Dagblaðið - 21.09.1978, Blaðsíða 24
Ólafur Ragnarsson formaöur Samstarfs-
nefndar um reykingarvarnir.
DB-mynd Ari.
Varnarvika gegn
reykingum:
Kostnaður
þjóðfélags-
ins meiri
en nemur
tekjunum
— af tóbaksreykingúm
— reyklaus dagur
íjanúarnk.
Nú stendur yfir varnarvika gegn reyk-
ingum, en talið er að reykingar valdi
meira heilsutjóni og fleiri ótimabærum
sjúkdómum en nokkur annar áhættu-
þáttur sem þekktur er í sambandi við
sjúkdóma.
Það kom fram á blaðamannafundi
Samstarfsnefndar um reykingarvarnir í
gær að kostnaður þjóðfélagsins vegna
reykinga landsmanna er mun meiri en
þær hreinu tekjur, sem tóbakssalan
skilar í ríkissjóð. Þar eru þó ekki talin út-
gjöld einstaklinganna sjálfra vegna tó-
bakskaupa, heldur sjúkrakostnaður og
tapaðar vinnustundir og fleira. Hreinar
tekjur rikissjóðs af tóbakssölu á síðasta
ári námu 4 milljörðum króna.
Hálfu prósenti af tekjum ríkissjóðs af
tóbakssölu ársins eða 20 milljónum er
varið til tóbaksvarna. Þessi upphæð er
lægri en reksturskostnaður tveggja
sjúkrarúma á íslenzku sjúkrahúsi.
Á þriðjudag 26. september gengst
samstarfsnefndin fyrir ráðstefnu um
reykingar og heilsufar á Hótel Loft-
leiðum og síðan hefur verið ákveðinn
reyklaus dagur 23. janúar nk. Þá er
ætlunin að fá sem flesta landsmenn til
þess að reykja ekki þann dag og vonandi
Keflavíkurflugvöllur:
ÞRENGT AÐ
FLUGLEIÐUM
Varaarliðið ætlar sjálft að nota hluta þess húsnæðis,
sem Flugleiðirhöfðu afnot af
Nú stendur fyrir dyrum að fram-
lengja samning varnarliðsins og Flug-
leiða um afnot Flugleiða af flugskýli á
Keflavíkurflugvelli. í drögum að
nýjum samningi gerir varnarliðið ráð
fyrir að Flugleiðir fái áfram afnot af
því fasta húsnæði, sem félagið hefur
nú.
Hins vegar kemur fram í fundar-
gerðum um málið að félagið fái ekki
lengur afnot af aukaplássi þvi sem það
hefur haft í allnokkur ár og notað
mikið. Tvær Boeing þotur eru ávallt á
Keflavíkurflugvelli á næturnar. Þegar
húsnæði Flugleiða hefur verið skert
verður aldrei hægt að hýsa nema aðra
þeirra.
Þá skapast örðugleikar við viðgerðir
annarrar þotunnar ef hin er í stórri
skoðun og teppir alveg skýlið. Við
þetta bætist svo að upp úr áramótum
er stefnt að því að framkvæma þær
viðgerðir, sem við verður komið á
Arnarflugsþotunum tveim, á Kefla-
vikurflugvelli.
Staða þessamálser nú fyrir skerðing-
una sú, að Flugleiðir hafa þegar of
lítið pláss fyrir þessa starfsemi sína,
svo ljóst má vera hvaða ástand skapast
meö skertu húsnæði, jafnhliða tveim
þotum í viðhald að auki.
Skýli það sem Flugleiðir hafa nú af-
not af er ekki eitt þeirra sem talin eru
i eigu lslendinga. Vamarliðið mun
fyrirhuga þessa skerðingu þar sem það
er sjálft I vandræðum vegna ónógs
skýliskosts. Það skal tekið fram að I
viðtölum við Flugleiðamenn um þetta
mál kom alls staðar fram að sambýlið
við varnarliðið hefur gengið mjög vel.
-G.S.
brigðiseftirlitið
„Nei, það er ekki um neina meindýra-
plágu að ræða. Tilefni þessarar ábend-
ingar frá okkur eru umræður á nám-
skeiði meindýraeyða sem haldið var fyrir
skömmu. Þar kom fram að ástæða væri
til að minna á þetta,” sagði starfsmaður
hjá Heilbrigðiseftirliti rikisins í samtali
,við DB.
í gær sendi Heilbrigðiseftirlitið frá sér
tilkynningu þar sem á það er bent að
gefnu tilefni að verði meindýra vart (en
til meindýra teljast rottur, mýs, veggja-
lýs, kakkalakkar og önnur vádýr i
húsum eða á lóðum, skuli tilkynna það
heilbrigðisnefnd og gera ráðstafanir til
útrýmingar dýrunum í samræmi við
fyrir mæli nefndarinnar.
Þá er á það bent í tilkynningu Heil-
brigðiseftirlitsins að eyðing á rottum
skuli fara fram tvisvar á ári í öllum sveit-
arfélögum landsins, þar sem þeirra
verður vart.
Eins bendir eftirlitið á lög um hunda-
hald og varnir gegn sullaveiki, en sam-
kvæmt þeim skulu allir þeir sem eiga
hunda, eldri en misseris gamla eða hafa
þá undir höndum, láta hreinsa þá af
bandormum einu sinni á ári að liðinni
aðalsláturtíð I október eða nóvember.
GM
Hér er einn af bjargvættum Heilbrigð-
iseftirlitsins, heimilisköttur sem dag-
farslega er fátt nema gæflyndið. Hér á
hann i höggi við einn af óvinum eftir-
litsins, og þá breytist kisi í óargadýr.
