Dagblaðið - 30.09.1978, Qupperneq 5
DAGBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 1978.
5
----- Landakotsspítali: -
RÍKIÐ HEFUR
EKKISTAÐIÐ
VIÐ LOFORÐIN
Lausnin á f jármálavandanum hef ur reynzt kák eitt
„Ástandið á Landakoti hefur aldrei
verið eins svart og nú hvað fjárhaginn
snertir, og hefur þó oft verið ástæða til
að kvarta,” sagði Logi Guðbrandsson
framkvæmdastjóri Landakotsspítala í
viðtali við blaðið i framhaldi af orðum
Ólafs Arnar Arnarsonar læknis I
blaðinu I gær.
„Afkoman var sæmileg I upphafi árs
en snemma tók að siga á ógæfuhliðina.
Daggjöldin stóðu ekki undir kostnaði og
réð ört hækkandi launakostnaður þar
mestu um. 1 vor var fjárhagsstaðan
þegar slæm og um mitt ár var skulda-
bagginn orðinn 150 milljónir króna. Við
báðum þá um úrbætur og fórum helzt
fram á að fá fjársummu til að jafna hall-
ann og síðan hækkuð daggjöld til að
mæta hækkandi kostnaði,” sagði Logi.
Hann lýsti þvi síðan að „úrbætumar”
sem spítalinn fékk við beiðni sinni hefði
verið 1100 króna hækkun svokallaðra
jöfnunardaggjalda (sem er hluti heildar-
daggjalda)frá l.júlí.
„Þessi „lausn” þýddi að þann halla
sem safnazt hafði á hálfu ári var hægt að'
greiða með þessarí hækkun á rúmlega
tveimur árum,” sagði Logi. „Auk þess
fengum við „lán” að upphæð 75 millj.
kr. en það átti að endurgreiðast af dag-
gjöldum spítalans fyrir júlí, ágúst og
september, svo þarna var ekki um lán að
ræða heldur fyrirframgreiðslu. Millj-
ónirnar 75 voru bara notaðar til að
borga það sem brýnast var. Síðan jókst
vandinn hröðum skrefum þvi mánuðina
júli-september fékk spítalinn ekki nema
um 50 millj. kr. í daggjöld hvern mánuð
í stað 75 þvi 25 voru teknar til afborgun-
ar „lánsins”,” sagði Logi.
Hann kvað viðskiptaaðila spitalans
hafa verið mjög liðlega en takmörk
hlytu að vera fyrir þeirra velvilja.
Siminn er nú aö missa þolinmæðina,
hefur þegar lokað beinum linum í starfs-
mannahaldi og á augndeild. Rafveitan á
nokkrar milljónir hjá spitalanum og þar
er Landakot komið á lokunarlista.
Logi sagði að nú væri til lokaákvörð-
unar ný daggjöld og vonandi sæi dag-
gjaldanefndin nú hver vandinn væri.
Kvað Logi nefndina litlar sem engar
athugasemdir hafa fengið við rekstur
spitalans en hann taldi reksturinn ekki
frábrugðinn rekstri annarra spítala. í
fyrra hefðu þeir heyrt utan úr bæ gerðar
athugasemdir vegna mikils viðhalds.
Skýringin væri sú að þegar systurnar
fluttu út þurfti ýmsu að breyta og hafði
það sérstakan kostnað I för með sér.
Hins vegar kvaö Logi viðhald á Landa-
kotsspitala vera hlutfallslega lægra í
heildarkostnaði spítalans en t.d. á Land-
spítalanum.Viðhaldskostnaður á Landa-
koti var 4,54% af heildarveltunni 1977
en var 4,9% hjá Landspítalanum.
„Landakot hefur nú um 5000 legu-
daga á mánuði hverjum. í daggjöldum
gerir það um 160 milljónir króna.
Siðustu þrjá mánuði hefur launakostn-
aður verið um 135 milljónir króna og 25
milljónir farið I að borga „skuldina”
áðurnefndu. Peninga til alls annars
hefur skort, matinn, lyfin, símann, raf-
magn, hitaveitu og fleira. Allt hefur
verið fengið að láni,” sagði Logi.
