Dagblaðið - 01.11.1978, Blaðsíða 3

Dagblaðið - 01.11.1978, Blaðsíða 3
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 1978. 3 Viðbrögð forstjóra Eimskips og Flugleiða skætingur og útúrsnúningar G.J.skrifar: Sjónvarpsþátturinn Kastljós 27. október var með líflegra móti, en þar áttust við Ólafur Ragnar Grímsson, alþingismaður; forstjóri Eimskips Óttarr Möller og Sigurður Helgason forstjóri Flugleiða. Varð þeim i meira lagi heitt í hamsi en umræðuefnið var hin svokallaða einokunar-árátta sem sumir álíta að eigi sér stað hjá þessum félögum. En satt að segja er ég engu nær eftir útskýringar forstjóranna. Hvers vegna er t.d. flugfar til Bandaríkjanna héðan og heim aftur miklu ódýrara en til meginlandsins. Til Lundúna t.d. kostar far fram og aftur rúmar 100 þúsund krónur, flugtíminn um tvær klukkustundir og 20 mínútur, en til New York er flugtíminn um 5 stundir. Mér þótti þátturinn einkennast af skætingi og útúrsnúningum, ekki rök- hyggju og auðskildum útskýringum. Skýringar forstjóranna voru loðnar og lítt skiljanlegar hinum almenna manni. Þeir komust fljótlega í striðs- ham, barþóannar af. Það sem almenningur skilur ekki er hvers vegna hinn mikli verðmunur á sér stað hjá báðum þessum félögum. Og alveg var það furðulegt þegar því var haldið fram að hagstæðust fyrir okkur væru flugfargjöldin á Evrópu- leiðum. En það kom lika fram að er- lendur ferðamaður sem hingað kemur, t.d. frá Skotlandi, nýtur mikilla hlunn- inda í flugfari og gistingu, en við eigum að greiða topp-verð ef við skreppum þangað. Og annað þótti mér harla einkennilegt, en það er að mun ódýrara er að fljúga frá Luxemburg til New York og þaðan til íslands en að fljúga beint frá Luxemburg hingað. Þetta er furðuleg krossgáta, enda leiddi forstjórinn þessi atriði i flugfar- gjöldum sem mest hjá sér. Sú hugsun er áleitin hjá mörgum að ef til vill sé „óhreint mél I poka” hjá báðum félögunum og því er gott að pokinn verði kannaður rækilega. Og gott var að heyra að forstjóri Eimskips fagnar því að rannsókn verði hafin á rekstri félagsins. Ifr Ólafur Ragnar Grímsson alþingis- maður. Viðureign hans við forstjóra Eimskips og Flugleiða i Kastljósi sl. föstudagskvöld hefur vakið mikla at- hygli. Hér er enginn skortur á sjónvarpstækjum en þau mættu vera fleiri á ýmsum spít- alanna. Kona frá Súgandafirði leggur nú til að menn gefi spitulunum gömlu sjón- varpstækin sin i stað þess að innsigla þau. DB-mynd Árni Páll Hringið ísíma 21022 mUSkl. 13oglS Kastljös: ANGISTARÓP FORSTJÓRA EIM- SKIPAFÉLAGSINS Gefa mætti notað tæki á hvern gang Kona frá Súgandafirði hringdi: Hún sagðist hafa legið á Landakoti nýlega og þar hefði verið góð vist. Starfsfólk vildi allt fyrir sjúklingana gera. En eitt fannst konunni að mætti laga. Aðeins eitt sjónvarp er fyrir sjúklingana og er það niðri i kjallara. Konan vildi beina þvi til fólks, sem nú er að hætta að nota sjónvarpstæki sín, hvort ekki væri hægt að gefa eins og eitt tæki á hvern gang. Sumir sjúklingar komast ekki i kjallarann en vilja engu að síður ekki missa af ýmsu efni t.d. spennandi framhaldsþáttum. Þormóður Guðlaugsson hringdi: skipaflutningum fram yfir Evrópu- Óttarr Möller kom fram í sjónvarp- markað gat hann sýnt þá reisn eftir að inu á dögunum með það eitt á vörum Helgi stjórnandi missti valdið á þætt- að Ólafur Ragnar Grimsson skyldi inum — að standa upp og segjast ekki ekki kaffæra sig. Raunin varð sú að tala við sér jafnvitlausa viðmælendur. Óttarr kom aldrei úr kafi enda þarf dá- En reisn hans vantaði og þekkingu, litla greind á móti Ólafi Ragnari og úr enda skipamiðlaranámskeið ekki mikil því að Óttarr ætlaði aldrei að svara þvi undirstaða skipareksturs, þótt amer- hvers vegna herinn ætti að græða á ísktsé. „Viltu ekki líka sápu og handklæði?” Kona hringdi: um vatn til að misstíga sig ekki. Þjónn- Ungur maður fór á veitingahús i inn sneri þá upp á sig og spurði hvort Reykjavík. Hann hefur verið á Free- hann vildi ekki líka sápu og hand- port og var þetta hans fyrsta ferð á klæði. vínveitingahús eftir komuna heim. Þessi framkoma þjónsins fannst Hann var því kvíðinn áður en hann konunni óverjandi og mun maðurinn fór og óviss um útkomuna. hikandi við að leggja i aðra ferð ef Er á veitingahúsið kom bað hann hannávonáslikum „trakteringum”. Nýjung á Hótel Loftleiðum Það er eins með osta og ástir - það tekur langan tíma að kynnast þeim í öllum sínu fínu blæbrigðum. Nægurtími og rétta umhverfið hefur líka sitt að segja. Komið á ostavikuna í Blómasalnum á Hótel Loftleiðum. Þar eru næg tækifæri til osta. Ostar, salöt og Ijúfar veigar. Auk þess býður hótelið upp á sérstakan matseðil af tilefninu. Eigið ostaævintýri á Hótel Loftleiðum, því lýkur 2. nóvember. Borðpantanir í síma 22321 HÓTEL LOFTLEIÐIR sMjó^ ■ '}■ Kaupirðu hljómplötur? Steinunn Þorsteinsdóttir: Já. Ég geri það og þá aðallega íslenzkar. Rannveig Einarsdóttin Já. Ég geri dálítið að því. Þó hefur það minnkað í þessari ótíð. Það eru einkum stórar útlendar plötur sem ég kaupi. Óskar Árnason: Nei. Ég kaupi ekki hljómplötur. Hins vegar hlusta ég á það sem útvarpið býður upp á og hrifnastur er ég af kirkjutónlistinni. Sigriður Daviðsdóttir: Nei. Ég kaupi ekki hljómplötur. Ég hef þó gaman af tónlist og hlusta einkum á létt klassiska tónlist í útvarpinu. Kristin Kristjánsdóttir: Ég geri það stundum og þá aðallega fyrir soninn, einkum þá diskó- og popptónlist. Sjálf hlusta ég aöallega á útvarp en kaupi þó stundum plötur fyrir sjálfa mig og einkum þá plötur með léttri klassiskri tónlist. Jón Guðlaugsson: Nei. Ég kaupi ekki hljómplötur en ég hlusta talsvert á út- varp og hef mest gaman af harmoníkumúsik.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.