DB-mynd Magnús Hjörleifsson
„ENGIN MEINDYRAPLAGA”
—segirHell-
Aðalf undur Dagblaðsins í gærkvöldi
2,6 milljónir í hagnað
— hefði orðið 10 milljónir með ríkis„ölmusu”
Dagblaðið hafði um 2,6 milljónir I
hagnað á síðasta ári. Þetta kom fram á
aðalfundi hlutafélagsins í gærkvöldi.
Þá var búið að afskrifa fyrir 9,3 millj-
ónir, þannig að rekstrarfjárstaðan
batnaði á árinu um tæpar 12 milljónir.
1 ræðu stjórnarformanns, Björns
Þórhallssonar, kom fram, að ef Dag-
blaðið þægi „ölmusu” ríkisins eins og
öll hin blöðin hefði hagnaður DB
orðið lOmilljónir.
Bjöm sagði að beiðni blaðanna nú
um leiðréttingu á verðlagi sinu vegna
orðinna verðhækkana hefði enn ekki
verið sinnt, þvi að ráðamenn hygðust
leita annarra leiða til að styrkja blöðin.
Sem sagt auka rikisstyrkinn til allra
pólitisku blaðanna og láta almenning
borga brúsann. Engum getum þyrfti
að leiða að þvi, gegn hvaða fjölmiðli
slik atlaga væri gerð.
Björn sagði að Dagblaðinu hefði vel
tekizt að halda fullu hlutleysi í allri
meðferð mála í kosningunum. Það
hefði þvi enn aukið virðingu sina.
Þetta væri samdóma álit allra, sem um
það hafa fjallað.
Þá kom fram i ræðu Björns, að
teikning hefur verið gerð af framtíðar-
húsbyggingu á lóð félagsins að Þver-
holtill.
Velta félagsins jókst á síðasta ári úr
270 i 419 milljónir. Ætla má aö hún
verði að minnsta kosti 650 milljónir i
ár.
Við hagnaðinn á síðasta ári varð
höfuðstóll félagsins jákvæður í fyrsta
sinn.
Samþykkt var að ekki skyldi
greiddur arður.
Stjórnin var öll endurkjörin. Hana
skipa: Axel Kristjánsson forstjóri,
Björn Þórhallsson form. landssam-
bands verzlunarmanna, Haukur
Helgason, ritstjórnarfulltrúi, fulltrúi
starfsfólks, Jónas Kristjánsson ritstjóri
og Sveinn R. Eyjólfsson framkvæmda-
stjóri.
Reikningsyfirlit DB og ræða Björns
verða birt i blaðinu á morgun. . HH
Srfálst, úháð dagblað
FIMMTUDAGUR 21. SEPT. 1978.
Hlíðaskóli:
Drengir og
stúlkur saman
íleikfimi
„Jú. Þessu er þannig háttað í 1., 2. og
3. bekk og raunar einnig i 7. bekk,” sagði
Ásgeir Guðmundsson skólastjóri Hlíða-
skóla er DB spurði hann hvort það væri
rétt, að drengir og stúlkur væru saman í
leikfimi, en blaðinu hafði borizt til eyma
að óánægja væri ríkjandi í röðum nem-
enda með þessa skipan mála, og ætti það
fyrst og fremst við um 7. bekk en hann
skipa unglingar á viðkvæmu aldursstigi,
13 ára.
Ásgeir sagðist ekki kannast við að
þetta hefði valdið óánægju og hefðu t.d.
ekki borizt neinar kvartanir frá foreldr-
um þessara unglinga á nýafstöðnum for-
eldrádegi i skólanum. Hins
vegar væri hér um tímabundið vanda-
mál að ræða sem yrði leyst mjög fljót-
lega þ.e.a.s. varðandi 7. bekkinn en
hann benti jafnframt á að þessi háttur
væri hafður á og þætti ekki tiltökumál.
-GAJ-
Cargolux
selur
„Rollsana”
í gærkvöldi var gengið frá sölu þeirra
tveggja CL-44 véla, sem Cargolux átti,
en áður voru I eigu Loftleiða og notaðar
í Norður-Atlantshafsflugið, gjarnan
undir nafninu „Rollsarnir”.
Sem kunnugt er eiga Flugleiðir þriðj-
ung í Cargolux. Kaupandi vélanna er
nýstofnað flugfélag i Equador i S-
Ameríku og mun söluverð vélanna hafa
losaðeinn milljarðisl. króna.
-G.S.
Næsta
gengis-
felling
í janúar?
í útreikningum, sem hagdeild Vinnu-
veitendasambandsins hefur látið gera í
samvinnu við Framleiðni sf„ er gert ráð
fyrir, að verðjöfnunarsjóður verði tómur
i janúar og þá verði að koma til 12,5 pró-
sent gengisfelling.
Síðan er reiknað með hverri gengis-
fellingunni af annarri á næsta ári,
þannig að gengi dollars hækki um 58
prósent frá því sem nú er til áramótanna
1979—80.
Samkvæmt útreikningunum mun
reynast ókleift að stemma stigu við verð-
bólgunni, þótt engar grunnkaupshækk-
anir verði, ef visitölubætur verða greidd-
ar samkvæmt núgildandi kerfi. Laun
munu þá hækka um 57 prósent frá 1.
september síðastliðnum til ársloka 1979,
og verðlag um 42,9 prósent frá 1. nóv-
ember næstkomandi til 1. nóv. 1979.
—HH
írKaupið\,
TÖLVUR. gl
lac OG TÖLVUUR “!
B AN K ASTRÆTI8