Dagblaðið - 30.09.1978, Side 24
Dæmi úr Ámessýslu um áhrif sparnaðar dómsmálaráðherra:
TVÖFÖLDUN Á MANN-
AFLA í LÖGGÆZLU OG
FLUTNINGISJÚKRA
— kostar skattgreiðendur 100 milljónir aukalega og öryggiskerfið verður flóknara, segir
Jón Guðmundsson yfirlögregluþjónn á Seifossi
„Mig óar við að sjá þessa
uppbyggingu mölvaða niður i ekki
neiti og að það skuli lenda á
óverðugum. Þar á ég við sjúka og
slasaða,” sagði Jón I. Guðmundsson
yfirlögregluþjónn í Árnessýslu í viðtali
við DB í gær.
Blaðið hafði samband við Jón vegna
þeirrar ákvörðunar dómsmálaráðherra
að frá og með næstu áramótum skuli
lögreglumenn og bílar ekki sinna
sjúkraflutningum nema í neyðar-
tilvikum
Jón hefur starfað i lögreglunni í Ár-
nessýslu og þá jafnframt við sjúkra-
flutninga í röska tvö áratugi og átt
drjúgan þátt i uppbyggingu þessarar
þjónustu.
Nú hefur lögreglan í Árnessýslu yfir
að ráða fimm öflugum bílum, sem allir
eru vel búnir til sjúkraflutninga á
nútíma mælikvarða.
Að sögn Jóns hafa komið þeir dagar
að fjórir-fimm lögreglubílar eru að
sinna sjúkraflutningum í einu og
fluttu þeir á sjötta hundrað manns í
fyrra. Lögreglumennirnir eru þvi
orðnir vel þjálfaðir sjúkraflutninga-
menn.
Eins og gefur að skilja eru
vegalengdir í Árnessýslu margfaldar
á við vegalengdir i Reykjavík og því
ekki raunhæft að bera þessi mál
saman á þessum tveim stöðum.
Þá benti Jón á að á sumrin, þegar
geysilegur ferðamannastraumur væri
um héraðið, dreifðu lögreglubilarnir
sér á staði svo sem Laugarvatn,
Þjórsárdal, Þingvelli, Þorlákshöfn,
Hveragerði og Selfoss. Væri því oftast
mjög skammt i næsta lögreglu- og þá
jafnframt sjúkrabíl.
Vegna neyðartilvikanna, sem
ráðherra nefnir í bréfi sínu, taldi Jón
erfitt að dæma um slíkt hverju sinni.
Sagðist hann t.d. ekki vilja standa yfir
fótbrotnum manni, ekki lífshættulega
meiddum, og segja honum að bíða
eftir sjúkrabil sem kæmi einhvern
timann siðar.
Loks gat Jón þess að þrátt fyrir að
sjúkraflutningunum yrði komið á
annan aðila þýddi það ekki fækkun i
lögregluliði og bílaflota lögreglunnar í
Árnessýslu ef hún ætti áfram að halda
uppi löggæzlu á þann hátt sem henni
erfalið.
Skv. bréfi dómsmálaráðherra eiga
sveitarfélög að taka sjálf sjúkra-
flutninga í sínar hendur eftir ára-
mótin. Vegna þess snéri blaðið sér til
Hafsteins Þorvaldssonar, bæjar-
stjórnarmanns og sjúkrahússráðs-
manns á Selfossi, og bað hann að gizka
á hvaða aukabaggi þetta fyrirkomulag
yrði á sveitarfélög i Ámessýslu.
Sagði hann að lágmark væri að hafa
þrjá vel búna bíla og vegna vakta-
skiptinga allan sólarhringinn þyrfti 10
til 12 menn á þá, a.m.k. Ekki vildi
hann í fljótu bragði skjóta á neina
tölu en ekki mun vera fráleitt að tala
um 100 milljónir i stofnkostnað og
rekstur fyrsta árið, að launum
meðtöldum.
Benti hann á að bifreiðaeftirlitið og
lögreglan hefði nú aðsetur í sama
húsinu á Selfossi þannig að ef
slysaútkall kæmu færu t.d. tveir
lögreglumenn og einn bifreiðaeftirlits-
maður saman í bíl. Gætu þeir allt í
senn sinnt erindum bifreiðaeftirlits pg
lögreglu, veitt skyndihjálp og komið
þeim slasaða fljótt undir
læknishendur. Með nýja fyrir-
komulaginu þyrfti tvo bíla til sama
verkefnis og þann þriðja verði Bif-
reiðaeftirlitið og lögreglan aðskilin.