Logi taldi eðlilegt að yfírvöld segðu að
ekki mætti eyða fram yfir ákveðna upp-
hæð. En væru slík fyrirmæli gefín yrði
að fylgja hverju ætti að hætta, hvaða
þjónustu ætti að draga saman. Það hefði
sem sé skort helminginn af fyrirmælun-
um aðofan.
Logi taldi að deila mætti um dag-
gjaldakerfí og einnig að sjúkrahúsin
færu á fjárlög. Þar væri ekki um aðra
breytingu að ræða en með fjárlagakerf-
inu mætti segja að daggjöld væru
ákveðin til lengra timabils.
Logi taldi nauðsyn bera til að daggjöld
Landakots yrðu hækkuð. Spítalinn hefði
sýnt jafngóðan eða betri rekstur og aðrir
og fyrir það ætti hann ekki að liða. í
skipulagsskrá fyrir Landakotsspítala frá
áramótum 1976—1977 segir í 5. grein:
„Rikið skuldbindur sig til þess að sjá
spitalanum fyrir rekstrarfé til reksturs
starfseminnaL” Við þau orð hefur ekki
verið staðið.
■ASt.
Unga fólkið skoðar starfsemi DB:
Krakkarnir höfðu gaman af að pikka sjálfir á ritvélarnar og reyna sig sem alvöru-
blaðamenn.
Nýja lambakjötið
gengur vel í Danskinn
Þær fréttir hafa nú borizt búvöru-
deild SÍS að nýja lambakjötið sem
deildin sendi flugleiðis á markað þar
fyrir skömmu hafi horfið eins og dögg
fyrir sólu og verið í mjög góðu ásig-
komulagi eftir flutninginn.
Aö sögn Gunnlaugs Björnssonar,
aðstoðarframkvæmdastjóra deildar-
innar, þykir verðið fulllágt i Dan-
mörku en þó sé ákveðið að halda
áfram tilraunasölu þangað í þeirri von
að unnt verði að skapa aukna eftir-
spurn sem síðan kynni að leiða til
hækkaðs verðs.
Stendur til að senda fjögur tonn
utan i þessari viku, mun stærri
skammt en áður, og síðan vikulega til
Kaupmannahafnar út sláturtíðina.
Gerð var tilraun með að senda sams
konar kjöt til Frakklands en þar
fékkst óhagstæðara verð. Tilraunir
þessar eru gerðar að undirlagi mark-
aðsnefndar sem landbúnaðarráðu-
neytið skipaði í fyrra.
•G.S.
„Prent”vélamar hvað
mest spennandi
Þeir eru margir hópamir sem komið
hafa og skoðað starfsemi Dagblaðsins.
Ritstjórnin okkar var þó sammála um að
enginn hópur hefði verið jafnglæsilegur
og sá sem heimsótti okkur í gærmorgun.
Þetta voru krakkar frá Árborg — dag-
heimilinu í Árbæjarhverfínu í Reykja-
vík.
Þetta voru 4—5 ára krakkar, fullir
forvitni um hvaðeina, sem komnir voru í
fylgd með fóstrum sínum á ritstjórn
blaðsins og prentsmiðju. Kannski voru
þarna tilvonandi blaðamannaefni — eða
þá kannski prentarar.
Á ritstjórninni fannst krökkunum
hvað mest til um „prentvélarnar”, eða
ritvélar eins og við köllum það yfírleitt á
ritstjórninni. Þá fannst börnunum ekki
siður mikið til um myrkrakompu Ijós-
myndaranna en því miður var hinn sjálf-
skrifandi fjarriti frá Reuter ekki að
senda.
Hópi hinna ungu Árbæinga var svo
boðið upp á ispinna og að skilnaði var
glitmerki hengt aftan í hvern og einn en
þann búnað ættu reyndar öll landsins
börn að fá sér, sama á hvaða aldri þau
eru.
Kærar þakkir fyrir skemmtilega heim-
sókn, ungu Árborgarar! —
DB-myndir R.Th.Sig.
<" f Halla Jónsdóttir leiðir börnin I allan
Eftir svona leiðsögn er gott að svala sér i sannleika um það hvernig dagbók blaðs-
frostpinna. DB-myndir R.ThJSig. ins verður daglega tii.