Dagblaðið - 01.11.1978, Blaðsíða 6

Dagblaðið - 01.11.1978, Blaðsíða 6
6 DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 1978. Bretland: Hásætisræða drottningar líklegt talið að minnihlutast jórn Callaghans lif i af veturinn Elisabet Englandsdrottning flytur hásætisræðu sína í dag og þar með hefjast þingstörf að nýju i Bretlandi eftir sumarhlé. Hin hefðbundna ræða drottningar í lávarðadeild brezka þingsins mun gefa til kynna stefnu minnihlutastjómar Verkamanna- flokksins undir stjórn James Callag- hans. Callaghan mun reyna að stýra liöi sínu í gegnum skerjagarð stjórnmál- anna þrátt fyrir þaö að flokk hans skorti sex þingsæti til að hafa meiri- hluta. Búizt er við mjög harðri stjórn- arandstöðu Íhaldsflokksins, en talið er að Callaghan taki ekki neina meiri háttar áhættu með róttækri lagasetn- ingu. Verkamannaflokkurinn getur ekki lengur treyst stuðningi Frjálslynda flokksins i atkvæðagreiðslum. Þess í stað leitar Callaghan forsætisráðherra til skozkra og velskra þjóðernissinna. Til þess að tryggja sér hjálp þeirra á þingi hefur hann boðað að þjóðernis- sinnar bæði í Skotlandi og Wales fái aukna heimastjórn strax á næsta ári. Þjóðernissinnar hafa ekki komið vel út úr undangegnum skoðanakönnun- um og óttast því kosningar á næst- ■unni. Þeir hafa þvi þegar gefið í skyn, að þeir muni styðja stjórn Callaghans. Talið er aö Verkamannaflokkurinn muni standast fyrstu meiri háttar at- kvæðagreiðslu þingsins, en hún verður 9. nóvember nk. og þá um hásætis- ræðu drottningar, þ.e. stefnuræðu stjórnarinnar. Verkamannaflokkurinn hefur komið vel út úr skoðanakönnun- um aö undanförnu. Callaghan kemur nú til þings, vin- sælli en nokkru sinni fyrr. Hann hefur fengið almennan stuðning vegna harðrar afstöðu sinnar gegn launa- hækkunarstefnu. Með því móti hefur hann unnið verulega á verðbólgunni. Talið er vist, aö í ræðunni í dag verði mikil áherzla lögð á þetta atriði og einnig er víst að sigurinn á verðbólg- unni verður settur á oddinn i væntan- legri kosningabaráttu á næsta ári. Búizt hafði verið við kosningum nú í haust. Callaghan tók þó þá ákvörðun að efna ekki til kosninga, öllum að óvörum. Skoðanakannanir sýna að Verkamannaflokkurinn hefði e.t.v. unnið haustkosningar. EUsabet Bretadrottning mun I dag flytja hefðbundna hátfðaræðu sfna I lávarðadeild brezka þingsins. Ræðan er f raun stefnuræða brezku stjórnar- innar, en ekki er búizt við róttækum lagafrumvörpum, þar sem minnihluta- stjórn Verkamannaflokksins situr nú að völdum. París: Götur heims- borgarinnar f ullar af sorpi — vegna verkfalls sorpeyðingarmanna Sorphreinsunarmenn i Paris hafa verið i verkfalii að undanförnu. Og eins og sjá má á myndinni hefur enn ekki tekizt að leysa deilumál sorp- hréinsunarmanna og stjórnarinnar. Sorpið hrúgast því upp og er viða orðið óhrjálegt á götum heimsborgar- innar. Til þess að afstýra meiri vandræðum vegna sorpsins hefur hernum verið sagt að undirbúa hreinsunaraðgerðir. Vonazt er til þess að verkfallið leysist svo að ekki komi til þess að nota þurfi herinn. BilbaoSpáni: GRÍMUKLÆDDIR RÆNINGJAR KOMUST UNDAN MEÐ 30 MILUÓNIR PESETA SKAUT SON SINN —■ hélt að hann væri innbrotsþ jóf ur ÐYRA SÍMAR spara sporin lUkFVÖRUI? Sli LAUGARNESVEG 52 - SlMI 86411 Grímuklæddir ræningjar komust undan með 30 milljónir peseta, sem þeir rændu úr raftækjaverksmiðju á Bilbao á Spáni í gær. Sex karlar og tvær konur, vopnuð vél- byssum og skammbyssum, afvopnuðu öryggisverði verksmiðjunnar og komust síðan undan með fenginn i tveimur bíl- um. Engum skotum var hleypt af og enginn særðist í ráninu. Stjórn Kúbu hefur tilkynnt Banda- rikjastjórn nöfn á 289 pólitiskum föng'l um til viðbótar, sem Kúbanir vilja láta af hendi, sé Bandarikjastjórn fús að taka á móti þeim sem innflytjendum. Talsmaður bandaríska dómsmála- ráðuneytisins sagði í gær að unnið væri að því að kanna bakgrunn hinna póli- Lögreglan sagði að ekki væri kunnugt um hvaða ræningjar þarna voru á ferð, en leitt er getum að þvi, að þarna hafi farið félagar úr aðskilnaðarsamtökum Baska, ETA. Aðskilnaöarhreyfingin er ábyrg fyrir fjölda rána á þessum slóðum. Ránin eru framin til þess að fjármagna skæruliðabaráttu samtakanna, sem berst fyrir aðskilnaði og sjálfstæði Baskahér- aðanna á Norður-Spáni. tísku fanga og einnig færi fulltrúi Banda- ríkjastjórnar mjög fljótlega til Kúbu, til þess að ræða við málsaðila. Fjörutíu og sex fangar og fjölskyldur þeirra voru I hópi fyrstu pólitísku fang- anna, sem fengu að fara á þennan hátt frá Kúbu til Bandaríkjanna. Tuttugu og niu ára gamall maður i Courtenay i Frakklandi skaut átta ára son sinn til bana. Sonurinn hafði vaknað um miðja nótt og var þyrstur. Hann fór þvi fram úr i myrkrinu til að ná sér í vatn. Faðirinn hélt að þar væri innbrots- þjófur á ferð og skaut á drenginn með þessum hörmulegu afleiðingum. Fleiri pólitískir fangar frá Kúbu til Bandaríkjanna

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.