Dagblaðið - 30.09.1978, Blaðsíða 3
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 1978.
3
Hver amast
við þessari
framkvæmd
lengur?
Kópavogsbúi skrifar:
Umræður manna á meðal um ýmis-
legt sem stjórnvöld eru að sýsla með
hverju sinni mæta oft aðkasti. Sagan
ein sker úr um hver hafði rétt fyrir sér.
Eigum við að taka sem dæmi Kópa-
vogsbrýrnar og vegamannavirkið
gegnum kaupstaðinn? Hver heldur því
fram í alvöru núna að þar hafi verið
kastað peningum? Mannvirki þetta
hefur komið í veg fyrir algjört öng-
þveiti i kaupstaðnum og fyrir þá sem
aka þurfa suður til Hafnarfjarðar,
Garðabæjar og Suðurnesia.
Nú, eða eigum við að taka
Miklubrautina? Mikið var nú rifizt um
þá framkvæmd. Er einhver sem heldur
því fram aö þar hafi verið gerð einhver
reginmistök? Eða Hallgrimskirkju-
turn, svo við snúum okkur að
öðrum framkvæmdum annars eðlis.
Þeir eru ákaflega fáir sem amast
lengur við þeirri framkvæmd sem er
ein fárra i borginni sem einhvern svip
seturá umhverfið.
"Væntanlega verður það eins með
Borgarfjarðarbrúna, eftir svo sem
10—15 ár amast enginn við henni.
Þvert á móti. Þá finnst öllum sjálfsagt
að yfirvöld skyldu leggja út i þann
kostnað sem framkvæmdinni var
samfara.
Við ættum að hugsa í víðara og
stórbrotnara samhengi, Islendingar.
Þröngsýni er hættuleg veiki.
Hættan í umferðinni
1730-2094 hringdi:
Ég tek undir það sem húsmóðir i
Hafnarfirði sagði um þá hættu sem
gangandi vegfarendum í Hafnarfirði
er búin. Nefna má sem dæmi mikla og
4C
Aldrei verö.ur of oft brýnt fyrir öku-
mönnum að fara varlega þar sem börn
eru nálægt akbrautum.
hraða umferð um Hjallabraut í
norðurbæ Hafnarfjarðar. Yfir þá götu
þurfa skólabörn að fara til þess að
komast í skóla. A Hjallabraut er
nánast engin löggæzla.
Þá eiga að ganga rútur með börnin, .
t.d. í iþróttahúsið við Strandgötu en í
fyrravetur varð oft misbrestur á
þessum rútuferðum. Áætlun stóðst
ekki og stundum féllu ferðir algerlega
niður. Af þvi leiddi að litil og óvön
börn i umferð þurftu að bjarga sér á
eigin spýtur.
Raddir
lesenda
L
GRÆNa
ORGID
Haustlauka-
kynning og
sýnikennsla
Haustlaukakynning og sýni-
kennsla verður á græna torg-
inu í dag og á morgun, sunnu-
kl. 2—7.
ið fagmenn aðstoða við val
haustlaukanna.
Linda, Bjarni og Sævar leiðbeina um helgina. Heimsœkið
GRæjKA
TORGIÐ
um helgina!
Myndin ekki
tekin á
bensínstöð
inni við
Ártúnshöfða
„Mundi” hringdi:
Illa lízt mér á leigjendasamtökin.
Með því að boða til blaðamannafund-
ar og nefna þar óraunhæf dæmi um
húsaleigu eða a.m.k. hrein undan-
tekningartilfelli eru þeir í raun að
berjast gegn eigin hagsmunum. Með
þessu móti eru þeir að auglýsa upp
mjög hátt leiguverð og sprengja ,á
þann hátt upp verðlagið á
markaðnum. AÍveg það sama gildir
um kröfu þeirra að leigan verði öll
gefin upp til skatts. Það vita allir að
það hefur lengi tiðkazt að gefa ekki
nema hluta af húsaleigunni upp til
skatts. Á þann hátt hefur verið hægt
að komast hjá því að leigan ryki upp
úr öllu valdi. Þetta hefur verið bæði
leigutaka og leigusala í hag. Það er
greinilegt að það eru einhverjir
kommúnistar sem halda um stjóm-
völinn í leigjendasamtökunum og eru
eins og þeim er einum lagið að grafa
undan eigin hagsmunum.
Guðmundur Rögnvaldsson af-
greiðslumaður bensínstöðvar Essó á
Ártúnshöfða hringdi:
Bílstjóri nokkur hefur kvartað yfir
þjónustu á bensinstöðinni hér og er
það sjálfsagt maður sem hefur reiðzt
einhverju. Slík nafnlaus bréf eru þó
ekki svaraverð. En á mynd sem íylgdi
greininni var maður sem afgreiddi
sjálfan sig og á það væntanlega að
tákna hina lélegu þjónustu hér. Mynd
þessi er ekki tekin á okkar stöð enda
afgreiðum við ekki á brúsa þar sem
það er bannað.
Mynd þessi mun hafa verið tekin
fyrir verkfall, þegar einhver bilstjóri
birgði sig upp, en á því tökum við ekki
ábyrgð.
húsaleigusamnings á fundi sinum og þá
DB-mynd Hörður.
LÍZT ILLA Á LEIGJ-
ENDASAMTÖKIN
Spurning
dagsitis
Er gaman í
skólanum?
(Nemendur í Laugarnesskóla spurðirl.
Aðalsteinn Valdimarsson, 8 ára: Já. ja,
Lestur er skemmtilegur. Stundum les ég
vel. Þegar ég fer út i fríminútur þá
förum við stundum I fótbolta og hlaupa
og svoleiðis. Ég er i níu ára bekk.
Svavar Jöhann Eiriksson, 9 ára: Það er
ágætt. Mér finnst mest gaman i leikfimi.
Kennarinn minn heitir Skúli. Hann
leyfir okkur að fara i hástökk og hlaupa.
Stórfiskaleikur er i friminútum. Það er
svona hlaup á planinu og að elta.
Helgi Björnsson, 10 ára: Það er ágætt
þegar maður nennir. Lestur finnst mér
skemmtilegastur. Ég er svo sem ágætur i
honum. Mér finnst líka gaman að leika
og kjafta úti í frimínútum.
Anna Margrét Bridde, 6 ára: Já. þaö er
gaman. Við litum og klippum.
Kennarinn minn heitir Bergljót. hún er
góð og skemmtileg líka. Þegar við erum
úti þá erum við að klifra og vega og
margt fleira.
Laufey Pétursdóttir, 7 ára: Já, mest
gaman er að lita i bókina. sem ég er að
skrifa. Ég skrifa hringi og strik.
Styrkár Jóhannesson, 11 ára: Það er
ágætt. Ætli mér finnist ekki skemmtileg-
ast í skrift. Nei, já, ég skrifa ekkert svo
ofsalega illa. 1 frimínútum erum við í
fótbolta og i eltingaleikjum, það getur
verið ágætt.