Dagblaðið - 01.11.1978, Blaðsíða 4

Dagblaðið - 01.11.1978, Blaðsíða 4
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 1978. DB á ne ytendamarkaði Hitaveituvatnið eyði- leggur bæði upp- þvottavéiina og leirínn I.Á.H. hringdi: í sumar birtist á Neytendasíðunni bréf frá konu sem sagði frá því að hún hefði látið tengja uppþvottavél sína við hitaveituvatn. Taldi konan sig spara þannig mikinn rafmagns- kostnað. Mig langar til þess að lýsa furðu minni á þessu uppátáeki kónunnar. Vel má vera að hún spari peninga á þvi að nota minna rafmagn með þvi að nota hitaveituvatn inn á uppþvotta- vélina. Hins vegar þolir viðkvæm uppþvottavél allsekki hitaveituvatnið, í því er kisill sem sezt i pakkningar og ventla vélarinnar. Þar að auki eyðileggur hitaveituvatnið smám saman leir og glös, sem ekki verður eins gljáandi þvegið úr sjóðandi hita- veituvatni. Uppþvottavélar eru mjög dýrar, — oft á tiðum erfitt að fá i þær varahluti — og þvi vafasamur sparnaður að spara rafmagns- kostnaðinn. Á mínu heimili höfum við notað uppþvottavél í nokkur ár með ágætum árangri. Okkur hefur reynzt bezt að skipta um uppþvottaefni af og til. Á markaðinum eru bæði til innlend og útlend uppþvottaefni fyrir uppþvotta- vélar og litill eða enginn munur á gæðum þeirra. Uppþvottavélar eru orðnar algeng heimilistæki á Islandi í dag. Ráðleggingar og uppskrittir Osta- og smjorsoiunnar eru sériega vandaóar og skemmtiíegar og i petm er aó tinna margar bæði einfaldar og handhægar uppskriftir. Þessar uppskriftir eru einnig þannig að þeim er hægt að treysta, — og næst góður árangur. Ostur á Loftleiðum Núna stendur yfir osta- og rauðvíns- kynning í Blómasal Hótel Loftleiða. Eru það Flugleiðir og Osta- og smjörsalan sem standa að kynning- unni og er hún i umsjón Hönnu Guttormsdóttur og Þórarins Guðlaugssonar. Full ástæða er til að hvetja fólk til að fara nú og bragða á hinum gómsæta islenzka osti sem er óðum að vinna sér vinsældir, heima jafnt sem erlendis. t fréttatilkynningu um ostakynninguna segir meðal annars: „Þótt fyrstu sagnir af ostagerð megi rekja til Súmera hinna fornu sem bjuggu í suðurhluta Mesópótamíu þrjú til fjögur þúsund árum fyrir Krist og að ostagerð hafi síðan breiðzt út til suðurhluta Evrópu sérstaklega, þá hafa þó framfarir og uppgötvanir tæknialdar riðlað ýmsum fyrri kenningum og aðferðum við gerð ostsins. Jafnframt hefur hæfni osta- gerðarmanna, sem byggist á skóla- göngu og verklegri þjálfun, aukizt hröðum skrefum, nákvæmni í vinnu- brögðum og hreinlæti er í hávegum haft og er nú islenzkur ostur sannkallaður veizlukostur. Á kynningunni er dreift upplýsingum um hinar ýmsu ostategundir og mönnum uppskriftiraðostaréttum. gefnar -DS. ítilefni ostakynningarinnar: HVER HEFÐI TRÚAÐ ÞVÍ?, A þremur mánuðum hafa Ársalir náð forustu í sölu notaðra bíla á íslandi. HVERNIG? ★ Með því að vera hlutlaus millilið- ur sanngjarnra kaupa. ★ Með því að skoða greiðslurnar sem seljendur fá— að þær séu góðar og gi/dar. ★ Með því að bjóða bílaeigendum ókeypis aðstöðu í stærsta bílasal landsins. Meðan húsrúm leyfir ertu velkominn með góðan, hreinan bíl. Opið 9—7, einnig á laugar- dögum. Alpaostakartöflur I tilefni ostakynningarinnar er uppskrift dagsins úr 27. ráðlegginga- bæklingi Osta- og smjörsölunnar. Alpaostakartöflubúðingur. 1—2 Alpaostar 1 egg 1 tsk. salt 1/4 tsk. pipar 1 dlmjólk lOOgGouda +45 1/2 kg soðnar kartöflur. Kartöflurnar eru skornar i sneiðar og þeim raðað i smurt, eldfast mót. Alpaostinum er hrært saman við mjólk og egg, það kryddað og síðan hellt yfir kartöflurnar. Rétturinn er bakaður við 200° C í 15—20 min. Með hráu grænmetissalati er þetta prýðisgóður hádegisverður en einnig er gott að bera þennan búðing fram með kjöt- eða fiskréttum. — í uppskriftinni er ekki getið um hvað gera eigi við Gouda-ostinn en senni- legast er að hann sé t.d. skorinn i bita og þeim raðað með kartöflunum, undir alpaostinn. Allur rétturinn kostar 809 kr. (þá er reiknað með tveimur öskjum af Alpaosti) og ef uppskriftin er fyrir fjóra kostar hver skammtur rúmar 200 kr. -A.Bj.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.