Kvað hann þessi mál i mjög
ákjósanlegu ástandi í Árnessýslu nú
og talaði hann þar af eigin reynslu sem
fyrrverandi lögregluþjónn. -G.S.
íminningu iátinnar skólasystur:
Reisið gangbrautarvita
á Suðurlandsbraut
— skólaböm skora á umferðaryfirvöld
Tvær tólf ára stúlkur i Laugarnes-
skóla höfðu frumkvæði um áskorun á
umferðaryfirvöld borgarinnar til þess að
láta setja upp götuvita á Suðurlands-
brautinni. Hörmulegt slys varð þarna
nýlega þegar leiksystir þeirra og ná-
granni beið bana á eða við gangbraut
sem þarna er.
Skólastjórinn, Jón Freyr Þórarinsson,
sem og kennarar Laugarnesskólans,
hafa aðstoðað við undirskriftasöfnun
sem umferðaryfirvöldum verður send.
Fjöldi íbúa í hverfinu og raunar víðar,
auk skólabarna 11 ára og eldri, hafa
tekið þátt i þessu framtaki og gengur
undirskriftasöfnunin vel. Gera má ráð
fyrir því að nokkur hundruð manna
verði til þess að vekja athygli á brýnu
nauðsynjamáli.
Auk barna úr Laugarnesskólanum,
sem erindi eiga upp fyrir Suðurlands-
braut, m.a. í ritfangaverzlun, sækja t.d.
börn úr Álftamýrarskólanum sund í
Laugardalslaugina. Þarna er á ferðinni
athyglisvert framtak sem þær Helga
Eiríksdóttir og Hrafnhildur Sigurgeirs-
dóttir áttu frumkvæði að í minningu lát-
innar leiksystur og nágranna.
Í framhaldi af þessu hafa í Laugarnes-
hverfi vaknað umræður og hugmyndir
um að gefa göngubrautum meiri gaum
og viðar en.þeirri sem hið hörmulega
slys skeði á.
BS
Tíðir veskjaþjóf naðir
Mikið hefur verið um veskjaþjófn- í „Torgi” SÍS við Austurstræti. Fund-
aði í stórhýsum miðborgar
Reykjavikur undanfarna daga. Var
þremur slíkum stolið úr skrifstofum i
Morgunblaðshúsinu á fimmtudaginn.
Fundust tvö þeirra siðar á Hallæris-
plani, auðvitað tóm. Þar á undan var
tveimur veskjum stolið úr vistarverum
ust þau tóm í húsi Gevafoto skammt
frá.
Faraldur þessi byrjaði fyrir um það
bil 10 dögum. Var þá stolið tveimur
veskjum í Landsbankahúsinu. Þau
fundust tóm í húsi Mjólkurfélagsins i
Hafnarstræti 5. -ASt.
Ungir sjálfstæðismenn þinga:
HVER ER EIGIN-
LEGA STAÐAN?
Þegar úrslit kosninganna sl. sumar
voru ljós orðin heyrðust raddir frá
ungum sjálfstæðismönnum í þá átt að
halda þyrfti landsfund til þess að ræða
hina nýju stöðu flokksins í stjórn-
málum. Ekki varð úr þeirri hugmynd.
Samband ungra sjálfstæðismanna
hefur nú boðað til aukaþings. Verður
það háð í Valhöll á Þingvöllum nú um
helgina. Hefst það í dag kl. 10-Ætlað
er að þvi ljúki annað kvöld.
Mikill áhugi ríkir meðal ungra sjálf-
stæðismanna á þessu þinghaldi. Eitt
hundrað og fimmtíu fulltrúar víðs veg-
ar að af landinu hafa boðaö komu
sina. Er búizt við fjölmenni á þinginu.
Starfsemi ungra sjálfstæðismanna
verður aö sjálfsögðu á dagskrá. Rætt
verður og um starfsemi Sjálfstæðis-
flokksins yfirleitt.
Meðal mála sem rædd verða eru
kjördæmamálið og efnahagsmálin.
Ráð er gert fyrir almennri stjórnmála-
ályktun þingsins.
