust verzla í Sláturhúsi KEA á Akureyri eins og þeir voru vanir gripu þar í tómt. Allt gamla kjöt- ið búið. Nokkrar verzlanir á Akureyri áttu þó kjöt. Akureyringar töldu að vinnslustöð KEA hefði keypt allar birgðirnar af Sláturhúsi KEA en tals- menn sláturhússins afneituðu því með öllu. Á Dalvík var heldur ekkert kjöt að hafa, allt hafði verið sent inn á Akureyri. Sveinn Tryggvason framkvæmda- stjóri Framleiðsluráðsins taldi óvíst hversu miklar birgðir væru til af gamla kjötinu. Gizkaði hann á 3—600 tonn á öllu landinu. Það hefði átt að nægja til mánaðarneyzlu undir eðlileg- um kringumstæðum en nýtt verðlag og miklu lægra breytti öllu um eftir- spurnina og vafalaust myndi gamla kjötið hreinsast upp á fáum dögum. Sveinn kvaðst telja trúlegt að vinnslu- stöðvarnar reyndu að tryggja sér eitt- hvað af þessu kjöti. Slikt myndu fleiri gera í þeirra sporum. En ástandið á kjötmarkaðinum væri óeðlilegt nú þar sem hvað kæmi ofan á annað, nýtt og gamalt verð, sláturtíð og söluskattsaf- nám. Agnar Tryggvason forstjóri Bú- vörudeildar SÍS taldi að um 600 tonn af gömlu dilkakjöti væru til i landinu. Það getur alls ekki gengið að einhver einn eða fáir aðilar fái það kjöt sem nú er eftirsótt. Á Kirkjusandi verður tekin upp skömmtun og kjötinu skipt eðlilega milli þeirra verzlana sem þar verzla að staðaldri og fólks sem þangað leitar og hefur leitað eftir kjöt- kaupum í heilu. Vigfús Tómasson, sölustjóri Slátur- félagsins, sagði að þeir ættu u.þ.b. 14 tonn af gömlu dilkakjöti. Það myndi verða selt í verzlanir sem fyrst en engin hagræðing hefði farið fram hjá SS milli frystihúss og vinnslustöðvar. í Borgarnesi voru talin vera til 30 tonn. Kjötbirgðastaðirnir eru hins vegar margir og vonandi koma öll 600 tonnin í leitirnar svo sem flestir fái „kjarabótakjöt”. - ASt. „Það er engin launung að Club 1 er ætlað að rifa skemmtanaiíf Reykja- vikur upp úr rislágri meðalmennsku og draga fram það yfirbragð sem flestir, sem eru með, hafa kynnzt á ferðum sínum erlendissegir í kynn- ingarbæklingi hins nýja klúbbs, Club 1, sem opnaður var í Óðali í fyrra- kvöld. Vissulega er mikið til í þessu því þarna er bryddað upp á tilraunum i þá átt að gera fólki kleift að fara út, eins og það er nefnt, án þess að fara endi- lega á háværan dansstað með öllu til- heyrandi. Séu menn þarna einir á ferð, og vilji vera einir, geta þeir m.a. gert sér það til dundurs að lesa í úrvali tímarita sem liggja frammi á staðnum, svo eitthvað sé nefnt. Klúbbur þessi er öllum opinn þar til ákveðinn hámarksfjöldi hefur skráð sig, þó með þvi skilyrði að af umsækj- endum fari gott orð, væntanlega hvað varðar vínmenningu. Jón Kaldal hannaði innréttingar sem miða að ró- legri og friðsamri stemmningu. Óðal á nú átta ára afmæli og hefur af því tilefni verið hresst upp á allan staðinn og m.a. opnaður lítill kaffibar á efstu hæð, svo eitthvað sé nefnt. Þá stendur til sú nýbreytni að koma upp nokkurs konar umferðarljósum utan á húsinu. Grænt ljós merkir að klúbbfélagar eigi greiðan aðgang að húsinu, gult einhverja bið og rautt að kominn sé forsvaranlegur fjöldi bæði i klúbbinn og á skemmtistaðinn. Til gamans má geta þess að sam- keppni Óðals og Hollywood, sem um skeið hafa státað af bleikum dyraum- búnaði, hefur verið nefnt bleika stríð- ið, og eigi það við rök að styðjast hefur það orðið báðum stöðunum til góðs. • G.S. Litill „kaffibar” hefur verið opnaður á efstu hæð hússins og af myndinni að dæmamá fá „úti það”. DB-mynd R. Th. Ný sékn í ’bleika stríðinu’: ÓÐAL OPNAR KLÚBB Fatlaðir búa sig undir gönguna: Mála kröfuspjöld Fólk á Grensásdeild Borgarspitalans var í óða önn að mála kröfuskilti i gær er DB-menn litu inn. Kröfuspjöldin á að bera í göngunni miklu frá Sjómannaskólanum til Kjarvalsstaða á þriðjudaginn. Þar ætla fatlaðir að hitta forystumenn borgarinnar að máli og leggja fram kröfur sínar. Gangan hefst klukkan þrjú og er ætlað að hún taki klukkutíma. DS/DB-mynd Hörður. fiýálst, úháð dagblað LAUGARDAGUR 16. SEPT. 1978. LO styður viðbakiðá stjórninni Frá fréttamanni DB, Sigurjóni Jó- hannssyni, Osló: Allt bendir til að Verkamanna- flokkurinn og LO, norska alþýðu- sambandið, muni styðja nokkurn veginn heils hugar launa- og verð- stöðvunarlög norsku ríkisstjórnar- innar, einkum vegna þess að stjórnin hefur jafnhliða ábyrgzt að halda uppi fullri atvinnu. LO hefur þó þann fyrirvara á að ríkisstjórn- in reyni að hækka laun eða auka kaupmátt hjá hinum lægst laun- uðu, einnig að tryggt verði að bændur og sjómenn og aðrir hópar utan LO fái ekki launahækkun á timabilinu. Það hefur nókkuð verið gagn- rýnt af hálfu stærstu launþegasam- takanna að ríkisstjórnin skyldi ekki hafa haft samráð við þau áður en aðgerðir hófust. Annars eru flestir fjármálasér- fræðingar vongóðir um árangur aðgerðanna, einkum þar sem hér verður launa- og verðstöðvun i senn. Á síðustu árum hafa skamm- tíma verðstöðvanir nokkrum sinn- um verið reyndar en með sáralé- Kátur heitir hann þessi og hefur heldur betur krækt sér i beinin, hvílík veizla! — Sumarmynd DB— Högni Sturluson. Dagur dýranna Dagur dýranna er á morgun, sunnudaginn 17. september. Er það árlegur fjáröflunardagur Sam- bands dýraverndunarfélaga ís- lands. Stjórn sambandsins bendir á knýjandi nauðsyn að endurskoða gildandi lög um dýravernd, þvi þau séu á margan hátt ófullnægjandi. Eru refsi- og sektarákvæði ekki í neinu samræmi við núverandi verðgildi krónunnar. Einnig dregur stjórnin í efa að allur al- menningur og löggæzluyfirvöld fari að öllu eftir þessum lögum. í þeim segir m.a. að öllum sem hafi umsjá með eða eigi dýr beri að sjá svo um að dýrin fái nægilegt vatn, fóður og viðhlitandi umhirðu. Sömuleiðis beri að sjá dýrum fyrir skjólgóðum og rúmgóðum veru- stöðum. Dagur dýranna er ekki aðeins fjáröflunardagur sambandsins heldur einnig til þess að minna landsmenn á málleysingjana sem ekki geta borið hönd fyrir höfuð

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.