Meðal þeirra sem ávarpa þingið eru
þeir Geir Hallgrímsson, formaður
flokksins, og Ellert B. Schram alþingis-
maður.
BS
Helga og Hrafnhildur — þær áttu frumkvæðið.
DB-mynd Ari.
„Hallærisplanið er
ekkieina athvarfið”
— segja ungtemplarar og benda ungu fólki á
diskótek fyrir unglinga 16 ára og eldri
I fréttatilkynningu sem DB hefur
borizt frá ungtemplarafélaginu Hrönn
er þvi mótmælt að ekkert sé um
skemmtanir fyrir unglinga í Reykjavik
um helgar. Þar segir að um rúmlega
tveggja mánaða skeið hafi diskó-
tekskemmtanir verið vikulega í
Reykjavik fyrir unglinga 16 ára og
eldri. 1 fyrstu hafi Diskótekið Disa
staðið að þessum skemmtunum í
Glæsibæ. Núna standi hins vegar
UTF Hrönn að slikum skemmtunum í
Templarahöllinni á laugardagskvöld-
um frá kl. 9—1 með aðstoð Diskóteks-
ins Dísu.
í fréttatilkynningunni segir að
markmiðið með þessum diskótek-
kvöldum sé að koma til móts við ungl-
inga og skemmtanaþarfir þeirra
þannig að „planið” margumrædda
þurfi ekki að vera eina athvarf þeirra á
helgarkvöldum. Templarahöllin tekur
á milli 200 og 300 manns þannig að
ljóst má vera að ekki er um algjört að-
stöðuleysi unglinga i Reykjavík að
ræða um helgar. -GAJ-
frfálst, óháð dagblað
LAUGARDAGUR 30. SEPT. 1978.
Nýfisksöluþjónusta
íKeflavík:
Þú getur
f engið ýsu
í áskrift
„Fólkið fær fiskinn sama dag og hann
bítur á krókinn og viðbrögð fólks við að
fá fiskinn sendan heim eru vonum fram-
ar,” sagði Guðjón Óskarsson i Keflavík í
viðtali við DB í gær.
Guðjón, ásamt öðrum til, hefur tekið
upp þá nýbreytni í fisksölu að safna
áskrifendum að ýsu. Ýmist fær fólk fisk-
skammt vikulega eða hálfsmánaðarlega.
Lágmarksskammtur er 5 kíló.
Fiskinn kaupa þeir félagar af línubáti,
slægja hann og þvo og aka svo til kaup-
enda. Ekki selja þeir enn flök en það er
til athugunar eins og fleira. Þjónusta
þessi er ekki nema hálfs mánaðar gömul
en samt eru áskrifendur orðnir um 70.
Áður en þeir byrjuðu létu þeir prenta
dreifimiða sem þeir dreifðu síðan í hús í
Keflavík og Njarðvíkum með þessum
árangri.
-G.S.
Börn fundu
pilluglös
í öskutunnu
Fimm börn fundu á mánudag fjögur
glös og eitt bréf með pillum í, i
öskutunnu við Vallargötu í Keflavík.
Var athygli lögreglunnar vakin á fundi
barnanna. Fóru lögreglumenn með
börnin heim til þeirra og skýrðu frá því
er fyrir hefði komið. Ekki var vitað
hvort eða hve mikið börnin hefðu
borðað af pillunum.
Um kvöldið var farið með tvö
barnanna í sjúkrahús, en það var frekar
til öryggis en að augljós merki pilluáts
hefðu komið frani. Engu hinna þriggja
sem hlut áttu að máli varð meint af.
Hér var um tauga- og giktartöflur að
ræða og voru þær raktar til sjúklings
sem hafði kastað þeim.
. -ASt.
Hassmálið:
Tvítugur
maðurí
gæzluvarð-
hald
Tvítugur maður hefur nú verið úr-
skurðaður í 20 daga varðhald vegna
rannsóknar á fikniefnamáli. Virðist hér
vera um nýtt mál að ræða og rannsókn
þess á frumstigi.
Fíkniefnadeildin getur að svo komnu
ekki skýrt frá því hvert umfang máls
þessa kann að vera.
BS
Kaupio
* TÖLVUR' í
I* OG TÖLVI
BANKASTRÆTI8
»^VII27S^«